Morgunblaðið - 18.11.1977, Page 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. NÖVEMBER 1977
Basar Kvenfélags
Háteigssóknar
Leiðréttmg frá Verkalýðsfél-
laginu Báruiuii á Eyrarbakka
ARLEGUR basar Kvenfélags Há-
teigssóknar verður haldinn á
Hallveigarstöðum sunnudaginn
20. nóvember og hefst hann kl. 2
e.h.
Ég leyfi mér að benda velunn-
urum Háteigskirkju á þennan
basar. Er óhætt að fullyrða, að
þar standa til boða margir mjög
fallegir, nytsamir og eigulegir
munir eins og verið hefir á und-
anförnum árum, bæði munir, sem
konurnar hafa unnið og gjört
sjálfar og sömuleiðis aðrir munir,
sem þær hafa aflað og gefið til
basarsins. Einnig verður úrval af
kökum á boðstólum.
Andvirði þessara muna rennur
allt til kaupa á kirkjuklukkum til
Háteigskirkju. Höfuðáhugamál
Kvenfélags Háteigssóknar er nú,
að kleift verði að kaupa þessar
klukkur sem allra fyrst. Er fyrsti
undirbúningur hafinn til að festa
kaup á klukkunum. Vonandi liður
ekki langur timi þar til þær geta
hljómað Í turnum Háteigskirkju.
Kvenfélag Háteigssóknar hefir
allt 'frá stofnun þess lagt mikið af
mörkum tíl kirkjunnar, svo að
hún gæti talizt sem best búin og
ber konunum alúðarþakkir alls
safnaðarins. Að baki framtaki
þeirra liggur mikið starf og fórn-
fýsi. Á þessu ári hyggst félagið
leggja riflegan skerf til kaupa á
klukkunum, en þær eru mjög dýr-
ar og er þvi mikils um vert að vel
takist til með basarinn. Auk þess
er hér kjörið tækifæri til að
kaupa nytsama muni til gjafa á
jólum.
Er nú heitið á velunnara Há-
teigskirkju að bregðast vel við
með því að gera sér ferð að Hall-
veigarstöðum á sunnudaginn
kemur kl. 2 e.h. til að gjöra góð
kaup og til að styðja þetta áhuga-
mál Kvenfélags Háteigssóknar og
flýta þannig, svo sem auðið verð-
ur, fyrir þvi að kirkjuklukkurnar
hljómi á sínum stað í Háteigs-
sókn.
Eg óska Kvenfélagi Háteigs-
sóknar velfarnaðar í fórnfúsu
starfi.
Arngrímur Jónsson
VEGNA frásagna í sjónvarps-
fréttum s.l. sunnudag, þar sem
birt var viðtal við Þór Hagalín
sveitarstjóra á Eyrarbakka um
ástand atvinnumála í þorpinu,
sem ekki var hægt að skilja öðru
visi en svo að málin væru leyst,
samþykkti félagsfundur i verka-
lýðsfélaginu Bárunni á Eyrar-
bakka 15. þessa mánaðar að fela
formanni félagsins að koma á
framfæri þeirri leiðréttingu, að
enn eru málin i sama hnút og það
eitt hefur gerzt, að gefin hafa
verið loforð um einhverja fjár-
veitingu til breytinga á
hraðfrystihúsinu, sem fyrirsjáan-
lega leysir ekki þá hlið málanna
að húsið geti hafið rekstur næstu
mánuði. Þá samþykkti fundurinn
að lýsa yfir vonbrigðum sínum
með áhugaleysi þingmanna kjör-
dæmisins á að sinna þessum al-
varlegu vandamálum Eyr-
bekkinga en aðeins einn þeirra
hefur sýnt áhuga á vandamálum
staðarins með því að koma hingað
og halda fund með þorpsbúum til
þess að ræða þau alvarlegu vanda-
mál, sem hér eru í dag í brenni-
punkti.
Kjartan Guðjónsson
formaður.
P.S. Oskað er birtingar á
framansögðu f Morgunblaðinu,
þar sem sjónvarpið hefur ekki
orðið við óskum um að birta þessa
leiðréttingu.
K.G.
Kaffiboð fyrir
eldri bílstjóra
KVENFÉLAG Hreyfiis og Sam-
vinnufélagið hafa kaffiboð í
Félagsheimili Hreyfils nk. sunnu-
dag klukkan 15.00 fyrir alla bíl-
stjóra Hreyfils 67 ára og eldri og
konur þeirra. Öllum er heimilt að
koma mað gesti og kaupa kaffi.
Til skemmtunar verður litskugga-
myndasýning, upplestur og kveð-
skapur.
UTANKJORSTAÐAKOSNING
vegna prófkjörs um skipan framboðsiista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
við næstu alþingiskosningar, verður í Valhöll, Háaleitisbraut 1. Kosningin
hefst föstud. 11. nóv. og fer fram daglega milli kl. 5—7 e.h., en laugardag
frá kl. 10—3 og sunnudag frá kl. 2—5.
Utankjörstaðakosningunni lýkur föstudaginn 18. nóvember.
Utankjörstaðakosningin er þeim ætluð, sem fjarverandi verða úr borginni
aðalprófkjörsdagana 1 9., 20. og 21. nóvember, eða verða forfallaðir.
ÞANNIG LITUR KJORSEÐILLINN UT:
ATKVÆÐASEÐILL
í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík 19. - 20. og 21. nóvember 1977
Jón Ingvarsson, útgerðarmaður, Skildinganesi 38
Jónas Bjarnason, efnaverkfræðingur, Skeiðarvogi 7
Karl Þórðarson, verkamaður, Stóragerði 7
Klara Hilmarsdóttir, tækniteiknari, Drápuhlíð 47
Konráð Adolphsson, viðskiptafræðingur, Giljalandi 7
Konráð Ingi Torfason, býggingameistari, Heiðarbæ 6
Kristján Guðbjartsson, innheimtustjóri, Keilufelli 12
Kristján Ottósson, blikksmiður, Háaleitisbraut 56
^Kristjón Kristjónsson, forstjóri, Reynimel 23
j^igls^s^Michaelsdóttir, kennari, Suðurgötu 69
^Mjgflr^pffll^on, prentari, Snælandi 4
PáfrS. 4plssjP hæstaréttarlögmaður, Skildinganesi 28
Pétur Siguröison, alþingismaöur, Goðheimum 20
Pétur Sigurðsson, kaupmaður, Bergstaðastræti 77
Ragnhildur Helgadóttir, alþingismaður, Stigahlíð 73
Sigfús J. Johnsen, kennari, Fýlshólum 6
Sigurður Angantýsson, rafvirki, Langagerði 104
Sigurrós Þorgrímsdóttir, ritari, Ásgarði 77
Snorri Halldórsson, iðnrekandi, Gunnarsbraut 42
Sveinn Björnsson, iðnaðarverkfræðingur, Grundarlandi 5
Sverrir Garðarsson, hljómlistarmaður, Langholtsvegi 54
Albert Guðmundsson, alþingismaður, Laufásvegi 68
Bergljót Halldórsdóttir, meinatæknir, Laufásvegi 22
Bjarni Guðbrandsson, pípulagningam., Ljárskógum 4
Björg Einarsdóttir, ftilltrúi.-Einarsnesi 4
Elín Pálmadóttir, bláðamaðuj, Kfeppsvegi 120
Ellert B. Schram, alþingismaður, Stýrimanna^tig 15
Erna Ragnarsdóttir, innanhússárkitekt, Garðastr,seti 15*^,
Friðrik Sophusson, framkváPndasfíöri, Jm
Geir R. Andersen, fulltrúi, Sólvallagötu 59”^' iw
Geir Hallgrímsson, forsætisráðherra, Dyngjuvegi 6 Jj
Geirþrúður Hildur Bernhöft, ellimálafulltrúi.Garðastræti 44
Guðlaugur Bergmann, verzlunarmaður, Oddagötu 8
Guðmundur Ámundason, bifreiðastjóri, Akurgeröi 16
Guðmundur H. Garðarsson, alþingismaður, Stigahlíð 87
Gunnar Jónasson, verzlunarmaður, Akurgeröi 34
Gunnar Thoroddsen.félags-ogiðnaðarráðherra.Víðimel 27
Gunnlaugur Snædal, læknir, Hvassaleiti 69
Haraldur Blöndal, héraðsdómslögmaður, Drápuhlíð 28
Hilmar Fenger, stórkaupmaður, Hofsvallagötu 49
Hinrik Bjarnason, framkvæmdastjóri, Langagerði 21
Hrönn Haraldsdóttir, forstjóri, Hverfisgötu 49
Jón A. Björnsson, iðnverkamaöur, Kleppsvegi 72
ATHUGIÐ: Kjósa skalfæst8frambjóðendurogflest 12,- Skal það gert með því að setja krossa í reitina fyrir framan
nöfn frambjóðenda, sem óskað er að skipi endanlegan framboðslista.
FÆST 8 - FLEST 12
Ráðlegging til kjósenda í prófkjörinu:
Klippið út meðfylgjandi sýnishorn af kjörseðli og merkið það eins og þér hyggist fylla út atkvæðaseðilinn Hafið úrklippuna með yður
á kjörstað og stuðlið þannig að greiðari kosningu Minnist þess að kjósa á með því að merkja með krossi fyrir framan nöfn 8
frambjóðenda minnst og 1 2 mest.
Yfirkjörstjórn Sjálfstæðisflokksins i Reykjavik.