Morgunblaðið - 18.11.1977, Síða 12

Morgunblaðið - 18.11.1977, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1977 Krlstján Guóbjartsson Frjálsari útvarpsrekstur til verndar lýðrædinu Fjölmiðlar eru þau tæki sem almenningur á að nota til að koma skoðunum sínum á framfæri. Dagblöðin eru tiltölulega opin fyrir fólk til að skrifa í, og þarf almenningur að nota það meira en hann hefur gert, hins vegar er útgáfa dagblaðanna nokkuð dýr og er því ekki á allra færi að gefa I út blöð. Einn fjölmiðill er mjög mikið misnotaður og er það Ríkis- útvarpið, það má segja að Alþýðu- flokkurinn hafi ráðið málum þar alla tíð enda útvarpið verið rekið sem áróðursmaskína Alþýðu- flokksins og komið í veg fyrir Kristján Guðhjartsson frjálsan málflutning og skoðana- skipti. Útvarpið hefur stöðvað auglýs- ingar að geðþótta starfsmanna, smábarnasögur hafa verið lesnar i áróðursskyni ef þær hafa fallið í jarðveg vinstrikrata, þó að öllum almenningi hafi ofboðið málflutn- ingurinn. Þannig hafa vinstri menn hreiórað um sig í útvarpinu með alls konar þætti, til dæmis með viðtölum við fólk um landið og hafa þá verið valdir úr vinstri menn sem hafa fallið i jarðveg- inn. Misnotkun vinstri manna í útvarpinu sýnir að þeim er ekki treystandi fyrir forsjá opinberra stofnana, en því miður hefur Sjálfstæðisflokkurinn verið of værukær gagnvart þessum ósvífnu andstæðingum lýðræðis- ins. Það verður að fagna frumvarpi því sem Guðmundur H. Garðars- son flytur nú á alþingi um frjáls- an útvarpsrekstur og er vonandi að það verði ekki svæft í nefnd. Það er tiltölulega einfalt meó nú- tíma tækni að koma upp litlum útvarpsstöðvum, það yrði þvi á færi jafnvel einstaklinga að koma sér upp tækjabúnaði til útsend- inga. Gæðin færu svo auðvitað eftir meðferð efnis, myndi með þessum hætti skapast jöfn aðstaða fyrir almenning til að koma skoð- unum sinum á framfæri. Það mun leiða til fjölbreyttrar fréttaöflun- ar erlendis frá og fólk ætti þá kost á að fá fréttirnar frá fleiri sjónar- hornum. Þá ættu bæjar- og sveit- arfélög kost á að reka útvarps- stöðvar fyrir sitt byggðarlag, fólk með áhuga á einstökum málum ætti kost á að útvarpa þeim mála- flokkum t.d. eins og poppmúsík, harmonikku-þáttum, leikritum, rithöfundar gætu lesið kafla úr sögum sínum svo eitthvað sé nefnt. Þannig gæti fólk valið um margbreytilegt efni á sama tíma eftir eigin smekk og áhuga. Sjálfstæðismenn verða að standa vörð um lýðræði, þess vegna þarf að auka ritfrelsi og málfrelsi í fjölmiðlum. Stöndum vörð um frelsið með frjálsum útvarpsrekstri. Krist ján (judhjartsson innheimtustjóri Stjórnunarfélag íslands Arðsemi og áætlanagerð. Stjórnunarfélag íslands gengst fyrir námskeiði í arð- semi og áætlanagerð dagana 28.. 29. og 30. nóvem- ber næstkomandi. Námskeiðið verður haldið að Hótel Esju og stendur frá kl. 9—18. Tilgangur námskeiðisins er að veita þátttakendum aðgengilega og hagnýta þekkingu til beinna nota í daglegu starfi. Eftirtalin efnisatriði verða tekm til meðferðar: Hagnaðarmarkmið. Framlegð. Arðsemisathuganir. Verðmyndun og verðlagning. Framlegðarútreikningar i einstökum atvinnugreinum. Bókhald og ársuppgjör sem stjórntæki. Áætlanagerð. Eftirlit. Eggert Ágúst Sverrisson, viðskipta- fræðingur. Haustvaka í Hamraborg Leiðbeinandi á námskeiðinu verður Eggert Ágúst Sverrisson viðskipta- fræðingur. Á námskeiðinu verða notuð n argvisleg verkefni þar á meðal verkefni úr islenzku atvinnulífi, byggð á áralangri reynzlu i ráðgjöf i fjölda islenzkra fyrirtækja. Handbók i rekstrareftirliti er inmfalin i námskeiðsgjaldinu. Þátttaka tilkynnist í sima 82930. Biðjið um ókeypis upplýsingabækling. NORRÆNA félagið í Kópavogi efnir til haustvöku á sunnudag- inn 20. nóv. kl. 20.30 i Þinghóli, Hamraborg 11. Bergljót Hreinsdóttir, annar verðlaunahafi í ritgerðasam- keppni félagsins um vinabæi Kópavogs, segir frá dvöl sinni i Norrköping í Svíþjóð og nágrenni í sumar, en þangað var henni boð- ið af norrænu félögunum i Norr- köping og Kópavogi. Hrönn Hafliðadóttir syngur einsöng við undirleik Haflióa Jónssonar. Sigurður Þórarinsson segir frá Mývatnseldum hinum nýju og sýnir Iitskyggnur. Að lokum les Hjálmar Ólafsson nokkur Ijóð úr Smalavísum Þorsteins Valdimars- sonar. Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Dr. Sigurður Þórarinsson Bjóðið gestunum í Blómasálinn Það er skemmtílegt og stundum 1 Blómasalnum á Hótel Loftleióum nauðsynlegt að taka vel á móti fólki er glæsilegt kalt borð í hádeginu. — án sérstakrar fyrirhafnar. Þar að auki fjölbreyttur matseðill. Hvort sem um vináttu- eða Og notalegur bar. víðskiptatengsl er að ræða er þægi- legt og stundum ómetanlegt að geta setið og spjallað saman í ró og næói yfir góðri máltíð. HÓTEL LOFTLEIÐIR Opið 12-14.30 og 19-22.30. Sími 22322 'Þakkin Hjartans þakkir til allra, sem minntust mín á 75 ára afmæli mínu með gjöfum og vina- kveðjum. Megi Guðs náð og blessun vera með ykkur öllum. Jón Thorarensen Vinir þínir og viðskiptamenn erlendis fagna alltaf nýrri bókfrá ICELAND REVIEW Gleymdu ekki að póstsenda nýju bókina okkar í tæka tíð svo að hún berist fyrir jól eða áramót. Vönduð og fjölbreytt, litprentuð myndabók, kostar aðeins kr. 3,240 lcelandReview Sími 81590, Stóragerði 27, Reykjdvík.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.