Morgunblaðið - 18.11.1977, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1977
Sœnsk stúlka kjör-
in ungfrú alheimur
VMSIR borgarbúar ráku upp stór augu þegar fram hjá geystust
hálfgerðar ■strfðsminjar á fjórum hjólum með gjallarhorn á fullu og
undir lögregluvernd. Þarna var þá á ferð, þegar betur var að gáð, Gfsii
Rúnar, skemmtikrafturinn góðkunni, ásamt vinum sfnum í hermanna-
klæðum og gjálffar drósir f aftursætinu. Tilgangurinn: Að vekja
athygli á nýrri plötu sem hann stendur að um þessar mundir og helguð
er ástandsárunum hér áður fyrr. (Ljósm. Mbl. K. ÓI.)
London, 17. nóvember, Reuter
UNGFRU Svíþjóð, Mary Catrin,
glæsileg 20 ára gömul Ijóshærð
stúlka, var f kvöld kjörin ungfrú
Alheimur, Önnur f röðinni var
ungfrú Holland, 25 ára gömul, og
númer þrjú var ungfrú Þýzka-
land, sem er 23 ára.
Næstu fjórar, sem komust í úr-
slit voru: Ungfrú Brasilía, ungfrú
Bæjum, Djúpi:
Ein kýr
Bæjum Djúpi, 13. nóvember.
Nýlega voru fluttar frá Ármúla
I og II, í Nauteyrarhreppi 17 kýr
af 18 er þar voru — aðeins ein kýr
eftir til heimilisnota á öðrum
bænum, en hinn bærinn, Ármúli
2, kominn í eyði.
örfáar kýr eru þvi eftir þar í
sveit, allt ofaní eina á bæ, en á
sumum bæjum engin.
Þar í sveit var þó upphafleg
vagga mjólkursölu til ísafjarðar
uppúr 1930 er bændur þar, undir
forustu Jóns H. Fjalldais, bónda á
Melgraseyri riðu á vaðið með
mjólkursölu og flutning á henni
til Isafjarðar, og voru lengstum
hæstu mjólkurframleiðendur í
Djúpi. Var jafnvel svo framtak
þeirra bænda, að nokkur sumur
var mjólkin flutt þrisvar I viku á
sumrin til ísafjarðar, sem þó féll
niður löngum síðar, þar til nú
fyrir 3 árum að upp var tekið að
nýju.
Þann 1. þ.m. flutti Rósa Jó-
hannsdóttir, ekkja Sig. Hannes-
sonar, Ármúla 2, alfarin til Isa-
fjarðar, og þar með fór sá helm-
ingur Ármúla er hún sat á, í eyði,
en þar hefir hún búið eftir lát
man-ns síns í byrjun ársins 1976.
Rósu fylgja góðar óskir allra er
hana þekkja, — og þakkir fyrir
góð og göfug kynni. Það eru um-
skipti stór, og tómlegt nú heim að
bæ hennar að líta, — frá því að
Norskur
bátur
í erfið-
leikum
NORSKUR bátur átti I erfiðleik-
um f gærdag um 200 sjómílur
undan landinu, og var hann I sam-
bandi við Landhelgisgæzluna um
það hvort senda yrði varðskip
honum til aðstoðar.
Olíudæla i vél bátsins hafði bil-
að, og höfðu skipverjar samband
við Landhelgisgæzluna í gær-
morgun til að gera aðvart um að
þeir kynnu að þurfa á aðstoð að
halda. Sjálfir sögðust þó skipverj-
ar ætla gera hvað þær gætu til að
halda skipinu á ferð og seinnipart
dags hafði þeim tekist að koma
vélinni í það gott lag að þeir töldu
ekki ástæðu til þess að varðskip
kæmi þeim til hjálpar.
10. lands-
þing FÍB í
Kópavogi
TlUNDÁ landsþing Félags fs-
lenzkra bifreiðaeigenda verður
haldið um helgina að Hamraborg
1 f Kópavogi. Þingið verður sett
kl. 9.30 á Iaugardag.
Aðalumræðuefni þingsins
verða vegamál, en um 40 fulltrúar
og umboðsmenn víðs vegar að af
landinu munu sitja þingið sem
lýkur á sunnudag.
Bretland, ungfrú Bandaríkin og
ungfrú Ástralía.
Hin nýkjörna ungfrú alheimur,
sem hefur áhuga á að verða leik-
fimikennari, fær niu þúsund
bandarikjadali í verðlaun og
henni hafa borizt mörg tilboð um
ljósmyndafyrirsætustörf.
Það var síðasta ungfrú
alheimur, sú með úfna hárið, frá
Jamaica, sem krýndi sænsku
fegurðardrottninguna.
af átján
mæta þar ávallt rausn velvildar
og einstökum þjóðlegheitum.
Á hinum helmingi Ármúla búa
nú hjónin Kristján Hannesson og
Guðbjörg Jónsdóttir, sem aðeins
verða þar tvö síns liðs í vetur. Er
svo víðar hér f Djúpi að aðeins
hjónin eru allt heimilisfólkið á
bæjum, og má því ekki mikið útaf
bera, að ekki horfi til vandræða,
þar sem á sumum þessara bæja
eru stór bú.
Vetur er nú lagstur að hér með
snjófölva yfir allt. Þorskafjarðar-
heiði ófær öllum bílum, en von
um að verði mokuð ef bregður til
betri tiðar. Slátrun er lokið hjá
Kaupfélagi Isfirðinga, og gekk vel
í haust. Slátrað mun hafa verið
þar um 11. þús. fjár. Nokkuð er
farið að flytja af mjólk til
Isafjarðar, frá Reykjavík, og
Akureyri, en vikusala á Isafirði
er um 18 þús. lítrar, auk rjóma.
Nokkru meira mjólkurmagn berst
frá vestursvæði Mjólkursamlags-
ins en Djúpsvæðinu, en samgöng-
ur yfir Breiðadalsheiði orðnar
ótryggar vegna snjóa.
Jens.
— Vék naumast
orði að varn-
armálum
Framhald af bls. 2
skipulagi orkumála, eitt sölufyrir-
tæki raforku um land allt, sam-
fellt drefikerfi og sama verð fyrir
hverja orkueiningu án tillits til
þess hvar notandinn væri stað-
settur á landinu. 1 niunda lagi
nefndi Ragnar að skýrar línur
yrði að draga milli sameignar og
séreignar og nefndi þar að orka
yrði að vera sameign allra lands-
manna í formi heita vatnsins og
hins rennandi. I tíunda lagi
nefndi hann að bæta þyrfti félags-
legan aðbúnað fólks, í húsnæðis-
málum o.fl.
Fundarstjóri á þessum fyrsta
fundi landsfundarins var kjörinn
Guðjón Jónsson, en fundarritari
Álfheiður Ingadóttir. Er Ragnar
Arnalds hafði flutt ræðu sina tók
Benedikt Davíðsson til máls og
flutti skýrslu verkalýðsmálaráðs
flokksins. Þá tók til máls Arthúr
Morthens og flutti skýrslu æsku-
lýðsmálaráðs. Að ræðu hans lok-
inni undir Iiðnum „almenn um-
ræða“ kvaddi sér hljóðs Erlingur
Sigurðarson og flutti tillögu síria
og Gunnlaugs Ástgeirssonar um
að eins konar forval yrði haft á
fundinum, skoðanakönnun meðal
landsfundarfulltrúa um hverjir
þrir menn skyldu skipa æðstu
embætti flokksins, en á þessum
fundi ber að kjósa nýjan formann
pg nýjan ritara, þar sem Jón
Snorri Þorleifsson gefur ekki
kost á sér. Gerði hann tillögu um
að menn rituðu á miða niður 3
nöfn og hvaða embætti þeir
skyldu gegna. Yrði þessi skoðana-
könnun síðan sá tórtn, sem kjör-
nefnd miðstjórnar hefði til þess
að „magna upp“ eins og Erlingur
komst að orði, en greip þá einn
fundarmanna fram í og sagði:
„Eða drepa niður." Þá gerði
nefndanefnd tillögur um skipan
kjörnefndar miðstjórnar og að í
nefndinni yrðu 10 menn. Kom
fram tillaga á fundinum um
Erling Sigurðarson og varð þá að
ráði að nefndin yrði 11-manna
nefnd. Síðan óskaði Guðjón Jóns-
son fundarstjóri eftir að menn
tækju til máls.
Tillögunni var síðar vísað til
kjörnefndar miðstjórnar og skal
hún gera tillögur um hvernig
farið skuli með þessi mál.
— Bifröst
heilsað
Framhald af bls. 2
hektará Iands til ráðstöfunar.
Þá sagði Finnbogi einnig að
hugmyndin væri að skipið yrði
notað til útflutnings á fiski í
ferðum frá landinu. En stór
hluti þeirra 112 er hlut eiga i
skipinu fæst einmitt við fiskút-
flutning.
I stjórn Skipafélagsins Bif-
rastar sitja eftirfarandi: Þórir
Jónsson, Sigurður Njálsson,
Jón Guðmundsson, Ragnar
Ragnarsson, Ásgeir Gunnars-
son, Geir Þorsteinsson, Ingi-
mundur Sigfússon og Bjarni
Magnússon. Tjáði skipstjóri
blaðamönnum, að allnokkrir
skipverja ættu hlut í skipinu.
Samkvæmt upplýsingum
Þóris Jónssonar, stjórnarfor-
manns félagsins, er hér um að
ræða stórt skref fram á við í
innflutningsmálum lands-
manna. Hann sagði að bílainn-
flytjendur þyrftu nú ekki
lengur að vera öðrum háðir um
innflutning á varningi sínum.
Var jafnvel að heyra á stjórnar-
mönnum félagsins að takast
mætti að kaupa annað flutn-
ingaskip til landsins áður langt
um liði.
Fyrsti stýrimaður á Bifröst er
Jón Ævar Þorgeirsson, en
fyrsti vélstjóri er Sigurjón
Þórðarson. Að sögn Finnboga
Gíslasonar framkvæmdastjóra
mun skipið sigla með stykkja-
varning til Bandaríkjanna á
morgun.
— Ferð Sadats
Framhald af bls. 1
dæmdu heimsóknina og báðu Sa-
dat að aflýsa henni.
I Washington eru menn furðu
lostnir yfir heimsókninni og af-
sögn Ismail Fahmi utanríkisráð-
herra sem er talin staðfesta þá
skoðun að heimsóknin muni mæta
harðri mótstöðu heima fyrir í
Egyptalandi. Carter forseti hefur
hrósað Sadat fyrir að sýna það
hugrekki að fara til Israels.
Sérfræðingar telja að deilur
milli Sýrlendinga og Egypta muni
seinka friðartilraunum í Miðaust-
urlöndum. Þeir telja að Irak,
Líbýa og Palestínumenn, sem
harðast hafa barizt gegn Israels-
mönnum, muni fá byr i seglin.
Sumir telja að Sadat vilji sýna
heiminum að Arabar vilji frið og
að Israelsmenn beri ábyrgðina ef
þeir taki ekki við útréttri hendi
hans. Aðrir telja að Sadat vilji
dreifa athyglinni frá efnahags-
vanda Egypta.
I Damaskus sprakk sprengja
rétt hjá egypzka sendiráðinu þar í
kvöld en engan sakaði.
— Olíustefna
Framhald af bls. 1
um að fá að kaupa viðbótarbirgðir
af fullkomnum bandarískum her-
gögnum.
Embættismenn í Washington
segja að bandariska stjórnin muni
reyna að nota sér stuðning Irans-
keisara til að fá önnur olíufram-
leiðsluríki til að halda olíuverð-
inu óbreyttu á næsta ári.
En Powell biaðafulltrúi gaf í
skyn að bándariska stjórnin væri
ekki bjartsýn um að önnur OPEC-
ríki mundu fylgja fordæmi írans-
keisara. Hann. sagði að OPEC-
ráðherrar töluðu um mikla verð-
hækkun í einkasamræðum og enn
væri engan veginn víst hvaða
ákvörðun þeir tækju.
I Teheran hafa stúdentar mót-
mælt heimsókn keisarans til
Washington tvo daga i röð og í
dag réðust þeir á stúdentagarð,
brutu rúður og skemmdu strætis-
vagna.
— Liðlega 20
árekstrar
Framhald af bls. 32.
heiði og Hálfdán fær stórum bíl-
um og jeppum og góð færð var í
nágrenni Patreksfjarðar. Hins
vegar voru Breiðadalsheiði,
Þorskafjarðarheiði og Hrafnseyr-
arheiði ófærar.
Fyrir norðan var stórum bílum
og jeppum fært yfir Holtavörðu-
heiði og norður í Skagafjörð, en
öllum bílum siðan fært milli
Skagafjarðar og Eyjafjarðar.
Hins vegar var ófært milli Sauð-
árkróks og Siglufjarðar og i gær
var verið að ryðja veginn til Dal-
vikur, en ófært er til Ólafsfjarðar.
Frá Akureyri var stórum bílum
og jeppum fært um Dalsmynni til
Húsavíkur, en verið var að ryðja
leiðina áfram fyrir Tjörnes og i
Kelduhverfi fyrir Sléttu til Rauf-
arhafnar. Síðan var stórum bílum
og jeppum fært til Þórshafnar, og
verið var að ryðja milli Þórshafn-
ar og Bakkafjarðar, en Sandvik-
urheiði er ófær. I sunnanverðri
Þingeyjarsýslu er Mývatnssveit-
arvegurinn ófær, en verið var í
gær að ryðja upp Aðaldalinn.
Austanlands átti í gær að ryðja
leiðina i Hróarstungu og einnig til
Seyðisfjarðar og Vatnsskarð yfir
til Borgarfjarðar og Fagradal,
sem var orðinn þungfær. Hins
vegar var ófært um Oddsskarð.
Fært er um suðurfirðina og hring-
veginn allt til Reykjavíkur.
- Greiðslufrestur
Framhald af bls. 15
veginn aðeins hagstæður verzlun-
inni, því harin kæmi iðnaðinum
líka að nokkru til góða enda þótt
aðalinnflutningur hans séu toll-
frjáls hráefni.
En á móti þessu öllu kemur svo
spurningin um það, hvort það yrði
raunverulaga hægt að fara yfir í
þetta kerfi. Þar skiptir mestu
máli greiðsluþol ríkissjóðs og
bankakerfisins, Seðlabankans og
spurningin þá hvort rikissjóður
geti brúað það bil, sem skapast,
þegar gjaldfrestur yrði fyrst tek-
inn upp.
En verði farið yfir i þetta nýja
kerfi, er augljóst að það verður að
taka upp í áföngum til að draga úr
of snöggum áhrifum þess á rekst-
ur ríkissjóðs."
Þegar Mbl. spurði, hversu lang-
an gjaldfrest nefndin hefði í
huga, svaraði Asgeir: „Margir
hafa talað um, að 70 daga gjald-
frestur væri það stytzta, ef eitt-
hvert gagn ætti að vera að þessu,
en mér sýnist nú af athugunum
að 45 daga greiðslufrestur ætti
tvímælalaust að koma að fullum
notum."
Með Ásgeiri í nefndinni eru
Björn Hermannsson, tollstjóri,
Halldór V. Sigurðsson, ríkis-
endurskoðandi, Hjalti Pálsson,
framkvæmdastjóri, og Júlíus Sæ-
berg Ólafsson, skrifstofustjóri.
— Croissant
Framhald af bls. 1
minnsta kosti tvo eða þrjá mánuði
og ekki fyrr en þau hafa verið
vandlega undirbúin að sögn tals-
manns yfirvalda í dag.
Framsal Croissants hefur vakið
mikla reiði vinstrisinnaðra stuðn-
ingsmanna hans í Frakklandi sem
telja að yfirvöld hafi afgreitt mál-
ið með miklum hraða.
Vestur-þýzk blöð fagna hins
vegar framsali hans í dag. Frank-
furter Ailgemeine sagði að sá úr-
skurður fransks dómstóls að
heimila framsal Croissants hafi
dregið úr líkum á þvi að öfga-
menn og stuðningsmenn þeirra
geti fengið hæli sem pólitiskir
flóttamenn í nágrannalöndum.
— Veiði Breta
Framhald af bls. 1
veiðihólfi 12 og 24 milur frá
grunnlínum. Nú verða innri
mörkin ákveðin 14 mílur þannig
að veiðar verða aðeins leyfðar á
svæði milli 14 og 24 sjómilna.
Færeyingar settu það skilyrði
þegar siðasti samningur var gerð-
ur að engar takmarkanir yrðu
settar á spærlingsveiðar á
Norðursjó á samningstímanum.
— Ný verðlags-
loggjof
Framhald af bls. 2
færing að lagfæra lægstu
álagningarflokkana, það er visitölu-
vörurnar, en láta hæstu flokkana
standa í stað, eða jafnvel lækka þá.
Þegar svona flöt hækkun kemur
ofan á allt, þá hækka hæstu
flokkarnir mest og lægstu flokkarnir
minnst, og þannig kemur þetta ákaf-
lega misjafnt út.
En vissulega var kominn tími til
leiðréttingar, þar sem álagningin
hefur ekki verið hreyfð síðan í april
1975 og sú lagfæring, sem þá var
gerð, bætti að hluta fyrri skerðingar.
Með þetta í huga og svo þær
hækkanir, sem dunið hafa yfir, til
dæmis bara á þessu ári 60%
hækkun launakostnaðar, þá er Ijóst
að verzlunin stendur afar illa að vigi
hvað afkomu snertir. Enda hafa
komið frá Þjóðhagsstofnun á þessu
ári tölur, sem sýna að verzlunin
stendur illa og sumar greinar hennar
afar illa.
En höfuðmálið i okkar huga er að
sjá frumvarp að nýrri verðlagslög-
gjöf, sem var eitt atriða málefna-
samnings núverandi rikisstjórnar,
með áherzlu á frjálsa samkeppni Ég
bendi bara á eggin sem dæmi um
vöru. þar sem frjáls samkeppni
hefur ríkt, en allir vita, hvernig hin
frjálsa samkeppni kom þar fram i
verðlækkun til neytenda.”