Morgunblaðið - 18.11.1977, Page 28

Morgunblaðið - 18.11.1977, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1977 vtrt MORöJN- ^ KAffínu s s_>. (I! .r*L. __ f eT-o_ Og þetta er deildin, sem framleiðir heimabökuðu kökurnar okkar. Náunginn sem á að koma fram í tóbaksauglýsingunni, getur ekki komið fyrr en hóstakastið er liðið hjá. Hefur þér aldrei dottið f hug að gerast stjórnmálamaður? BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Þegar spilið hér að neðan kom fyrir gerði sagnhafi dálftið óvenjulegt strax eftir fyrsta slag. Hann lagði spil sfn á borðið og sagði: „Eg á tólf slagi beint og sá þrettándi kemur örugglega með kastþröng, falli spaðinn ekki.“ Eins og vel uppalin börn litu aust- ur og vestur hvor á annan, ypptu öxlum og vestur fór að gefa næsta spil. Suður var gjafari og allir á hættu. Vestur S. 104 H. 1072 T. 1065 L. 109874 Norður S. KD5 H. ÁK6 T. AG L. KG532 Suður Austur S. G973 H. 9854 T. D9874 L. — Skilurðu ekki ennþá maður — þetta er ekki leikur? Verðurðu ekki brátt fullorðinn? Þannig spyr bréfritari sá sem hér hefur sent pistil og ræðir um barnaskap í umferðinni, en það er áreiðanlega mörgum hollt að velta þeim hugleiðingum svolitið fyrir sér: „Þegar ég heyrði vörð laganna segja þetta minntist ég dag- draumsins, sem var svo áleitinn þegar ég var 10 ára: Ég sá sjálfan mig þjóta um á mótorhjóli á óskaplegri ferð og hávaðinn frá vélinni var yfirþyrmandi. Ég sá fólk standa og horfa agndofa á þessar stórfenglegu aðfarir og segja hvað eftir annað: „Drottinn minn, hvað drengurinn er klár“, kraftmiklum amerískum fólksbíl- um, margir með hjólbarða af slíkri yfirstærð, að hjólin verka eins og bólgukeppir á líkama, og skellirnir í mótorunum svo ferleg- ir, að ekkert er til samjafnaðar nema glóðarhaussmótorarnir gömlu, enda er hljóðkúturinn á bak ög burt. Tekið er af stað svo fruntalega að grjóthríðin stendur aftur af bílunum, eða að hvín og syngur í öllu, ef malbik er undir. Aksturinn er svo eftir þvi, allt i botni, jafnvel á mjóstu íbúðargöt- um, og ýlfrar í hjólbörðunum í hverri beygju; en fólk stendur eða „hvað hann er kaldur að þora að aka á þessum ofsalega hraða, og svo þessi magnaði hávaði, sem gerir þetta allt svo stórkostlegt". En „þau ár eru liðin og koma aldrei aftur" og ég hélt að þannig væri með okkuröll, að dagdraum- ar bernskuáranna yrðu smám saman aðeins skemmtileg endur- minning, er við tækjum að sinna áhugamálum, sem hæfðu síðari aldursskeiðum. En viti menn, svo kemur það bara upp úr dúrnum, alveg ófor- varendis, að auðsjáanlega hafa einhverjir orðið eftir og stoppað við 10 ára aldurinn og eru nú i óða önn að koma dagdraumum bernskúáranna í verk. Nú þeysa nokkrir þeirra um göturnar á agndofa yfir þessum furðulegu aðförum. Síðastliðið sumar gerði einn af þessum hálfvitum sér lítið fyrir og setti bilinn sinn á hliðina í beygju hérna í miðju íbúðar- hverfi i Langholtinu. Fyrst heyrð- ist ýlfra í hjólbörðum og síðan undirgangur. Þegar komið var að lá billinn á hliðinni á miðri götu. Einn lögreglumaðurinn, sem kom á vettvang spurði kauða hvernig í ósköpunum hann hefði komið þessu í kring. „Nú, helvítis tíkin þoldi ekki beygjuna," var svarið. Lögreglumaðurinn ansaði ekki svona fáfengilegu tali, en spurði þess í stað dálítið raunamæddur. „Heldurðu ekki að við megum eiga von á að þú farir nú bráðum að verða fullorðinn?" B“ S. A832 H. DG3 T. K32 L. ÁD4 Suður hafði opnað á einu grandi, sem norður hækkaði beint í sjö grönd. Og vestur spilaði út lauftiu. Varnarspilararnir voru báðir reyndir og vissu að ekki þýddi að berjast gegn kastþröng. En annars hefði suður spilað spil- ið þannig. Austur lét tígul í fyrsta slaginn og suður hefði strax athugað spaðaleguna. Þegar vestur lætur hjarta í þriðja spaðaslaginn eru hjartaslagirnir teknir og eftir það er staðan þessi: Norður S. — H. — T. ÁG . L. KG53 Vestur Austur S. — S. G H. — H. 9 T. 106 T. D987 L. 9874 L. — Suður S. 8 H. — T. K32 L. D4 /jji tigullinn hefur nú verið píndur af vestri og þá er bara austur eftir. Og hann finnur pressuna þegar laufslagirnir eru teki Hann má missa hjartað og einn tígul en þá á hann ekki fleiri afköst án þess að gefa þrettánda slaginn. RETTU MER HOND ÞINA Framhaldssaga eftir GUNNAR HELANDER Benedikt Arnkelsson þýddi J 97 Nokkrum dögum slðar gekk Erik einn síns liðs niður að höfninni 1 Durban. Nokkrir dagar voru liðnir, og hann hafði jafnað sig að mestu eftir holskefluna. Félagar hans höfðu reynt að fá hann með sér 1 öldureið, en honum hafði tek- izt að sleppa. Hann langaði til þess að vera einn og hugsa í næði. Hann hafði ekki enn þá getað talað við neinn um Mull- ah, og sfðustu dagana hafði það verið honum raun að fara fil vinnu, enda vissi enginn þar, hvað bærðist innra með honum. Hann kom á Esplanaden, hina breiðu og snyrtilegu strandgötu Durban, sem lá með fram innri höfninni. Akbraut- irnar tvær voru skildar að með iðjagrænum grasteigum. Þar uxu pálmar og undurfögur, blómstrandi jakarandetré. Hann gekk undir pálmunum með hendurnar í treyjuvösun- um og tók varla eftir manngrú- anum og hinum látlausa straumi bíla. sem þusti fram hjá á malbikaðri götunni. Hann tyllti sér á bekki til þess að geta hugsað eins og maður. En það fór hroJlur um hann, þegar hann sá einkunnarorð Suður- Afríku á bekkbakinu: AÐEINS FYRIR HVlTA MENN. Þétt, hvítt mistur býrgði fyrir útsýnið og lagðist yfir Durban, þessa fegurstu borg Afrfku, sem var vel hirt, áhyggjulaus og grimm. Að haki honum hljómaði hinn eilífi umferðarniður stórhorgarinn- ar. Hann krosslagði handlegg- ina og velti vöngum. Hvers vegna skaut mér upp f þessu vfti? Það er svo órökrétt, sem mest má vera. Ilér er ég einn míns liðs f Afrfku, einn og bláfátækur. Nú hef ég misst bæði Mary og Ahmed, Mary af því að ég gerði eins vel og ég gat, Ahmed af því að ég gat gert belur. En vonandi hef ég þó haft eitthvert gagn af þessu. Eg hef lært svolftið að þekkja sjálfan mig, og ég er farinn að skilja að nokkru vandamálin f þessu landi, ég hef séð þau Ifka innan frá. Hver atburður hefur þokað mér spiilkorn áfram. Gegn vilja mínum. Mér finnst eins og ég hafi elzt um tuttugu ár, sfðan ég kom f land í Höfðaborg. Hann sat með háiflokuð aug- um og lét langa röð mynda Ifða framhjá: Mullah og Smeardon f Brimingham, umræðurnar við Mary við klettana á Sankti Hel- enu, pyndingarnar f Brakpan, hvítu sjúklingana á sjúkrahús- inu, kveðjustund hans og Jan- et, hina furðulegu fjölskyldu Mary. Kynblendinginn, vasa- þjófinn, seiðmanninn og kon- ungssoninn á Jagersdrift, aga- pesamtalið við Örn. Tungela- dalinn, þar sem sægur svert- ingja gerði uppreisn, yfir- heyrslur Martyns og brevtingin á skýrslunni, kveðjustundina með Mullah. Nú fer það loksins að Ijúkast upp fyrir mér, hvernig þel- dökkum mönnum Ifður. Það er Ahmed að þakka... En lausn þessara vkridamála — í þeim efnum hefur tjrn einn rétta sjón. Erik sat þarna lengi og hugs- aði. Hann fór að greina réttu ieiðina fram á við, langvinnaog erfiða haráttu við kúgunina, baráttu á vinnustaðnum og meðal félaganna. En hann hafði að minnsta kosti örn og Janet sín megin til að byrja með. Svona, réttu mér nú hönd þfna, við tökumst f hendur þvf til staðfestingar, að við ætlum að standa saman... Ahmed, góði, gamli vinur, þú hefur ekki lifað og dáið til einskis. £g vil taka þinn málstað... Austangola fór að berast utan af hafi. Hún dreifði þokumistr- inu og ýtti hvftum þokubólstr- un; á undan sér. Það gefst út- sýn á ný, og Erik leit yfir vfð- áttumikinn Durbanflóann, f áttina til skógivaxinna hæð- anna undir vitabjarginu hinum Imegin. Það birtí æ meir f huga hans. Loksins var hann að verða fullorðinn. SÖGULOK.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.