Morgunblaðið - 18.11.1977, Page 32
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
3K*rðitnIiUbi&
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1977
Akvörðim um vaxta
breytingu í dag ?
ÁKVÖRÐUN verður í dag
tekin um vexti næstu þrjá
mánuði og verður hún tek-
in í framhaldi af útreikn-
ingi vísitölunnar, sem
kunngerður verður af Hag-
stofu íslands.
Allt rólegt
við Kröflu
IVIJÖG k.vrrt var á Kröflusvæðinu
f gær og samkvæmt upplýsingum
skjálftavaktar mældust einungis
sjö skjálftar fremur smáir, frá kl.
7 á miðvikudagsmorgun til kl. 7 f
gærmorgun. Landris heldur
áfram með svipuðum hraða og
áður.
Jóhannes Nordal, Seðla-
bankastjóri, sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær að
endanleg ákvörðun yrði
tekin í dag um upphæð
vaxta. í gær var bankaráðs-
fundur í Seðlabankanum
um þessi mál, en á þeim
fundi var ekki gengið end-
anlega frá vaxtamálunum.
Þeir vextir, sem gilt hafa
undanfarið, hafa gilt sið-
ustu 3 mánuði, en sam-
kvæmt þeirri vaxtastefnu,
sem höfð er uppi nú, eru
vextir endurskoðaðir um
leið og nýr útreikningur
vísitölunnar liggur fyrir.
Hegningarhúsið:
Fangi kveikti ídýnu
og tæma varð húsið
FANGI einn í Hegningar-
húsinu við Skólavörðustíg
kveikti í rúmdýnu í kiefa
sínum síðdegis í gær. Mikill
reykur barst um allt húsið
og varð að flytja 5 fanga í
fangageymsluna við
Hverfisgötu, en þrír
fangar voru fluttir til von-
ar og vara á slysadeild
Borgarspítalans vegna
vægrar reykeitrunar að því
er talió var.
Erfiðlega gekk að komast
inn til fangans til þess að
slökkva eldinn, því hann
hafði sett rúmið sitt þvert
fyrir dyrnar. Það tókst að
lokum og gengu menn hart
fram við slökkvistörfin.
Mikill reykur barst um allt
húsið og var það tæmt.
Verður það látið standa
autt í nótt og loftað út úr
því. Fanginn, sem kveikti í
dýnunni sinni, var einn
þeirra, sem fluttur var á
slysadeildina en hinir tveir
fangarnir voru þeir, sem
duglegastir voru við
slökkvistörfin.
(Ljósm. Mbl. Frióþjófur)
Myndin er tekin í lest bflaflutningaskipsins Bifrastar, er kom til landsins í gær.
Koma má fyrir fjórum þilförum í lestinni við flutning á bflum. Sjá frétt á bls 2
Metsöltun á Suðurlandssíld:
Verðmætið nálg-
ast 4 milljarða kr.
HEILDARSÖLTUN á sfldarvertfðinni nú var f fyrrakvöld oróin 140
þúsund tunnur, og er það metsöltun á Suðurlandssfld frá upphafi vega,
um þremur þúsund tunnum meira en eldra söltunarmetið frá 1962. Að
sögn Gunnars Flóvenz, framkvæmdastjóra Sfldarútvegsnefndar má
samkvæmt lauslegri áætlun geta sér til að heildarverðmæti þessa afla
sé um 3,7 milljarðar króna og verði um 4 milljarðar króna þegar
vertfðinni lýkur. Sfldarafurðir eru þannig á ný orðnar veigamikiil
þáttur f þjóðarframleiðslunni.
Síldarvertfðinni er lokið á Höfn
í Hornafirði, þar sem rekneta-
bátarnir þar eru búnir að fylla
aflakvóta sinn. Þar var saltað í
tveimur stöðvum — tæpar 28
þúsund tunnur hjá söltunarstöð
Fiskimjölsverksmiðjunnar og
tæpar 9 þúsund tunnur hjá
söltunarstöðinni Stemmu, þannig
að samtals voru saltaðar á Höfn
um 37 þúsund tunnur. Til fryst-
ingar fóru liðlega 2 þúsund tonn.
Tunnufjöldinn hjá fyrrnefndu
söltunarstöðinni er hinn mesti
sem vitað er um að hafi verið
saltaður hjá einni stöð hér á
landi. Þessa árangurs var líka
minnst sérstaklega með því að
Kaupfélagið bauð starfsmönnum
stöðvarinnar til sérstaks fagnaðar
sl. laugardag og kom þar fram hjá
kaupfélagsstjóranum að
verðmæti þeirrar sildar sem farið
hefði um kauptúnið á þessari
vertið væri um einn milljarður
króna.
Að sögn Gunnar Flóvenz hjá
Síldarútvegsnefnd hefur verið
fremur lítil síldveiði síðustu daga.
Reknetabátar hafa þegar fyllt það
aflamagn sem þeim var markað í
upphafi vertíðar, en hins vegar
hefur veiðitími verið framlengd-
ur fyrir þau hringnótaskip, sem
siðbúin urðu til þessara veiða, og
mega þau stunda síldveiðar til 27.
növember nk. Mun láta nærri að
unnt eigi að vera að veiða enn um
3 þúsund tunnur.
Þýzki sigl-
ingamaðurinn
lagður í’ann
ÞVZKI siglingamaðurinn sem
birtist skyndilega í Siglufirði
eftir að hafa siglt einn sfns liðs
frá Noregi, er nú farinn frá
Siglufirði og hyggst hann fara
vestur fyrir landið og til
Reykjavfkur að þvf er bezt er
vitað.
Reyndum sjómönnum i
Siglufirði þykir þetta töluverð
fífldirfska, því að bæði var
veður ekkert alltof gott þar
nyrðra f gær og nú er sá árs-
tími er allra veðra er von. Til-
kynningaskyldunni hefur ver-
ið gert aðvart um ferðir skút-
unnar.
Ljósm. Mbl. KAX
Snjórinn virtist koma flatt upp á margan ökumanninn suðvestanlands
en konan hér á myndinni er samt við öllu búin.
Höfuðborgarbúar vanbúnir fyrir veturinn:
Liðlega 20 árekstrar
í snjókomunni 1 gær
HÖFUÐBORGARBtlAR fengu f
gær að kenna á fyrstu snjókomu
vetrarins, sem heitið getur, og f
Ijós kom að margir bifreiðaeig-
endur og ökumenn voru ekki
meira en svo undir hana búnir.
Nokkur hálka myndaðist á götum
og f gærkvöldi voru árekstrar
orðnir nokkuð yfir 20 talsins.
Engin meiriháttar slys urðu þó f
umferðinni f gær en litlu mátti
muna að illa færi á Reykjanes-
braut, eins og fram kemur annars
staðar f blaðinu.
Ekki spilltist færð að ráði i snjó-
komunni í gær, en snjórinn blaut-
ur og hann þiðnaði fljótt. Sam-
kvæmt upplýsingum Vegaeftir-
litsins var víðast hvar þokkalegt
ástand á helztu þjóðvegum lands-
ins. Vegir á Snæfellsnesi voru
þannig vel færir, öllum bifreiðum
fært um Heydal og norður í Gils-
fjörð, en hins vegar var Bratta-
brekka aðeins fær jeppum og
stórum bílum, og færð mun hafa
verið tekin að þyngjast í Reyk-
hólasveit. Ófært var um Hálsana,
en á Vestfjörðum voru t.d. Kleifa-
Framhald á hls 18.