Morgunblaðið - 27.11.1977, Page 2

Morgunblaðið - 27.11.1977, Page 2
34 MORGUNBLAPIÐ, SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1977 Menachem Begin Deilan um hver sé réttur Israelsmanna og Araba er kjarni deilnanna fyrir botni Miðjarðarhafsins, og enginn getur efast um að nýtt stríð — og jafnvel ný strlð — verði óhjákvæmileg afleiðing ef ekki nást sættir um þetta atriði. Þetta grundvailaratriði er þungamiðja málsins, en um þessar mundir er það Menachem Begin sem öðrum fremur hefur áhrif á friðar- horfur í þessum heimshluta. Um framtíð ísraels er að tefla og jafnvel Gyðingasamfélagsins í heiminum einnig. Begin heldur þvi fram að hann vilji ganga að samninga- borðinu í Genf „án nokkurra fyrirfram settra skilyrða". Þetta er mótsagnakennt þegar hann lýsir því yfir i sömu andránni að það lengsta sem hann sé fús til að teygja sig sé að sleppa inniimun vestur- bakka Jórdanar, og láta framtíð þessa umdeilda landssvæðis iiggja á milli hluta þar til deilur hafi verið jafnaðar við þau Arabaríki, sem þarna eigi land að, það er Sýrland, Egyptaland og Libanon. Arabarfkin hafa öll sem eitt vísað á bug þessari tillögu, og sama er að segja um Bandarik- in og öii aðildarriki Efnahags- bandalagsins. Aldrei vikið hársbreidd Sitji Begin fastur við sinn keip er ekki hægt að koma auga á neina lausn, hvað svo sem vestrænir ráðamenn segja og hvaða þrýstingi sem þeir reyna að beita. Aldrei hafa farið sög- ur af því að Begin hafi vikið hársbreidd frá þeirri afstöðu sem hann markaði sér kornung- ur að árum. Heimsmynd Begins mótaðist einkum af tvenns konar reynslu, sem auðvitað hefði haft rik áhrif á hvern, sem er. Umhverfið sem hann ólst upp I Póllandi var Gyðingum afar fjandsamiegt, þannig að ekki fór hjá því að auðmýkingin siaðist inn i Begin frá biautu barnsbeini. Þegar fram liðu stundir fór hann að berja frá sér, en þá tóku við enn viður- styggilegri og hroðalegri ofsóknir en hann hafði átt að venjast — ofsóknir og fjölda- morð á sex milljónum Gyðinga i heimsstyrjöldinni síðari.' Einn nánast samstarfsmaður Begins segir: „Langi menn til að skilja Begiri þá verða þeir fyrst að gera sér grein fyrir, að aliar tilfinningar hans og hugsanir mótast af gyðinga- ofsóknunum og milljönamorð- unum i heimsstyrjöldinni síð- ari.“ Andstæðingar Begins i Israel óttast að persónuleg reynsla hans og þungbærar minninga’r byrgi honum sýn þannig að hann sé ekki fær um að meta af raunsæi og hlutlægni mál, sem hafa úrslitaþýðingu fyrir ísra- elsríki framtiðarinnar, þannig að hann gæti viljandi kallað ósegjanlegar hörmungar yfir þjóð sfna. „Heimurinn hefur ekki samú^. með sláturfé", hefur Begin sagt Föðurnum drekkt Menachem Begin fæddist i Brisk í Póllandi árið 1913. Fjöl- skyldan var mjög hreintrúuð. Faðir hans var ákafamaður og mjög trúaður, og sonurinn tók hann sér til fyrirmyndar í flestu. Eitt sinn réðst hann að hópi hermanna, sem voru i þann veginn að skera skegg Rabbfs, enda þótt augljóst væri að við ofurefli væri að etja. Afleiðingarnar urðu hýðing, sem nærri gekk af honum dauð- um. Báðir foreldrar Begins, svo og bróðír hans, voru myrtir ásamt flestum þorpsbúum i Brisk I útrýmingaræði Hitlers. Steinn var bundinn um háls föðurins og honum varpað i drekkingarhyl árinnar, sem rann gegnum Brisk, hrópandi: „Á degi hefndarinnar færð þú makleg málagjöld, Andek,“ en sá var alra*mdur harðstjóri i Póllandi. Þegar þetta gerðist var Begin orðinn fangi Rússa í Síberíu. Þegar Begin var 14 ára — mjósleginn með gleraugu, dul- ur i skapi, mjög trúaður og fjarska kurteislegur í fram- göngu, — komst hann í kynni við hinn mikla Zíonistaleiðtoga Vladimir Jabotinsky. Hann var endurskoðunarsinni og andvíg- ur stofnanaveldi. Endurskoð- unarsinnar voru andvigir þeirri grundvallarkenningu, sem viðurkenndir leiðtogar Zionista börðust fyrir, — þ.e. landvinn- ingastefnunni, —1 endurskoð- unarsinnarnir trúðu á land- vinninga baráttuglaðra Gyð- inga og aðeins þá ieið. Merki þeirra var riffill yfir báðum bökkum Jórdan-árinnar. Þritugur var Begin orðinn yfirmaður 70 þúsund manna Betar-hreyfingarinnar i Pól- landi, og sjálfsagður eftirmað- ur Jabotinskys. Snemma á ferli sinum lenti Begin í andstöðu við Jabotinsky vegna breytingar á grund- vallarkenningu Betar. Þannig vildi Begin að um ieið og félag- arnir gengju 1 hreyfinguna hétu þeir því að nota vopn, ekki einungis í sjálfsvörn, heldur einnig til að ná ættjörð Gyðinga aftur á sitt vald. Þessu var Jabotinsky algjörlega mótfall- inn, og Begin hafði kenningu hans um að „samvizka heimsins væri með Gyðingum“ að háði og spotti. „Eg skil að þetta er þung- bært,“ sagði Jabotinsky við skjölstæðing sinn, „en örvænt- ing af þeim sökum er hættuleg, hurðarskellur, sem hvorki leið- ir til nokkurs góðs né er nauð- syniegur." Hörmungar Gyðinga f styrj- öldinni gerðu ekki annað en að staðfesta kenningu Begins og vantraust hans á „samvizku heimsins". Handtek inn 1940 Skömmu eftir að Rússar her- tóku Pólland árið 1940 var vopnaður vörður sendur til að handtaka Begin. Hann bað þá að bíða meðan hann burstaði skóna sfna, sækti Bibliuna sina og kveddi eiginkonu sína. Að þessu loknu óskaði hann eftir þvf við verðina að þeir gengju á undan honum út úr húsinu, svo hann sem gestgjáfi gæti eins og vera bæri fylgt gestum sínum til dyra. Hann var dæmdur í átta ára þrælkunarvinnu fyrir að vera „hættulegur samfélag- inu“. Hann átti harða ævi er hann vann um árs skeið við síberísku járnbrautina við hlið harðsvír- aðra glæpamanna en einntg annarra pólitiskra fanga. Hann skýrir frá þessari lífsreynslu sinni 1 bókinni „Hvítar nætur“ og segist hafa lært á þessum tlma, að hægt sé að þola nánast hvað sem er. „Fyrsta lúsin er viðbjóðslegt og ógnvekjandi kvikindi, en sú hundraðasta er nágranni, sem maður urnber." Þegar Síkorsky og Stalin undirrituðu samning sinn árið 1942 var Begin ásamt öllum öðrum Pólverjum sem voru I haldi hjá Rússum sleppt til að þeir gætu gengið í her Anders hershöfðingja. Glæpamennirn- ir félagar hans sögðu. „Hann er ekki Pólverji, hann er Gyðing- ur.“ Begin kom til Miðaustur- landa ásamt her Anders árið 1942 og honum var öfugt farið en flestum öðrum pólskum gyð- Með Alizu og Benjamín, syni þeirra, 1949. Á framboðsfundi fyrir kosningarnar 1977. ingum i þeim félagsskap. Þegar hann nú var í fyrsta sinn kom- inn til Palestínu. Hann neitaði að yfirgefa her Anders, — það bannaQi honum skylduræknin og orðheldnin, hollustueiðinn varð að halda, en brátt skipti hann um skoðun — eða skipt var um skoðun fyrir hann. Begin tekur við Irgun Þegar hér var komið sögu var neðanjarðarhreyfing Gyðinga, Irgun, á sannkallaðri heljar- þröm. Leiðtogi hennar Jabot- insky var allur, þúsund félagar voru gengnir i lið með Bretum og þeir sem eftir voru voru klofnir 1 ótal hópa, sem deildu um hugmyndafræðilegar kenn- ingar. Nú varð það hlutverk Begins að taka við stjórninni og sameina Irgun að nýju. Hann markaði sér stefnu sem grundvallaðist á tveimur aðal- þáttum: Að eyðileggja orðstír Breta og auðmýkja svo sem unnt væri stjórn þeirra — og hins vegar að búa til Imynd hins „baráttuglaða Gyðings". Hann hafði einungis á að skipa 600 liðsmönnum sem þurftu að láta sér nægja 30 riffla og 60 skammbyssur, en með þetta eitt á bak við sig lýsti Begin þvf yfir 1944 að „uppreisnin" væri haf- in. Hann krafðist þess að þegar í stað yrði komið á bráðabirgða- stjórn Gyðinga í Palestlnu allri, að því meðtöldu, sem nú er konungdæmið Jórdania. Hann gerði sér grein fyrir því að hann var að krefjast mikilla fórna af Gyðingum í ísrael, en af ýmsum pólitiskum ástæðum taldi hann það æskilegt að mörgu leyti. Með því að neyða Breta til að sýna af sér hörku, sem þeir komust ekki hjá að gera það sem þeir stóðu and- spænis vopnuðu ofbeldi, var hann sannfærður um að aðferð- ir Irgun yrðu til þess að brjóta niður siðferðisþrek „setuliðs- ins“, auk þess sém kúgun af hálfu Breta yrði til þess að eggja Gyðinga aímennt til dáða. Þessi hernaðartækni Begins hafði þó ekki tilætluð áhrif. Hún varð til þess að vekja jafn- mikla andúð leiðtoga Gyðinga og Breta. Ben-Gurion lýsti því yfir, að Irgun væri helzti and- stæðingur Gyðinga, og „Opin- ber samtök Gyðinga“ — (the Jewish Ageney) — Iýstu yfir: „Baráttan gegn hryðjuverka- mönnum hefur algjöran for- gang í baráttu okkar.“ „Uppreisnin“ leiddi af sér ríki, þar sem landamerkjaskipt- ing markaðist af borgarastyrj- öld. Haganah-hreyfingin (Ben- Gurion) réðst gegn Irgunistum af jafnmikilli hörku og Bretar en með langtum betri árangri. Þeir létu Breta hafa nöfn yfir þúsund grunaðra félaga. í felum A þessum árum var Begin f felum og það var ekki fyrr en eftir stofnun Israelsrlkis í maí 1948 að hann kom fram I dags- ljósið á ný. Stefna Begins varð* tilefni meiriháttar árekstra, og hann tók ákvörðun um að láta hýða brezka herforingja. „Hvi ekki?“ spyr hann, „þegar þeir auðmýktu okkar menn með þvf að hýða þá.“ Eftir þá ráðningu brá svo víð að Gyðingar voru ekki hýddir. Annað mál — miklu alvar- legra — var ákvörðunin um að hengja tvo brezka liðþjálfa eft- ir aðvörun um að frekari heng- ingar Gyðinga-Iiðsmanna yrði hefnt. Begin heldur því fram að þessi aðgerð hafi verið fullkom- lega réttlætanleg — hún hafi verið til þess ætluð að binda endi á „gálgaharðstjórnina". Aftökur Gyðinga voru stöðvað- ar eftir að liðþjálfarnir voru hengdir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.