Morgunblaðið - 27.11.1977, Page 15

Morgunblaðið - 27.11.1977, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1977 47 Lotta litla og kisa Einu sinni var lítil stúlka, sem var kölluð Lotta, en hún heitir Lilja. Einu sinni var hún að leika sér í sandkassanum heima hjá sér. Þá sá hún kisu, sem var meidd á hægri framlöppinni. Hún fór með hana inn til mömmu. Mamma hennar sagði, hvar fannstu þessa kisu? Ég fann hana hjá sandkassanum, sagði Lotta litla. Jæja, sagði mamma hún er meidd á annarri fram- löppinni, Lotta mín. Við skulum binda um löppina á kisu greyinu. Já, mamma, það skulum við gera. Mamma, má hún sofa hérna í nótt? Já, hún kis.a litla má sofa hjá okkur í nótt. Eigum við ekki að gefa kisu eitthvað að borða? Jú, Lotta mín, hún fær fiskafgang frá því í kvöld og svo á ég handa henni svolítinn mjólkursopa. Nú er komið kvöld, Lotta mín. Farðu nú að sofa. Já, mamma, en má kisa sofa hjá mér í rúminu? Já, já kisa má sofa hjá þér. Góða nótt, mamma. Góða nótt, vina mín. Sólvegir Ásgeirsdóttir, 8 ára. Til gamans Kennarinn: Segðu mér, Jón, hvernig orðið maður er f fleir- tölu. Jón: Menn. Kennarinn: Alveg rétt. En orðið barn, hvernig er það f fleirtölu? Jón: Tvfburar. Tveir litlir drengir mættust úti á götu. Annar sagði: „Ég er fimm ára. Hvað ert þú gamall?“ „Veit það ekki,“ svaraði hinn. „Veiztu það ekki? Hugsarðu nokkurn tfma um stelpur?" „Nei, það geri ég ekki.“ „Þá ertu fjögurra ára!“ „Er manni nokkurn tíma refsað fyrir það, sem maður hefur ekki gert?“ spurði ÓIi kennarann. „Nei, það er aldrei gert,“ svaraði kennarinn. „Ég lærði ekki heima,“ bætti ÓIi við. Jólaföndur Nú er kominn tími til að huga að jólaföndrinu með börnunum. Og þeim þykir skemmtilegast, ef pabbi og mamma eða einhver fullorð- inn sezt með þeim við iðjuna. Hreiðrið vel um ykkur og takið til það sem þarf að nota áður en vinnan er hafin. Álpappír eða mislitur pappír er góður efniviður í jólaskrautið, sem við kynnum hér í dag. Bjöllurnar (A) má hengja á jólatréð eða í glugga. Teiknaður er hringur, sem síðan er skipt í tvennt. Klippt út og beygt, lím borið á samskeytin. Hengja má saman 2—3 eða fleiri bjöllur með því að þræða bandi í gegn. Loftskrautið (B) eða lengjurnar eru gerðar úr renningi, sem brotinn er tvöfaldur eftir endilöngu. Síðan er klippt í hliðarnar til skiptis, eins og sést á mynd 1. Þá er renningurinn opnaður og teygt úr. Jólafundur verður fimmtudaginn 1. desember í Fellahelli kl. 20.30. Fagmenn frá Alaska í Breiðholti sýna, leiðbeina og kynna jólaskreytingar. Allar konur velkomnar. Fjallkonurnar. Manstu í fyrra þegar komið var að jólum, og þú ætlaðir að skreyta heimilið, jólaskrautið nægði ekki. Það vantaði kúlur og fleira ó jólatréð, jólapappírinn nægði ekki, og kortin voru of fó. Áætlun þín um að gera þetta allt fullkomið fór út um þúfur. Nú er aftur komið að jólunum, en þú hefur tímann fyrir þér í þetta sinn. Hugmyndin þín að fallegri jólaskreytingu verður að veruleika eftir eina ferð ó jólamarkað Pennans. Dragðu það ekki til morguns. c Jólamarkaður Hafharstrœti 17 — Hallarmúla 2 I VANTAR ÞIG VINNU (n) Wfl\ VANTAR ÞIG FÓLK í 1 ÞL' AK.I.YSIH l M ALLT 1 LAND ÞEGAR ÞÉ AIG- | LÝSIR I MORGLABI.AÐIM |

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.