Morgunblaðið - 27.11.1977, Side 18

Morgunblaðið - 27.11.1977, Side 18
50 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1977 t Maðurinn minn. SVEND AGE SCHOUW. lést í Kaupmannahöfn 21 þ.m. Guðrún Ásmundsdóttir Schouw. t Móðir min og tengdamóðir, UNA BENJAMÍNSDÓTTIR, Kleppsvegi 26, Reykjavík. lést að heimili sinu 25. þ.m. Pálmi Sigurðsson. Hulda Helgadóttir. t Eiginmaður minn og faðir okkar, EINAR SIGURÐSSON. skipstjóri. Lágholtsvegi 9. andaðist i Borgaspitalanum föstudaginn 25. nóv Ingveldur Dagbjartsdóttir, GuSrún Einarsdóttir. GuSbjartur Einarsson Sigurður Einarsson, Stefán Einarsson. t Útför móður okkar. tengdamóður. ömmu og langömmu, INGIBJARGAR GISSURARDÓTTUR frá Glúfurholti, verður gerð frá Fríkirkjunni i Reykjavik þriðjudaginn 29 nóvember kl 13 30 Gissur Simonarson Bryndis Guðmundsdóttir Ingunn Simonardóttir Jóhann Björnsson Margrét Símonardóttir Kjæmested Guðmundur Kjærnested u ■ ... r*,___eui: v____________________________ Kristín Símonardóttir Simon P. Simonarson Gisli Kristjánsson Elisabet Ólafia Sigurðardóttir barnaböm og bamabarnabörn. t Móðir okkar og tengdamóðir. SIGRÍÐUR J. MAGNÚSSON, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni mánudaginn 28 nóv. kl. 3 e.h. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Menningar- og minningar- sjóð kvenna. Börn og tengdaböm t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför LÁRU JÓHANNSDÓTTUR, Fremri-Fitjum. Sérstakar þakkir færum við læknum og hjúkrunarfólki við Landspítal- ann og sjúkrahúsinu á Hvammstanga Systkini hinnar látnu. t Þökkum innilega samúð við andlát og útför móður okkar, fósturmóður, ömmu og langömmu. SIGRÍÐAR JÓNSDÓTTUR frá Þingeyri. Baldur Sigurjónsson Pátur Sigurjónsson Jónina Jónsdóttir Bragi Guðmundsson Elisabet Einarsdóttir böm og barnabörn. Móðir okkar. + KRISTÍN EINARSDÓTTIR. andaðist föstudaginn 25. nóvember á Elliheimilinu Grund. Gústaf Ófeigsson. Dagbjört Guðbrandsdóttir, Einar Guðbrandsson, Margrát Guðbrandsdóttir. Sigrún Guðbrandsdóttir. Móðir okkar. t ÓLAFÍA R. SIGURÞÓRSDÓTTIR. Hrafnistu, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 28 nóvember kl. 3. Blóm afbeðin Bömin. Guðbjörg Grímsdóttir Andersen — Minning F. 9. janúar 1893. D. 27. nóvember 1976. Fyrir réttu ári siðan lést í Landakotsspítala'elskuleg frænka okkar, Guðbjörg Andersen, 83 ára að aldri. Þó að svona langt sé liðið síðan hún kvaddi þannan heim, þá langar okkur samt til að minn- ast hennar með örfáum orðum til að þakka henni alla þá umhyggju og tryggð er hún auðsýndi okkur fram til hinstu stundar. Guðbjörg var fædd að Kirkju- bóli við Steingrimsfjörð 9. janúar 1893 og voru foreldrar hennar sæmdarhjónin Grímur Benedikts- son bóndi þar og kona hans Sig- ríður Guðmundsdóttir. Guðbjörg var 5. í röðinni af 12 börnum þeirra hjóna, en eftir lifir ein systir, Þorbjörg, gift Árna E. Blandon, og búa þau að Þinghóls- braut 43 í Kópavogi, og bræðurnir Benedikt bóndi og fyrrverandi hreppstjóri að Kirkjubóli, kvænt- ur Ragnheiði Lýðsdóttur, og Guð- jón bóndi að Miðdalsgröf í sömu sveit, kvæntur Jónnýju Guð- mundsdóttur. 18 ára gömul lagði Guðbjörg leið sína til Reykjavíkur og stund- aði þar nám við Verslunarskóla íslands. Siðan lá leið hennar til Danmerkur þar sem hún dvaldi um tíma og lærði þá m.a. konfekt- gerð og stundaði einnig nám við hússtjórnarskóla. Eftir heimkomuna réð hún sig til verslunarstarfa hjá Jakobsen í Austurstræti og vann þar í mörg ár. Guðbjörg giftist 27. júni 1925 Axel Andersen klæðskerameist- ara, glæsilegum heiðursmanni og bjuggu þau í farsælu hjónabandi í nær 50 ár, eða þar til Axel lést 18. janúar 1975. Hafði hann þá átt við langvarandi vanheilsu að stríða og var síðast rúmliggjandi. Vakti Guðbjörg yfir honum og hjúkraði með ást og umhyggju uns yfir lauk og veitti honum sjálf hinstu þjónustu er augu hans lokuðust og hann hvarf úr þessum heimi. Eina kjördóttur eignuðust þau Guðbjörg og Axel, Ásu Andersen, og tvær dótturdætur, Guðbjörgu Ásu, sem ólst að nokkru upp hjá afa og ömmu og Regínu 12 ára og voru þær báðar afa og ömmu mjög kærar. Guðbjörg Ása er gift Stefáni Magnússyni og eiga þau eina dóttur, Vilborgu á 3. ári, og eins og að líkum lætur var hún sólargeisli langömmu sinnar sið- ustu ævistundirnar. Þegar móðir okkar Ingunn, yngsta barn Kirkjubólshjónanna, kom til Reykjavíkur, styrktust bönd þeirra systranna meira en áður var og þegar foreldrar okkar giftu sig bláfátæk af öðru en ást i allsleysinu árið 1935 þá gera þau Guðbjörg og Axel þeim daginn að enn ógleymanlegri hátíð með þvi að slá upp veisluborði að afstað- inni athöfn. Slíku verður aldrei gleyfnt og þau gleymast heldur aldrei jóla- boðin sem þau héldu ávallt á 2. dag jóla meðan kraftar og heilsa entust. í barnsminni okkar eru þessi boð ævintýri likust. Fallega heimilið þeirra skreytt i tilefni hátíðarinnar, borðin svignuðu undan veitingunum og allir nutu sín hið besta, ungir sem aldnir. Hin síðari ár einkenndust þessi jólaboð af sameiginlegri ánægju- stund nánustu ættingja og vina, fulorðinna, sem ornuðu sér við yl heimilishlýjunnar og minningu liðinna tíma. Guðbjörg var mikil mannkosta- kona og fóru þar saman gáfur og góðvild, geislandi lífsfjör og dugnaður. Hún var mjög félags- lynd og var virkur þátttakandi i ýmsum menningar- og góðgerða- félögum og voru t.d. bæði Thor- valdssensfélagið og Kvenfélag Neskirkju búin að gera hana að heiðursfélaga sinum. Hún fylgd- ist alla tíð vel með þvi sem efst var á baugi hverju sinni, bæði í landsmálum og þá ekki síður inn- an fjölskyldunnar. Þær voru ekki fáar gjafirnar og blómin sem hún sendi heim til ættingja og vina á ýmsum tímamótum i lífi þeirra til að samgleðjast eða samhryggjast. Með þessum siðbúnu línum vilj- um við þakka elskulegri frænku okkar innilega fyrir alla hennar órofa tryggð og umhyggju sem hefur umvafið okkur alla tíð og kom ef til vill best í ljós er við heimsóttum hana á banabeð áður en vitund hvarf. Þá spurði hún um hvern einstakan fjölskyldu- meðlim, gladdist yfir þvi að allt virtist í besta lagi og bað brosandi fyrir kveðjur. Slikri konu var gott að kynnast og við þökkum henni allar sam- verustundirnar sem við hörmum að urðu ekki fleiri. Nú iifir hún á ljóssins strönd þar sem áður farn- ir ástv inir gleðjast yfir því að hafa hana á meðal sín. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Sigga, Palia og Bára. Jónína Helga Friðríks- dóttir — Kveðja F. 29. nóvember 1907 D. 14. nóvember 1977 Aðfaranótt 14. nóvember lést að heimili sýnu húsfreyjan Jónína H. Friðriksdóttir, Grenimel 31 Reykjavik. Hún lagðist til hvílu, að þvi ei virtist heilbrigð að kvöldi, en var liðið lík að morgni. Eftir stendui ástvina- og vinahópur og spyr: Hvers vegna? Skáldið Jóhannes úr Kötlum sagði: Vor sál er svo rfk af trausti og trú að traudla mun bregðast huggun sú, þó ævin sem elding þjóti Guðs eilffð blasir oss móti. Þeir eru margir sem eiga um sárt að binda við lát frú Jónínu Friðriksdóttur. Allir þreyttir, all- ir sjúkir, mæddir, áttu vísa þína líkn og fró. Hún var óvenjulega umhyggjusöm við sjúka og þá sem báru skarðan hlut frá borði, og ævilangt þakklát þeim sem sýndu skilning öllum þeim sem byrðar báru. íslensk gestrisni var rikur þáttur i fari húsbændanna á Grenimel 31, þau tileinkuðu sér orð Hallgríms Jónssonar: 1 samfylgd skaltu vera sem sólargeisli hlýr við ylinn er góðum glatt. Með öðrum ok að bera er öllum fengur dýr. 1 verkinu þú verðlaun finnur. Fyrir tæpum 50 árum bast Jón- ina vináttuböndum við föður t Innílegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför KRISTJÁNS S. ELÍASSONAR. Njálsgötu 102. Kristin Geirsdóttir, börn. tengdabóm og barnabörn. minn og stjúpmóður, sú vinátta styrktist í reynslueldi áranna. Ég og börn min sendum úr fjarlægð samúðarkveðjur eiginmanni hennar, Guðmundi Magnússyni, syni, fóstursyni og fjölskyldum þeirra og biðjum þeim öllum styrks í þessu þunga reiðarslagi. Ekki síst ömmubörnunum 8, sem öll hafa misst svo óumræðilega mikið, þó sum skilji ekki ennþá hve ófyllt skaróið í ástvinahópn- um er stórt, nöfnurnar hennar báðar vona ég aó erfi fórnarlund og mannkosti ömmu sinnar. Mun það reynast gott veganesi út í lífið. Að eigin ósk var Jónian sál- uga jörðuð í kyrrþey 23. nóvem- ber að viðstöddum stórum hópi ástvina og vina. Drottin gefi dánum ró, hinum likn sem lifa. Guðbjörg S. Gunnlaugsdóttir. t Móðir okkar. tengdamóðir. amma og langamma, SIGRÍÐUR GUÐMUNDÍNA INGVADÓTTIR. Hverfisgötu 121, frá Snæfoksstöðum, Grimsnesi, verður jarðsungin frá Frikirkjunni mánudaginn 28 nóvember kl. 1.30. Blóm vinsamlegast afþökkuð. en þeir sem vildu minnast hennar, vinsamlegast látið Lamaða og fatlaða eða Barnaspitala Hringsins njóta þess. Fyrir hönd dætra, tengdasona, barnabarna og barnabarnabarna, Ingibjörg og Þórdis Gestsdætur. Afmælis- og minningar- greinar ATHYGLI skal vakin á þvf, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síð- asta lagi fyrir hádegi á mánu- dag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera 1 sendibréfsformi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu Ifnubili.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.