Morgunblaðið - 27.11.1977, Síða 20
52
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1977
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Járniðnaðarmenn
Járniðnaðarmenn og menn vanir járniðn-
aði óskast.
Vélaverkstæði Sig. Sveinbjörnssonar hf.
Arnarvogi. Sími 52850.
Atvinnurekendur
úti á landi
Ung kona með verslunarskólamenntun
óskar eftir starfi úti á landi. Er með góða
starfsreynslu í skrifstofustörfum (unnið
sjálfstætt) og hefur mjög góð meðmæli.
Tilboð sendist Mbl. fyrir 15. des. merkt:
„V — 1938."
Afgreiðslustúlkur
óskast
kl. 1 —6 e.h.
Getum bætt við okkur nú þegar 1 —2
röskum og ábyggilegum stúlkum, aldur
25 — 35 ára.
Getur verið um framtíðaratvinnu að ræða
fyrir áhugasamar stúlkur. Upplýsingar í
dag eftir kl. 2 og annað kvöld kl
6.30 — 8 að Laugavegi 11,3. hæð.
Gjafahúsið
Skrifstofustarf
Starfskraftur óskast á skrifstofu hjá stóru
iðnfyrirtæki í Reykjavík í 5 — 6 mánuði,
gæti hugsanlega orðið um framtíðarstarf
að ræða. Starfið er fólgið í meðferð
vörureikninga, verðútreikninga, útflutn-
ingsskjala o.fl. Próf frá verslunarskóla er
nauðsynlegt. Viðkomandi þarf að geta
hafið störf strax. Umsóknir er greini aldur,
menntun og fyrri störf sendist afgreiðslu
Morgunblaðsins fyrir þriðjudagskvöld 29.
nóv. merkt: „Skrifstofustarf— 1935".
Hagvangur hf.
Ráðningarþjónusta óskar að ráða
framleiðslustjóra
í matvælaframleiðslu.
Fyrirtækið: framleiðir matvæli og er á
höfuðborgarsvæðinu.
í boði er: starf framleiðslustjóra, þ.e.
eftirlit og umsjón með starfsfólki, vélum,
framleiðsluvörum og fl. Góð vinnuað-
staða og góð laun. Sjálfstætt starf sem
hefst með þjálfun erlendis.
Við /eitum: að duglegum starfsmanni,
sem hefur stjórnunarhæfileika, getur
tryggt bestu gæði vörunnar og tilbúinn að
vinna að framleiðslunni með öðru starfs-
fólki.
Skriflegar umsóknir ásamt yfirliti um
menntun, starfsferill, símanúmer heima
og í vinnu og mögulega meðmælendur
sendist fyrir 5. des. til
Hagvangur hf.
c/o Ólafur Örn Haraldsson,
skrifstofustjóri
rekstrar og þjóðhagfræðiþjónusta
Grensásvegur 13, Reykjavík, sími 83666.
Farið verður með allar umsóknir
sem algjört trúnaðarmál.
Öllum umsóknum verður svarað.
Viðgerðarmaður
óskast til starfa á bifreiðaverkstæði okkar í
olíustöðinni við Skerjafjörð. Góð vinnuað-
staða og mötuneyti á staðnum. Upplýs-
ingar í Olíustöð okkar við Skerjafjörð, sími
1 1425.
Olíufélagið Skeljungur hf.
Ritari óskast
til starfa. Umsóknir sendist ráðuneytinu.
Viðskiptaráðuneytið
25. nóvember 1977
Lausar stöður
A skattstofu Reykjanesumdæmis eru eftir-
taldar stöður lausar til umsóknar:
1 Staða háskólamenntaðs fulltrúa með
lögfræði- eða viðskiptafræðimenntun.
2. Staða skattendurskoðanda.
Umsóknir berist undirrituðum að Strand-
götu 8 —10, Hafnarfirði, fyrir 15. des.
næstkomandi.
Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi.
Aðstoð óskast
á tannlæknastofu í miðbænum frá 1. jan.
n.k. Hún skal vera dugleg og samvisku-
söm á aldrinum 20 — 30 ára. Vinnutími
frá 10.00 —18.00 daglega. Góð laun
fyrir áhugasaman starfskraft. Umsóknir
með upplýsingum um aldur, menntun og
fyrri störf, sendist Mbl. fyrir 25 þ.m.
merkt: „Aðstoð — 4342" Æskilegt er að
mynd fylgi.
Hagvangur hf.
ráðningaþjónusta óskar að ráða
eftirlits og
framleiðslustjóra.
Fyrirtækið: Bókaútgáfa á höfuðborgar-
svæðinu.
/ boði er: starf sem felur í sér eftirlit og
stjórn útgáfunnar, þ.e. prentun, bók-
band, endanlegur frágangur til afgreiðslu
og fleira.
Við leitum að: manni sem er glöggur og
röskur til vinnu og tilbúinn að vinna starf
sitt af samviskusemi og ábyrgðartil-
finningu, þarf að geta unnið sjálfstætt og
skipulega
Skriflegar umsóknir ásamt yfirliti um
menntun, starfsferil, símanúmer heima
og í vinnu og mögulega meðmælendur
sendist fyrir 2. des. til
Farið verður með allar umsóknir sem
algjört trúnaðarmál og öllum
umsóknum verður svarað.
Hagvangur hf.
c/o Ólafur Örn Haraldsson,
skrifstofustjóri
rekstrar og þjóðhagfræðiþjónusta
Grensásvegur 13, Reykjavík, sími 83666.
Farið verður með allar umsóknir
sem algert trúnaðarmál.
Öllum umsóknum verður svarað.
Olafsvík
Umboðsmaður óskast til að annast dreif-
ingu og innheimtu í Ólafsvík. Upplýsingar
á afgreiðslu Morgunblaðsins í Reykjavík,
sími 1 01 00
fttofgtittMiifc !§>
Læknir
óskast til starfa við fangelsin í Reykjavík.
Um hlutastarf er að ræða, 2—3 hálfa
daga í viku.
Umsóknir sendist ráðuneytinu fyrir 10.
desember nk.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
24. nóvember 1977.
Raftæknisvið
Við óskum eftir að ráða starfsmann til
sölu- og þjónustustarfa. Starfið er mjög
fjölþætt og krefjandi og gæti hentað vel
fyrir t.d. rafvélavirkja, er hefði sæmilegt
vald á ensku og/eða norðurlandamáli.
Fyrir áhugasaman og reglusaman mann
er hér um að ræða góða framtíðarmögu-
leika.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum
um aldur, menntun og fyrri störf leggist
inn á afgreiðslu blaðsins fyrir 1 . des. nk.
merkt. „R — 4341 ",
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
Landspítalinn
HJÚKRUNARDEILDARSTJÓRI óskast til
starfa á lyflækningadeild, (gervinýra).
Staðan veitist frá 1 5. janúar nk.
HJÚKRUNA RFRÆ Ð/NG UR óskast á
Barnaspítala Hringsins nú þegar eða eftir
samkomulagi.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma
29000.
Kleppsspítali
Staða FÉLAGSRÁÐGJAFA við áfengis-
meðferðardeild spítalans er laus til um-
sóknar.
Starf AÐSTOÐARMANNS FÉLAGSRÁÐ-
GJAFA er laust til umsóknar. Æskilegt er
að umsækjandi hafi stúdentspróf eða
sambærilega menntun og nokkra vélrit-
unarkunnáttu. Starfið er laust frá áramót-
um. Skriflegar umsóknir berist skrifstofu
spítalans fyrir 1 5. desember.
Upplýsingar um bæði störfin veitir yfir-
félagsráðgjafi í síma 381 60 kl. 11 —12.
Kópavogshæli
ÞROSKAÞJÁLFI óskast til starfa á heimil-
inu nú þegar. Hlutavinna kemur til
greina.
Upplýsingar veitir forstöðumaður hælis-
ins, sími 41 500.
Reykjavík, 25. nóvember 1977.
SKRIFSTOFA
RÍKISSPÍTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5,
Simi 29000