Morgunblaðið - 27.11.1977, Side 30
62
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1977
„Faðir minn - presturinn”
Þættir um þrettán þjóðkunna kennimenn
KOMIN er út ný bók er nefnist menn og leiðtoga fslenzkrar
„Faðir minn — presturinn", þætt- kirkju, skráðir af börnum þeirra.
ir um þrettán þjððkunna kenni- — Hersteinn Pálsson bjó bókina
Aldnir hafa orðið
Ný bók eftir Erling Davíðsson
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
bókin Aidnir hafa orðið eftir
Erling Davfðsson ritstjóra á
Akureyri, en á bók þessa skráir
hann frásagnir Guðlaugar Narfa-
dóttur, Guðna Þórðarsonar, Hólm-
steins Helgasonar, Snæbjargar
Aðalmun'dardóttur, Stefáns
Jasonarsonar, Þorleifs Ágústs-
sonar og Þorkels Björnssonar. Á
bókarkápu kynnir forlagið, sem
er Skjaldborg h.f., þessa nýju bók
Erlings Davíðssonar m.a. með
þeim ábendingum, að í bókinni
séu varðveittar ýmsar frásagnir
eldra fólks og séu þær „fróð-
leikur um þetta fólk, þótt engan
veginn sé um ævisögur að ræða“.
Þá er sagt, að viðmælendur
Erlings séu úr óiíkum jarðvegi
sprottnir „og vettvangur starfsins
fjölbreyttur, svo og lífsreynsla
þess. Frásagnir þess spegla liðna
tíma, sem í fljótu bragði virðast
orðnir svo fjarlægir, vegna hinna
öru breytinga á flestum sviðum
hins daglega lifs á okkar öld. Hafa
þær því sögulegt giidi. þótt þeim
sé fyrst og fremst ætlað að þjóna
hlutverki góðs gests eða sögu-
manns frá fyrri tímum."
Hér er um bókaflokk að ræða og
að því er forlagið segir hefur
honum verið vel tekið. Þetta er
sjötta bindið i flokknum.
til prentunar, en hann sá einnig
um útgáfu bókarinnar „Faðir
minn — læknirinn", 1974.
I bókinni eru eftirtaldir þættir:
Árni Jónsson eftir Gunnar
Árnason. Sigtryggur Guðlaugsson
eftir Hlyn Sigtryggsson, Þórarinn
Þórarinsson eftir Þórarin
Þórarinsson, Jón Finnsson eftir
Jakob Jónsson, Haraldur Níels-
son eftir Jónas H. Haralz, Stefán
Baldvin Kristinsson eftir Sigriði
Thorlacius, Friðrik Hallgrímsson
eftir Hallgrím Fr. Hallgrímsson,
Sigurbjörn A. Gislason eftir Láru
Sigurbjörnsdóttur, Bjarni Jóns-
son eftir Ágúst Bjarnason, Ás-
mundur Guðmundsson eftir
Tryggva Ásmundsson, Sigurgeir
Sigurðsson eftir Pétur Sigurgeirs-
son, Sveinn Víkingur Grímsson
eftir Gunnar Sveinsson og Sigurð-
ur Stefánsson eftir Ágúst Sigurðs-
son.
Bókin er 228 bls. aó stærð auk
myndasíðna. — Utgefandi er
Skuggsjá.
— Ferðafélagið
Framhald af bls. 43
skarðskástala 1953, við Kjal-
veg 1961, á Valahnjúk í Þórs-
mörk 1970, við Veiðivötn
1 973. Hefur Jón Viðis teiknað
þær flestar. Nú er áformað að
setja upp útsýnisskífu á Blá-
hnjúk við Landmannalaugar í
sumar og hefurÁgúst Böðvars-
son teiknað hana.
£ 5 deildir
_______úti á landi
Ferðafélagið er félag allra
landsmanna, eru einkunnar-
orð, sem Ferðafélag íslands tók
snemma upp. Deíldir starfa á
sjálfstæðum grundvelli innan
F.í. Fyrsta deildin var stofnuð á
Akureyri 1936. Hafa verið
stofnaðar 9 deildir utan Reykja-
vikur, en sumar lagst niður
aftur. Eru nú starfandi 5 deild-
ir, allar á Norður- og Austur-
landi. Ferðafélag Húsavíkurvar
stofnað 1939. Ferðafélag
Fljótsdalshéraðs 1969 og starf-
andi eru Ferðafélag Vopnfirð-
inga og Ferðafélag Skagfirð-
inga. Er mjög náið samband
milli þeirra og F.í. og nú unnið
að enn nánara samstarfi.
0 Kvöldvökur og
myndasýningar
Á vetrum heldur Ferðafélag
Islands uppi kvöldvökum og
myndasýningum. Kvöldvök-
urnar eiga sér lengri sögu og
voru strax mjög vinsælar.
Fluttu þar oft erindi þjóðkunnir
menn, visindamenn og rithöf-
unar og sýndu stundum mynd-
ir með. Vinsældir þessara
kvöldvaka eru mjög vaxandi,
svo mjög að erfitt er orðið um
húsrými. Siðustu kvöldvöku
sóttu 300 manns og urðu
margir frá að hverfa. En miðað
er við að hafa 3 kvöldvökur á
vetri. Að auki eru svo mynda-
sýningar, sem nefnast Eyva-
kvöld. Eyjólfur Halldórsson
byrjaði á þeim með þeim hætti
að hann kallaði saman þá sem
ferðuðust með honum, og
sýndu menn myndir sinar. Nú
er þetta orðinn reglulegur þátt-
ur i starfsemi F.í. Eru mynda-
sýningar einu sinni í mánuði i
Lindarbæ og sækja þær venju-
lega um 80 manns. Þykja þetta
heimilisleg og skemmtileg
kvöld.
í tilefni afmælisins verða nú i
næstu viku fyrirlestrar á hverju
kvöldi i Lögbergi, sá fyrsti á
mánudag, fluttur af Truls Kier-
ult frá Naskaferðafélaginu og
sýning á sögu félagsins og þró-
un i ferðaútbúnaði verður opin
í Norræna húsinu frá þvi kl. 5 á
sunnudag.
Efnt verður i dag til sam-
komu í Norræna húsinu í tilefni
afmælisins. Og gefið er út af-
mælisrit um sögu félagsins,
skrífað af dr. Haraldi Matthias-
syni. Er það útgefið í 250 tölu-
settum eintökum, en verður
jafnframt prentað i árbók
1978
^ Félagar
7300 talsins
Félagatala i Ferðafélagi ís-
lands hefur aukist jafnt og þétt
þá hálfu öld, sem það hefur
starfað. 63 gengu í félagið á
stofnfundinum, en nú eru fé-
lagar orðnir 7300 talsins.
Stjórn félagsins hefur frá
upphafi verið skipuð 1 0 mönn-
um auk forseta. Fyrsti forseti
var Jón Þorláksson frá 1 927 til
1929, þá Björn Ólafsson frá
1929—1933, Gunnlaugur
Einarsson 1933—1935, Jón
Eyþórsson 1935—1937 og
1959—1961, Geir G. Zoéga
1937—1959, Sigurður
Jóhannsson 1961 —1976,
Sigurður Þórarinsson
1976—1977 og Davið Ólafs-
son frá 1 977
— Líklegt er að stofnend-
urnir 63 hafi verið vonglaðir er
þeir gengu út úr Kaupþingsaln-
um og út í skammdegisrökkrið
27 nóvember 1927, segir
Haraldur Matthíasson í lokaorð-
um í afmælisritinu. En voninni
fylgir óvissa. Enginn vissi
hvernig yrði rennsli þessa litla
lækjar, sem þeir höfðu allir
sameiginlega hleypt af stað
Enginn vissi hvort hann hyrfi
niður í sandinn eða næði að
vaxa. Flestir þessara manna
eru nú horfnir, en nokkrir geta
enn horft á vatnsrennslið heilir
og hraustir, glatt sig yfir því að
þeir höfðu átt þátt í upphafi
þess og beint því í rétta átt
Þeir geta fylgst með hvernig
lækurinn hefur eflzt og er nú
orðinn mikill og öflugur.
E. Pá.
Frábœrar
teikmmynda
sögur!!
Hin£jögur irækitu Hin fjögur frækmi
ogkappaksturinn og vofan,
mikli ...
• Fyrstu bækurnar í bóka-
flokknum um hin fjögur fræknu
og spennandi ævintýri þeirra.
O í þessari bók taka þau þátt í
æsispennandi kappakstri og
ekki minnkar spennan þegar
einn keppandinn ákveður að
ryðja hinum smám saman úr
vegi, svo hann geti sjálfur setió
að verðlaunafénu.
• Hin fjögur fræknu kynnast
rosknum systrum, sem eru ný-
búnar að kaupa sér hús, en fell-
ur þar ekki blundur á brá sökum
draugagangs. Þau ákveða að
komast til botns í málinu og
handsama helst vofuna, en áður
en varir eru þau sjálf orðin
fangar.
Cætíó yhkar!
Nú byrfar gamanió
en þaó veróur
hættulegt!
Svalur og félagar
Hrakfallaferd
til Feluborgar...
• Þeir félagar fara í leióangur
til Feluborgar. f borginni hópast
saman frægt fólk, en innan um
leynast ýmsir, sem illa mega við
því að verða frægir og allt í einu er
Valur orðinn fangi hættulegra
þjófa.
^Svalur og Valur eru ein-
hverjar vinsælustu söguhetjur í
heimi myndabókanna, enda fer
saman að sögurnar eru bráð-
fyndnar og vel teiknaðar.
Bræóraborgarstíg 16, Sími 12923-19156
gefur út bestu barna- og unglingabækurnar