Morgunblaðið - 02.12.1977, Síða 15
47
unnar. — Alþingi samþykkti lög
um breytingu á lögum um kjara-
samninga opinberra starfsmanna,
lagabreytingin fól m.a. í sér
bráðabirgðaákvæði, sem veitti
BHM heimild til uppsagnar gild-
andi kjarasamningum frá og með
1. nóvember 1977. — Alþingi sam-
þykkti lög um kjarasamninga
starfsmanna banka í 'eigu ríkisins,
en þar er kveðið á um samnings-
rétt bankanna og samningsgerð
með takmarkaðri verkfalls-
heimild á sama hátt og kjara-
samningar BSRB kváðu á um.
Júní: Hinn 22. júni voru undir-
ritaðir nýir kjarasamningar ASÍ
og vinnuveitenda. Ekki hafði
komið til almennra verkfalla en
yfirvinnubannið verið i gildi frá
byrjun maímánaðar og einnig var
stuttum starfsgreina- og lands-
hlutaverkföllum beitt. Kjara-
samningarnir náðu til allra
aðildarfélaga ASÍ nema samtaka
sjómanna og gilda frá undirritun
til nóvemberloka 1978.
Júlí: Hinn 9. júlí voru undir-
ritaðir nýir kjarasamningar við
sjómenn á fiskiskipum. -- Hinn
15. júli gerðu BHM og fjármála-
ráðherra samning um endurskoð-
un gildandi aðalkjarasamnings
síns, samkvæmt samningnum
hækkuðu laun um 7.5% 1. júlí og
kom sú hækkun ofan á þá 4%
hækkun 1. júli, sem samningur-
inn kvað á um, og 6.7% vísitölu-
hækkun launa 1. júní.
Ágúst: Samningar tókust milli
sjómanna á kaupskipum og skipa-
félaganna og voru þeir að mestu í
hátt við júnísamninga ASÍ og
vinnuveitenda.
September: Verðbótavísitala 1.
september var 104 stig eða 4 stig-
um hærri en 1. maí. — BSRB
boðaði til verkfalls frá og með 26.
september en samkvæmt ákvæð-
Framhald á bls. 55
vitum að upp úr þessu hafa
komið umfangsmikil viðskipti
Ennfremur auðveldar upplýs-
ingaskrifstofan fyrirtækjum
mjög viðskipti þar sem það er
oft hið gagnkvæma traust sem
tekst að skapa sem sker úr um
það hvort viðskiptin takast Þá
er rétt að benda á að við öflum
einnig upplýsinga um erlend
fyrirtæki fyrir félagsmenn.
Verzlunarráð er ábyrgðaraðili
fyrír íslands hönd á útgáfu ATA
skýrteina, en þau gera kleyft að
ferðast með eða senda vörur
milli landa án þess að greiða af
þeim toll Þannig er heimilt að
flytja vörusýnishorn tollfrjáls
inn í landið tímabundið Verzl-
unarráðið, svo sem önnur verzl-
unarráð, gefur út upprunavott-
orð um útflutning islenzkra af-
urða, i þeim tilvikum þegar
slikra vottorða er krafist. A
skrifstofu Verzlunarráðsins er
að finna fjölda handbóka og
uppsláttarrita, sem félagsmenn
eiga aðgang að og nota til
viðskiptasambanda
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1977
Hagsmunanefnd
Stúdentaráðs:
Mótmælir
niðurskurði
a tjarveit-
ingum til
heilsuræktar
Það hefur komið fram opinber-
lega undanfarið m.a. í blöðum, að
tekið hafi verið fyrir ókeypis að-
gang háskólastúdenta að sund-
laugum Reykjavíkur og nágrenn-
is. Það hefur hins vegar ekki
komið fram opinberlega að
íþróttatfmar í iþróttahúsum Há-
skólans. sem hópar stúdenta og
félög þeirra hafa haft til frjálsra
afnota án endurgjalds. eru nú
greidd af stúdentum f hvert
skipti, segir f fréttatilkynningu
frá hagsmunanefnd Stúdentaráðs
IsL nds.
Þessum málalyktum vilja stú-
dentar ekki una. Eðli skólastarfs
er slíkt að þvi fylgir litil líkamleg
áreynsla og þvi verður að telja
leikfimi hvers konar eðlilegan
þátt skólastarfs. Þetta hefur al-
þingi viðurkennt með lögum og
framkvæmdavaldið með bygg-
ingu íþróttahúsa og/eða sund-
lauga við flesta skóla landsins,
segir ennfremur í fréttatilkynn-
ingunni.
Þess skal að lokum getið segir í
tilkynningunni, að Hagsmuna-
nefndin hefur rætt við Háskóla-
yfirvöld. Hefur Háskólaráó fjall-
að um málið og samkvæmt tillögu
þess hefur fjárveitinganefnd Al-
þingis verið skrifað bréf þar sem
farið er fram á nægjanlegar fjár-
veitingar á næsta ári til heilsu-
ræktar.
Samveiturafmagn um
alla Strandasýslu
Hólmavfk. 30. nóvemher
ÞAÐ MÁ segja að það liafi verið
brotið blað í sögu sýslunnar í dag,
þar sem Árneshreppur l'ékk í dag
fyrsta sinn rafmagn frá samveitu.
Er þar með öll sýslan raflýst með
rafmagni frá samveitu. Er það
um 30 heimili, sem fengu raf-
magnið, en áður voru víðast hvar
heimilisrafstöðvar.
Siðastliðið sumar var lögð há-
spennulina frá Þverárvirkjun við
Steingrímsfjörð um Hrófbergs-
hrepp norður yfir Trékyllisheiði
til Djúpuvíkur og um Árnes-
hrepp. Var rafmagni í dag hleypt
á þess línu. Enn er þó ekki komið
rafmagn til bæjanna i Hrófbergs-
hreppi að tveimur undanskildum.
þar sem_eftir er að ganga fram
heimtaugum á bæina.
— Andrés.
AUGLÝStNGASÍMINN ER:
^22480
áAafiSSnf
litsjónvarp
með eðlilegum litum
Myndgæði PHILIPS litsjónvarpstækja eiga
tæpast sína líka. Þar sérðu alla hluti eins
eólilega og hægt er. Rautt er rautt, blátt
blátt, grænt grænt o.s.frv. PHILIPS hefur
leyst vandamálió vió villandi og óeólilega
liti og þaó er eins og aó vera sjálfur á
staónum þar sem myndin er tekin, þegar
þú horfir á PHILIPS litsjónvarpstæki.
Óþarft er aó koma meö upptalningu á
tæknilegum atriöum hér en bendum aöeins
á aö PHILIPS er stærsti framleiöandi
litsjónvarpstækja í Evrópu, hefur framleitt
yfir 40.000.000 sjónvarpstækja. Segir þaö
ekki sína sögu?
PHILIPS hóf hönnun litsjónvarpstækja
áriö 1941 og hefur síöan stefnt markvisst aö
tæknilegri fullkomnun.
PHILIPS litsjónvarpstæki fást í mörgum
geröum, meö skermum frá 14” - 26”.
Viö viljum eindregiö hvetja væntanlega
kaupendur litsjónvarpstækja til aö
kynna sér umsagnir hlutlausra aöila og þá
veröur valió ekki erfitt.
Það er og verður PHILIPS.