Morgunblaðið - 02.12.1977, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1977
55
Smyglari
handtekinn
New York 29. nóv. Reuter.
DÓMARI krafðist í dag einna'-
milljónar dollara tryggingar
fyrir Argentinumanninn Jose
Pablo Mangari, sem handtek-
inn var í dag. sakaður uni að
hafa reyht að smygla h tonni
af kókaíni til Bandadrikjanna
frá Kölumbíu. Verðmæti
smyglsins er talið vera um 125
milljónir dollara á svörtum
markaði i New York.
Mangari var handtekinn á
þriðjudag í íbúð sinni. og við
húsleit fannst eitt kíló af kóka-
íni og um 38 þúsund dollarar í
reiðufé.
An,I.VSIN<, \
slMINN KK:
22480
— Viðskipti
Framhald af bls. 46.
um kjarasantningalaga BSRB
lagði sáttanefnd i kjaradeilunni
þá fram miðlunartillögu og
frestaði verkfalli um hálfan
mánuð.
4. Tekjuákvarðanir
í sjávarútvegi:
Júlf: Hinn 9. júlí ákvað yfir-
nefnd Verðlagsráðs 20% hækkun
almenns fiskverðs f.vrir tímabilið
júlí — september. Viðmiðunar-
verð Verðjöfnunarsjóðs var
ákveðið þannig, aó gert var ráð
fyrir urn 2000 milljón króna
greióslum úr sjóðnum ári vegna
freðfisks. — Hinn 9. júlí voru
undirritaðir nýir kjarasamningar
fyrir sjómenn á fiskiskipum.
Meginákvæði samninganna voru
um breytingar á uppgjöri og
greiðslu aflahlutar og kauptrygg-
ingar sjómanna á bátum og minni
skuttogurum. Samkvæmt
samningunum skal nú gera upp
og greiða aflahlut og kauptrygg-
ingu mánaðarlega en uppgjör fór
áður fram í vertiðarlok þrisvar á
ári. Jafnframt var kauptrygging
hækkuð um 24% í samræmi við
kauptaxta landverkafólks í júní-
samningunum. Aflaverðlaun
áhafna á stærri skuttogurum voru
ennfremur hækkuð um 2‘/i. —
Hinn 14. júlí var gefin út reglu-
gerð um takmarkanir á þroskveið-
Hríseyjarhreppur
auglýsir hér með eftir umsóknum í leigu- og
söluíbúðir samkvæmt reglugerð húsnæðismála-
stjórnar.
Umsóknarfrestur er til 15.des. 1977.
Uppl. veitir oddviti í sima 61 728 — 61 707.
um í íslenzkri fiskveiðilandhelgi.
Voru allar þorskveiðar bannaðar í
einu viku og þorskveiðar togara
bannaðar í 30 daga á tímabilinu
til 15. nóvember.
Verðlagning búvöru:
Marz: Verð til bænda var ha'kk-
að um 4.4%
Júní: Verð til bænda hækkaði
0.8%
September: Hinn 1. september
hækkaði verðlagsgrundvöllur bú-
vönr og verð til bænda urn 19.2%
frá júnígrundveili en frá fyrra
hausjverði nam hækkunin 33.7%.
6. Utanríkisviðskipti
— Gengismál:
Janúar: Hinn 1. janúar tóku
gildi tollalækkanir samkvæmt
viðskiptasamningi íslands og
EBE og aðildarsamningi íslands
og EFTA og samkvæmt tollskrár-
lögunum frá desember 1976.
Júlí: Tollar EBE á fiskinnflutn-
ingi frá íslandi afnumdir sam-
kvæmt viðskiptasamningunum
frá 1972.
*
— Ymsar
nýjungar
Framhald af bls. 45
eða faguruppeldi). Einnig væri
brýn þörf á að gera meira fyrir
unglinga sem áhuga hafa á tónlist
en vantar menntun og aðstöðu. I
því sambandi mætti nefna popp
og jass. Ég held að nauðsynlegt sé
að ganga út frá þjóðfélagsveru-
leikanum eins og hann er og
virkja áhuga nemenda á öllum
tegundum tónlistar.
Að siðustu mætti nefna full-
orðinsfræðslu. Hugsanlegt væri
t.d. :ð hafa námskeið fyrir for-
eldra sem eiga börn i skólanum og
gefa þeim innsýn i skölastarfið
fyrir utan það að fræða þá um
töniist almennt með verkkynning-
um. fyrirlestrum og umræðum.
Einnig mætti virkja tónlistar-
áhuga fullorðinna með ýmiss kon-
ar tönlistarflutningi. t.d. kórsöng.
Foreldrar fá svolitla innsýn í
skölastarfið vegna þess að við
bjóðum þeim að koma i tíma til að
hlusta á kennsluna og ræða við
kennarana. . Hefur þetta reynst
mjög jákvætt." sagði Stefán.
Verkefnin væru þannig óþrjót-
andi. spurningin væri um það
hvað væri mögulegt og raunhæft
við núverandi aðstæður.
..Við trúum þvi hér. að tönlist-
arnám sé ómissandi þáttur i al-
mennri menntun hvers einstakl
ings. hvort sem hann er sérstök-
um tónlistargáfum búinn eða
ekki.“ sagði Stefán Edelstein.
„Þeirri spurningu er enn ósvarað.
hvað tónlistargáfa yfirleitt er.
Það sem er mest um vert. er að
örva tónlistaráhuga nemenda.
efla tónskyn þeirra. gefa þeim
tækifæri til að tjá sig sem flytj-
endur tónlistar og til að skapa
tónlist. Með öllu þessu er verið að
vinna að sama meginmarkmiði:
að gefa nemendum innsýn i heim
tónlistarinnar. þroska fagurskyn
þeirra og gera á betur i stákk
búna til að velja og hafna sam-
kvæníl eigin gildismati."
— Taka þarf
Framhald af bls. 34.
kröfum um úrbætur. Allar
grannþjóðir okkar, nema Græn-
lendingar sem búa við sérstök
náttúruskilyrði, hafa byggt upp
þróaðar og öruggar samgöngur
á landi með fuHkomnum vegum
og járnbrautum og grannar
okkar og frændur Færeyingar
eru svo harðir I þessum efnum
að heildarafköst okkar i lagn-
ingu varanlegs slitlags síðustu
ár er um 2/3 af ársgetu Færey-
inga og við ættum að leggja 800
km á ári miðað við þessa frænd-
ur okkar. Auk þessa hafa Fær-
eyingar fullkomnari ferjur
milli staða en við. Staða okkar,
miðað við aðrar þjóðir Vestur-
Evrópu, er því heldur aum, svo
ekki sé fastar kveðið að orði, og
er nú kominn tími til að snúa
við blaðinu og hefja það átak í
lagningu bundins slitlags, sem
viö höfum svo lengi beðið eft-
ir.“
— Held ég
sjái....
Framhald af bls. 3ti
velja kafla úr skáldsögum oj?
má vera að ég geri það seinna. í
fyrravetur tók ég bækur Sveins
Sæmundssonar rithöfundar um
sjómennsku og nemendur
kynntu sér frásagnir þær er
hann hefur safnað, völdu úr
þeim bókum kafla til kynning-
ar og upplestus og útbjuggu
siðan dagskrá til flutnings og
buðu einum 8. bekknum. Ég
leyfi mér að fullyrða að með
þessum vinnubrögðum kynnt-
ust þau mikilvægi þessarar at-
vinnugreinar og hættulegu
starfi sjómannsins betur en þó
ég* hefði þrumað yfir þeim I
marga tima, en þarna unnu þau
allt sjálf.“
Bókmenntir eru
alltaf merkilegar
Veiztu hvort tilraunakennsla
sem þessi er fyrir hendi í
öðrum skólum?
„Mér er ekki kunnugt um þaó
en hins vegar er ég fullviss um
það að starfsbræður mínir í
bókmenntum þessara aldurs-
flokka eru allir að vinna merki-
legt starf, þvi bókmenntir eru
alltaf merkilegar.“
Sést áþreifanlegur árangur
af þessari kennslu?
„Ég held að ég sjái talsverðan
árangur af þessari vinnu, nem-
endur öðlast þarna þekkingu á
mörgum skáldum og verkum
þeirra og sú þekking hlýtur að
koma þeim til góða seinna bæði
í námi og hinu að öll þekking
eyðir fordómum," segir Jenna
Jensdóttir að lokum.
Fataiírval
I HEkDAHUSINU
Bankastrætí 7. Sími 2 9122, Aóalstræti 4. Síml 150 05
r