Morgunblaðið - 04.12.1977, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 04.12.1977, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1977 39 pi Endrum og eins eru fómarWmb morð- sveitanna tekin af Ufí á abnannafœri pp (SJÁ: Bókin um blóðbað Amins) ÁSTIR 19. OKTÓBER s.l. lézt 96 ára göm- ul kona í Northampton á Eng- landi, og sú mátti muna sinn fífil fegurri en flestar aðrar. Hún var ekkja og fyrrverandi hertogaynja af Marlborough, og hún hafði ver- ið kölluð fegursta rós þeirra tíma, sem kallaðar voru „Belle Epogue“ — fagra tímabilið. Einn af þeim, sem „rjóða rósu sá“, var sjálfur þýzki krónprinsinn, og hann reyndi árangurslaust að þrífa til sín þessa rós. Gladys Marie Deacon fæddist i Boston í Bandaríkjunum árið 1881. Faðir hennar var milljóna- mæringur, sem gat sér vissrar frægðar fyrir að skjóta elskhuga konu sinnar á hóteli i Cannes í Suður-Frakklandi. I byrjun aldarinnar birtist hún í Evrópu og varð á vegi Vilhjálms, krónprins, sonar Vilhjálms II. Þýzkalandskeisara. Hann var þá tvítugur og varð ástfanginn fram í sina prússnesku fingurgóma af þessari amerísku fegurðardís. Hann gaf henni fingurgull. Og það varð að fela færum mönnum í utanrikisþjönustunni að ná aftur þessum skartgrip, sem ella hefði getað valdið mikilli hneykslun. Konan sem krónprins- inn elskaði Kemur einn, þá annar fer, ungur sveirin í staðinn. Ungfrú Gladys Deacon bætti sér upp skaðann hress á sál og líkama, og þótt hinír nýju viriir væru ekki jafnungir og prinsinn, voru þeir engir smákallar í veröldinni heldur. Nefna má þýzka skáldið Rainer Maria Rilke, franska myndhöggvarann Auguste Robili og franska listmálarann Edgar Degas. Franska skáldið Marcel Proust lofsöng hana: „Ég hef aldrei hitt stúlku, sem var gædd slíkri fegur'ð, slíkum gáfum, slíkri hjartagæzku, slikum yndis- þokka." Árið 1921, þá fertug að aldri, giftist þessi fegurð níunda her- toganum af Marlborough og varð húsfreyja í einni fegurstu höll í Engiandi: Blenheim Palace. Nú gleymdi hún málurum og skáld- um og hóf að ala upp hunda. Sögufrægan sal í höll sinni gerði hún að leikstofu fyrir hina tutt- ugu spænsku hunda sína. Siðustu ár hennar í hjónaband- inu voru stormasöm. Þegar hún dvaldist yfir helgi í London-i húsi þeirra hertogahjónanna þar eitt sinn árið 1933, sendi maður henn- ar handverksmann inn þangað til að loka fyrir rafmagn, gas og síma. En hertogaynjan eldaði þá bara matinn handa.gestum sínum á olíuofni og framreiddi hann sjálf við kertaljós. Síðan tók hún á leigu hótelíbúð og hélt þangað með allmikinn farangur á þremur flutningabílum, sem hlaðnir voru fötum, skóm, höttum og hundum. Árið eftir flutti hún í gamlan bú- garð í Oxfordshire ekki ýkja langt frá höllinni. Tveimur mánuðum síðar dó maður hennar. Fram til dauða síns um daginn notaði hún ættarnafn eiginmanns síns og kallaði sig frú Spencer. Hún lifði þýzka prinsinn, sem eitt sinn elskaði hana, í meira en aldar- fjórðung. Vilhjálmur, krónprins, lézt í Hechingen árið 1951. — svá — úr „Welt am Sonntag". Gladys Deacon ásamt manni sínum, hertoganum af Marlborough. — Vilhjálmur, krónprins Þjóðverja (hér í einkennisbúningi hauskúpu-húsara), var ástfanginn af ungfrú Deacon og gaf henni hring sem olli keisaralegum áhyggjum. ATVINNULIF Gullfallegar trévörur frá Nýkomnar danskar trévörur. Mikiö úrval. Komiö og skoðið hjá okkur. KUN/GUND Hafnarstræti 1 sími 13469. 1, Tilboð óskast í skemmu með beinum veggjum stærð 12,5x30 m., og boga- skemmu stærð 1 2,5x30 m. Skemmurnar verða sýndar á Keflavíkurflugvelli föstudaginn 9. desemberkl. 13—15. Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri þriðjudaginn 13. desemoer kl. 1 1. árdegis. IM ; Sala Varnarliðseigna. litli kubburinn meö stóra Ijósið FLJÓTLEGA eftir heimsstyrjöld- ina síðari var Japan orðið eitt mesta iðnríki heims, og er svo enn. Þar í landi er líka betur unnið og framleiðni meiri að til- tölu en víðast annars staðar. Það er ekki sízt því að þakka, hve japanskir forstjórar kunna vel lagið á undirmönnum sínum. Meðal annars hafa forstjórar það fyrir sið að senda eiginkonum undirmanna sinna, a.m.k. hátt settra, lævíslegar sendingar, skeyti, blóm og gjafir, á afmælis- dögum, brúðkaupsafmælum og öðrum hátíðum fjölskyldnanna' Til dæmis er þetta skeyti, sem eiginkona eins deildarstjóra Toyota fékk, er maður hennar var hækkaður í tign: „Hjartanlegar hamingjuóskir í tilefni stöðu- hækkunar manns yðar. Hann á velgengni sfna að miklu leyti að þakka ómetanlegri aðstoð og stuðningi yðar.“ Svo var bætt við ósk um „áframhaldandi sam- starf“, svo að eiginmaðurjnn gæti einbeitt sér algerlega að starfi I sínu eftirleiðis eins og hingað til. Skeytinu fylgdu kökur, sem Jap- anir gefa á tyllidögum eins og vésturlandabúar konfekt, og blómvöndur. Mörgum vesturlandabúanum finnst þetta líklega fullmikil kur- í Japan segir forstjórinn það með blómum teisi og jafnvel afskiptasemi. Þeir kæra sig yfirleitt ekki um að flækja saman starfi og einkalffi. Japönum finnst hins vegar ekkert athugavert við þetta. Þeim finnst eðlilegt, að yfirmenn fylgist með einkalffi undirmanna sinna og skipti sér jafnvel af því. Japanir eru nefnilega vanir þessu frá fornu fari. Þess er að gæta að Japan var lénsveldi miklu lengur en flest önnur ríki. Þar réðu hers- ar fyrir landi, og alþýða manna þjónaði þeim af fullkominni undirgefni og skilyrðislausri hlýðni. Nú eru hersarnir allir — en við teknir .iðnjöfrar, forstjórar stórfyrirtækja. Og undirmenn þeirra þjóna þeim dyggilega. Það yrði líklega talið til tíðinda á vesturlöndum, ef allt starfslið stórfyrirtækis gengi nokkurra tíma gang þegar járnbrautamenn væru í verkfalli, til þess að bregðast ekki fyrirtæk- inu! En þetta þykir sjálfsagt f Japan. Eiginkonum starfsmanna stór- fyrirtækja verður og snemma Ijóst, að menn þeirra eiga f.vrstar og fremstar skyldur við fyrirtæk- ið — en síðan fjölskylduna. Þær láta sér það lynda og helga líf sitt því að styðja og styrkja eigin- mennina til dáða í þágu f.vrir- tækjanna, svo og því að ala upp næstu kynslóð dyggra þjóna. Nú er það svo, að margir Japan- Framhald á bls. 6J Hann er minnstur þeirra allra. Samt hefur hann ýmsa kosti fram yfir hina: Mikla og jafna lýsingu og skuggarnir í hornum mynd- anna hverfa. Þannig færð þú betri myndir. Smelltu af með OSRAM og þú færð myndirnar í réttu Ijósi. OSRAM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.