Morgunblaðið - 27.01.1978, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 27.01.1978, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTÚDAGÚR 27. JANÚAR 1978 7 „Heimskt, ómerkilegt og illa innrætt” Alþýðublaðið segir í leiðara í gær: „Kommamir, sem skrifa í Þjóðviljann, hafa vart getað vatni haldið undanfarna mánuði vegna prófkjöra annarra flokka. Þjóðviljinn reynir allt hvað af tekur að hæðast að þessum sjálfsögðu lýð- réttindum bæði í frétta- skrifum og stjórnmála- skrifum. Rök kommanna minna helzt á rök franska aðals- ins á árunum áður en bylt- ingin mikla brauzt út í Frakklandi árið 1798. Rök þeirra eru einfaldlega þau, að fólk sé svo heimskt, ómerkilegt og illa innrætt, að því sé alls ekki treystandi til þess að fá að greiða atkvæði í al- mennum kosningum. Kommarnir reyna að Ijúga því að lesendum sín- um, að það sé eingöngu sama fólkið, sem tekur þátt i prófkjörum flokk- anna. Þeir leggja forsiður blaðs sins undir það, að fjalla um úrslit í prófkjör- um flokkanna, og hella salti i sár þeirra, er biða lægri hlut. Siðast telur Þjóðviljinn á forsiðu, að þátttakendur i prófkjöri Framsóknar- flokksins hafi sýnt Þórarni Þórarinssyni einstakt van- þakklæti með því að kjósa hann ekki á þing eftir fjörutiu ára dygga þjón- ustu. Þetta er einkennileg af- staða og aumkvunarverð. Kjartan Ólafsson, ritstjóri Þjóðviljans, hóf ungur að sleikja frimerki fyrir Sósialistaflokkinn. Hann starfaði árum saman á skrifstofu hernámsand- stæðinga og siðan var hann í fjölmörg ár fram- kvæmdastjóri Sósialista- flokksins. Þá varð hann ritstjóri Þjóðviljans. Þetta er auðvitað löng og dygg þjónusta. Sam- kvæmt formúlu Þjóðvilj- ans ætti auðvitað að gera Kjartan Ólafsson að þing- manni ævilangt. Kosning- ar eru hvort sem er fyrir- tæki, þar sem fólk aðeins þvælist fyrir háleitum hugsjónum manna á borð við Kjartan Ólafsson." „Öllum ofbýður” Enn segir Alþýðublaðið: „Það er stundum engu likara en að þetta fólk, sem ritar Þjóðviljann, hafi ismola þar sem annað fólk hefur nauðsynlegustu lif- færi. Hugmyndir þess um lýðræði og lýðréttindi eru svo ótrúlega freðnar og steinrunnar, fyrirlitningin á fólki og réttindum þess er svo alger að öllum of- býður. Fámennar uppstillinga- nefndir hafa komið saman á vegum komma út um allt land og stillt upp gomlum og þreyttum list- um. Þar tróna Stefán Jónsson og Helgi Seljan, mennirnir, sem leggja til á opnum fundum Alþingis, að munur hæstu og lægstu launa skuli vera tveir á móti einum, en samþykkja svo innan við luktar dyr, þar sem al- menningur á ekkert að fá að vita, að hækka eigin laun mest allra í landinu. Og fólk er að fá nóg. Alþýðublaðið hefur undirstrikað, að fram- kvæmd prófkjöra er ekki og hefur ekki verið galla laus. En leiðin til úrbóta er ekki sú sem sjálfkjörnir aðalsmenn íslenzkra stjórnmála, kommamir á Þjóðviljanum, leggja til. Þeir em á móti prófkjör- um og þeir vilja að valdið sé hjá þröngum flokks klikum, eins og það hefur verið i 25 ár. Þeir eru hræddir við fólk og þeir hafa fulla ástæðu til þess. Það gæti nefnilega komið i Ijós, þegar allt kemur til alls, að fólkið vilji hvorki sjá Lúðvik, Gils eða Kjartan. Og slikt geta kommar ekki hugsað sér. Leiðin til úrbóta er að flytja aðferðir prófkjörsins inn i sjálft kosningakerfið. Þá nýtast kostir prófkjöra og hætta á misnotkun er úr sögunni. En auðvitað eru kommar á móti slikri breytingu. Af eðlilegri sjálfsbjargarhvöt hafa þeir nefnilega fundið það upp, að pólitik snúist eingöngu um málefni en aldrei um menn. Gerið Leyft Okkar verð verð Nesquik kókómalt 800 gr. dós .... kr. 659 592 Melrose's te 100 grisjur ........ kr. 601 539 C-11 3 kg. poki ................. kr. 868 778 Ota haframjöl 2 kg............... kr. 515 464 Ritz kex einn pakki ............. kr. 202 182 Jakob's tekex einn pakki.......... kr. 162 146 Hangikjöt frampartar 1 kg......... kr.1018 829 Síríus suðusúkkulaði 200 gr. st... kr 534 481 1 2 stk. Emmess vanilluíspinnar . kr. 960 864 Athugið: Breyttan opnunartíma. Opið til kl. 8 föstudaga. Lokað laugardaga. © Armúla1A Sími 86111 Vörumarkaðurinn hf. plotur af ýmsum gerðum og þykktum Timburverzlunin Volundur hf. KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 19, SÍMI 85244 Útsala Útsala Terelynebuxur. Nylonúlpur. Terelynefrakkar Skyrtur. Peysur o.fl. Andrés Skólavörðustíg 22. Nú er rétti tíminn að huga að klippingu trjá og runna. Getum bætt við verkefnum. Pantanir teknar í síma 86340 skrúðgarðadeild. NY ÞJONUSTA Reykjavfk — Akureyri Á tímum óvissu í skattamálum eru menn í vafa um réttarstöðu sína. Hvernig væri að vera ávallt viss « sinni sök? Við bjóðum einstaklingum og fyrirtækjum nýja þjónustu. Tryggingin felur í sér: 1. Skattframtal 1 978 2. Skattalega ráðgjöf alltárið 1 978 3. Allt annað sem viðkemur skatti yðar á árinu 1 978. SÍ. Langholtsvegi 115, Reykjavík, simi 82023. Bergur Guðnason hdl. Skaftaþjónusfan sf. Útibú Einilundi 2 C, Akureyri, sími 96-19977.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.