Morgunblaðið - 27.01.1978, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 27.01.1978, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 27. JANUAR 1978 11 Prófessor, Tómas Helgason yfir- læknirá Kleppsspitalanum. skólagöngu sem menn hafa að baki. Samkvæmt töflu. er þeir Tómas. Gylfi og Jóhannes bregða upp hafa 70 af hundraði þeirra, er hafa verið átta ár eða minna í skóla. neytt áfengis og fer siðan tala þeirra hækkandi með hverju viðbættu ári í skóla. þannig að 87,8 af hundraði þeirra, er hafa 1 3 ára menntun eða meira að baki, neyta þess. Sökum þess að ekki hefur verið kannað hvort kyn- og aldursdreifing þeirra. sem lokið hafa skyldunámi er sú sama og hinna, er numið hafa leng- ur ber þó ekki að taka niðurstöður þessar of bókstaflega Rannsóknir og niðurstöður eins og hér hefur stuttlega verið greint frá eru nauðsynlegar mótun heildar- stefnu í áfengismálum. en til þess hrökkva innflutningsskýrslur og al- menn nasasjón of skammt. Að sögn Tómasdar Helgasonar liggur nú fyrir töluverður efniviður, sem safnað hefur verið og verið er að vinna úr og má vænta niðurstaðna áður en langt um líður Ætla má að nokkurt hagræði sé að því að geta borið íslenzkar tölur saman við tölur í nágrannalöndum okkar, sem okkur er gjarnt að draga lærdóm af Eins og sést á listanum yfir áfengisneyslu í nokkrum löndum er nokkur munur á íslandi og hinum Norðurlöndun- um þótt munur þessi sé ekki ýkja mikill samanborið við til dæmis þann mun sem er á neyslu Dana og Frakka Ýmislegt bendir til aðmunur- inn á Islandi og hinum Norðurlönd- unum lýsi sér ekki síður í drykkju- venjum en magni Sýna rannsóknir að íslendingar drekka sjaldnar en meira í hvert skipti, en þó virðist ölvunartíðni í Reykjavík og öðrum höfuðborgum á Norðurlöndum vera mjög svipuð Þótt ársneysla Finna sé rúmlega tvisvar sinnum meiri en íslendinga, er tala ..sjússa" er þeir fá sér í hvert skipti nokkru lægri Sam- anburður Finna og Dana er hlið- stæður. Danir drekka nærri þriðj- ungi meira en Finnar en þó minna í hvert skipti Danir drekka meira en helmingi meira af sterku öli en Finn- ar, en þeim mun minna af sterkum veigum Gaman væri að kunna á þessu skýringu. Og af hverju er það sagt um íslendinga oftar en flestar aðra að þeir ..korni óorði á vínið'? — gp báðum Drykkjarföngin eru yfirleitt ódýrari en á kránum en þó ivið dýrari en í Englandi. Ráða má af heildartölum fjármála- ráðuneytisins að peningalegt and- virði áfengisneyslunnar fer vaxandi — úr u.þ.b. 264 milljónum ísl kr árið 1974 í u þ b 501 milljón á síðasta ári Verður það um 23 þús isl króna á klúbbfélaga í Belfast, en aðeins fjórðungur drakk helming alls áfengis sem neytt var á árinu. f Antrim. átthögum mótmælenda og lan Paisleys. var talan aðeins lægri eða um 20 þús. en lægst var hún í Fermanagh þar sem klúbbfélagar létu sér nægja 1 3 þús að meðaltali. Heilbrigðismálaráðuneytið i London harmar að hafa ekki tölur til samanburðar frá öðrum landshlut- um á Bretlandseyjum og getur þvi ekki sagt til um, en aðeins gizkað á að sumstaðar svolgra menn ósleiti- legar en annars staðar En talsmaður ráðuneytisins kvaðst telja að þar sem áfengisvandinn væri alvarleg- astur drykkju menn a.m.k. hálfa flösku af sterkum vinum á dag að meðaltali. en það jafngildir um 300 þús. isl kr á ári j/gp Sendiherrann á Islandi þekkt nafn í Frakklandi Brezka blaðið Evening Standard vekur athygli á því 6 janúar s.l., að franskir aðalsmenn hafi óumdeilan- lega sérstaka hæfileika til að gegna störfum i utanrikisþjónustunni. Og það sannist i nýútgefnum lista yfir skipaða sendiherra. Síðan segir orð- rétt i blaðinu: ,.A listanum eru göfug nöfn á borð við Jacques Pradelle de la Tour de Jean, sem hefur af öllum ólikleg- ustu stöðum verið sendur til íslands, Loiseleur des Longchamps de Ville (til Panama), Bertrand de Guilhen de La Taillade (til Tanzaniu), Xaigier Daulfresne de La Chevalerie (til Kanada) og Francois Lefebre de Labuhaye (til Washington)" Og blaðið bætir við „Gaman væri að sjá Carter forseta snúa upp á tung- una til að bera það nafn fram." Þarna er semsagt fyrst getið franska sendiherrans á íslandi Að visu er ekki nú verið að útnefna hann, því Jacques Pradelle de la Tour de Jean hefur verið sendiherra Frakka á íslandi i yfir 5 ár, kom hingað i júlimánuði 1973. Hann hefur verið góður fulltrúi lands sins og einkum beitt sér að þvi að kynna franska menningu á íslandi. M a hefur hann fengið hingað og nokkr- um sinnum staðið fyrir frönskum kvikmyndavikum. beitt áhrifum sin- um til að fá til kynmngar i bókasafni Alliance Francaise við Laufásveg merkar málverka- og eftirprentana- sýningar, og nú siðast mjög góða Ijósmyndasýningu Og fyrir hans áhrif eru þar ávallt öðru hvoru sýnd- ar gamlar þekktar kvikmyndir, auk þess sem franskar bókmenntir eru þar til útláns Jacques Pradelle de la Tour de Jean sendiherra er af gamalli franskri, þekktri aðalsætt, sem nær langt aftur i aldir og á hann ættar- óðalið og höll ættarinnar. Chateau de Caliviac. i La Salle i Le Gard- héraði i Midi i Frakklandi og þar verja þau hjónin venjulega sumar- leyfi sinu. Sendiherrann hefur starf- að í utanrikisþjónustu Frakka síðan 1945 Hingað kom hann frá Brúss- el. þar sem hann var stjórnmála- ráðunautur Frakka hjá Atlantshafs- bandalaginu, en þar á undan var hann i sendiráði Frakka i Bankok i Thailandi Jacques Pradelle de la Tour de Jean, sendiherra. Verðfráca. 76.000- ÍSETNING SAMDÆGURS ALLTÍBÍUNN BUÐIN sími 29800, (5 línur)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.