Morgunblaðið - 27.01.1978, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 27.01.1978, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JANUAR 1978 n VELVAKANDI SVARAR j SÍMA 0100 KL. 10 — 11 FRÁ MANUDEGI ‘InvuMmrtn-iin'ini % Óþarfa klappkór? Fyrst ég er farinn að ræða um sjónvarp get ég ekki stillt mig um að minnast á annað atriði, þessu óskylt. Á laugardagskvöld- um er um þessar mundir á skján- um svonefndur Gestaleikur, þokkalegur spurningaþáttur og rösklega stjórnað. En hví í ósköp- unum er verið að hafa á sviðinu einhvern fíflalegan klappkór til þess að trufla áhorfendur með bjánalegum lófasmellum og hlátrasköllum i tima og ótíma, svo að stundum heyrist varla, hvað þátttakendur leiksins eru að segja? Ég leyfi mér að leggja til, að klappkórinn verði látinn hverfa. en áhorfendur taki að sér, hver á sinu heimili, að klappa eftir þörf- um og hlæja, ef þeim þykir eitt- hvað afburðasnjallt eða smellið. Sveinbjörn Sigurjónsson.“ 0 Vantar skemmtistað „Kæri Velvakandi. Við erum hér fjórar óánægðar stúlkur og okkur langar til þess að koma kvörtun á framfæri. Við erum á aldrinum 17—18 ára og okkur langar til þess að spyrja ráðamenn þessa lands hvert á fólk á þessum aldri að fara út að skemmta sér? Þá eigum við við dansstaði sem hægt er að fara á um helgar. Þar sem þessi aldurs- hópur er yfirleitt eða meirihluti hans i skóla og hefur því ekki ráð á þvi að fara á þessi fokdýru sveitaböll. Þessi aldurshópur hefur einna mestan áhuga á því að skemmta sér af öllum aldurshópum. Við viljum eindregið skora á krakka sem eru sömu skoðunar að láta i sér heyra svo að eitthvað verði nú gert i málinu. 6338-0105.“ Þetta bréf sendu fjórar stúlkur og fara sem sé fram á að þvi verði svarað hvar þær og þeirra jafn- aldrar eigi að skemmta sér. Væri vel að fá einhver svör frá ráða- mönnum eins og þær biðja um og verður það að sjálfsögðu birt. Er ekki einhver sem finnur sig knú- inn til að svara hér? Þvi hér tala þær áreiðanlega fyrir hönd fleiri. Leikhúsgestir í vetur getið þið byrjað leikhúsferðina hjá okkur því um helgar, á föstudögum, laugardögum og sunnudögum munum við opna kl. 18,00 sérstaklega fyrir leikhúsgesti. Njótið þess að fá góðan mat og góða þjónustu í rólegu umhverfi áður en þið farið í leikhúsið. Þessir hringdu . . . % Af hverju allir á sama stað? Utiverumaður: — Ég hef aðeins verið að velta fyrir mér útiveru og ýmsu í sam- bandi við hana, þó að það sé e.t.v. ekki alveg rétti tíminn til þess að margra mati svona um hávetur. En mér varð eitthvað hugsað til þess að á sumrin má oft sjá hundruð eða jafnvel þúsundir manna streyma i bilum sinum út fyrir borgina, eða höfuðborgar- svæðið og fara margir á sömu staðina t.d. hins margfræga Þing- vallahrings. Eg minnist grinþátt- anna (sem fylgdi að vísu þó nokk- ur alvara) um Jónas og fjölskyldu er voru i útvarpinu eitt eða tvö sumur, þar sem Jónas og fjöl- skyldan voru alltaf að fara Þing- vallahringinn. En af hverju fara allir á þessa sömu staði? Er virki- lega ekkert að skoða hér nær okk- dur, einhvers staðar á Reykjavik- ursvæðinu, Seltjarnarnesi, Hafn- arfirði, Alftanesi, og þannig mætti lengi telja. Og ekki má gleyma fjörunum. Það sést varla nokkur hræða á þessum stöðum á laugardögum og sunnudögum, það fara allir út úr bænum. Þvi ekki að spara svolitið benzínið og aka styttra, og njóta þeirra úti- verustaða sem eru hér rétt við hvers manns dyr. Svo eru menn SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á skákmóti f Sovétríkjunum í fyrra kom þessi staða upp í skák þeirra Kiziz, sem hafði hvítt og átti leik, og Asanovs: 28. Hxc5! — dxc5, 29. Rb4! Mát. Þessi skák var tefld í meistara- keppni unglingasveita i Sovétríkj- unum, sem mun vera árlegur við- burður þar eystra, en til þess að taka þátt í mótinu þurfa sumar sveitirnar að fara úr einni heims- álfu f aðra. að fjasa yfir rykinu á Þingvaila- veginum, þeim glæpamönnum sem aka of hratt og svo mætti lengi telja, það er svo margt sem getur farið i skapið á ökumönn- um. Væri nú ekki betra að ganga sér til hressingar i einhverri fjör- unni eða virða fyrir sér fallegt útsýni frá góðum stað á Álftanesi, fjallahringinn t.d. og svo mætti lengi telja af þeim gæðum. Eg held að þetta mættu margir ihuga, það er svo margt sem menn gera bara af því að aðrir gera það og geta ekki talið sig vera menn með mönnum nema að gera eins og hinir. Á þetta vildi ég aðeins benda mönnum til umhugsunar, þó að helgarferðirnar séu ekki að ráði byrjaðar ennþá. HÖGNI HREKKVÍSI Örugglega snæugla! SlG&A V/öGA £ 1/LVE^W Nýbílasala Höfum opnað nýja bílasölu í Skeifunni 11 undir nafninu Iiílasalaii SKIiII AX, 'A' Bjartur og rúmgóður sýningarsalur 'A' Þvotta-aðstaða fyrir hendi. ★ Kappkostum fljóta og örugga þjónustu. Skeifunni 11, norðurenda, sími 84848. Opið frá kl. 10—21 virka daga og 10—19 laugardaga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.