Morgunblaðið - 27.01.1978, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 27.01.1978, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JANUAR 1978 Öskubuska (Edda Þórarinsdóttir), Kóngurinn (Árni Tryggvason), Prinsinn (Þórhallur Sigurðsson) og Stjúpan (Bríet Héðinsd.). • • Oskubuska handa öllum Þjóðleikhúsið: Öskubuska: Þýðing og sviðsgerð Eyvindar Erlendssonar eftir kvikmyndahandriti Évtenf Schwarz. Söngtextar: Þórarinn Eldjárn. Tónlist: Sigurður Rúnar Jóns- son. Dansar og leikhreyfingar: Þór- hildur Þorleifsdóttir. Leikmynd og búningar: Messíana Tómasdóttir. Leikstjóri: Stefán Baldursson. Évgení Schwarz er orðinn kunnur höfundur hér á landi og farinn að veita Thörbjörn Egner harða samkeppni um val leikrita handa börnum. Þessi þróun er ánægjuleg því að Évgenf Schwarz er athyglis- verður höfundur, verk hans í senn barnsleg og fullorðnisleg. Hann er ævintýraskáld og hef- ur sígildan boðskap að flytja. Það sem mér hefur þótt lýta verk Schwarz er hvað langdreg- in þau eru. Stundum er líkt og sviðsetning sögu verði aðalatr- iði, minna fari fyrir hínu leik- ræna (samanber Snædrottning- una). Um Öskubusku má að vísu segja að sögunni sé fylgt út í æsar, en meira fer þó fyrir ýmsum leikrænum skemmtileg- heitum en oft áður hjá Sehwarz. Eyvindur Erlendsson hefur með þýðingu sinni og sviðsgerð unnið gott og þarft verk þótt ekki sé mér fyllilega ljóst hve þáttur hans í Ösku- busku Þjóðleikhússins er stór. Ef til vill hefur aldrei tekist betur en nú að ljá verki eftir Schwarz líf á íslensku leiksviði. Ég vil þó ekki fullyrða það minnugur sýningar Mennta- skólans við Hamrahlíð á Drek- Lelkllst eítir JÓHANN HJÁLMARSSON anum. En hér hefur kunnáttu- fólk stefnt að ákveðnu marki og náð því. Árangurinn er barna- leikrit handa fullorðnum og fullorðinsleikrit handa börn- um. Það eina sem ég gæti hugsan- lega fundið að þessari sýningu er það að söngtextar Þórarins Eldjárns séu of fyrirferðar- miklir. En þeir eru skemmtileg viðbót við verkið, laglega orðað- ir og hnyttnir. Til dæmis Hver er hún?: Öskubuska virdist horfin héðan, höldum uppi sýnunginni á meðan. Hún er flogin eitthvaö útf buskann, elska litla gre.vskinnræfiltuskan. Allsk.vns fólk til sjávar og til sveita segist vera að hamast við að leita. Sunnanlands finnst hvorki haus né sporð- ur, hún er sjálfsagt farin eitthvað norður. Er hún kannski í lúðrasveit á Laugum? Lögga í Grfmsey, snarvitlaus á taugum? Eða jafnvel kennari við Kröflu? krftar einhver fræði á svarta töflu? Tónlist Sigurðar Rúnars Jónssonar fellur vel að efni leikritsins, á þátt í þeim gáska og léttleika sem einkennir sýn- inguna. Leikmynd og búningar Messiönu Tómasdóttur eru trú- ir ævintýrinu og dansar og leik- hreyfingar Þórhildar Þorleifs- dóttur gefa verkinu aukið gildi. Þung á metunum er að sjálf- sögðu leikstjórn Stefáns Bald- urssonar. Árrii Trýggvason leikur sam- kvæmt þeirri grundvallarhug- mynd verksins að allir séu mannlegir, líka kórigar. Þór- hallur Sigurðsson er enginn glæsiprins, en prins samt. Gísli Alfreðsson er kúgaður eigin- maður í hlutverki skógarvarð- arins. Stjúpa Bríetar Héðins- dóttur er eftirminnileg túlkun í klassískum ánda. Edda Þórar- insdóttir er hin sæta og ljúfa Öskubuska og gerir henni góð skil. Systurnar vondu og hé- gómlegu eru leiknar af Stein- unni Jóhannesdóttur og Önnu Kristínu Arngrímsdóttur. Valdemar Helgason er galdra- meistari sem lítið kann saman- borið við Dís Sigríðar Þorvalds- dóttur. Þau Valdemar og Sig- ríður leika bæði af innlifun og sama er að segja um Sigurð Sigurjónsson, lærisvein dísar- innar. Þannig mætti lengi telja. Ekki má gleyma Rauðhettu og Sfígvélaða kettinum, ókunna prinsinum og hirðmeyjum. Þáttur hljóðfæraleikaranna og söngvaranna skal einnig met- inn, en þeir eru Árni Blandon, Haraldur Þorsteinsson og Pét- urHjaltested. I 1 W'M Lt'i Skórinn mátaður. Stjúpan (Bríet Héðinsdóttir), Öskubuska (Edda Þórarinsdóttir). I fjarska: Herfor- ingi (Jón Gunnarsson) og dætur stjúpunnar (Steinunn Jóhannesd. og Ánna Kristfn Arngrímsdóttir. Starfsmenn kjarn- orkuvers verða fyrir geislavirkni Ekki alvarlegt — Brlissel, 25. jan. Reuter. FORSTJÖRI kjarnorkuvers í austurhluta Belgfu skýrði frá þvf í dag, að 30 starfsmenn hefðu lftillega veikzt af völdum geisla- virkni eftir að hættuleg efni láku út í verinu fyrir 12 dögum. Hann vfsaði til baka ásökunum um- hverfisverndarmanna og sagði, að — Rhodesía Framhald af bls. 1. þar sem allir hafa jafnan kosn- ingarétt, og einnig hve sú stjórn á að sitja lengi við völd. Búizt er við að Smith og blökku- mannaleiðtogarnir Muzorewa, sr. Sithole og Jerimiah Chirau muni gefa út formlega tilkynningu um samkomulagið á mánudag, þegar þeir haf kynnt það og fengið sam- þykkt í samtökum sínum. Samn- ingsaðilarnir hafa lagt áherzlu á að samkomulagið næðist fyrir mánudag, en þá mun brezki utan- ríkisráðherrann David Owen, bandariski fulltrúínn Andrew Young og fulltrúar rhodesískra útlaga, sem heyja skæruhernað i landinu, éiga með sér fund á Möltu um framtíð Rhodesiu og brezk-bandarísku tillögurnar um það efni. Skæruliðaleiðtogarnir Mugabe og Nkomo hafa algjör- lega hafnað fyrirfram samkomu- laginu í Salisbury. — Stórhættuleg geislavirkni Framhald af bls. 1. ef fjarlægja ætti hlutana úr hnett- inum af þessu svæði. Ráðherrann sagði að enn hefði reynzt ómögu- legt að áætla stærð þeirra hluta s.em þarna væru og það gæti tekið marga daga áður en kanadiskir og bandariskir vísindamenn gætu komið náerri þeim. Kanadiski varnarmálaráðherr- ann skýrði frá því að Kosygin forsætisráðherra Sovétríkjanna hefði sent Trudeau forsætisráð- herra Kanada persónuleg skila- boð þess efnis að Sovétmenn væru þess albúnir að veita alla aðstoð í málinu. Aðrir talsmenn varnarmála- ráðuneytisins í Ottawa sögðu síð- ar í kvöld að nákvæmari mæling- ar yrði að gera áður en hægt væri að segja með vissu hversu nærri sérfræðingar gætu komist hinum geislavirku hlutum úr njósna- hnettinum. Það var fyrst snemma í dag sem flugvél varð vör við óeölilega geislavirkni á þessum svæðum í Norður-Kanada, en hnötturinn hrapaði eins og áður sagði af braut sinni sl. þriðjudag. — Nýjar viðræður Framhald af bls. 1. Arabarfkin sem taka vilja harða afstöðu til Israels hafa ákveðið að efna til annars fundar sin f milli, í þetta sinn f Alsfr. 1 dag var ákveðið að fundur þessi skyldi hefjast á fimmtudag í Algeirsborg og var til- kynnt þar í borg að þátt- takendur yrðu Sýrland, Suður-Jemen, Lfbýa og Samtök palestfnu- skæruliða. Irak, sem hefur tckið einna harð- asta afstöðu gegn ísra- el, var ekki nefnt á nafn, en ráðamenn þar hafa talið að hin rfkin gangi ekki nógu langt f afstöðu sinni gegn Gyð- ingarfkinu. segir forstjórinn þeir gerðu úlfalda úr mýflugu. Hann sagði að enginn starfs- mannanna hefði orðið fyrir meira en einum fimmtugasta hluta þess geislunarmagns, sem mönnum getur stafað hætta af á einu ári. Neitaði hann því að nokkur þeirra væri á sjúkrahúsi eða f umsjá læknis. í fréttinni, sem forstjórinn, van den Damme, sagði að væri uppspuni hafði komið fram að 80 manns væru á sjúkrahúsi og að geislavirkni á vinnustað hefói mælzt 900 sinnum meiri en leyfi- legt er. En eftir að nokkrir starfs- mannanna veiktust var verinu lokað í þrjá daga. Að sögn embættismanna átti lekinn sér stað meðan tekinn var vökvi af kjarnorkuofni í því skyni að kæla hann. Kjarnorkuver þetta er sam- eign Frakka og Belga og var byggt fyrir tveimur árum. Fimmtungur allrar raforku í Belgíu er framleiddur með kjarn- orku. — 40% Skota Framhald af bls. 1. Skotlandi undanfarin ár hafa að meðaltali 77% kjósenda greitt at- kvæði og mundu svo margir taka þátt f atkvæðagreiðslu um heima- stjórn þyrftu 52% þátttakenda að lýsa sig samþykka henni til þess að henni yrði komið á. Er nú þegar hafin í Skotlandi skipuleg barátta fyrir því að sem flestir Skotar greiði atkvæði í væntanlegri atkvæðagreiðslu og að teir styðji heimastjórn, en Kilbrandon lávarður sem er for- maður undirbúningsnefndar þeirra samfaka sem berjast fyrir heimastjórn sagði í dag að barátta þeirra yrði nú mun erfiðari en áður. Þingmenn íhaldsflokksins brezka en þeir eru andvígir heimastjórn nutu stuðnings all- margra þingmanna Verkamanna- flokksins við atkvæðagreiðslu á miðvikudagskvöld um þessi ákvæði þjóðaratkvæðagreiðslunn- ar og önnur mál sem að heima- stjórn lutu. Leiðtogar Verka- mannaflokksins höfðu lagt áherzlu á að flokkurinn væri and- vígur þessum ákvæðum, og nutu þeir stuðnings frjálslyndra þing- manna, en nægilega margir verkamannaflokksþingmenn skoruðust undan merkjum til að þess að tillagan var samþykkt. Stjórn Verkamannaflokksins hefur lofað skozkum og velskum þjóðernissinnum aukinni sjálf- stjórn á þessu ári, en andstæðing- ar þessara áforma telja að þau kunni að leiða til þess að hið Sameinaða konungdæmi leysist upp. ________ ________ — Samvinna Vesturlanda Framhald af bls. 5. dreifa barmmerkmu og halda um leið áfram fundarstarfseminni Ef fólk hefði áhuga á að skrifa saratök ' unum, t d í því skyni að fá fulltrúa þeirra á fund, væri hægt að senda bréf í pósthólf nr 10066, Reykja- vík, eða hringja í Skafta Harðarson í símum 25366 eða 85298 — Soares Framhald af bls. 1. Miguel, eins og í fyrri stjórn, en innanrfkisráðherra Alberto Oliveira e Silva. Soares sagði í kvöld á blaða- mannafundi að stjórn sfn mundi byggja á sósíalískum grundvelli, en í henni yrðu nokkrir íhalds- samir einstaklingar. Hann sagði að stjórnin mundi þegar á morg- un byrja að undirbúa lagafrum- vörp sín, sem í fyrstu myndu einkum beinast að lausn efna- hagsvanda landsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.