Morgunblaðið - 27.01.1978, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JANUAR 1978
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Kona óskast
á tanniækningastofu 4 daga í viku.
Upplýsingar í Domus Medica milli kl.
3—4 í dag og mánudag milli kl 5 — 6.
Geir R. Tómasson.
Starfsmaður
óskast
í matvælaiðnað Aldur 25 — 30 ára. Um-
sóknir sendist Mbl. fyrir 31.1 '78 merkt:
„R—899". »
Stálvík h.f.
Garðabæ
óskar að ráða konu/karl til símavörzlu og
almennra skrifstofustarfa.
Starfsreynsla æskileg.
Tilboð með upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist í pósthólf 27, Garðabæ
fyrir 30. janúar.
R!
Vagnstjórar
Strætisvagnar Kópavogs óska eftir að
ráða 3 vagnstjóra. Umsóknir sendist
undirrituðum á eyðublöðum sem fást á
bæjarskrifstofunum. Upplýsingar veitir
undirritaður kl. 11 —12 alla virka daga í
síma 41570 Umsóknarfrestur er til 6
febr. n.k.
Rekstrarstjórinn i Kópavogi,
Sigurður R. Gís/ason.
Vogar,
Vatnsleysuströnd
Umboðsmaður óskast, til að annast dreif-
ingu og innheimtu fyrir Morgunblaðið i
Vogunum.
Upplýsingar hjá umboðsmanni í Hábæ
eða afgreiðslunni í Reykjavik, sími
10100
Skrifstofustarf
Starfskraftur óskast til söfnunar og úr-
vinnslu tölulegra upplýsinga Viðkomandi
þarf að geta hafið störf hið fyrsta Um-
sóknir sendist Mbl. fyrir n.k. mánudag
merktar: „Z—4098"
Símavarzla
Óskum eftir að ráða starfskraft til sima-
vörzlu og annarra algengra skrifstofu-
starfa. Góð vélritunarkunnátta nauðsyn-
leg
Umsækjandi vinsamlega hafið samband
við skrifstofu vora sem fyrst.
Bræðurnir Ormsson hf.
Lágmúla 9, sími 38820.
Starf fulltrúa
fræðslustjóra
á Akranesi er laust til umsóknar. Um er
að ræða hálft starf, kennaramenntun
áskilinn. Umsóknir með upplýsingum um
menntun og starfsreynslu, sendist
fræðslustóra Vesturlandsumdæmis, fyrir
20 febrúar n k
Fóstra
Fóstra óskast sem fyrst til starfa á dag-
heimili Tálknafjarðar Upplýsingar i síma
94-2538
Háseta vantar
á 130 tonna netabát sem stundar veiðar
frá Vestmannaeyjum Upplýsingar í síma
98-1 751 .
Verslunarstjóri
óskast til sjónvarps og hljómtækjaverslun-
ar. Æskilegt að viðkomandi sé radíóvirki
eða hafi góða þekkingu á þvi sviði. Tilboð
sendist fyrir 12 á hádegi laugardag 28
janúar merkt: „TV — 4364".
Auglýst er laus til umsóknar staða
Skatt-
endurskoðanda
hjá embætti skattstjóra Vesturlandsum-
dæmis, Akranesi Væntanlegir umsækj-
endur mega búast við að þurfa að sækja
námskeið i skattamálum og sýna hæfni
sína að því loknu.
Laun samkv launakerfi starfsmanna rikis-
ins. Starfið veitist frá 15. marz 1978.
Umsóknir óskast sendar skattstjóranum í
Vesturlandsumdæmi, Akranesi, eigi síðan
en 1 marz n k og veitir hann allar nánari
upplýsingar.
Fjármá/aráðuneytið,
23. janúar 19 78.
radaugiýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
húsnæði /' boði |
500 ferm. húsnæði til
leigu við Ármúla
frágangi við hita og lýsingu að fullu lokið.
Skrifstofuaðstaða, stórar vörudyr. Upp-
lýsingar í sima 8649 T á skrifstofutirria.
fundir — mannfagnaöir
Vopnfirðingar
Munið þorrablótið í Lindarbæ föstudag
27 janúar kl. 19 30. Ómar Ragnarsson
skemmtir. Mætið vel og stundvislega.
Skemmtmefndin.
húsnæöi
Iðnaðarhúsnæði óskast
til leigu
á Reykjavikursvæðinu. 200—450 ferm.
á jarðhæð með góðum innkeyrsludyrum.
Tilboð berist auglýsingadeild Mbl. fyrir
lokun mánud. 30. janúar merkt G —
900".
Sigurrós Sigurðar-
dóttir —
Fædd 26. ágúst 1894.
Dáin 4. janúar 1978.
Sigurrós Sigurðardóttir var
fædd að Bjarnastöðum Kolbeins-
dal, Skagafjarðarsýslu. Foreldrar
hennar voru Jóhanna Pétursdótt-
ir og Sigurður Stefánsson. Þau
Jóhanna og Sigurður eignuðust
tvær dætur, Sigurrósu og Gunn-
hildi, sem lést fyrir nokkrum ár-
um. Aður hafði móðir Sigurrósar
Minning
eignast son er Jón hét. Þau Jó-
hanna og Sigurður bjuggu um
skeið að Bráðræði Skagaströnd,
þar sem Sigurrós ólst upp.
Er Sigurrós varð eldri, var hún
mjög hneigð til allra verka, hvort
sem það var handavinna eða önn-
ur verkefni og hætti þeim ekki
fyrr en hún var búin að íjúka
þeim af.
Um átján ára aldur fór hún, að
Söndum Húnavatnssýslu sem
vinnukona og var þar um það bil
eitt ár. Hinn 26. des, 1915 giftist
hún Sigurbirni Jónssyni, og eign-
uðust þau þrjú börn, Huldu,
Skúla og Elínu, sem dó í bernsku.
Eftir nokkurra ára sambúð, slitu
Sigurrós og Sigurbjörn samvist-
um. Þá fór Sigurrós með börn sín
tvö, þau Huldu og Skúla, til
Skagafjarðar á bæ við Hóla í
Hjaltadal.
Sigurrós fluttist til Sauðár-
króks 1925.
Hún var kjarkmikil kona og lét
aldrei bugast, þó hún væri með
tvö börn. Hún þurfti oft að erfiða
mikið en aldrei gaf hún neitt eft-
ir. Hún stóð ætíð föst á fótum
sínum hvað sem gekk á, og missti
aldrei kjarkinn. 1. febrúar 1941
giftist Sigurrós Ágúst Hreggviðs-
syni verkstjóra hjá vita- og Hafna-
málastjórninni. Eignuðust þau
einn son, Sigurð Jóhann, búsettan
í Reykjavík. Ágúst átti tvö börn
frá fyrra hjónabandi, Hreggvið
sem er látinn og Jónu. Og var
Sigurrós þeim sem besta móðir,
EF ÞAÐ ER FRETT-
NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
jafnt sem Agúst var Huldu og
Skúla sem besti faðir.
Mann sinn Ágúst missti Sigur-
rós hinn 5. nóvember 1970.
En Sigurrós lét ekki bugast þó
að sorgin væri mikil við þann
stóra missi, er hún lá sjálf á
sjúkrahúsi. Sigurrós bjó ein á
heimili þeirra að Lindargötu 63,
þó að heilsan væri léleg og sjónin
ekki sem best. Hún undi sér vel
hjá sínu handavinnudóti og alltaf
var hreint í kringum hana, þvi
alltaf vildi hún hafa allt fágað i
kringum sig. Ætíð var hún sterk
þó að hún væri slæm í fótunum,
og ætíð fóru henni verk vel úr
hendi.
Vorið 1977 var Sigurrós orðin
það slæm til heilsunnar, að hún
gat ekki verið lengur ein og tók
Sigurður sonur hennar hana inn á
sitt heimili, og var hún þar um
tíma, uns hún fór á Elliheimilið
Grund.
Síðustu mánuði sem hún lifði
fór henni síversnandi uns hún
loks fékk þann frið er hún þráði.
Hún lést á Elliheimilinu Grund
hinn 4. jan. 1978. Blessuð sé
minning hennar.
Sonardóttir hennar
Sigurrós Sigurðardóttir