Morgunblaðið - 27.01.1978, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JANUAR 1978
Rússnesku birnirnir voru ofjarlar íslenzka liðsins:
vonir þrátt fyrir tapið
Brottvísanir af leikvelli: Axel
Axelsson 2 mínútur, Arni Indriöa-
son útilokaður.
Misheppnuð vítaköst: Juk og
Gassi áttu vítaköst í slá og stöng
og Gunnar varði víti frá Gassa.
Spán-
verjarnir
brustu
í grát
SPANVERJAR verða engin lömb
að leika sér við á sunnudaginn.
Þeir sýndu það í gærkvöldi á móti
Dönum, að þeir eru miklir bar-
áttumenn og það var fyrst og
fremst þeirra eigin klaufaskap að
kenna að þeir náðu ekki betri
árangri gegn Dönum, en Danirnir
unnu leikinn 19:15.
I leiknum í gærkvöldi höfðu
Danir ekkert nýtt fram að færa,
þeir voru ósköp svipaðir og í
Norðurlandamótinu heima í
haust en þeir hafa þó náð betri
tökum á línuspili. Enda voru
beztu menn þeirra í leiknum línu-
og hornamennirnir Thor
Munkager og Henrik Jakobs-
gaard. I spilinu eru Anders Dahl
Nielsen og Michael Berg aðal-
mennirnir og þá þekkja Islenzku
landsliðsmennirnir vel. Berg og
Nielsen skoruðu 5 mörk hvor og
voru markhæstir.
Spánverjarnir eru klaufskir I
leik sínum. Þeir leika ekki kerfis-
bundinn handbolta, hraði þeirra
er mikill en úthaldið greinilega
ekki eins og bezt verður á kosið.
Leikurinn gefur
lömb að leika sér við. Þeir reyndu
mikið að ná hraðaupphlaupum og
gáfu þau þeim góð færi sem ekki
nokkur vegur var fyrir Gunnar
markvörð að ráða við.
Það var varla nokkur leið að
koma skoti yfir rússnesku birnina
á miðju vallarins og reyndu
íslensku leikmennirnir undirskot
sem gáfu misjafna raun. Rússarn-
ir höfðu öll tök á leiknum I fyrri
hálfleiknum og komust I fimm
marka forystu og sá munur var á
liðunum I leikhléi, 14:9 fyrir
Rússa. Janusz Cervinsky hefur
örugglega talað ærlega yfir höfð-
um fslensku Ieikmannanna í leik-
hléi og það var nýtt lið sem hljóp
inn á völlinn I seinni hálfleiknum.
Maður var farinn að óttast slæma
útreið, en með stórskemmtilegum
leik og gífurlegri baráttu var
staðan allt I einu orðin 16—15,
aðeins eins marks munur, og við
áttum gott færi á að jafna leikinn.
Gunnar Einarsson reynir að finna smugu 1 rússnesku vörninni, til
Myndin sýnir vel risavöxt rússnesku leikmannanna. Sfmamynd AP.
ÞEGAR litið er á gang leiksins í
tölum kemur i ljós að tæpur helm-
ingur markskota Islendinga end-
aði mað marki. Skotin voru 37,
mörkin urðu 18. 13 sinnum vörðu
sovésku markmennirnir, 4 sinn-
um fór knötturinn framhjá og
tvisvar I stöng, auk þess sem bolt-
inn tapaðist hvorki meira né
minna en 15 sinnum I misheppn-
uðum sendingum á línu og öðrum
misnotkunum. Gunnar Einarsson
varði 12 skot og náði sér verulega
á strik I seinni hálfleik og átti
stærstan þátt I því að sá hálfleik-
ur vannst. Enginn Islendingur
skarar fram úr hvað skotanýtingu
snertir að Janusi undanskildum
sem skaut einu sinni og skoraði
eitt mark, Einar skaut 5 sinnum
og skoraði 3 mörk, Axel skaut 10
sinnum og skoraði 5 mörk, Gunn-
ar 4 skot og 2 mörk, Björgvin 6
skot og 3 mörk, Þorbergur 2 skot
og 1 mark, Þorbjörn 4 skot ekkert
varnar eru Tchernyshev og Iljin. mark Geir skaut 5 sinnum 0g
skoraði 3 mörk.
ÞAÐ ER ekki annað hægt að segja en að íslenzka liðið hafi staðið sig
vel á móti Rússum I fyrsta leik sfnum f lokakeppni HM hér f Arósum f
kvöld. Að vfsu tapaði fslenzka landsliðið 22:18, en rússnesku birnirnir,
sem voru mótherjar þess virkuðu frekar á mann sem vélar en
mennskir menn. Það verður þó að viðurkennast að f fyrri hálfleiknum
gerði liðið of mörg mistök og þau riðu sfðan baggamuninn í seinni
hálfleiknum, er fslenzka liðið kom tvfeflt til leiks.
En þegar hér var komið sögu voru
15 minútur eftir af leiknum og
allt virtist geta gerzt. Næstu
mínútur voru æsispennandi, liðin
skiptust á um að skora og þegar
aðeins nfu mínútur voru eftir var
staðan 18—17 fyrir Rússa.
Þá var allur vindur úr íslenzku
leikmönnunum og af siðustu
fimm mörkum leiksins voru fjög-
ur þeirra rússnesk. Lokastaðan
22—18 eftir stórskemmtilegan og
á margan hátt góðan leik íslenzka
liðsins.
Að þessu sinni voru beztu menn
íslenzka liðsins þeir Gunnar
markvörður Einarsson og Einar
Magnússon, þann tfma sem hann
var notaður.
Björgvin og Axel komust mjög
vel frá sínu. Þorbjörn tók við
hlutverki Árna í vörninni f stað
þess að hafa hann við hlið sér og
skilaði Þorbjörn sínu vel í seinni
hálfleik. Geir og Gunnar sýndu
góða takta á milli og sömuleiðis
sýndi Þorbergur að honum óhætt
að treysta. Janus gerði engar vit-
leysur í leiknum og skilaði sínu
eins og leikreyndur maður þó
hann sé í raun nýliði með lands-
liðinu. Bjarni Guðmundsson var
lítið notaður, Kristján Sigmunds-
son ekkert og Árni var útilokaður
eftir 8 mínútur.
Rússarnir voru einfaldlega of
góðir fyrir okkur í þessum leik,
en með sömu baráttu og í kvöld á
islenzka liðið að geta komist í 8
liða úrslitin.
Mörk Islands: Axel 5 (3v),
Björgvin 3, Geir 3, Einar 3, Gunn-
ar 2, Þorbergur 1, J anus 1.
Mörk Rússlands: Gassi 4 (lv),
Kravcov 3, Tschernyshev 3, Juk 3,
Kidajew 3, Maksimov 3, Rézanov
1, Below 1, Iljin 1.
Margir Ijósir punktar voru í
þessum Ieik, sem gerðu leik liðs-
ins eins góðan og raun ber vitni.
Einar Magnússon sýndi á köflum
hvers hann er megnugur, sýndi
grimmd aldrei slíku vant, oggerði
3 mörk.
Samvinna Axels og Björgvins
var eins og hún gerist bezt í fyrri
hálfleiknum. Gunnar Einarsson
markvörður stóð sig eins og hetja
í leiknum og þá sérstaklega fram-
an af seinni hálfleiknum, þegar
íslenzka liðið var að vinna upp 5
marka forskot Sovétmanna frá
fyrri hálfleiknum og breyta stöð-
unni úr 14:9 í 16:15. Þorbergur
Aðalsteinsson er maður framtíð-
arinnar f handknattleiknum. Það
sýndi hann í kvöld og Gunnar
Éinarsson er.hættulegur leikmað-
ur, sem gott er að setja inn á
annað slagið til að fá meiri fjöl-
breytni í sóknarleikinn.
íslenskir áhorfendur hér í
Árósum byrjuðu að hvetja sína
menn um leið og liðið birtist á
vellinum og ekki var hægt að
kvarta yfir úthaldsleysi íslensku
áhorfendanna. Það var þó ekki
nóg og byrjun liðsins var slæm.
Varið var frá Geir og Þorbirni og
Björgvin steig á línu. Rússarnir
skoruðu hinsvegar úr sínum fær-
um og gerðu tvö fyrstu mörkin og
var greinilegt að þeir yrðu engin
Éá Ágústi I. Jónssyni
blaðamanni Morgunblaðsins
á Heimsmeistarakeppninni
f handknattleik:
Áberandi
áhorfendur
HATT f 500 tslendingar fylgd-
ust með leiknum gegn Rússum
og eru þeir ýmist að heiman
komnir til keppninnar eða þá
héðan frá Danmörku og Sví-
þjóð. Óþarflega margir þeirra
voru undir áhrifum áfengis og
er ekki of mikið sagt að heyrst
hafi f þeim eins og þeir væru á
fimmta þúsund, en þeir hvöttu
fslenzka liðið dyggilega.
Gunnar
x/arði
12 skot