Morgunblaðið - 27.01.1978, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 27.01.1978, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUÐAGUR 27. JANÚAR 1978 17 mM íbúar viö Farragutgötu í Boston hafa átt heldur betur í erfidleikum með að komast leiðar sinnar undanfarna daga eftir að mikið fannfergi hefur verið þar sem og víða annars staðar á austurströnd Bandaríkjanna. Gerðu aðsúg að innanríkisráðherra Barcelona, Spáni, 26. jan. Reuter/AP. FJÖLDI hægrisinnaðra öfgamanna hafði uppi mótmæli gegn spænsku rfkisstjórninni við jarðarför fyrrverandi borgarstjóra Barcelona og konu hans, sem voru myrt í gær. Múgurinn hrópaði slagorð um að herinn ætti að taka völdin f landinu f sfnar hendur. Viðamiklar ráðstafanir hafa verið gerðar til að hafa uppi á morðingjum hjónanna. Þegar innanrfkisráðherra Spán- Voru allir látnir lausir — gegn Svíar: Leggja bann við notkun úðunarefna 1. JANÚAR 1978 tóku í gildi í Svíþjóð lög um bann gegn notkun flestra þeirra úðunarefna (spreyefna) sem framleidd eru í heiminum, en lögin eru sett á þeim grundvelli að slík efni geti haft slæm áhrif á gufuhvolfið. Svíar eru fyrsta þjóðin sem hef- ur stigið það spor að setja slíkt bann með lögum. Bannið tekur til þúsunda tegunda hárlakka, svita- meðala, lofthreinsiúðara, skordýraeiturs og fleiri efna. En það tekur ekki til efna sem notuð eru í lækningaskyni, eins og úð- ara sem asmasjúklingar hafa þurft á að halda. Brezka blaðið Times skýrir frá því að Svíar hafi með þessari lagasetningu tekið til greina aðvaranir vísindamanna sem halda því fram að áframhaldandi notkun slíkra efna geti um síðir haft skemmandi áhrif á gufuhvolf jarðarinnar. Ózon-lagið um hnöttinn ver jörðina að mestu gegn út- fjólubláum geislum sólar- innar. Það hefur valdið áhyggjum vísindamanna að ef þetta lag þynnist vegna áhrifa ofangreindra úðunarefna eigi slík geisl- un greiðari leið í gegn og geti í ríkari mæli orsakað húðkrabba meðal hvítra manna. Um síðir gæti það orsakað að hitinn í gufu- hvolfinu aukist svo að jökl- ar og ísjakar á jörðinni bráðni, þó að það myndi að sjálfsögðu taka lengri tíma. I aðildarlöndum EBE hafa verið uppi raddir um að banna beri notkun úðunarefna, en þó hafa ráðamenn ekki talið ástæðu til þess fyrr en nán- ari rannsóknir hafa verið gerðar varðandi þau áhrif sem þau eru talin geta haft á andrúmsloftið. ar, Rodolfo Martin Villa, mætti við jarðarför Joaquin Viola og konu hans, sem fulltrúi ríkis- stjórnarinnar, gerði mikill mann- fjöldi aðsúg að honum og frá hópnum heyrðust slagorð eins og „herinn til valda“, ,,Franco“ og „drepum svikarana". Fjöldinn veifaði þjóðfánanum og fána falangista og hrópaði nafn leið- togans, einræðisherrans Francicsko Francos sem lést fyrir tveimur árum. Ráðherrann þurfti aðstoð og vernd lögreglu til að komast burt að athöfninni lok- inni. Víðtækar ráðstafanir hafa verið gerðar við landamæri Spánar og Frakklands og leit haldið áfram á Spáni að morðingjum Viola og konu hans. En lögreglan hefur sett morðin i samband við morðið á Jose Maria Bulto, iðnrekenda í Barcelona fyrir 10 mánuóum. 1 báðum tilvikum réðust þrtr menn og ein kona á fórnarlömb sfn og myrtu þau með sprengjum. eftir að hafa krafist lausnargjalds. Fjórir námsmenn, þrír karlmenn og ein kona, voru handteknir í júlí á síðasta ári grunaðir um að- ild að morðinu á Bulto, en þeir Frakkland: Enn er fylgi vinstri- manna meira París, 26. jan. Reuter NIÐURSTÖÐUR þriðju skoðana- könnunarinnar á tíu dögum um kosninga úrslitin í Frakklandi bentu til að bandalag vinstri manna myndi bera sigur úr být- um ef kosningar færu fram nú. Urslit voru birt í blaðinu L’Aurore sem er hægri sinnað. Þar kom fram að vinstri menn fengju 258 þingsæti en stjórnar- flokkarnir 233 sæti. Þessari niðurstöðu ber heim og saman við fyrri slíkar. Kosningarnar fara fram 10. marz. VEÐUR víða um heim Amsterdam 7 rigning Aþena 14 sól Berlfn 5 skýjað Brússel 3 heiðskfrt Chicago 1 snjókoma Kaupmannah. 4 skýjað Frankfurt 6 skýjað Genf 6 skýjað Helsinki +4 snjókoma Jóhanncsarb. 21 skýjað Líssabon 17 rigning London 8 rigning Los Angeles 20 heiðskfrt Madrid 13 sólskin Montreal 1 snjókoma Moskva + 7 skýjað New York 5 rigning Ösló +2 skýjað Parfs 8 skýjað Rómaborg 8 bjart San Francisco 14 bjart Stokkhólmur + 1 skýjað Tel Aviv 16 skýjað Tókfó 5 skýjað Vancouver 7 skýjað Vfnarborg 6 skýjað By MCMuý aoí «h» nJconioaa Mevs Leaoer Endurminningar Brezhnevs: andmælum innanríkisráóuneytis- ins, í sakaruppgjöf á síðasta ári fyrir pólitiska fanga. Þeir voru allir félagar i róttækri fylkingu vinstrisinna i Katalóníu. Talsmaður lögreglunnar hefur látið hafa það eftir sér að engar sannanír séu fram komnar fyrir því að pólitísk ástæða liggi að baki morðinu á Viola, en hann komst til áhrifa i stjórnartið Francos, og átti ennfremur sæti i ráðgjafarnefnd Juan Carlos kon- ungs þar til hann lét af borgar- stjórastörfum á síðasta ári. Lög og alls- herjarregla keppikeflið London, 26. jan. Reuter. SAMKVÆMT Gallup- skoðanakönnun telja Bret- ar mikilvægara að lögum og reglu sé uppi haldið, en að barist sé gegn verðbólgu og atvinnuleysi. Skoðanakönnunin sem tók til 981 manns sýndi að 83% þjóðar- innar telur það „geysilega mikil- vægt“ að lög landsins og reglur séu virt, 76% telja það „geysilega mikilvægt" að barist sé gegn verð- bólgu og atvinnuleysi. 55% telja það „geysilega mikilvægt" að lækka skattana. Samkvæmt könnuninni settu kjósendur, bæði Verkamanna- flokksins og Ihaldsflokksins, lög og reglur efst á lista. Kynæsandi bók bönnuð í Brasilíu Brasilíu, 26. jan. AP. BRASILÍSKA ríkis- stjórnin bannaði í dag sölu og dreifingu á bókinni „Erótískar endurminningar smá- borgara" sem var ný- komin á markaðinn. Bókin er skrifuð undir -dulnefni og er fimmta bók þessarar gerðar sem forlagið Livros do Brasil gefur út á ári og .er jafnskjótt bönnuð. Þá hefur brasilíska stjórnin nú einnig bannað útgáfu á tíma- riti sem forlagið gefur út og hefur þótt all- djarft í frásögnum sínum og myndbirt- ingu. Sovétar frelsarar Evrópu í stríðslok Moskvu, 26. jan. AP. Reuter. SOVEZKA fréttastofan TASS, sagði I dag ítarlega frá endur- minningum Leonids Brezhnevs um seinni heimsstyrjöldina. Þar var lögð mikil áherzla á nauðsyn þess að koma f veg fyrir að nokkru sinni verði stríð framar. Gefið er f skyn að við ákveðin pólitfsk vandamál hafi verið að etja þegar Sovétrfkin voru að vinna traust Austur-Evrópuþjóða, sem Kauði herinn hafi frelsað undan nasistastjórnum. Brezhnev fer f endurminning- unum mörgum orðum um fögnuð og gleði fbúa Ungverjalands, Pól- lands og Tékkóslóvakfu við frels- unina. „Aratugum saman hafa heimsvaldasinnar rægt flokk okk- ar. Reynt var að berja inn f höfuð- ið á fólki hræðilegum og fárán- legum staðreyndum. Og svo... eftir allt saman eru Sovétríkin f augum Evrópu frelsarinn.“ Brezhnev segir að það hafi kostað mikið erfiði að standa við þær glæstu vonir sem við þetta hafi verið bundnar en Sovétmönnum hafi tekizt það. þrátt fyri allt. Endurminningar Brezhnevs úr strfðinu munu birtast í febrúar- blaði bókmenntaritsins Xovy >1 ir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.