Morgunblaðið - 27.01.1978, Blaðsíða 32
aucílVsimíasímínn ER:
22480
Tilbod opnuð i Hrauneyjafoss eftir viku:
40 aðilar haf a sýnt áhuga—þar
á meðal Kínverjar og So vétmenn
Þjóðarbókhlaðan:
Fyrsta
skóflu-
stungan
á morgun
FYRSTA skóflustungan að
Þjóðarbókhlöðu, sem rísa
mun við gamla íþróttavöll-
inn á Melunum verður tek-
in í fyrramálið, laugardag
klukkan 10. Stunguna tek-
ur Vilhjálmur Hjálmars-
son menntamálaráðherra.
Hann sagði í viðtali við
Morgunblaðið í gær að
hann gengi að slíku starfi
með gleði. Hér væri um
mikið mál að ræða.
í Þjóðarbókhlöðunni,
þegar hún verður komin
upp, verða tvö söfn, Lands-
bókasafn og Háskólabóka-
safn. Þessi tvö söfn búa nú
við mikil þrengsli. Þá er
þriðja safnið, sem einnig
býr við mikil þrengsli Þjóð-
skjalasafnið. Verður það
eftir í gamla safnahúsinu
við Hverfisgötu. Þegar -
Landsbókasafnið fer þaðan
batna húsnæðismál þess til
mikilla muna.
RlKISSJÓOUR hcfur .>uo:„ út á
japönskum fjármagnsmarkaöi fán
að upphæð 4,5 milljarðar yena,
sem er jafnvirði 4,04 milljarða
fslenzkra króna. Lánið er tekið
hjá japönsku samvinnuhreyfing-
unni og Iffeyrussjóðum f Japan.
TILBOÐ í vélar og rafbún-
að væntanlegrar Hraun-
eyjafossvirkjunar verða
Fulltrúar lánveitenda, tveir
Japanir, koma til tslands og
munu f dag undirrita lánssamn-
inginn f Ráðherrabústaðnum
ásamt Matthfasi A. Mathíesen,
fjármálaráðherra, sem undirritar
Framhald á bls. 19
opnuð föstudaginn 3.
febrúar næstkomandi, að
því er Halldór Jónatans-
son, aðstoðarframkvæmda-
stjóri Landsvirkjunar,
skýrði Morgunblaðinu frá í
gær. Eru þetta fyrstu til-
boðin í þessar virkjunar-
framkvæmdir, en í undir-
búningi er útboð á öðrum
framkvæmdum við virkj-
unina. Alls hafa um 40 aðil-
ar sýnt áhuga á fram-
kvæmdinni, en frestur til
þess að skila tilboðum er til
klukkan 14 hinn 3. febrúar,
en klukkan 15 verða tilboð-
in síðan opnuð.
Enn hafa engin tilboð
borizt, en 40 aðilar hafa
fengið tilboðsgögn og þar á
meðal er sovézkt fyrirtæki
og kínverskt. Meðal helztu
aðila, sem sýnt hafa áhuga
og fengið tilboðsgögn, eru
AEG í Þýzkalandi, Braun
Boveri í Þýzkalandi, Mitsui
í Japan og Mitsubisi í Jap-
an, General Electric í
Bandaríkjunum og West-
inghouse í Bandaríkjun-
um. Þá má nefna Energo-
projekt í Júgóslavíu, Kon-
tram í Finnlandi,
Teknoprom Export í Sovét-
ríkjunum, Siemens í
Þýzkalandi, Sorefame í
Portúgal og kínverskt fyr-
irtæki, sem ekki er vitað
um nafnið á, en útboðs-
gögn voru afhent sendiráði
Kína í Reykjavík.
Halldór Jónatansson
kvað ekki enn ákveðið,
hvenær útboð færi fram á
mannvirkjagerð við
Hrauneyjafoss, en hann
kvaðst búast við því að
stjórn Landsvirkjunar
myndi taka ákvörðun um
það áður en langt um liði.
Suðurland
fékk á
sig hnút
FLUTNINGASKIPIÐ Suðurland
fékk á sig hnút úti fyrir Reykja-
nesi í gærmorgun og þurfti af
þeim sökum að leita inn til Vest-
mannaeyja um miðjan dag i gær.
Lunning lagðist inn á kafla og
varð að gera við það, áður en
skipið sigldi utan.
Skipið er á leið til Spánar með
saltfisk og kavíar. Það er drekk-
hlaðið og risti svo djúpt að það
verður að sæta færis á flóði til
þess að fara úr höfninni f Eyjum.
Var í gærkveldi búizt við að skip-
ið léti úr höfn á flóðinu f nótt.
Farmur skipsins mun ekkert hafa
kastast til við hnútinn og engan
mann sakaði um borð.
Gott veður á
loðnumiðunum
BEZTA veður var komið á loðnu-
miðunum í gær og var allur loðnu-
flotinn, yfir 60 skip, að leita loðnu
á svæðinu frá Langanesi vestur
fyrir Kolbeinsey. Um kvöldmatar-
leytið í gær var ekki vitað til þess,
að skipin hefðu fundið mikið
magn, nema hvað fréttist af
nokkrum loðnutorfum á um 100
faðma dýpi norður af GrímSey. Þá
hafði einn bátur fengið 200 tonna
kast, rétt upp við Kolbeinsey.
4 milljarðar kr. í Verðjöfn-
unarsjóði fiskiðnaðarins
2,3 milljarðar í saltfískdeildinni
INNSTÆÐUR f Verðjöfnunar-
sjóði fiskiðnaðarins námu um
s.I. áramót tæpum 4 milljörð-
um kr., en f sjóðnum eru starf-
andi nfu deildir og er hver
deild sjálfstæður aðili. Inn-
stæðutölurnar geta enn átt eftir
að breytast nokkuð, þar sem
margvfsleg uppgjör frá sfðasta
ári eiga enn eftir að berast. Af
þessari 4 milljarða kr. inn-
stæðu er langmest f saltfisk-
deild sjóðsins eða 2,3 milljarð-
ar kr. Til samanburðar má geta
þess að í frystideild sjóðsins
eru nú aðeins 85,9 milljónir
króna.
Það er gjaldeyriseftirlit
Seðlabanka íslands, sem hefur
umsjón með Verðjöfnunar-
sjóðnum. ísólfur Sigurðsson
viðskiptafræðingur starfs-
maður sjóðsins sagði þegar
Morgunblaðið ræddi við hann f
gær, að sjóðurinn skiptist í
raun í níu deildir. Þar bæri
fyrst að nefna deild, sem kölluð
hefði verið stofhfjárdeild, en í
henni væri óráðstafað fé sjóðs-
ins, þ.e. fé frá afurðum, sem
ekki væru komnar beint inn í
sjóðinn, en Verðjöfnunar-
sjóðurinn spannaði nú yfir um
það bil 80% sjávarafurða. I
þessari deild eru nú 80,9 millj.
króna.
Þá sagði Isólfur að í freðfisk-
deildinni væru nú 85,9 milljón-
ir kr. Þessi deild sjóðsins hefði
verið tóm um áramótin 76—77,
hins vegar hefði vetrarvertíðin
gefið um 205 millj. kr. af sér í
sjóðinn, og ættu þvi um 120
millj. kr. eftir að koma enn af
þessari upphæð, en færi síðan
vafalaust fljótlega út úr sjóðn-
um á ný. 194 millj. kr. standa
nú á reikningi humardeildar-
innar, humarvertíðin frá því í
fyrra er enn óuppgerð, en að
sögn ísólfs, má reikna með að
20—25 millj. kr. bætist við á
reikning þessarar deildar,
þegar vertfðaruppgjörið liggur
fyrir. Innstæða á reikningi
rækjudeildar er nú 86.2 millj.
kr. Síðasta veiðitímabil er enn
óuppgert, en gert er ráð fyrir
að það gefi nokkurt fé af sér í
sjóðinn.
Um mjöl- og lýsisdeildina
sagði ísólfur, að 599,4 millj. kr.
væru nú á reikningi fyrir mjöl,
eftir vertríðarvertíðina 1977
bættust 485,5 millj. kr. í sjóð-
inn, en uppgjör vegna sumar-
og haustloðnuvertíðar liggur
ekki ehn nákvæmlega fyrir. Þá
eru 199,8 millj. kr. sem eru á
reikningi vegna framleiðslu á
lýsi, svo til eingöngu loðnulýsi,
Framhald á bls. 19
Ríkissjóður tek-
ur 4,5 milljarða
yena lán i Japan