Morgunblaðið - 27.01.1978, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 27.01.1978, Blaðsíða 22
MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 27. JANUAR 1978 22 Minning: Stefán R. Pálsson frá Kirkjubóli Fæddur 30. janúar 1896. Dáinn 17. janúar 1978. Höfðingi er fallinn frá. Höfð- ingi, sem setti svip á samtíð sína og sveit. Væru til aðalsættir á íslandi, myndi hann verið hafa framarlega í hópi þeirra. A Sturlungaöld myndi hann ekki talinn meðal vígamanna, þótt vel á sig kominn, en í krist- inni tíð, friðflytjandi. — Til eru menn, sem fæddir eru undir þeirri heillastjörnu, að geta ósjálfrátt miðlað samferðamönn- um sínum lífsunaði, með návist sinni einni saman! Ösjálírátt er ekki rétt orð, því að slíka eigind fær enginn, nema í þjálfaðri hugsun og tilbeiðslu á höfund til- verunnar. Þennan fríða flokk fyllti Stefán Pálsson með sóma. I önundarfirði eru mörg Kirkjuból. Öll hafa þau alið ágæta syni og dætur. Og þeim er það sameiginlegt, að hin eldheita, log- ar.di hugsjón aldamótakynslóðar- innar, með kjörorðinu „íslandi allt“, setti mark sitt á þessa kyn- slóð, sem er að mestu horfin, en nú hverfur senn af vettVangi með öllu. A Stefáni sönnuðust orð Einars Benediktssonar: „Maðurinn einn er ei nema hálfui\ með öðrum er hann meiri en hann sjálfur.“ Minning: Fæddur 6. júní 1933 Dáinn 31. desember 1977 Það er komið undir kvöld á gamlársdag. Síðasti dagur ársins er senn liðinn. Myrkrið er að fær- ast yfir. Ég sit og læt hugann reika í tilraun til uppgjörs við árið sem er að kveðja. Spurning- arnar leita á hugann. Hvað hafði mér orðið ágengt? Hvað hafði ég fengið? Hafði ég nokkuð að þakka? Mér varð það ljóst að ég var eins og allur þorri manna, tilætlunarsamur og vanþakklátur, gerandi mér far um að biðja um og krefjast, en gleyma að vera þakklátur. Jú, svo sannarlega mátti ég þakka. Ekkert hafði ver- ið frá mér tekið. Síminn hringir. Konurödd sem ég þekki er í sím- anum. Mér dylst ekki að það er eitthvað að. „Hann Kalli er dá- inn.“ Þessi helfregn kom mér Kona hans, Guðrún Össurardóttir var honum slík, hún var hans styrkur og stoð, og barnalán þeirra var mikið. Samheldni þeirra hjóna var einstök. Gest- risni, góðvild og hjálpsemi mættu hafa verið þeirra einkunnarorð. Að leiðarlokum skal Stefáni þökkuð samfylgdin og honum beðið blessunar á ókomnum slóð- um. Drottinn styrki og styðji ástvini hans. Sveinbjörn Finnsson. Frá því Stefán Pálsson fór um hlað heima i minum foreldrahús- um, frá því ég renndi oft um hlaðið heima hjá honum að Kirkjubóli, og þar til ég kvaddi hann í síðasta sinni þessa lífs, er það brosið í augum hans og glað- legt yfirbragð sem er mér minnis- stætt, svo að til undantekninga er, að minu mati. Fyrir um 20 árum lágu svo leið- ir okkar saman í litlum hópi eldri nemenda Núpsskóla í Dýrafirði. Hann valdist sem foringi hópsins og við tókum að hittast og vinna saman að fjáröflun til greiðslu á gjöfum til skólans. Það fylgdi þessum fundum sannarlega viss eldmóður. Við vorum 7 sem í mik- mjög á óvart. Það var svo stutt síðan hann hafði komið í heim- sókn. Hann sem var svo stór og hraustlegur, fullur áhuga fyrir starfinu, trúandi á framtíðina og betri tíma. Það var svo margt sem átti að gera og gaman væri að gera. Minningarnar gerast áleitn- ar. Hve oft höfðum við ekki rifjað upp löngu liðnar stundir frá æsku og uppvaxtarárum okkar austur á Fáskrúðsfirði. Búið okkur til ljós- lifandi myndir af því liðna. A þessari stundu var nær ógerning- ur að trúa, að við ættum ekki eftir að fá okkur kaffisopa og rabba saman. En þetta var bláköld stað- reynd. Sá fyrsti úr jafnaldrahópn- um hafði verið kallaður brott. Maðurinn með Ijáinn spyr ekki um stund né stað. Sjómaðurinn hefur ekki alltaf mikinn tíma til heimanbúnaðar þegar „ræsið“ illi bjartsýni töluðum margt og létum okkur dreyma um margar hendur er legðu okkur lið úr hin- um geysistóra hópi Núpsskóla- nemenda.Okkur förlaðist þar. Við Ví -um frá þeim tíma að það þótti 't ikill og góður viðurgerningur að fá að fara í héraðsskóla. Við vor- um ein af þeim, og sá hópur var ekki svo stór. Stóri hópurinn er frá þeim tíma sem þetta nám var orðin hlýðni við kerfið og fróð- leiksþorstinn átti vísa svölun. Við litum með augum gamla tímans á skólann. Sáum hann sem sólar- hæð í hádegisstað, eitthvað sem hafði gefið okkur lífsorku, eitt- hvað sem gerði okkur djarfari og færari um að láta álit okkar í ljós. Við fundum að við vissum heil- mikið og gátum auðveldara dregið ályktun án ótta við að hún væri röng. Með stuðningi frá góðu fólki, gáfum við skólanum nokkr- ar gjafir. En svo fór, að fundum okkar fækkaði og við hættum að leita fleiri, eða nýrra handa. En þessi hópur er ekki runninn úr i sandinn. Við erum eftir fimm. Langvarandi veikindi binda eitt okkar við rúmið og Stefán er all- ur. Við munum bráðlega gera hópinn formlega upp. í ys og þys þessara tíma lifa nú í minningu okkar sérlega ánægju- legar stundir, þar ber brennandi áhugi Stefáns kærleikur til og virðing fyrir Núpsskóla var hans rauði þráður. Við vitum að þær stundir verða ekki fleiri. Bjarminn á ásjónu Stefáns Pálssonar hefur tekið sina hinstu mótun. Þegar við komum saman næst, eru flugfjaðrir okkar horfn- ar og gælum okkar við stórar hug- myndir er lokið. Við sigldum ekki hátt, þrátt fyrir það veit ég að kemur. Svo var og í þetta sinn. I samtölum okkar höfðum við það mikið rætt eilífðarmálin, að ég er þess umkominn að geta fullyrt, að vinur minn fékk óskabyr að leið- arlokum. Karl Guðjón Siggeirsson var fæddur á Fáskrúðsfirði 6. júní 1933, sonur hjónanna Helgu Finn- bogadóttur og Siggeirs Stefáns- sonar skipstjóra og útgeróar- manns á Fáskrúðsfirði. Þau hjón- in eignuðust sex börn og eru nú þrjú þeirra á lífi. A Fáskrúðsfirði átti Kalli, eins og hann var jafnan kallaður, sín æsku og uppvaxtar- ár. Æskubyggðin var dæmigert sjávarpláss þeirra tfma. Umhverf- ið gat ekki verið betra. Þorpið innundir fjarðarbotninum, fjalla- hringurinn fagur, fjörðurinn framundan þorpinu kjörinn leik- vangur verðandi sjómanna. Engin barnaheimili eða dagvistunar- stofnanir. Móðirin helgaði sig móðurhlutverkinu og faðirinn var fyrirvinnan. Þá varðaði það ekki orðið við lög, að greina milli karls og konu. Snemma var leitað á athafnasvæði þeirra fullorðnu, sem þá helst voru beituskúrarnir, bátarnir og bryggjurnar. Þetta umhverfi var óneitanlega mót- andi fyrir þá, sem ólust upp í sjávarþorpum úti á landi á þessum tíma. í þetta umhverfi sóttu verðandi menn starfsþjálf- un og margskonar fróðleik, með samskiptum sfnum við sér eldri menn, er miðluðu óspart af reynslu sinni og þekkingu, sem síðarmeir varð mönnum nota- drjúgt í starfi. Snemma var Kalli orðinn þátttakandi f störfum manna við sjóinn. Það voru ekki allir háir í loftinu þegar byrjað ekkert okkar hefði viljað missa af þessum stundum og í dag sendum vin einhuga alúðarþakkir þessum horfna vini okkar og minnumst hans. „Ef við eigum bæn og trú er okkur borgið, þessa heims og ann- ars,“ sagði hinn látni við mig með innilegu handtaki, þar sem ég stóð og horfði yfir „móðuna miklu“. Ég fann að hugur fylgdi máli. Nú veit ég, að í þeim hugblæ standa ástvinir hans allir. Frá okkur þessum vinum hans flyt ég þeim öllum, konu, börnum og öðr- um innilegar hluttekningar kveðju og þakkir. Jónfna Jónsdóttir frá Gemlufalli. var að beita línu. Afköstin voru ekki mikil í fyrstu, en þeir full- orðnu höfóu vilja og þroska til þess að leyfa börnum og ungling- um að vera með í daglegum störf- um, enda urðu margir vel liðtækir og eftirsóttir til starfa síðarmeir. Um fermingu er Kalli farinn að stunda sjó á sumrum, en það þótti merkisviðburður og manndóms- merki þegar ungir menn sögðu skilið við beituskúrinn og fóru að „róa“. Árið 1952 ræðst Kalli i skiprúm hjá Guðna Grímssyni skipstjóra og útgerðarmanni í Vestmanna- eyjum, á m.b. Maggy VE III. Með Guðna var hann fjórar eða fimm vertíðir og minntist Kalli veru sinnar þar ávallt með hlýhug og ánægju, enda kvað hann atlæti og aðbúnað allan hafa verið með miklum ágætum, en þau Guðni og Eftirminnilegur Vestfirðingur er í dag til moidar borinn frá Bústaðakirkju; Stefán R. Pálsson söðlasmiður, Gautlandi 21 hér f borg, fyrrum bóndi á Kirkjubóli i Korpudal, Önundarfirði. Með honum er góður maður genginn, sem margir munu sakna og ekki gleyma. Þótt persónuleg kynni mín af Stefáni mættu heita á aðeins tak- mörkuðu sviði sameiginlegs áhugamáls nú á efri árum hans, er mér hann samt minnisstæðari flestum öðrum, sem ég hefi þó haft meira saman við að sælda. Því olli sérstæður persónuleiki hans; hversu hann lifði lífinu lif- andi alla stund. Áhugi hans var eldlegur og framkvæmdaþróttur- inn þar eftir. Og hæst rís Stefán i minningu minni, þegar öðrum var um og ó og töldu jafnvel kapp hans meira en forsjá. Þá var hríf- andi að heyra hann og sjá; augun leiftrandi og einlæga mælskuna freyða af vörum hans. öll hálf- velgja var Stefáni andstyggð. Fáir lifa frekar eftir boðorði postulans en hann gerði: „Verið brennandi í andanum ...“ Nú við leiðarlok í þessum heimi get ég ekki annað en minnst þessa um leið og ég votta syrgjendum samúð og þakka honum ógleym- anlegar samverustundir bæði hér og vestra. Og mér finnst húna eins og á mig leiti I sambandi við Stefán frægar ávarpsljóðlfnur Matthiasar Jochumssonar til Þor- bjargar Sveinsdóttur: „Þú varst Eldborg, nú ertu orðin Hraun.2 Baldvin Þ. Kristjánsson. Lúlla höfðu vertíðarmenn sína í heimilinu hjá sér. Veturinn 1952 — ’53 fór Kalli á vélstjóranám- skeið og aflaði sér réttinda sem vélstjóri. Árið 1956 er Kalli sina síðustu vetrarvertíð í Vestmanna- eyjum og þegar hér er komið sögu verður nokkurt hlé á sambandi okkar án þess það rofni þó nokk- urntíma alveg. Hann fer austur og stofnar heimili á æskustöðvum sínum, en sá er þetta ritar var þá orðinn búsettur í Vestmannaeyj- um. Á gamlársdag 1957 giftist Kalli eftirlifandi konu sinni, Sæ- unni Þorleifsdóttur ættaðri af Akranesi. Þau hjónin bjuggu fyrstu búskaparár sín á Fáskrúðs- firði, en fluttu síðan upp á Akra- nes, en hér í Reykjavík hafa þau búið síðustu árin að Hvassaleiti 6. Þeim hjónum varð fimm barna auðið og eru þau: Aðalbjörg, Ragnheiður, Daníel, Harpa og Finnbogi sem er yngstur og varð hann 10 ára á nýársdag s.l. Þá má ekki gleyma litla dóttur- syninum sem ber nafn afa síns og heitir Karl Sæberg, en litli Kalli var sannkallaður augasteinn afa sins enda var Kalli sérstaklega barngóður og góður félagi barna sinna. Kalli var sannur vinur vina sinna. Vinátta hans og trygglyndi náði út yfir öll hreppamörk og fjarlægðir. Ég minnist heimsókna hans ef skip hans kom að landi í Vestmannaeyjum. Það var stutt viðdvöl í höfn ef hann gaf sér ekki tíma til að líta inn og treysta vináttuböndin. Kalli var sjómað- ur alla sína starfsæfi og þótti það rúm vel skipað þar sem hann var, lengst af var hann vélstjóri, eða í tvo áratugi. Hann var samviskú- samur og heiðarlegur maður, traustur og góður liðsmaður, fs- lenskri sjómannastétt til sóma. Kalli var þéttur á velli og þéttur ; lund og bar ekki tilfinningar sín- ar á torg. Hann hafði gott skop- skyn, sá alltaf það skemmtilega í fari samferðamannanna, en fór vel með það svo enginn hafði skaða af. Hann var vel látinn af félögum sinum, dagfarsprúður og umtalsgóður og kunni að gleðjast með glöðum. Siðustu fimm árin vorum við Kalli nágrannar og við höfðum því tækifæri til að hittast oftar. Nú er leiðir skiljast vil ég með þessum fátæklegu orðum, þakka þessum vini mínum, marg- ar góðar stundir fyrr og síðar, tryggð hans og vináttu við mig og fjölskyldu mína. Eiginkonu, börn- um, móður, systkinum og öðrum vandamönnum votta ég innileg- ustu samúð mina. Guð gefi honum góða landtöku handan móðunnar miklu. Góðar minningar geymast um góðan dreng. Olgeir Jóhannsson. + Elskulegur eiginmaður minn. faðir, sonur og bróðir. SIGURÐUR JÓNASSON húsasmíðameistari, Sundlaugavegi 16, andaðist í Borgarspítalanum 25 janúar Jarðarförm auglýst síðar Guðrún Ragna Ragnarsdóttir og börn, Steinunn Sigurjónsdóttir og systkini og aðrir vandamenn. + Jarðarför móður ökkar, GUÐBJARGAR GÍSLADÓTTUR sem andaðist 18 þ m . fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 30 þ m kl 10.30 f.h. Sigríður Jónasdóttir, Hólmfríður Jónasdóttir, Karl Jónasson, Birgir Jónasson Páll M. Jónasson. + Þökkum innilega vmáttu og h.lýhug við andlát og útför föður okkar, GUÐMUNDAR ÁSBJORNSSONAR, Hellissandi Ása Guðmundsdóttir, Guðmundur Guðmundsson. og aðrir ættingjar. + Þökkum innilega samúð og vinarhug við fráfall og jarðarför. SIGFÚSAR BJÖRNSSONAR, Skógargötu 20, Sauðárkróki. Bergþóra Þórðardóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. + Innilegar þakkir til allra sem auðsýndu okkur vmsemd og samúð við andlát og útför. ÓLAFSBENÓNÝSSONAR frá Háafelli i Skorradal, Tunguheiði 14, Kópavogi, Sigríður Sigurðardóttir börn, tengdabörn og barnabörn. Karl Siggeirsson frá Fáskrúðsfiröi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.