Morgunblaðið - 27.01.1978, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 27.01.1978, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JANUAR 1978 19 ítalskir kommúnistar vilja á ný í stjórn með Andreotti Róm, 26. jan. Reuter ITALSKI kommúnistaleiðtoginn Enrico Berlinguer ftrekarði f dag kröfur kommúnista um aðild að stjórn landsins og sagði að ef kristilegir demókratar gengju ekki til samstarfs við þá mundi það hafa f för með sér nýjar kosn- ingar sem myndu skipta lands- mönnum f andstæðar fylkingar f stað þess að sameina þá. Berling- uer lét þessi ummæli falla í ræðu sem hann flutti á fundi 180 manna miðstjórnar kommúnista- flokksins sem köliuð var saman til að ræða stjórnmálaviðhorfin. „Hrafninn flýgur...” - Leiðrétting NAFNARUGLINGUR er hvim- leiður, hvort sem er í ræðu eða riti. Ég hef nýlega orðið þess áskynja að hann lætur til sin taka í einu kvæðann í bók minni „Hrafninn flýgur um aftaninn", sem kom út skömmu fyrir síðustu jól. Þar vitna ég til minningar- ljóðs eftir Jónas Hallgrímsson og læt sem það sé ort eftir lát vinar hans, Tómasar Sæmundssonar, en þetta er raunar hending úr öðru jafn fögru og frægu kvæði Jónas- ar til minningar um Bjarna Thorarensen skáld. Þetta bið ég lesendur og hand- hafa ljóðakversins að leiðrétta, hvern f sinu eintaki. (I óseldum forlagabókum verður þetta leið- rétt). Tvær efstu línurnar á bls. 22 skulu vera: Skjótt hefur sól brugðið sumri orti Jónas að skáldbróður gengnum. Hér þarf að breyta einu þriggja atkvæða orði, í stað Tómasi komi skáldbróður, og er þá öllu til skila haldið. Islenzkur málsháttur segir: All- ir eiga leiðréttinga orða sinna og jafnvel presturinn í stólnum. Ég tek mér þann boðskap til þakka. í janúár 1978, Baldur Pálmason. Flugmenn á fyrsta samn- ingafundinum FYRSTI samningafundur með Félagi íslenzkra atvinnuflug- manna, en félagið semur fyrir flugmenn, sem vinna hjá Flugfé- lagi íslands, var haldinn í gær. Á fundinum voru kröfur flugmanna yfirfarnar, en eiginleg samninga- vinna er enn ekki hafin. Fundur hefur enn ekki verið haldinn með Loftleiðaflugmönnum. Deila Flugleiða við flugmenn hefur ekki verið send sáttasemjara ríkisins. Eins og kunnugt er hafa Flug- leiðir þegar samið við flugvirkja og flugfreyjur. Þeir samningar tókust án milligöngu sáttasemj- ara. Andreotti, leiðtogi kristilegra demókrata sem nú reynir að mynda nýja stjórn, lauk í dag fyrstu fundum sínum með leiðtog- um annarra flokka, en viðræðurn- ar voru ekki sagðar hafa leitt til neinnar ákveðinnar niðurstöðu. FÆRRI jarðskjálftar voru í heiminum á árinu 1977 en á mað- alári. Eldfjallavirkni var hins vegar í meðallagi og þrisvar sinn- um meiri en á árinu á undan. Kom þetla fram I skýrslu banda- rísku jarðrannsóknastöðvarinnar á þriðjudag. Samkvæmt skýrslunni létu 2.800 manns lífið í jarðskjálftum 1977, en ársmeðaltal er um 10.000 manns. Á árinu á undan voru jarðskjálftar mjög mannskæðir og var það annaó versta árið í skýrslum með um 700.000 dauða- slys af völdum jarðskjálfta, en meiri hluti þeirra fórst í hörm- ungunum i Kina. Flestir biðu bana i jarðskjálftum árið 1556, 830.000. Mælingar rannsókna- stöðvarinnar leiddu í ljós að 35 eldfjöll hefðu verið virk á síðasta ári, en árið 1976 voru þau aðeins Flokkar kommúnista, sósialista og lýðveldissinna halda enn fast við kröfur sinar um ríkisstjórn með aðild kommúnista, sem taki að sér að gera nauðsynlegar neyðarráðstafanir i málum landsins. 10. I Afrikuríkinu Zaire létu 70 manns lífið af völdum eldgoss á árinu. Á meðal óvenjulegra at- burða má nefna að gaus úr bor- holu á íslandi. Að sögn vísinda- manna eru eldgosin 10 á árinu 1976 óvenju fá, því yfirleitt eru þau frá 20 til 30 árlega. Að sögn yfirmanns jarðrann- sóknastöðvarinnar fóru Banda- ríkjamenn ekki varhluta af eld- gosum. Má nefna gos í Akutan og Pavlov í Alaska og sérkennilegt hraunflæði frá fjallinu Kilauea á Hawai. Flest dauðsföll á síðasta ári af völdum jarðskjálfta urðu í Rúm- eníu. Þar fórust 1.400 manns hinn 4. marz. Einnig varð manntjón í þremur jarðskjálftum í Íran og fleiri í Indónesiu og Argentinu. 20 jarðskjálftar mældust í Banda- ríkjunum 1977 og ollu þeir minniháttar tjóni í um 11 rikjum. Berlinguer sagði i ræðu sinni í dag að forðast ætti kosningar í lengstu lög, heldur ætti núverandi þing að koma sér saman um stjórn og væri það þvermóðsku kristilegra demó- krata að kenna að ný stjórn hefði ekki þegar verið mynduð. Enn um Bem- höftstorfuna Morgunblaðinu hefur borist eftirfarandi samþykkt frá Bandalagi íslenzkra lista- manna: „Stjórn Bandalags íslenzkra listamanna hvetur stjórnvöld eindregið til að taka endanlega ákvörðun um varðveizlu Bern- höftstorfunnar, svo loks linni leiðu þófi í mikilvægu menn- ingarmáli." Forseti Kýpur sjalfkjormn Nikosí, Kýpur, 26. janúar. AP. Reuter. SPYROS Kyprianou var á fimmtudag sjálfkjörinn forseti Kýpur til næstu fimm ára. Hann hefur gegnt forsetaembættinu frá láti Makariosar erkibiskups í agúst s.l. Enginn bauð sig fram á móti Kyprianou sem nýtur stuðnings Demókrataflokksins og Kommún- istaflokksins, sem eru öflugustu stjórnmálasamtökin á fulltrúa- þingi landsins. — 4 milljarðar Framhald af bls. 32. þar af gaf, vetrarvertíðin 1977 164,6 millj. kr. af sér. Þá eru 67 millj. kr. á reikningi vegna framleiðslu á fiskmjöli, en fjóra fyrstu mánuði síðasta árs bættust 46,5 millj. kr. inn á þennan reikning. Siðan var viðmiðunarverði breytt, þannig að ekki hefur borizt ört i sjóð- inn síðan frá þessari afurð. — Í árslok, voru 2.381,6 millj. kr. á reikningi saltfiskdeildar- innar, sagði isólfur. Kvað hann, að þá hafi verið lokið uppgjöri vegna vetrarvertíðarinnar, en allar líkur væru nú á að greitt yrði úr sjónum vegna sumar- og haustframleiðslu, sem þýddi að innstæðueign gæti breytzt nokkuð. Að lokum gat isólfur þess, að 221,2 millj. kr. væru nú á reikn- ingi skreiðardeildar. Um af- komu þessarar deildar ríkti nú meiri óvissa en nokkurrar annarrar deildar og þvi erfitt að segja neitt ákveðið vegna óvissuástandsins á Nigeriu- markaði. — Ríkissjóður Framhald af bls. 32. samninginn fyrir hönd rfkissjóðs. Samkvæmt upplýsingum Hösk- ulds Jónssonar, ráðuneytisstjóra, er lántaka þessi í samræmi við ákvæði lántökuáætlunar. Vextir lánsins eru 7,3% á ári og lánstím- inn 12 ár. Lánið er afborgunar- laust fyrstu 6 árin og yrði síðasta greiðsluár 1990. Lánið hefur ríkissjóður tekið fyrir milligöngú Seðlabankans, sem séð hefur um allan undirbúning lántökunnar. -<CROWN> MEST SELDfl TÆKI LANDSINS 1977 0G 1976 Þetta eru meðmœlL 1978ÁRGERÐIN K0MIN \ BÚÐIN Sfciphohi 1 9 simi 29800 5 iWuir 2 / ár i fararbroíidt Verð frá kr. 135.600 til 199.500- Færri jarðskjálftar en á meðalári 1977 WashinKton, 25. jan. AP. Sigurður út í næstu viku GERT er ráð fyrir að Sigurður RE 4 verði drcginn til Gautaboegar í lok næstu viku, þar sem skipt vcrður um vél í skipinu. Það er björgunarskipið Goðinn, sem dregur Sigurð út og tekur dráttur- inn nokkra daga. CROWN RADIO CORP. japan V e i ð h t e y t i n t) a r v íe n t a n I e t) a f

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.