Morgunblaðið - 27.01.1978, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1978
25
fclk í
fréttum
Ekki er
alltsem
sýnist
+ Poppsöngvaraparið David og
Angie Bowie sem búið hafa
saman í meira en fjögur ár
hafa alltaf talað mikið um það
hversu hamingjusöm þau væru.
Þau höfðu hvort um sig mikið
frjálsræði f hjðnabandinu og
viðurkenndu að þau væru kyn-
villt en það hefði engin áhrif á
hjónabandshamingjuna og að
sonur þeirra Zowie, væri mjög
hrifinn af hinum mörgu vinum
þeirra. En nú hefur komið f
Ijós að ekki var allt sem sýnd-
ist. Angie Bowie hefur reynt að
svipta sig Iffi. Fyrst tók hún
mikið af svefnpillum, en var
bjargað á sfðustu stundu. Þá
skar hún sig á púlsinn og þegar
það dugði ekki henti hún sér út
um glugga á heimili þeirra f
Genf. En einnig þá var henni
bjargað af vini hennar, hljóm-
listarmanninum Keeth Paul,
sem staddur var hjá henni.
Ástæðuna segir Angie vera að
hún geti ekki afborið tilhugs-
unina um að David fái umráða-
rétt yfir syni þeirra en David
hefur farið fram á skilnað og
segist munu berjast fyrir þvf að
fá drenginn, sem nú er fimm
ára. „Angie er ekki fær um að
ala Zowie upp. Eg sótti hann til
Genfar þegar ég frétti að hún
hefði skilið hann eftir hjá
barnfóstru um jólin,“ segir
David Bowie sem um þessar
mundir er f Þýskalandi við
upptöku á nýrri kvikmynd.
+ Heyrst hefur að leikararnir Ursula Andress og Ryan O’Neal muni ganga í hjónaband áður en langt
um Ifður. Þau hittust f Róm og það var ást við fyrstu sýn. Dóttir Ryans O’Neal sem ekki hefur alltaf
verið ánægt með vinkonur föður síns er hæstánægð með ráðahaginn.
i iff i_______r:
+ Jimmy Carter
Bandaríki afor-
seti hefur verið
kjörinn best
klæddi maður
ársins í Ameríku.
Anwar Sadat for-
seti Egyptalands
og söngvarinn
Tony Benett
voru einnig á list-
anum yfir best
klæddu menn
ársins.
+ Hans Wayer, sem er þýskur
konsúll f New York og gengur
undir nafninu „hinn fagri“, hefur
tilkynnt að hann vilji kvænast
Jacqueline Onassis. „Við þekkj-
umst vel, það var ást við annað
augnatillit,” segir Hans Wayer.
Jacqueline Onassis segir ekkert.
Fjöltefli
HEIMDALLUR
He'imdallur efnir til fjölteflis í Sjálfstæðis-
húsinu Valhöll, Háaleitisbraut 1, á morgun
laugardag 28. janúar kl. 14.00
Jón L. Árnason unglingaheimsmeistari
teflir fjölteflið
Væntanlegur þátttakendur
mæti með töfl í Valhöll kl
1 3.30 á laugardag
Allir velkomnir.
Jón L. Árnason
UTBOÐ
Tilboð óskast í byggingu annars áfanga 3ja
fjölbýlishúsa að Valshólum 2, 4 og 6 í Breið-
holti, alls 24 íbúðir. Annar áfangi felst í því að
gera húsin tilbúin fyrir tréverk. Húsin eru nú
fokheld. Útboðsgögn fást í skrifstofu Verslunar-
mannafélags Reykjavíkur Hagamel 4, frá og
með 23. janúar 1978 gegn 20.000 kr. skila-
tryggingu. Tilboðum verði skilað eigi síðar en
kl. 11 .30, 6. febrúar 1 978 en þá verða tilboðin
opnuð í viðurvist bjóðenda að Hagamel 4
Vers/unarmanna fé/ag Reykja víkur
Umboðsmenn um land allt. I
HANSPETERSENHF
BANKASTRÆTI GLÆSIBÆR AUSTURVER
S: 20313 S: 82590 S: 36161