Morgunblaðið - 27.01.1978, Page 31
*4AtWiA5
á'IUDELAe
& ree.KAa.lt
5ÓICUA,C'
/v7\Aȣ>01fc_
6rOULALX>Aer
L.*/E>S ,
A02>Tow2jk:'i5
r/peppiuo H&azz-a
' híuiu m'ikLi ruiUHeöí
'fspuAoeA AzzoeA" i
■jTWfwrm
1 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JANUAR 1978
Janus Guðlaugsson reynir að brjótast inn í horninu en er stöðvaður af leikmanninum Anatoli Fedjukin.
Símamynd AP.
„Erfitt að spila á
móti svona tröllum
//
LANOSLIOSMENN og landsliðs-
nefndarformaður höfðu þetta að
segja eftir leikinn:
Gunnar Einarsson markvörður:
— Það var allt annað en gaman að
standa á móti þessum rússnesku björn-
um þegar þeir komu fljúgandi inn í
vítateiginn Þeir voru allt of oft í dauða-
færum. sem ekki var hægt að ráða við
Ég hefði mátt verja betur í fyrri hálf-
leiknum en er nokkuð ánægður með
þann síðari Við eigum mikla mögu-
leika á að vinna hin liðin bæði í riðlin-
um ef við náum upp sömu baráttu.
Birgir Björnsson landsliðsþjálfari:
— Þetta var góður leikur í heildina
af okkar hálfu. Skipulagið riðlaðist að
vísu í vörninni við að missa Árna en
það lagaðist er leið á leikinn. Við
vorum að leika við Ólympiumeistara og
að minu mati líklega heimsmeistara.
Það er erfitt að spila á móti svona
tröllum Þetta var að mínu mati góð
frammistaða hjá strákunum og við
sýndum hvar við stöndum í handbolt-
anum
Axel Axelsson:
— Þetta var nokkurn veginn það
sem ég bjóst við. Ég lít þannig á málið
að Rússarmr verði heimsmeistarar og
A-ÞJOÐVERJAR UNNU
HEIMSMEISTARANA
AUSTUR-Þjóðverjar komu mjög
á óvart f heimsmeistarakeppninni
í gærkvöldi er þeir unnu heims-
meistarana frá Rúmenfu f B-riðli
keppninnar 18:16. Voru þetta
óvæntustu úrslitin f fyrstu
leikjum keppninnar og þessi úr-
slit draga verulega úr Ifkunum
fyrir því að Rúmenum takist að
verja heimsmeistaratitilinn.
Þetta er sæt hefnd fyrir A-
Þjóðverja, sem töpuðu úrslita-
leiknum fyrir Rúmenum 1974
með 14 mörkum gegn 11.
Urslit í fyrstu leikjum heims-
meistarakeppninnar urðu þessi:
A-riðill:
Júgóslavia — Kanada 24:11
V-Þýzkaland — Tékkósl. 16:13
B-riðill:
Ungverjaland — Frakkland 33:22
A-Þýzkaland — Rúmenia 18:16
C-riðill:
Dánmörk — Spánn 19:15
Sovétrikin — ísland 22:18
D-riðill:
Sviþjóð — Búlgarfa n 31:16
Pölland ‘44 Japan n,' 26:21
Engir leikir verða í dag en á
morgun verður leikin heil umferð
í riðlunum og þá ■ keppa Is-
lendingar við Dani í Randers og
hefst leikurinn klukkan 16 að
íslenzkum tíma.
það er ekki slæmt að tapa með fjórum
mörkum fyrir sliku liði Vörnin hefur
verið okkar hausverkur og það var ekki [
á það bætandi að missa Árna Indriða-
son útaf i byrjun leiksins. Með svona
leik eigum við að geta unnið Dani og
Spánverja Ég hef mikla trú á islenzka
liðinu
Geir Hallsteinsson:
— Þeir spila á yfirnáttúrulegum
hraða Rússarnir og ég er ánægður með
útkomuna á móti þeim Við getum
hiklaust náð svona leik aftur og við
verðum einfaldlega að gera það
Jón H. Karlsson:
— Það var erfitt að vera áhorfandi
að þessum leik en hins vegar var það á
margan hátt ánægjulegt að sjá til is-
lenzka liðsins i þessum leik Sérstak-
lega var frammistaðan góð i seinni
hálfleiknum og hann unnum við með
einu marki I fyrri hálfleiknum misstum
við boltann fimm sinnum óþarflega
ódýrt. Það hafði sin áhrif og skapaði
úrslitin i leiknum Bæði voru strákarnir j
bráðir og fóru illa með þrjú dauðafæri
Auk þess misstum við okkar bezta
varnarmann útaf vegna þess að hann
þekkti ekki nýjar reglur. En það var góð
barátta i liðinu og haldist hún eigum
við að hafa Dani og Spánverja i vasan-
um og ég vona að ég geti sjálfur leikið
á laugardaginn
Oafsakanleg heimska
A ATTUNDU minútu leiksins
við Rússa var Arni Indriðason
útilokaður frá leiknum, það
sem eftir var. Hafði Arni stokk-
ið af skiptimannabekknum og
inn á völlinn til þess að reyna
að stöðva hraðaupphlaup Rúss-
anna. Voru fslenzku leikmenn-
irnir þá orðnir átta og þó að
Arni næði aldrei kenttinum þá
fór hann inn á völlinn og regl-
urnar segja að fyrir slikt brot
skuli refsa með útilokun.
Eðlilega kom það niður á
vörn íslenzka liðsins að missa
aðalmanninn úr vörninni og
var miðja hennar mjög opin f
fyrri hálfleiknum. 1 þeim
seinni tókst að nokkru að setja
fyrir þann leka en eigi að síður
var greinilega skarð fyrir skildi
þar sem Arni átti að vera.
Arni var ekki aðeins útilok-
aður frá leiknum f byrjun hans
heldur einnig rekinn af bekkn-
um. Eyddi hann þvf leiktfman-
um meðal áhorfenda. Eftir
leikinn var Arni mjög óhress
en vildi ekki hafa mörg orð um
hafði.
— Þetta var óafsakanleg
heimska, sagði hann aðeins.
HK sigraði Fylki
á toppi 2. deildar
HK sigraði Fylki f annarri
deild karla f handknattleik f gær-
kveldi með 23 mörkum gegn 19.
Leikurinn var mjög harður á köfl-
um og mikill darraðardans f lok-
in. Með sigri sfnum tryggði HK
sér 2 dýrmæt stig en staðan f
annarri deild er nú mjög tvfsýn.
Flest mörk HK skoruðu Ragnar
5 (2) og Stefán 5.
Flest mörk Fylkis skoraði Einar
A.8 (2).
Þá léku botnliðin í deildinni,
Grótta og Leiknir, og lauk þeim
leik með jafntefli 19:19. Mark-
liæstir f Gróttu voru* Lárus 7,
Magnús 5.
Flest mörk Leiknis skoraði As-
mundur, 5.
Nánar á morgun.
ÍS vann Þór
EINN leikur fór fram i 1. deild
Íslandsmótsins i körfuknattleik i
gærkvöldi. ÍS sigraði Þór frá Ak-
ureyri meS 103 stigum gegn 91.
Staðan i hálfleik var 51:42 ÍS i
vil. Hjá ÍS var Dirk Dunbar stiga-
hæstur að venju með 39 stig, en
hjá Þór voru stigahæstir Mark
Christensen með 25 stig. Jó-
hannes Magnússon með 24.
Eirikur Sigurðsson með 20 stig.
og Jón B. Indriðason með 18
stig. Nánará morgun.
FH TAPAÐI FYRSTU
STIGUNUM TIL FRAM
Á MIÐVIKUDAGSKVÖLDIÐ fóru
fram þrír leikir í 1. deild íslandsmóts
ins i handknattleik kvenna. Leikið
var i Höllinni. Hæst bar leik Fram og
FH en FH-ingar mættu taplausir til
þess leiks. Fram sigraði i spennandi
en ekki vel leiknum leik, 13—10
(6—3). Hinir leikir kvöldsins voru
fyrst viðureign Vals og KR og siðan
leikur Ármanns og Vikings. Valur
vann leik sinn 11 — 8 (5—4) og
Ármann vann öruggan sigur i sinum
leik, 1 3—9 (6—3).
í leik Vals og KR var jafnt á mörgum
tölum allt upp i 7—7 um miðjan síðari
hálfleik, en lokakaflann skoruðu Vals-
stúlkurnar 4 mörk gegn einu og unnu
þvi sigur, sem verður að teljast verð-
skuldaður Hjá Val stóðu þær Oddný,
Björg og Harpa sig einna bezt, en
engin skar sig verulega úr í liði KR.
Oddný og Björg skoruðu 4 mörk
hvor fyrir Val, en Hansína var mark-
hæst hjá KR með 4 mörk. Leikur Fram
og FH var afar slakur og voru þarna þó
á ferðinni tvö af sterkustu kvennaliðun-
um. Ef frá eru taldar fyrstu minúturnar
hafði Fram forystu allan timann, mest
4 mörk, 7—3 og 9—5, en góður
sprettur hjá FH saxaði á forskotið og
tókst FH-stúlkunum að jafna i
10—10. Lokasprettinn voru Framarar
sterkari og skoruðu þeir 3 síðustu
mörkin og unnu þvi 1 3— 10.
Svanvhit er greinilega yrirburða leik-
maður í liði FH, en þær Katrin og
Kristjana ásamt markverðinum Gyðu
voru einnig góðar Bestar hjá Fram
voru Jóhanna, Guðríður og Oddný, en
þær skoruðu 4 mörk hvor fyrir lið sitt.
Arnþrúður skoraði 1 mark
Mörk FH skoruðu Svanhvit og Katrín
4 mörk hvor og Kristjana 2 mörk.
Að lokum var leikur Ármanns og
Vikings á fjölunum og er skemmst frá
Þorlákur yngstur
- Klimov elztur
ÞAÐ ER nú staðfest að tsland á[
yngsta keppandann á heims-í
meistarakeppninni, Þorlák
Kjartansson úr Haukum, en hann
er 19 ára gamall. Elzti keppand-
inn er aftur á móti sá frægi kappi
Klimov frá Sovétrfkjunum. 1
heimsmeistarakeppninni f
Austur-Þýzkalandi 1974 átti ts-
land bæði yngst og elzta keppand-
ann. Það voru þeir félagar úr FH
Gunnar Einarsson og Hjalti
Einarsson, en sfðan hefur Gunnar
skipt um félag og leikur nú með
vestur-þýzka liðinu Göppingen.
því að segja að hann var sá lélegasti
sem leikinn var þetta kvöld og er þó
mikið sagt Hefur undirritaður aldrei
séð slíkan urmul af feilsendingum i
einum og sama leiknum og þessum.
Ármenningar voru áberandi sterkara
liðið og náðu strax forystu sem þeir
létu ekki af hendi og sigruðu örugg-
lega 1 3—9.
Guðrún var Vikingum skeinuhætt og
skoraði 6 af mörkum Ármanns. en auk
hennar áttu þær Erla (3 mörk) og
Auður (1 mark) góðan leik Helga,
Svava og Sigriður skoruðu eitt mark
hver fyrir Ármann
Það eina. sem gladdi augað hjá
Vikings-liðinu, voru hörkuskot Ingunn-
ar, en hún skoraði fimm mörk með
slikum skotum Þá stóð Agnes sig ekki
illa Stella skoraði 2 mörk og Sigrún
og Sigurrós skoruðu eitt mark hvor
— 99
Wenzel er
ósigrandi
HANNI Wenzel frá Liechtenstein
bar sigur úr býtum í svigkeppni i
Berchtesgaden í Vestur-
Þýzkalandi í fyrradag og er þetta
annar heimsbikarsigur hennar á
janfmörgum dögum.
Þessi 21 árs gamla skiðakona
hefur nú 24 stiga forskot i keppn-
inni um heimsbikarinn og telja
margir að hún verði heimsbikar-
meistari í ár. Þá er einnig talið
líklegt að hún beri sigur úr býtum
í svigi á heimsmeistaramótinu í
Garmisch-Parten-Kirchen um
helgina, en hún sigraði í þeirri
stórkeppni þegar hún var síðast
haldin i St. Moritz í Sviss fyrir
fjórum árum.
OEUAUAV HÉ-PkJA
SlfJ F-fe'iia APS'ciPT'AÆ't’SÍ
£D^.0Pl=O05>/AvJf0(\
þ*eie HecnsfKEPPioÍMA
PVRÍe F-c?óiaoiv\ ÁaonA,
óci toe-'ÍTA ae> oeeDA
T") TIU si MíO . BtórAe
■siTnA he'icaa , A&eAe
AMtcl-Ae te<OATT5T*VeMO-
Ppbexie hapa tíukvmkjt
þAttóh-o .^otOiioeeoA&i
TEKICAK , ITAOIS. | SPÁVA-
UEeoAK oct AoSVoejÓiKiS-
HM
I
K
N
A
T
T
S
P
V
R
N
U