Morgunblaðið - 09.04.1978, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 09.04.1978, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. APRÍL 1978 7 Vafalaust hafa hugir krist- inna manna síðustu vikur hnigið mjög að yfirskilvitleg- um, yfirvenjulegum fyrirbær- um, upprisufrásögurnar flutt- ar, upprisan boðuð um gjörv- alla kristnina. Við slíkum fyrirbrigðum og öðrum hliðstæðum bregðast menn mjög á svipaða lund enn í dag og þeir gerðu, þegar fregnir af upprisunni tóku að berast um Jerúsalem. Sumir tóku þeim með trúarfögnuði, aðrir með undrun og vissu ekki hverju þeir ættu eða mættu trúa og enn aðrir, og þar á meðal nokkrir postul- um hjátrú eina að ræða og hindurvitni, eða eru hér raun- sönn fyrirbæri á ferð? Eg geri ráð fyrir, og það get ég engum láð, að mönnum hafi reynzt örðugt, að ekki sé meira sagt, að leggja trúnað á sögur, sem borizt hafa af furðulækn- ingum, sem eiga að hafa gerzt á Filippseyjum. Þau rök, sem ég hef haft spurnir af, hafa engan veginn orkað sannfær- andi á mig. Og ég fæ ekki séð, að þær verði með réttu tengd- ar spíritisma hvað þá vísinda- legum sálarrannsóknum. Mér skilst að frekar sé hér um trúarlegar samkomur að ræða gleymir þeim fjarstæðum, sem hin helga bók geymir um furður, sem eiga að hafa gerzt á löngu liðinni öld. Slíkar sögur geyma önnur hinna miklu helgirita æðri trúar- bragða. Megingrunnur þeirra . allra er trú á framlíf eftir líkamsdauðann í einhverri mynd og trú á ójarðnesk öfl, ójarðneskar. verur, sem beri sjálfum sér vitni í svonefndum dularfullum fyrirbrigðum er ekki undir gáfum manna komið eða greind. Því ráða önnur öfl í sál mannsins. Óhemjulega miklar bók- menntir hafa verið skráðar Kraftaverk anna, neituðu algerlega að trúa og töluðu fyrirlitlega um „hégómaþvaður" þeirra, sem fyrstir urðu vottar undursins snemma páskamorguns. Þessar manngerðir eru allar til enn í dag að því er tekur til hins yfirskilvitlega, sem mjög er'erfitt að finna stað í heimsmynd vísindanna. Um þetta var unnt að draga mjög athyglisverðar ályktanir af skoðanakönnun drs. Er- lends Haraldssonar á vegum sálfræðideildar Háskóla ís- lands. Skoðanakönnunin var vandlega unnin og gaf ríka ástæðu til að ætla, að mikill meiri hluti íslendinga trúi á líf að jarðlífi loknu, og að veruleg hundraðstala fólks telji sálræn fyrirbrigði benda sterklega til framlífs einstakl- ingsvitundarinnar. Þá leiddi skoðanakönnunin í ljós, að þriðji hver Islendingur munu hafa sótt miðilsfund, þótt um árangurinn væru skiptar skoð- anir, og 70 af hverjum hundr- að mönnum, sem spurðir voru, kváðust hafa orðið fyrir sál- rænni reynslu sjálfir. Ekki getur talizt óeðlilegt að spurningar um þessi efni séu ofarlega í hugum manns með- an boðskapur páska er fluttur um allar byggðir landsins. En um hann, eins og öll yfirskil- vitleg fyrirbæri, gömul sem ný, skiptast skoðanir. Er hér með bænahaldi og trúariðkun- um, þótt með öðrum svip sé og að því er mér virðist ógeðfelld- ari en bænir fyrir sjúkum, sem víða eru tíðkaðar í kristnum kirkjum, og í auknum mæli á síðari árum. En það er fleira í sögum af „undraverkum" sem æðilangt þarf að teygja trúarhæfileik- ann til að samþykkja, en sögurnar frá Filippseyjum. Fyrir nokkrum árum sagði mér greindur og einlægur maður sögu af mjög óvenju- legu og dularfullu fyrirbæri, sem hann Iagði trúnað á en ég kvað mig skorta rök til að geta trúað. Ég sá að þessum góða manni þótti, og sagði: „Þessu getur þú ekki trúað, en þú ætlast til þess að ég trúi, þegar frá altarinu er lesið guðspjall, sem segir frá því, að þegar Jesús var að leysa ungan mann úr fjötrum illra anda, hafi hann sent andana í svínahjörð, sem þá hafi ærzt, steypt sér fyrir björg og látið lífið með kvalafullum dauða. Og fleira var það í trúarbók okkar, sem maðurinn minnti mig á að rétttrúaður maður — það er ég ekki — yrði að trúa og mætti ekki efa. Mér kemur þetta stundum í hug þegar blessað heitttrúaða fólkið er að hamast gegn nútíma sálrænum fyrirbærum og telur þau ógeðfelld, en um þessi mál. Sá sem fer að kynna sér þær bækur, kemst fljótt að því, að hann er staddur í furðuskógi, þar sem mikillar varúðar, vakandi at- hygli og skýrrar dómgreindar er þörf til að þekkja fjöl- breytni trjánna í þeim mikla skógi og skipa hinum fjöl- breytta gróðri rétt í flokka. Sá sem gengur auðtrúa og dóm- greindarlítill að fyrirbrigðun- um, er sannleikanum um þau engu nær en sá, sem öllu neitar. „Prófið andana", segir Páll postuli, sem allra manna bezt í frumkristninni þekkti sál- rænu gáfurnar af eigin raun, því að sjálfur var hann gædd- ur þeim. Af guðspjöllunum er ljóst, að Kristur ætlaðist til þess að kraftaverkin, sem hann vann, yrðu til þess að leiða hugi mannanna að veruleika, sem að baki alls hins jarðneska býr, og að þau yrðu mönnum vitnisburður þess, hver hann væri, hver hefði sent hann, og hver hefði gefið honum vald til að vinna þau verk. Svo litu lærisveinar hans einnig á. Enginn, sem guðspjöllin les, getur gengið þess dulinn, hve ríkur þáttur Jjessi verk voru í starfi Jesú. A hinu getur leikið vafi, að frá þeim sé nákvæm- lega eins greint og þau gerðust öll. Svipmyndir á svipstundu Svipmyndir í hvert skírteini Svipmyndir sf. Hverfisgötu 18 • Gegnt Þjódleikhúsinu Nýkomin styrktarblöð og augablöð í eftirtaldar bifreiðir HÆKKIÐ BÍLINN UPP SVO AÐ HANN TAKI EKKI NIÐRI A SNJOHRYGGJUM OG HOL ÓTTUM VEGUM Bedfor 5 og 7 tonna augablöð aftan. Datsun diesel 70—77 p.ugablöð aftan. Mercedes Bens 1413 augablöð og krókblöð. Mercedes Bens 332 og 1113 augablöð. Scania Vabis L55 og L56 augablöð og krókblöð aftan. Scania Vabis L76 augablöð og krókblöð. 2", 2Vi" og 2V2" styrktarblöð í fólksbila. Mikið úrval af miðfjaðraboltum og fjaðraklemmum. Smíðum einnig fjaðraklemmur eftir máli. Sendum í póstkröfu hvert á land sem er. Bílavörubúðin Fjöörin h.f., QUaifan O oíi QOQ/K/\ Plata númer er komin Hljódfœrahús Reyhjauihur • Lougouegi 96 simi: I 36 56 /

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.