Morgunblaðið - 09.04.1978, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 09.04.1978, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. APRÍL 1978 23 Höfundarnir vilja hefja lygar, svik og ofbeldi til vegs og gera að listgrein (SJÁ: Viðskiptalífið) Sameinuðu Þjóöanna, sem hefur aðaetur í Addis Ababa. „Ennpá eru alltaf nokkur lík á markaöstorginu á morgnana. En bað er hátíð hjá bvf sem var. í desember gekk ág stundum fram á 20—30 á leiðinni í vinnuna. Mér lá oft viö að kasta upp. Nú rekst ág í mesta lagi á prjú. „bað viröist vera langt komið að uppræta Byltingarfylkinguna". Byltingarfylkingin er marxísk stjðrnar- andstöðuhreyfing.. Að vísu eru marxistar við völd, en félagar Byltingarhreyfingarinnar segja bá „lasista" og vilja steypa peim. Stjórnin kallar bá í Byltingarhreyfingunni aftur á móti „anarkista" og vill upprœta bá. Byltingarhreyfingin tók að láta að sér kveða tyrir svo sem hálfu öðru ári og lagðist í sknruhernað. En stjórnarherinn reyndist henni yfirsterkari; frá bvf í desember síðast liðnum er búið að skjóta nokkur búsund beirra. bað voru unglingspiltar mestan part, sumir ekki nema 10 ára gamlir, og pilturinn sem ég sagði al áöan einn úr peirra hópi. bað lifnaði ytir markaðnum begar leið á morguninn. begar ég fór var kliöurinn orðinn eins og í fuglabjargi: sölumenn æptu hástöfum hver í kapp við annan og rifust við viðskiptavinina. beir virtust ekki búnir að meðtaka hin marxísku frnði, sem landsfeðurnir segjast hafa að leiðarljósi, og seftu peir enn sem fyrr upp tvöfalt eða prefalt verð fyrir vöru sfna, prúttuðu við kaupendur f hálftíma en slógu bá helming af. Vfgið um morguninn virtist með öllu gleymt — bað var eins og ekkert hefði gerzt. - ROGER MANN. I»etta gerdist llka .... VOPN OG DEMANTAR Talsmenn UNITA-hreyfingarinnar í Angola, sem lagðist í skæruhernað eftir ósigurinn í borgarastyrjöldinni á þessum slóðum, hafa tjáð fréttamönnum að þeir hafi upp á síðkastið fjármagnað vopnakaup sín með sölu á demöntum sem skæruliðarnir vinna sjálfir úr jörðu. John Kakumba, sem fer með utanríkismál fyrir UNITA, tjáði fréttamanni frá Observer þegar þeir hittust í París; „Við seljum demanta og kaupum vopn fyrir andvirðið út um allar jarðir og meira að segja í Sovétríkjunum. Það er barnaleikur að afla sér vopna nú á dögurn." ÖMURLEGT ÚTLIT Ef treysta má skýrslum sýnast allar líkurtil þess í svipinn að íbúar Bæjaralands í Vestur-Þýskalandi deyi út. Þeir eru nú um ellefu milljónir talsins, en samkvæmt opinberum heimildum eru árlegar fæðingar þarna 130.000 færri en dauðsföllin. Haldi þessi þróun áfram er því auðsætt að árið 2200 verði engin sála eftir í Bæjaralandi! EFTIRMINNILEGIR Fjórir grímuklæddir bófar nældu sér í 500.000 franka á dögunum þegar þeir réðust vopnaðir inn í spilavítið í Beaulieu á mánudag við Nissa. Grímurnar sem tveir ræningjanna báru komu mönnum kunnuglega fyrir sjónir, þótt skelkaðir væru. Önnur var nefnilega afskræmd eftirlíking af andliti Giscard d‘Estaing forseta og hin af ásjónu Mitterands, leiðtoga frönsku sósíalistanna! LITLA STÚLKAN OG ÚLFURINN Oovéskt dagblað skýrði svo frá í síðastliðinni viku að úlfur hefði bjargað lífi þriggja ára gamals stúlkubarns sem týndist í fjalllendi Kákasus. Dýrið virðist hafa legið hjá barninu næturlangt og forðað því þannig frá því að frjósa í hel. Eftir að fjárhirðar höfðu fundið telpuna tjáði hún móður sinni: „Það var hundur hjá mér og hann sleiki á mér andlitið." Og þegar þorpsbúar sneru aftur upp í fjallið að forvitnast frekar um þetta, sáu þeir ekki einungis úlfaslóð þar sem sú litla hafði þraukað nóttina af heldur og fullvaxinn úlf sem sat þar í grenndinni og spókaði sig. IVARSJÁil iBjúgun erul komin og þá[ myndast biö- Jrööin. En Þeirl [fjáöu kaupal [hnossgætið á| jsvarta mark-| laðnum. að margir flokksmenn austan megin, að ekki sé talað um Kremlverja, líta ráðstafanir stjórnarinnar óhýru auga. Hefur Honnecker flokksleiðtogi verið borið það á brýn, að þær jafngildi viðurkenningu þess, að kerfið í Vestur-Þýzkalandi taki hinu fram og Vestur-Þjóðverjar séu betur settir en Austur-Þjóðverjar. Neyzluhyggjan er líka orðin valdhöfum í Rúmeníu, Póllandi og Tékkóslóvakíu til leiðinda. Al- menningur í þessum löndum er um það bil hættur að trúa því sem messað hefur verið yfir honum áratugum saman, að kapítalism- inn sé á síðasta snúningi og skammt að bíða endaloka hans. Einnig því, að vöruskortur austan- tjalds sé ennþá að kenna eyðilegg- ingunni í heimstyrjöldinni síðari, að áætlunarbúskapur sé eina leiðin til stöðugrar farsældar o.s.frv. Það dugir ekki lengur að hvetja menn til að leggja hart að sér fyrir þjóðarhaginn. Þeir eru orðnir langeygir eftir uppsker- unni. Eins og fyrr sagði hafa yfirvöld austantjaldsríkjanna brugðizt við vandanum með ýmsum hætti. Ungverjar skerasig nokkuð úr. Þeir hafa sem sé gerzt svo djarfir að víkja af veginum og losasvolítið um hagfjötrana. Þeir hafa gert sig líklega til þess að taka aftur upp markaðsbúskap. Þeir eru búnir að leggja af þá kenningu, að verð vöru og þjónustu allrar verði að vera stöðugt og fast þó svo að það kosti stórfelldar niðurgreiðslur og brengli allan efnahaginn yfirleitt; og fer vöruverð og þjónustu- nú smám saman hækkandi í Ung- verjalandi. Það er engin tilviljun, að ungversk yfirvöld hafa komizt hjá því að stofna gjaldeyrisbúðir handa óánægðum neytendum eins og stjórnirnar í Póllandi og Tékkóslóvakíu hafa orðið að gera. Harðlínumönnum austantjalds þykir hvorar tveggja aðferðirnar, gjaldeyrisbúðirnar og innflutning- ur að vestan annars vegar en markaðsbúskapurinn hins vegar, svik við kommúnismann. Honn- ecker leiðtogi Austur-Þjóðverja hefur verið sakaður um það, að hann stofni ríki sínu í hættu: hann verði að gá að því hvar hann sé staddur á hnettinum. Innflutning- ur neyzluvarnings frá vesturlönd- um og gjaldeyrisbúðirnar geti leitt til upplausnar. Það sé nógu slæmt að það sé komið á daginn, að alþýða manna í Austur-Þýzka- landi sjái ofsjónum yfir lífskjör- um „landa" sinna vestan megin ... En Honnecker heldur áfram að flytja inn og hefur aukið innflutn- inginn heldur en ekki. Er nú orðið stórum meira vöruúrval í gjald- eyrisbúðunum í Austur-Þýzka- landi en í Póllandi og Tékkóslóva- kíu. Og auk þess hefur verið stofnaður fjöldi sérverzlana með vörur sem fást við austur-þýzkum mörkum. Eins og vænta mátti hefur Sovétstjórnin þungar áhyggjur af undanlátssemi Honneckers. Og ýmislegt bendir til þess, að hann hafi verið kallaður á beinið og áminntur alvarlega. En svo vill til, að Sovétmenn eiga sjálfir við ærnar efnahagssorgir að stríða, og er það mál margra í hinum austantjaldsríkjunum, að „þeir eiga í svo miklum erfiðleikum sjálfir, að þeir mega varla vera að því að skipta sér af okkur“ ... - HELLA PICK. Frá Danmörku hafa og borizt þær fregnir, að danska lögreglan kvaðst hafa „heyrt" að þarlendir bifvélavirkjar hefðu rekizt á tor- kennilegan fjarskiptabúnað, er þeir voru kvaddir til að gera við sovézkan flutningabíl. Herinn fékkst hins vegar hvorki til að játa þessu né neita, er um var spurt. Það virðist, að yfirvöld örygg- ismála í Skandinavíu hafi grunað um nokkurt skeið, að ekki væri allt með felldu í umferðinni að austan. En þau virðast heldur áhugalítil um aðgerðir við því. Til þess kunna að vera ýmsar ástæður, en tvær sýnast líklegastar í fljótu bragði. Önnur er sú, að viðskipti landanna í Skandinavíu, og einkum Finn- lands, við austantjaldsríkin hafa aukizt mjög í seinni tíð og fara æ vaxandi. Hin er sú, að Skandinav- ar óttist hefndir, ef þeir láta til skarar skríða; þeir hafa nefnilega sjálfir bíla í förum austantjalds. Sovézku flutningabílarnir fara yfir landamærin vestur af Lenín- grad og yfir Finnland til ferju- staða við Eystrasalt. Þaðan fara þeir til Svíþjóðar, svo yfir til Danmerkur og loks með ferjum til Austur-Þýzkalands. Forráðamaður finnsks fyrirtæk- is, sem annast viðgerðir á bílum þessum er þeir koma þar við sagði mér, að bílstjórarnir vikju aldrei frá bílunum á verkstæðunum. Hann sagði og að farmskrá þeirra kæmu sér stundum undarlega fyrir sjónir. Oft héti svo á skránum, að bílarnir væru að flytja úrgangspappír frá Sovét- ríkjunum til Austur-Þýzkalands. Væri sér ekki með öllu ljóst, hvers vegna þyrfti að aka með hann um alla Skandinavíu til að koma honum þangað! Þá þykjast menn hafa tekið eftir því, að bílunum sé að staðaldri lagt á grunsamlegum stæðum, er þeir fari um: nálægt hernaðarmannvirkjum, bak við sendiráð Breta, Frakka og Banda- ríkjamanna í .Helsinki ö.s.frv. Margir Kaupmannahafnarbúar kannast og við það, að sovézkum flutningabílum er iðulega lagt steinsnar frá miðstöð upplýsinga- þjónustu hersins. Og mætti svo lengi telja. En Sovétmenn hafa það eitt um þessar sögur að segja, að þær séu „sjúklegir hugarórar" og sprottnir af „njósnageggjun, er sé landlæg á vesturlöndum" . .. - COLIN NARBROUGH. BANKAMAL Bófafé fellur í • r gengii Sviss Það fýkur í skjólin: svissneskir bankamenn eru búnir að heita því hátíðlega að taka ekki framar við illa fengnu fé til ávöxtunar. Þ.e. fé, sem þá „grunar að fengið sé með glæpsamlegum hætti“, — falspen- ingum, ránsfé, lausnargjaldi o.s.frv. Þessi sinnaskipti voru boðuð opinberlega í júní í fyrra. Var þá tilkynnt, að Bankasambandið svissneska, sem tekur til flestra bankanna, og Þjóðbankinn hefðu gert með sér samning um þetta. Hann gekk þó ekki í gildi fyrr en núna rétt eftir áramótin. Og nú skal það tekið fram þeim til hugarhægðar, sem hrukku við orðin „illa fengnu fé“ hér í upphafi, að svissneskir banka- menn telja það ekki illa fengið fé þótt tilkomið sé fyrir brot á gjaldeyrislögum annarra ríkja (í Sviss er ekkert gjaldeyriseftirlit og þykjast Svisslendingar því ekki þurfa að virða gjaldeyrislög ann- arra landa), og þeir telja það ekki heldur illa fengið sem svikið hefur verið undan skatti. Ætti nú ýmsum að létta, þeim er átt hafa þannig fengið fé í svissneskum bönkum (og haft samvizkubit af því að það væri illa fengið) eða höfðu hugsað sér að stofna reikninga ... Þyki bankamönnum ljóst, eða vakni með þeim grunur um það, að fé sem þeim berst sé illa fengið eru þeir skyldir að hafna því. Fram að þessu hafa viðskiptavinir ekki verið spurðir hvaðan þeim kæmi fé sem þeir vildu leggja inn. Forráða- menn svissneskra banka haf raun- ar aldrei viurkennt, að þeir tækju við fé fengnu með vafasömum hætti þótt það sé margsannað og þeir hljóti að hafa vitað það mörgum tilvikum. Hin nýja reglugerð um innlánsfé virðist miða að því fyrst og fremst að bæta orðstír svissneskra banka Aftur á móti er vandséð hvernig hún getur komið í veg fyrir það, að ræningjar og svindlbraskarar haldi áfram að leggja inn. Þeir þurfa bara að búa svo um hnút ama, að hina sómakæru banka menn gruni ekkert... - NORRIS WILLATT.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.