Morgunblaðið - 09.04.1978, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 09.04.1978, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. APRÍL 1978 21 — Ráðherrar Framhald af bls. 1. ráðherrum og sérfræðingum land- anna í efnahagsmálum eftir að finna nákvæmar leiðir að þessu marki. I dag munu forystumenn EBE senda frá sér yfirlýsingu um hvaða leiðir þeir telja vænlegastar til að vinna bug á hryðjuverkunum í heiminum, sem þeir segja að höggvi að rótum lýðræðis. Einnig láta forystumennirnir olíumengun til sín taka og leggja til að reglur um ferðir olíuflutningaskipa verði hertar svo koma megi í veg fyrir slys eins og strand Amoco Cadiz. Forsætisráðherra Bretlands og íralnds, James Callaghan og Lack Lynch, ræddu einslega en óform- lega i gærkvöldi um vandamál Norður-Irlands. Létu ráðherrarnir í ljós von um að samskipti landa þeirra bötnuðu en þau kólnuðu nokkuð í vetur. Fulltrúaráö Sjálfstæöisfélaganna í Reykjavík: Ákvörðun um framboðslista Sjálf- f Reykjavík við næstu • Fulltrúaráö Sjálfstæöisfélaganna í Reykjavík efnir til fundar þriöjudaginn 11. apríl kl. 20.30 í Sigtúni (nýi salurinn á II. hæö). Dagskrá: • Ákvöröun um framboöslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík viö næstu borgarstjórnarkosningar. • Geir Hallgrímsson, forsætisráöherra, flytur ræöu. Þriðjudaginn 11. apríl — kl. 20.30 — Sigtún II. h»ö. — Marcos Framhald af bls. 1. andstöðu sína við forsetann. Hefur ekki í annan tíma verið jafn fjölmennur mótmælafundur síðan Marcos setti herlög í landinu. Allt fór friðsamlega fram, enda hafði Marcos hótað öllu illu ef menn gerðust uppivöðlusamir. Tónlistarmenn létust í slysi Búdapest 8, apríl AP. TVEIR mjög þekktir ungverskir tónlistarmenn létust í bílslysi í Ungverjalandi aðfararnótt laugar- dags og sá þriðji slasaðist mjög alvarlega. Voru þetta félagar í hópi sem kenndur var við 16. aldar tónskáldið Balint Bakfark, enda hefur verið lögð áherzla á að endurvekja og flytja ungverska miðaldatónlist, ekki hvað sízt eftir Bakfark. Stofnandi hópsins, Daniel Benkö, 31 árs, kom honum á laggirnar fyrir nokkrum árum og hefur verið farið í hljómleikaferðir víða um heim. Benkö er sagður í lífshættu, en þeir sem létust voru Zoltan Turcsanyi, 26 ára gamall sellóleikari, og Baranyai, sem var þrítugur flautuleikari. Sæmilegur afli skuttogara AFLI skuttogaranna mun hafa verið sæmilegur að undanförnu, sérstak- lega undan Austfjörðum, þar hafa Austfjarðatogararnir verið að fá upp í 150 lestir eftir viku útivist. Grálúða er nú farin að ganga á miðin, og eru togararnir farnir að sækja í hana. Enn sem komið er telst grálúðan vera nokkuð smá. EF ÞAÐ ER FRÉTTNÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU o $ SAMBANDIÐ BYGGINGAVÖRUR SUDURLANDSBRAUT 32- EINNIG INNAKSTUR FRÁ ARMÚLA29

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.