Morgunblaðið - 09.04.1978, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 09.04.1978, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. APRÍL 1978 15 Frá Djúpavogi 1861. Handan fossins — Kvernár- fossar nálægt Skógum. rXlHK ÍLLUSTjRiVTjED A é ■ T,t Mynd eftir Prior af fisklönd- un í Reykjavík sem þekkt- asti myndskeri blaðsins, Huard, hafði unnið. Fyrsta myndin — Hekla gýs árið 1845. Samvinna Prior og Huards — skopleg myndröð frá íslandi. erlendum ferðamönnum ókunn og jafnvel íbúar þessa landshluta hafi ekki vitað af þessum stórbrotna náttúru- fyrirbrigði fyrr en skömmu áður. I lýsingu með myndinni af Djúpavogi segir að húsa- kosturinn sé aðallega tjörguð timburhús en þó þau virðist heldur óaðlaðandi á ytra borðinu séu þau hin vistleg- ustu innandyra — og þarna gefist ferðalöngum loks færi á að hátta ofan í mjúk rúm í stað þess að liggja á hörðum kirkjugólfum og lausir við harða svarta brauðið og skreiðina sem telja verði til innanstokksmuna víðast hvar á landinu. Eitt húsanna sé reisulegra en önnur og það sé heimili danska kaupmanns- ins, er eigi fiskistöðina. í Djúpavogi stundi danskt fyr- irtæki niðursuðu á selum er selveiðimenn komi með norð- an úr höfum og þegar vel ári séu stórir skammtar lýsis fluttir utan. Mest ber auðvitað á ís- landsmyndum í London Illu- strated News í tengslum við þjóðhátíðina 187%, en þá gerir blaðið greinilega sérstakan teiknara út af örkinni, Melt- on Prior að nafni, til að fylgjast með hátíðinni. Marg- ar þessara mynda eru löngu kunnar, svo sem þegar Grím- ur Thomsen ávarpar konung á Þingvöllum og þar sem kóngur virðir fyrir sér Strokk að gjósa, en sjaldséðari hefur verið bráðskemmtileg mynd frá konungsdansleiknum í sal Lærða skólans. Tæpu ári síðar birti blaðið enn myndir frá íslandi úr ferð Prior árið áður, þar á meðal nokkuð ýkta mynd af Reykjavík, þar sem sést niður Túngötuna til austurs. í lýsingu með myndunum er tækifærið notað til að vekja athygli á nýútkominni bók Williams Lord Watt — Snjó- land eða Island, jöklar þess og fjöU, en Wattfór sem kunnugt erfyrstur manna yfir Vatna- jökul ásamt fimm íslenzkum samfylgdarmönnum. Athyglisverð íslandsmynd eftir Prior birtist einnig í LIT 1876 þegar blaðið minn- ist þekktasta myndgrafara síns, belgíska listamannsins Louis Huard, sem grafið hafði myndir til birtingar í blaðinu um árabil og var í miklu áliti í sinni grein. Myndin er frá Reykjavíkur- höfn og sýnir löndun á skreið. Þeir Prior og Huard höfðu þá litlu síðar átt saman heilsíðu í London Illusti'ated News — myndröð frá íslandi, sem kannski sker sig úr öðrum íslandsmyndum fyrir það að í henni er meiri húmor og karíkatúr en maður á að venjast. Nú verður um 5 ára hlé í birtingu mynda frá íslandi í þessu kunna blaði en þá árið 1881 kemur dálítill fjörkippur aftur í þessar myndbirtingar, þvi að það ár birtast fimm myndir í blaðinu frá ísiandi. Þar á meðal eru tvær myndir frá hverasvæðinu í Haukadal að sjálfsögðu, báðar nokkuð eftirtektarverðar. Á annarri er verið að sjóða egg í hver, sem ferðamönnunum útlendu hefur líklega fundizt mikið til um, en á hinni sést hvar verið er að bera grjót í Strokk til að láta hann gjósa. Þá er einnig mynd frá Almannagjá og af upphafi ferðar til Geysis, en fimmta myndin er af gömlu vindmyllunni í Reykjavík, ein skemmtilegasta mynd sem maður hefur séð af henni en í texta er fylgir með kemur fram að nú sé ,Snorrabúð stekkur“ — vind- myllan ekki lengur vindmylla heldur íverustaðar og stóru spaðamir fúaspýtur einar. Síðustu myndirnar er Haf- steinn á í fórum sinum úr London Illustrated News frá síðustu öld eru frá 1891 — ósköp venjulegar myndir af Gullfossi og Geysi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.