Morgunblaðið - 09.04.1978, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. APRÍL 1978
Þegar nú stefnan er aö reyna að
efla viðskipti íslands og Portúgals
svo að báðir aðilar megi hafa gagn
af því er og vert að íhuga hvað
Portúgalar geta boðið okkur á móti
öllum þessum saltfiski sem við
seljum þeim og mætti þó vissulega
vera meira af honum, alténd virðist
sem framboð sé langt frá nægjan-
legt.
Áöur hefur verið fjallað um það í
greinum frá Portúgal að þar megi
gera góð kaup bæði í léttum vínum
og púrtvinum og enda þótt umboðs-
menn portúgalskra borðvína séu
einhverra hluta vegna svo óvenju-
lega hlédrægir menn að þeir geri
ljtið að því að reyna að koma
vörnunum á framfæri við veitinga-
hús hér — utan örfárra rósavínsteg-
unda — hefur þó aukizt sala á vínum-
verulega, enda gæði þeirra að
margra dómi með því bezta sem
gerist. Skó og stígvél er hægt að fá
hér frá Portúgal og þykja það
gæðavörur, vefnaðarvörur af ýmsu
tagi eru frambærilegar í meira lagi,
og barnaföt og innflutningur á þessu
öllu hefur nokkuð aukizt.
En hefur þó ekki hrokkið nema
skammt til að brúa það bil sem er
á milli inn- og útflutnings landanna
tveggja. Því er það að i heimsókn
minni til Portúgals nú í marz
nýbyrjuðum fannst gestgjöfum mín-
um tilvalið að fleira væri kynnt sem
mætti bjóða Islendingum.
Krani frá Mague. Þessi
getur lyft um 100 tonnum
í 62 m hæð.
gerðar upplýsingar fyrir okkur.
Hann segir okkur að Mague hafi
verið stofnað fyrir röskum 25 árum
eða árið 1952 og hefur þó eflzt
stórlega síðan og verkefnin marg-
faldast. I fyrstu var farið hægt í
sakirnar, en síðan hefur verið byggt
viö verksmiðjuna og hún hefur fært
út kvíarnar og auk þess að þarna í
Alverca eru nú smíðaðar allar gerðir
þungavinnuvéla, krana, lyftara, raf-
ala, túrbína hefur fyrirtækið verk-
efni erlendis líka.
Þegar Mague tók til starfa unnu
þar 60 starfsmenn, en sex árum síðar
var hlutafjáreign stóraukin og unnið
eftir mjög umfangsmikilli áætlun
sem miðaði að örri uppbyggingu
Mague. Sú áætlun stóðst og það svo
glæsilega að nú vinna 1900 manns
hjá Mague, þar af eru 135 verkfræð-
ingar og tæknifræðingar og 1765
verkamenn. Mikið kapp er lagt á það
af hálfu forystu fyrirtækisins að
tækniþjálfa verkamennina, svo að
fyrirtækið gæti jafnan haldið sér í
takt við tímann.
Nú taka byggingar fyrirtækisins í
Alverca yfir um 127 þús. fermetra.
Auk þess er fyrirtækið að reisa
verksmiðju á bökkum Sadofljóts
skammt frá Setúbal og hefur þar
fengið til úthlutunar 330 þús.
fermetra. Hefur nú verið tekin til
notkunar um helmingur þessa flæm-
is.
HEIMSÓKN
ÍPORTÚGAL
2. GREIN
eftir JÓHÖNNU
KRISTJÓNSDÓTTUR
Meðal þeirra stórfyrirtækja sem
Mague hefur unnið mikið fyrir á
portúgölskum markaði eru skipa-
smíðastöðvarnar Lisnave og Sete-
nave, og D‘Avelar segir enda hið
bezta samstarf þarna i millum.
Siðan snúum
við okkur að
þroskaleikföngum
Við kveðjum D'Avelar með virkt-
Loki fyrir gufutúrbínu 250
megavatta.
Þroskaleikfangshundur.
Þungavinnuvélar
og
þroskaleikföng
Við Maria Teresa byrjum hjá
Mague. Það er gríðarmikið fyrirtæki
sem framleiðir þungavinnuvélar,
lyftikrana og allt sem nöfnum tjáir
að nefna í því sambandi. Það er sól
og sunnangola þegar við komum til
Alverca, skammt fyrir utan Lissabon
þar sem Mague hefur aðalbækistöðv-
ar sínar og Rui Castel. Branco
D'Avelar blaðafulltrúi tekur á móti
okkur. Elskulegur maður í viðmóti
og hefur undirbúið vel komu okkar.
Hann lætur sýna okkur kvikmynd
þar sem lýst er starfsemi Mague og
hann hefur ennfremur látið taka
saman í stóreflis möppu sérstaklega
Frá aðalbækistöðvum Mague.
Segja niá að meginframleiðsla
Mague skiptist í þrennt: Þar eru
lyfti- og flutningatæki, tæki og
búnaður fyrir orkuver hvers konar
og í þriðja lagi byggingar svo sem
hús og brýr.
í fyrirtæki á borð við Mague má
geta nærri að mikið er lagt upp úr
vandaðri undirbúningsvinnu og fyr-
irtækið státar af því að hafa í vinnu
hjá sér færustu og ágætustu sér-
fræðinga í þeim greinum sem við á.
Af þessum sökum hefur og Mague
tekið þátt i alþjóðlegum útboðum
víða um heim, þar sem fyrirtækið er
samkeppnisfært í betra lagi.
um og Senhor Pereira er tilbúinn að
aka okkur á Vivunni á næsta stað.
Það er FOC, sem er raunar tvískipt
fyrirtæki, annað er í Lissabon og
sérhæfir sig í gerð þroskaleikfanga
og húsgagna fyrir skóla og dagheim-
ili og hins vegar er fyrirtækið í
Mafra þar sem framleidd eru
húsgögn af almennari gerðum.
Augu manna opnast æ betur fyrir
mikilvægi þess að velja börnum
skynsamlega leiktæki á unga aldri
og hefur gerð þroskaleikfanga fleygt
fram á síðustu árum víðs vegar.
Portúgalar standa framarlega í gerð
Sýnishorn af skóla og dagheimilishúsgögnum FOC.
Nokkur sýnishorn af húsgögnum frá FOC.