Morgunblaðið - 09.04.1978, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAQUR 9, APRÍL 1978
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL. 10—11
FRÁ MANUDEGI
annarra orða í 111. Mósebók,
versunum 9—11 standa þessi orð
sem ég leyfi mér að vitna til: „Og
Drottinn talaði við Aron og sagði:
Hvorki skalt þú né synir þínir
drekka vín eða áfengan drykk
þegar þér gangið inn í samfunda-
tjaldið svo að þér deyið ekki. Það
er ævarandi lögmál hjá yður frá
kyni til kyns. Og þér skuluð gjöra
greinarmun á því sem er hreint og
óhreint: Og þér skuluð kenna
ísraelsmönnum öll þau lög er
Drottinn hefur gefið þeim fyrir
Móse.“
Það er gælt við þá von að með
þjóðaratkvæðagreiðslu verði úr
því skorið hvort bjórinn verði
gefinn frjáls. Athugið að nú
gengur stór hópur að kjörborðinu
í fyrsta sinn, er því ekki ætlað að
axla nokkuð stóra byrði?
B.J.“
Frá þessum hluta áfengis-
málanna verður horfið að nokkuð
öðrum anga þeirra en það er um
málefni áfengissjúkra. Hafa borist
örlitlar hugleiðingar konu um þau
mál:
• Einum of mikið
„Að undanförnu hefur ver-
ið mikið rætt og ritað um málefni
áfengissjúklinga og er það ekki
hvað minnst fyrir tilstilli SÁÁ og
starfseminnar sem þeir eru með og
eru að hefja. Nú síðast hefur
komið til þeirra í heimsókn
bandarískur læknir sem hefur
hjálpað mörgum íslendingum mik-
ið.
En það er eitt atriði, sem ég
vildi gera að umtalsefni, en það er
öll sú umræða sem jafnan fylgir
umræðum um áfengismál þ.e. því
hvort áfengissýki sé geðrænt
vandamál eða ekki. Hafa SÁÁ
félagar mótmælt þeirri túlkun og
vilja ekki við það kannast að vera
kallaðir geðsjúkir. Hvetja þeir
menn til að vera ekki fullir
fordóma varðandi þessi mál og
biðja menn að vera jákvæða. Því
kemur það nokkuð undarlega fyrir
sjónir að þeir skuli jafnan
bregðast ótt og títt við þegar talað
er um áfengissýki og geðsýki í
sömu andrá. Þá finnst mér að
skorti umburðarlyndi hjá þeim og
þeir séu fremur haldnir fordómum
sjálfir.
En hvað um það, þetta vildi ég
aðeins fá að drepa á, og vona ég
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á stúlknameistaramóti Evrópu í
Kikinda í Júgóslavíu í janúar kom
þessi staða upp í skák þeirra Piu
Cramling, Svíþjóð, sem hafði hvítt
og átti leik, og Susan Caldwell,
Englandi:
27. Hxf5! - Rxf5, 28. Bxf5.
Svartur gafst upp, því að hann
verður mát eftir 28 ... Dxg5, 29.
Be6+ o.s.frv. Evrópumeistari í
stúlknaflokki varð Nana
Joseliani frá Sovétríkjunum.
að þetta komi ekki illa við neinn,
en mér finnst að hér verði ætíð að
ræða málin af stillingu á báða
bóga og gæta þess að vera ekki
haldinn fordómum á. neinn veg.
Kona.“
• Við viljum
samkomuhús
Kæri Velvakandi
Mig langar að koma á fram-
færi að samkomuhús fyrir
unglinga vantar alveg og ekki
vorkenni ég yfirvöldunum þó þau
reisi samkomuhús fyrir okkur
unglingana, þá losnið þið kannski
við lýðinn á götum úti. Við höfum
enga staði til að skemmta okkur á.
Við unglingarnir viljum nota
tímann meðan við erum enn ungir
og frískir, en við fáum engin
tækifæri til að skemmta okkur, þá
á ég við unglinga á aldrinum
fimmtán til tvítugs. Krakkar á
þessum aldri sækja ekki Tónabæ
OG ÞÁ SÉRSTAKLEGA EKKI
ÞEGAR ÞAR ER DISKOTEK. Ég
vil beina þeirri spurningu til
yfirvalda: Hvað er því til fyrir
stöðu að reisa eða leigja samkomu-
hús fyrir okkur unglingana.
Með þökk fyrir birgintuna
GBG
í Kerlingarfjöllum
- sólskinsparadís
- ekki alltaf, en lygilega oft.
Og ekki skítð;)r fjnlloloftið Skellið ykkur i Kerlmgnrfjoll í
sumar Skiðakennsla, gönguferðir, náttúrufegurð, luxus
matur, fjörugar kvöldvökur, heit boð og skalalif i mmi orði
sagt ÆVINTÝRI
Skíðanámskeiðin 1978
Nr.l Frá Rvk. Lengd T egundnámskeiðis
1 21 júni 6 d Unglinganámskeið (yngri en 1 5 á
2 26 júni 6 d U nglinganámskeið
3 1 júlí 6 d Fjölskyldunámskeið
4 6 júlí 6 d Fjölskyldunámskeið
5 1 1 JÚIÍ 6 d Fjolskyldunámskeið
6 16 júli 7 d Almennt námskeið
7 22 júlí 7 d Almennt námskeið
8 28 JÚIÍ 7 d Almennt námskeið
9 3 ágúst 6 d Fjölskyldunámskeið
10 8 ágúst 6 d Fjolskyldunámskeið
1 1 13 ágúst 6 d U nglinganámskeið (1 4— 1 8 ára)
12 18 ágúst 6 d Unglinganámskeið (1 4— 1 8 ára)
13 23 ágúst 6 d Unglinganámskeið Keppendur
Bókanirog miðasala:
FERÐASKFUFSTOFAN
Eimskipafélagshusmu simi 26900
Ath.biðjió um upplýsingal>ækling.
Skíðaskólinn
í Kerlingarfjöllum
%\QGA V/öGá fi VLVtMH
OG Wtö $ÓK:VA9Hj
^ W Vl9 VöMufáT
MYMlí LATTö vfíó L\TA
A WEHSötíNAKÍ
'i
YfOlWA JAQl AT)
'VA'bKA VTM V/ÚN VAV
'M/Ú Á^A.
1V5RA SVO LtN6\ ÍVStibOflld
^ÖJA AV \IÚN
vVvOW/N VIL9 LÓLÓ
Ttm ALWLI VYP/V
\mmui \
MLT VATN,
\)i
VkTI<2 -ÁUíToúU Atf
VTXQUK 'bmOA
\\om\ cfcw ms
OG 'öftlXtöVQK.
WVKk