Morgunblaðið - 23.04.1978, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. APRIL 1978
23
Skífnfregnir:
Fjórar vorskífur
frá Iðnnni
í maí mánuði næstkomandi
eru væntanlegar á markað
hvorki meira né minna en
fjórar hljómplötur frá Ið-
unni. Er hér um nýlundu að
ræða þar sem hingað til
hefur ekki verið mikið um að
hljómskífur litu dagsins ljós
á þessum tíma árs, en nú
virðast hljómplötuútgef-
endur hafa uppgötvað vor-
uppskeruna, því auk platn-
anna frá Iðunni er Lummu-
plata númer tvö komin út
(eða er í þann veginn að
koma út) og vel getur verið að
fleiri skífur séu væntanlegar.
En í þetta skiptið er ætlunin
að segja einungis dulítið frá
Iðunnarskífunum, um aðrar
verður fjallað síðar.
Fyrst skal telja barnaplötu
Megasar, en á henni flytur
hann um það bil 30 vísur,
leiki og sálma, sem hann
hefur sjálfur safnað og útsett
og Megas stjórnar einng
upptökunni. Megasi til að-
stoðar eru Guðný Guðmunds-
dóttir konsertmeistari og
Scott Glecker sem einnig
leikur í Sinfóníuhljómsveit-
inni. Þetta er því eins konar
vísnaplata, en í þessu tilfelli
hafa ekki verið samin ný lög
við gamlar vísur heldur eru
gömlu lögin notuð í nýrri
útsetningu.
Önnur vorplata Iðunnar er
plata þar sem Ási í Bæ
syngur eigin lög í útsetningu
Karls Sighvatssonar, við
undirleik margra mætra tón-
listarmanna, svo sem Þórðar
Árnasonar, Tómasar ^Tómas-
sonar, Sigurðar Karlssonar
o.fl.
Þriðja skífan er svo Ösku-
buska, þ.e. tónlist Sigurðar
Rúnars Jónssonar við sýn-
ingu Þjóðleikhússins, aukin
og endurbætt, og á milli segir
sögumaður efni leiksins og
leikarar flytja kafla úr verk-
inu. Söngtextarnir eru eftir
Þórarin Eldjárn, en það er
Stefán Baldursson sem hefur
skipulagt efnið á plötuna.
Áð lokum er svo plata með
Melchior, sem Slagbrandur
hefur áður fjallað um, en
upptökur á henni eru vel á
veg komnar.
Lýkur hér skífufregnum í
bili.
- SIB
Jwakning stew!-
nr í stórræðnm
Jazzvakning hefur nú
hleypt af stokkunum plötu-
klúbbi þar sem félagsmönn-
um Jazzvakningar og áskrif-
endum Lystræningjans gefst
kostur á að kaupa hljómplöt-
ur af þeirri tegund er versl-
anir hafa ekki treyst sér til
að flytja inn, á verði sem
nálgast að vera 60% af
búðarverði. Fyrsta plötu-
sending til klúbbsins er kom-
in til landsins og er þar um
að ræða plötur frá Steeple
Chase útgáfunni einvörð-
ungu. Á þessum plötum leika
m.a. Nils Henning 0r-
sted-Pedersen, Stan Getz,
Dexter Gordon, Kenny Drew,
Horace Parlan, Doug Rainy
(tveir þeir síðast nefndu
komu hingað til lands nú í
vetur), Arild Andersen, Paul
Bley, Sheila Jordan og gítar-
leikarinn Monette Sudler, en
hún er væntanleg hingað til
lands í sumar. Þá er í þessum
hópi að sjálfsögðu plata
þeirra félaga NH0P, Philip
Catherine og Billy Hart, sem
leika annað kvöld í Háskóla-
bíói. - SIB
— Verst að
mega
Framhald á bls. 27
Reykjarhóli og það eru gífurleg
þægindi af þessu heita vatni. Hins
vegar hef ég ekkert hugsað um að
koma upp gróðurhúsi enn.“
Afkoman ekki góð
— Hvernig er afkoman af búi af
þessari stærð?
„Það er ekki hægt að segja að
afkoman sé góð og ég tala nú ekki
um núna á meðan maður er að
byggja þetta upp, en það er
’ánægjan sem bætir þetta upp. Mér
finnst gaman að hafa kynnst
sveitalífinu á ný, og ég veit ekki
hvort ég breyti til á ný.
Það hefur hjálpað mér mikið að
Reykjarhóll þykir góð beitarjörð,
og hér er alltaf vetrarbeit, enda er
mjög snjólétt hér, þótt allt sé á
kafi í fönn utar í Fljótum. Féð hjá
mér getur alltaf gengið í fjöruna
á veturnar og hefur úr nógu að
moða.
Þá er yfirleitt mikill reki hér við
Reykjarhól, en á þessu ári og í
fyrra hefur borið svo við, að lítið
sem ekkert hefur rekið. Ég hef
vissulega haft nóg efni í staura
fyrir mig, en ekkert getað selt frá
mér.“
Þ.Ó.
Iðnrekendur —
Framleiðendur
Nýstofnuö umboös- og heildverslun óskar eftlr aö taka
aö sér umboö fyrir íslenskar vörur, allt kemur til
greina. Lofað er öruggri og góöri þjónustu og
viöskiptum.
Fariö veröur meö tilboð sem algjört trúnaöarmál.
Tilboö merkt: „Umboö — 817“, sendist Mbl. sem fyrst.
Kvennadeild
Reykjavíkurdeildar
Rauöa Kross íslands
Kvöldveróarfundur
veröur haldinn miövikudaginn 26. apríl í Átthagasal
Hótel Sögu og hefst kl. 19.
Guörún Helgadóttir deildarstjóri flytur erindi um
almennar tryggingar.
Vinsamlegast tilkynniö þátttöku í síma 28222 og
14900.
Takið með ykkur gesti. Stjórnin.
Sérstök stilling fyrir straufri efni — auðveldari notkun.
BlO-kerfi — lengir þvottatimann fyrir óhreinan þvott.
Ryöfritt stál i tromlu og vatnsbelg — lengri endingartimi.
3falt öryggi á hurð — örugg fyrir börn.
3 hólf fyrir þvottaefni og mýkingarefni.
Lósigti að framan — auövelt aðhreinsa — útilokar bilanir.
Vinduhraði 520 snún/min — auðveld eftirmeðferð þvottar.
Vökvademparar — mjúkur, hljóölaus gangur.
60cm breið, 55 cm djúp, 85cm há.
íslenskur leiðarvisir fylgir hverri vél.
Vörumarkaðurinn hf.
Ármúli 1a — Sími 86117
Electrolux þvottavélin er til á lager
á þessum útsölustöðum:
AKRANES: Þóröur Hjálmarsson,
BORGARNES: Kf Borgfirftinga,
PATREKSFJORÐUR: Baldvin Kristjánsson
tSAFJORÐUR: Straumur hf.,
BOLUNGARVtK: Jón Fr. Einarsson,
BLONDUOS: Kf Húnvetninga,
SIGLUFJORÐUR: Gestur Fanndal,
ÖLAFSFJÖRÐUR: Raftækjavinnustofan sf
AKUREYRI: Akurvík hf.,
HUSAVIK: Grlmur og Arni,
VOPNAFJORÐUR: Kf. Vopnfirftinga,
EGILSSTAÐIR: Kf. Héraftsbúa,
ESKIFJORÐUR: Pöntunarfélag Eskfirftinga
HOFN : KASK,
ÞYKKVIBÆR: Friftrik Friftriksson,
VESTMANNAEYJAR: Kjarni sf.,
KEFLAVIK: Stapafell hf
ELECTROIA JX WH 38
ER MESTSELM
ÞVOTTA VÉLLX ÍS VÍÞJÓR
1 árs
ábyrgð
Electrolux
þjónusta.
Hagstæð
greiðslu-
kjör.
Electrolux