Morgunblaðið - 23.04.1978, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. APRÍL 1978
31
1. maí nefndin vill breytingar:
,,Hálfgert búið að eyði-
leggja Lækjartorgið
sem fundarstað”
„VIÐ erum sammála um það í 1.
maí-nefndinni að það sé hálfgert
búið að eyðileggja Lækjartorgið
sem fundarstað með þeim fram-
kvæmdum, sem þar er búið að
Húsavík:
Sumarið
heilsaði
með blíðu
Húsavík, 21. apríl.
SUMARIÐ heilsaði hér með blíðu
og bezta veðri og eins og margir
höfðu vonað, þá frusu vetur og
sumar saman. Barnavinafélagið
hér á Húsavík hélt skemmtun
fyrir börn í tilefni dagsins og var
dagskrá fjölbreytt. Fréttaritari
— Páfinn
Framhald af bls. 1.
aögerðir af hálfu ráösins í því skyni
aö frelsa Moro vísaö frá. Áreiöan-
legar heimildir herma aö stuöning-
ur hafi enginn veriö innan ráösins
viö tillögu Youngs. Hún haföi veriö
algjört einkaframtak hans og aö
fulltrúar annarra ríkja, þar á meöal
ítalíu, séu þeirrar skoöunar, aö
Moro-máliö sé ekki þess eölis aö
Öryggisráöiö sé þess umkomið aö
hafa jákvæö áhrif.
gera og því þurfi að breyta útaf
í þetta skipti,“ sagði Kristvin
Kristinsson í samtali við Mbl. í
gær. en hann á sæti í 1.
maí-nefnd verkalýðsfélaganna.
Um langt skeið hafa aðalhátíða-
höld 1. maí í Reykjavík farið fram
á Lækjartorgi og ræðurnar verið
fluttar á palli við Útvegsbankann.
„Við teljum þetta ekki lengur
framkvæmanlegt," sagði Kristvin,
„eftir að steinveggurinn var settur
meðfram Lækjargötu og söluturn-
inn var settur niður á þeim stað,
sem hann er núna. Því höfum við
hugsað okkur að færa ræðupallinn
til þannig að við getum áfram
verið með fundinn á þessu svæði
ég tel ekki rétt að skýra
frá
staðsetningunni
eftir- er að fá
nákvæmlega
núna, þar sem
tilskilin leyfi."
Kristvin sagði að lokum, að svo
virtist sem alveg hefði gleymzt að
hugsa fyrir fjöldasamkomum, þeg-
ar Lækjartorgið var skipulagt og
væri það ákaflega óheppilegt að
sínu mati.
— Kambódíu-
réttarhöld
Framhald af bls. 1.
að væru þeir í munkakufli þá
væru þeir munkar fram í
fingurgóma og væru þeir
komnir í svartar skyrtur þá
væru þeir miskunnarlausir
byltingarmenn.
Meyer kvaðst ekkert hafa
frétt af Shianouk prinsi, þótt
hann væri alltaf ísambandi við
börn hans í París.
Meyer sagði, að Shianouk
hefði ekki hitt Pol Pot, nú-
verandi forsætisráðherra, fyrr
en eftir byltinguna, en hann
hefði þekkt Kiu Sampan og
fleiri. Einhvern tíma hefði hann
sagt við sig, að hefði hann verið
bóndasonur og alinn upp í
marxistískum fræðum við há-
skólann í París, hefði hann orðið
eins og þeir. Aðspurður um það
hvernig prinsinn væri, sagði
hann að skapgerð hans hefði svo
margar hliðar. Hann gaf jafnvel
í skyn að hefðu Bandaríkjamenn
fyrr komið inn í myndina hans
megin hefði kannski verið hægt
að snúa við sögunni. Bændurnir
hefðu fylgt Shianouk, sem gaf
þeim draum um betra lif.
Annar sérfræðingur um
Kambódíumál, sem hér er, hinn
þekkti franski blaðamaður, Jean
Lacouture, sagði m.a. við blaða-
mann Mbl.:
„Einasti möguleikinn til að
koma valdhöfum í Kambódíu frá
virðist vera með hernaðarvaldi.
En ef þau valdaskipti eiga að
koma Kambódíumönnum að
gagni verða þau að gerast innan
frá,“ sagði hann. „Það væri til
dæmis synd ef Víetnam legði
undir sig Pnom Penh og setti
þar upp fjarstýrða strengja-
brúðustjórn. Þess vegna verðum
við að fara varlega í þessum
réttarhöldum svo þau verði ekki
notuð og álitin stuðningur við
Víetnam í deilum landanna. Við
verðum bara að vona að átök
Kambódíumanna við Víetnama
veiki valdhafana í Phnom Penh
svo að Kambódíumenn megni
sjálfir að ryðja þeim úr vegi."
Ekki eru allir hér í Ósló jafn
ánægðir með .yfirheyrslurnar
um það sem er að gerast í
Kambódíu. Vináttusambandi
Noregs og Kambódíu hafði verið
boðið að senda fulltrúa, en þeir
verja Rauðu Khmerana og kusu
að efna til „mót-yfirheyrslu“
svokallaðrar á föstudag kl. 6.
Þar voru 20 manns mættir og
hlustuðu á fjórar ræður.
Veggskjöldur um
f jöltefli Horts
Á MÁNUDAGINN verður liðið
eitt ár síðan tékkneski skákmaður-
inn Hort tefldi fjöltefli við 550
íslendinga og setti margfalt
heimsmet í þeirri grein. Af þessu
tilefni verður afhjúpaður minning-
arskjöldur um afrekið í Valhúsa-
skóla á Seltjarnarnesi á mánudag-
inn kl. 15.30, þar sem fjölteflið fór
fram. Er það von þeirra, sem að
þessu standa, að sem flestir hinna
550 skákmanna, sem tefldu við
Hort, verði viðstaddir.
iHjólbörur — Flutningsvagnarl
Stekkjatrillur — Póstkassar.
Ávallt fyrirliggjandi hjá okkur.
í Nýju blikksmiðjunni,
Ármúla 30, símar 81172 og 81104.
AUGLÝSINGASTOFA SAMBANDSINS
— Samkeppni
Framhald af bls. 3.
lýsingar í eftirtalda flokka:
Endurgerð gamalla bygginga
(ljósmyndir skulu sýna „áður og „á
eftir“);
Nýbyggingar, (skrifstofur, hótel,
verslanir o.s.frv.) sem falla vel að
sögulega eða byggingarlega
áhugaverðu umhverfi;
Nýbyggingar (sérstaklega hótel
og aðrar byggingar reistar fyrir
ferðamenn), sem falla vel að
umhverfi sínu þar sem náttúru-
fegurð er mikil (fjöll, strendur,
vatnasvæði, sveit);
Gamlar byggingar til nýrra
nota;
Eftirtektarverðar nýbyggingar,
sem auka gæði umhverfis síns og
gera það áhugaverðara;
Nýjar verzlanir í gömlum
húsum, sem falla vel að heildar-
einkennum húsanna;
Lýti (auglýsingaskilti, vírar
o.s.frv.), sem rutt hefur verið úr
vegi (ljósmyndir sýni „áður“ og „á
eftir“);
Flóðlýstar byggingar,.torg, brýr,
garðar o.s.frv., sem þannig verða
þokkafyllri að kvöldlagi;
Bílastæði, sem lítið ber á í
gömlum borgum eða þar sem
landslag er fagurt;
Göngusvæði (ljósmyndir sýni
„áður“ og „á eftir“);
Endurbætt umhverfi i gömlum
borgum (bekkir, bundinn jarðveg-
ur, gosbrunnar, plöntun trjáa
o.s.frv.);
Notkun málningar til að bæta
umhverfi í þéttbýli;
Aðgerðir til aö vernda fögur
náttúrusvæði gegn byggingaráætl-
un, sem stingi í stúf við umhverfið;
Þátttakendur geta verið bæjar-
og sveitarfélög, verndunar- og
friðunarfélög, arkitektar eða
skipuleggjendur og skulu verk-
efnin hafa unnizt innan síðustu 10
ára. Skulu fylgja ljósmyndir og sé
um hús að ræða þarf leyfi eiganda
hússins að liggja fyrir. Birtingar-
réttur skal gefinn frjáls af öllu
efni, hvort Sem er til birtingar í
bókum, blöðum eða sjónvarpi og
verður innsendu efni ekki skilað.
Efnið verður dæmt af dómnefnd
skipaðri af Ferðamálaráði íslands
og af dómnefnd skipaðri af fjöl-
þjóðlegri framkvæmdanefnd
Evropa Nostra.
Besta ferðavalið
Komið og fáið eintak af stóra fallega ferðabæklingnum okkar.
V
trland
Brottför:
21 júní
20 júlí
17. ágúst
7. sept
Septemberdagar á Italíu
Eftir beint þotuflug í sólar-
bæinn Portoroz í Júgóslavíu er
lagt upp i 15 daga ferð til Italíu.
Fyrstu dögunum er eytt í að
skoða tvær frægar borgir, Boi-
onga og Florenz. Þá er siglt til
Elbu, farið til Rómar og dvalið
þar i 3 daga Staldrað er við í
Pescara og í baðstrandarbæn-
um Rimini. Dvergríkið San
Marino er heim-sótt og Fen-
eyjar skoðaðar og loks er kom-
ið aftur til Portoroz. verð kr.
193.000.-. Brottför er 31. ágúst
og ferðin er í 3 vikur Fjöldi
þátttakenda er takmarkaður.
• I }wr7f^r~r\
Júgóslavía
Brottför:
17 mai
6. júní
27. júní
18 júli
1. ágúst
10. ágúst
22. ágúst
31. ágúst
12. sept.
20. sept
r
Sólarferð til
fimm landa
Fárið er til Jýópslaýíu, Aust-
urrikis, Þýskalatlds! Sviss og
Ítalíu. Stoppað er á eftirtöldum
stöðum; Portoroz. Bled Salz-
burg. Munchen. Zurich. Míl-
anó, Feneyjtim og svo aftur
Portoro|. wtt/ ,
Brottför er 10. ágúst og ferðin
stenóur i 3 vikur. Verð er kr.
179.000-. Fjöldi þátttakenda
er takmarkaður.
Costa del sol
Brottför: 4. ágúst
13. maí 11. ágúst
28 maí 18 ágúst
2. júní 24. ágúst
16. júní 25. ágúst
22 júní 1. sept
7. júlí 8. sept.
12. júií 13. sept.
28. júli 15. sept.
3. ágúst 22. sept.
Ferðist
og megrist
I Portoroz í Júgóslavíu er
rekin heimsfræg heilsubótar-
stöð. Margir Islendingar hafa
fengið þar bót á liðagigt, asma
og soreasis. Nú hefur verið
tekin upp megrunarmeðferð i
stöðinni sem tekur tvo tíma á
dag og er algengt að menn
missi 10 kg á 10 dögum. Beitt er
nýjustu aðferðum læknavís-
indanna m.a. nálastunguað-
ferð.
Viðbótarverð fyrir megrunar-
meðferð er kr. 25.000.-.
Rínarlönd
og Mosel
Dusseldorf, Koblenz, Reud-
esheim, Loreley, Wiesbaden,
Svartiskógur, Hinterzarten,
Freiburg, Colmar i Frakklandi,
Trier og Köln.
Verð kr. 142.550.-. Brottför
13. júlí n.k. 10 daga ferð.
ISamvínnu-
ferðir
AUSTURSTRÆTI 12 SIMI 27077
LANDSYN
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 16
SÍMI 28899