Morgunblaðið - 04.06.1978, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 1978
7
eftir séra
Jón Auóuns
HUG
VEKJA
Þótt nú sé stórlega breytt um
farkosti og aöstöðu þeirra, sem
sjóinn sækja, frá því sem áöur
var, er þaö engan veginn veizlu-
hjal eitt á Sjómannadegi, aö talað
er um „hetjur hafsins“. Sjómenn
búa enn á ýmsa lund viö
haröneskjulegri kjör en flestir
þeir, sen á þurru landi eiga starf
og stríö
Ég gríþ til gamallar sögu um
hetjulund á hafinu, sögu um
mann, sem manndómsþrek sýndi
hvaö mest þegar hættan var
mest á skipi, sem var aö liðast í
sundur. Ég gríp til sjóferðarsög-
unnar af Páli postula, sem
fylgdarmaöur hans reit og varö-
veitt er í Postulasögunni.
Sú mynd af Páli, sem þar er
sýnd, er hvaö stórfenglegust allra
mynda af honum, og var hann þó
hvergi smár.
Um niðdimma nótt er varnar-
laust skip aö hrekjast á leið
vestur til Rómaborgar. í 14
sólarhringa hafa geysað stormar
og ægilegt öldurót lamiö skip
meö 276 manns innanborðs og
þar á meöai allmarga fanga.
Skipstjórnarmenn og hásetar
hafa gefið upp alla von um aö
komast lífs aö landi, og í
vonleysisskelfingunni hafa
ætluöu aö myröa Pál austur í
Antíokkíu, hafði hann tekiö þaö
ráö, aö skjóta máli sínu undir
dóm keisarans í Róm, og því er
hann meö öörum föngum á þessu
skipi.
Um myrka nótt, meðan óveöriö
lætur verst og angistarvein ör-
væntingarfullra manna, frjálsra
og fanga, keppast á viö öskriö í
storminum og ískrið í skipinu,
sem er aö liöast í sundur, leitar
hinn aldni postuli inn í heim, sem
honum var kunnugur: Hann knýr
dyra í bænaheiminum, sem haföi
margsinnis áöur veitt honum
öryggi og styrk í miklum mann-
raunum. Hann hneigir höföi og
biöur. Hann þarf ekki friðaðan
bænaklefa til aö finna guös-
nálægöina, ekki skartsklæöi
klerka eöa höfuöbúnaö biskupa.
Mitt á meöal glæpamanna og
annars lausungalýös, meöal
manna, sem sumir æpa af
örvæntingu en aðrir eru orölausir
af dauöaangist, er postulinn
ótruflaöur á bæn. Hann heyrir
ekki veiniö í vetrarstorminum,
hann sér ekki æöandi öidurótiö,
því aö um hann lykur friöur
bænarinnar, vængjatök eilífðar-
innar faöma hann, hann er
horfinn hinum ytra heimi.
og deyr. Aftur er gamli Páll í
næturmyrkri meö veinandi föng-
um. Hann rís á fætur. Meö
óhagganlegri rósemi gengur
hann fram fyrir skipstjórnarmenn
og fanga. Hann segir frá því, sem
fyrir hann hafði boriö, og rósem-
in, hiö bjargfasta trúartraust
gefur oröum hans þunga: „Verið
því, menn, meö öruggum huga
því aö óg treysti Guði, aö svo
muni fara, sem viö mig hefir veriö
mælt“.
Menn hlusta og hlusta fast á
þennan ótrúlega mann og sögu
hans. Hér er ógnandi lífsháski
framundan, og þá verður viöhorf
manna oft annaö en meðan allt
leikur í lyndi. Lífsreynslan orkar
misjafnt á mennina, og margir,
engan veginn allir en margir
veröa trúaöir í skóla hennar, og
líklega fleiri en okkur grunar, Svo
hafa sjómenn margir sagt af sér,
og svo varö á skipinu, sem var aö
liöast í sundur í brimgaröinum
fyrir 19 öldum meö 276 mannslíf
innanborðs.
Þeir sem þarna heyröu Pál
segja frá vitrun sinni, uröu gripnir
trúarkrafti hans. Á örlagasund
drukku þeir í sig öryggi hans. Þeir
hlýddu skipunum hans, uröu
Sjóferðasaga
þeir gripiö þann kost, aö varpa
fyrir borö farmi og áhöldum til aö
létta á skipinu, aö þaö veröist
áföllum betur. Menn eru hættir
aö neyta matar. Þaö hriktir í reiöa
og rám, máttarviðir nötra undan
átökum storms og æöandi öldu-
róts. En svo reynist hér, að í
háskanum stælist hjarta hetjunn-
ar. Þá stælist stál hins stóra
manns. Einn fanganna gengur
fram og talar hug í hugfallna
menn. Hann tekur umsvifalaust
stjórnina í hendur sínar, skipar,
og menn hlýöa. Þessum manni,
sem fæstir innanborös vita nokk-
ur deili á, eiga 276 menn líf aö
launa, því aö allir bjargast þeir.
Þessa furöulegu sögu má lesa
i 27. kap. Postulasögunnar
skráöa af sjónarvotti, Lúkasi
guöspjallshöfundi, lækni Páls
postula og vini, sem fer meö
honum þessa ferö.
Þegar ofstækisfullir Gyðingar
Þá lýsir í miönætursortanum
Ijós, og svo skýlaust aö yfir allan
efa er hasiö sér hann hjá sér
standa engil Drottins. Og engill-
inn segir: „Vertu óhræddur, Páll,
fyrir keisarann átt þú aö koma.
Og, sjá, Guö hefir náðarsamlega
gefiö þér aila þá, sem meö þér
eru“.
Sál hins margreynda postula
skelfur: Eitt tákniö enn frá þeim
herra, sem hann þjónart Einn
vottur enn þeirrar undursamlegu
handleiöslu, sem hann haföi
margreynt áöur! Hinn aldni
postuli heyrir ekki lengur ógnandi
veðurofsann. Hann minnist þess,
aö á bænarstund mörgum árum
fyrr haföi hann heyrt Krist uppris-
inn segja: „Náö mín nægir þér,
því aö mátturinn fullkomnast í
veikleika". Hann gat ekki efast.
Hér var ekkert aö óttast. Hér yröi
öllu meö einhverjum hætti borg-
iö. Engillinn hverfur. Ljósiö dvínar
alteknir nýrri von, nýju afli, og
björguöust allir, en skipiö fórst í
lendingu, eins og viö Pál haföi
verið sagt í vitruninni. Mikla lexíu
læröu samferöarmenn og sam-
fangar Páls þessa minnisstæðu
nótt, lexíuna um hann, Hinn
hæsta, sem yfir börnum sínum
vakir. Til þess aö kenna okkur þá
lexíu velur Guö margar leiöir, því
aö engin ein leiö er öllum fær.
Á hættustund hafa margir lært
þá lexíu, bæöi sjómenn, sem um
höfin sigla, og hinir, sem eiga sína
hættuferö á þurru landi. Þá er
alvaran framundan, en „... á
landamærum lífs og dauða leikur
enginn sér“, eins og breiöfirzki
sægarpurinn kvaö, þegar honum
þótti gálauslega um þau efni
talaö.
Guö blessi íslenzka sjómenn
og sæfarendur alla, hvar um
heimshöfin sem þeir fara.
KOMDU MED TIL
ENGLANDS í SUMAR
Enski málaskólinn The Globe Study Centre For
English sem staösettur er í borginni Exeter í
suövestur Englandi hefur skipulagt 3—7 vikna
enskunámskeiö fyrir erlend ungmenni í júlí og
ágúst n.k.
íslenskur fararstjóri fylgir nemendum báöar leiöir
og leiöbeinir í Englandi.
Fullt fæöi og húsnæöi á enskum heimilum.
Mjög góö enskukennsla hjá reyndum kennurum,
einungis á morgnana.
Ódýrar skemmti- og kynnisferöir í fylgd
fararstjóra.
Fararstjóri aöstoöar viö undirbúning fararinnar.
Verö frá kr. 130.500.
Nánari upplýsingar gefur fulltrúi skólans á íslandi,
Böövar Friöriksson í síma 44804 alla virka daga
milli kl. 18 og 21 og um helgar.
ÞU AUGLYSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
AustinMiniárg:76
Til sölu er Austin Mini 1000 árg. ‘76. Bíll í
toppstandi, (nýyfirfarinn). Aöeins staögreiösla
kemur til greina.
Upplýsingar í síma 84924.
SKYNDINIYNDIR
Vandaöar litmyndir
í öll skírteini.
bama&fjölskyldu-
Ijósmyndír
AUSRJRSTRO 6 SlMI 12644
Undirbúningur
alþingiskosninga
í Ijósi nýafstaðinna
sveitarstjórnakosninga
Fulltrúaráö Heimdallar er kvatt til
fundar um þau nýju viðhorf sem
skapast hafa, þriöjudaginn 6. júní kl.
17.00 í Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Frummælandi Friörik Sophusson.
Áríöandi aö allir fulltrúaráösmenn mæti.
Friörik Sophusson
EZ I I C
MZ ^Ljí EZ ^Li^
104
5 manna bifreiö.
Mjög góöir aksturseiginleikar.
Framhjóladrifinn,
sjálfstæö fjöörun á öllum hjólum,
sparneytinn og meö hin viöurkenndu
Peugeot gæöi.
HAFRAFELL H.F. UMBOÐ A AKURbYRl:
Vagnhöfda 7. grms Víkingur S.F.
símar: 8521 1 Furuvöllum 11,
85505____________________sími: 21670