Morgunblaðið - 11.06.1978, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JUNÍ 1978
Italía:
Nedri málstofan
gerd skotheld
Róm. 9. júní. AP.
SKOTIIELDUM ííIukkuih og
dyrum heíur verið komið fyrir
í Montecitorio-höllinni í Róm,
þar sem neðri málstofa ítalska
þingsins hefur aðsetur, en það
er þáttur í öryKgisráðstöíunum
sem fylgja í kjölfar ránsins og
morðsjns á Aldo Moro fyrrver
andi forsætisráðherra.
Þegar er búið að ganga frá
skrifstofu Giulio Andreottis
forsætisráðherra og skrifstofu
forseta málstofunnar. Andreotti
hefur mótmælt yfirlýsingu fjöl-
skyldu Moros um að stjórnin
hafi hafnað beiðni hans um
skothelda bifreið á sínum tíma.
Eiginmaöur minn, + VALGARÐ THORODDSEN,
fyrrverandi
andaöist 10. þ.m. rafmagneveiluatjóri ríkisins,
Marie Thoroddsen.
t
Útför móöur okkar og tengdamóöur,
ELÍSABETAR SIGFÚSDÓTTUR,
Bárugötu 13,
fer frám frá Dómkirkjunni þriöjudaginn 13. júní kl. 13.30.
Unnur Jónsdóttir, Sigfús Jónsson,
Úlfar Þóröarson, Guörún Þorvaldsdóttir.
t
Móöir okkar, tengdamóöir og amma,
INGIBJÖRG SVAVA JÓHANNESDÓTTIR.
fyrrv. forstöóukona,
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 13. júní kl. 15.00. Þeir sem
vildu minnast hennar eru beðnir aö láta Líknarstofnanir njóta þess.
Jóhannes Ágústsson, Sigurbjörg Guömundsdóttir,
Ágústa Ágústsdóttir, Jóhannes Sævar Jóhannesson,
Svavar Þór Jóhannesson, Sigrún Jóhannesdóttir,
Svava Jóhannesdóttir, Styrkár Jóhannesson,
Alda Lára Jóhannesdóttir,
Útför systur okkar, HELGU JÓNSDÓTTUR,
Laugavegi 82,
veröur gerö frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 12. júní kl. 2 e.h.
Þórunn Jónsdóttir, Ingibjörg Stefánsdóttir.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö, vinarhug og virðingu vegna andláts og
jaröarfarar, móöur okkar, tengdamóöur og ömmu, t
MARIE BRYNJÓLFSSON,
Magnús M. Brynjólfsson, Elsa Magnúsdóttir,
Sigrún Guömundsdóttir, Skafti Benediktsson,
Magnús Magnússon, Matthildur, María
og Sigrún Skaftadætur.
t
Innilegar þakkir færum viö öllum sem sýndu okkur vinarhug og samúð við
fráfall,
LOFTS GESTSSONAR,
Sesselja Guöjónsdóttir,
María Loftsdóttir, Þórarinn Baldursson,
Guömundur Loftsson,
Óskar Loftsson.
t
Þökkum samúð og hlýhug viö andlát og útför,
PÁLS ÞÓRODDSSONAR,
Sérstakar þakkir færum viö Starfsfólki deildar E 6, Borgarspítalanum fyrir
góöa umönnun í veikindum hans. Einnig þökkum viö stjórn Verkamannafé-
lagsins Dagsbrúnar fyrir viröingu honum sýnda.
Elín Björnsdóttir,
Hallgeróur Pálsdóttir, Halldór B. Stefánsson,
Páll Halldórsson, Sólveig Ásgrimsdóttir,
Ásta Halldórsdóttir, Einar Erlendsson,
Elín Ýrr Halldórsdóttir, Ólöf Eir Halldórsdóttir,
og barnabarnabörn.
Zaire á barmi
nýs öngþveitis?
Franskir fallhlíðarhermenn í Kolwesi yfirheyra innfædda þegar leitin að innrásarmönnunum frá
Angóla stóð sem hæst.
Kinshasa. Zaire, AP.
ÁRUM saman hefur verið talað
um grimmd og spillingu í Zaire
og að stjórn Mobutu Sese Seko
sé völt í sessi.
Ilins vegar virðist enginn
vita hver gæti komið í stað
Mobutu forseta. Vestrænir
þjóðarleiðtogar standa frammi
fyrir þessum vanda nú þegar
þeir verða cnn þá einu sinni að
senda honum aðstoð til að
halda honum við völd. Mobutu
sem er fyrrverandi liðþjálfi í
bclgíska hernum er sá eini sem
tekizt hefur að koma á sæmi-
legri reglu í Zaire, en ætt-
flokkaerjur. spilling, samsæri
og erlend afskipti hafa þar
lengi leikið Ijósum logum.
Mobutu hefur hingað til tekizt
að bægja kommúnistum frá
Zaire en leyft Belgum og að
nokkru leyti Frökkum, Japönum
og Bandaríkjamönnum að reka
hinar auðugu koparnámur og
hagnýta aðrar málmauðlindir
landsins.
Engu að síður hefur hinn 47
ára gamli forseti fótum troðið
mannréttindi í landifiu, tekið öll
völd í stjórninni og hernum í
sínar hendur og komið undan
miklu fjármagni á erlenda
bankareikninga.
En nú er ástandið þannig í
landinu eftir atburðina í Shaba-
héraði, að námunum í Kolwesi
hefur verið lokað, landið logar í
uppreisnum og óvissa ríkir um
hversu lengi vesturveldin geta
haldið áfram að styðja Mobutu.
„Við eigum fárra kosta völ,“
er haft eftir vestrænum fulltrúa
í Kinshasa.
En ef ekki er til staðar
sambandsstjórn með sterku
miðstjórnarvaldi sem nýtur
vestrænnar aðstoðar er hætta á
að ástandið í landinu yrði svipað
og fyrsta áratuginn eftir að það
hlaut sjálfstæði, þegar algjört
glundroðaástand ríkti, og lands-
menn bárust á banaspjót. Og
þar sem að nú ligga fyrir
sannanir um aðstoð Kúbu-
manna og Sovétríkjanna við
innrásarmennina, gæti landið
horfið inn á hagsmunasvæði
Sovétríkjanna.
Ef Mobutu missir völdin geta
afleiðingarnar orðið meiri
háttar efnahagsleg röskun fyrir
við völd nema með hjálp utan-
aðkomandi herja. Herlið hans í
Kolwesi leystist upp, þegar það
mætti innrásarliðinu og síðan
hefur Mobutu fordæmt yfirhers-
höfðingjann fyrir hugleysi og
dæmt hann í ævilangt fangelsi.
Vestrænir sérfræðingar benda á
að fimmtíu þúsund manna her
Zaire er betur búinn hergögnum
en herir flestra annarra Afríku-
ríkja, en við sama vanda er að
stríða í hernum og á öðrum
sviðum þjóðlífsins í Zaire:
Spillingu, agaleysi og
sundrungu.
Zaire er geysistórt land, erfitt
yfirferðar, það er u.þ.b. áttatíu
sinnum stærra en Belgía að
flatarmáli og íbúarnir um 26
milljónir.
Zaire skiptist í fimm gerólíka
landshluta. í landinu búa tvö
hundruð ættflokkar, sem hver
um sig hefur sín sérkenni, og
töluð eru um þrjú hundruð
tungumál og mállýzkur í
landinu, Malbikaðir vegir ná
aðeins um þrjú hundruð og
fimmtíu kílómetra vegalengd
frá Kinshasa og nánast engar
samgöngur eru milli stærstu
borga og bæja.
Kongómenn voru illa undir
það búnir að fá sjálfstæði, þegar
nýlendustjórn Belga lauk 1960
og þá hófust svo að segja strax
blóðugar ættflokkaóeirðir og
átök ólíkra stjórnmálaafla.
Mobutu var þá yfirmaður
hersins og tók fyrst völdin
nokkrum mánuðum eftir sjálf-
stæðistökuna en hélzt ekki lengi
við völd þá. Síðan tók hann
aftur völdin 1965 í kjölfar meira
öngþveitis og blóðsúthellinga og
í það skiptið ætlaði hann sér alls
ekki að sleppa völdunum. Hann
naut styðnings lífvarðar sem
Israelsmenn þjálfuðu og
harðsnúinnar leynilögreglu og á
næstu árum vann hann krafta-
verk að dómi erlendra stjórn-
málasérfræðinga honum tókst
að sameina sundraða þjóð sína
að nokkru marki og lægja
öldurnar um sinn. Honum tókst
að laða erlent fjármagn til
landsins á ný og tók upp
þjóðlega stefnu, sem miðaði að
því að Zaire yrði fyrir Zaire-
menn. Þessi stefna varð til þess
Framhald á bls. 29.
Mobutu Sese Seko
Vesturveldin, sem þar eiga
hagsmuna að gæta og þá sér-
staklega Belga. En Belgar réðu
landinu þegar það hét Kongó og
fjárfestingar þeirra í Zaire
nema um sex milljörðum
Bandaríkjadala, sem eru í
höndum þrjátíu þúsund Belga.
Innrásin í Shaba sýndi glöggt
að Mobutu getur ekki haldist
Mobutu Sese Seko í hermanna-
búningi athugar ástandið á
flugvellinum í Kolwesi 18. mai
s.l., eftir að Zaireher hafði náð
flugvellinum aftur á sitt vald.