Morgunblaðið - 11.06.1978, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 1978
35
Nýtt kalt stríð
Framhald af bls. 33
heyri nokkrar raddir en í
þessu felst engin sérstök
gagnrýni því aö ég er ekki
viss um hvort nokkur okkar
veit hvert svarið á aö vera.“
En hann haföi áöur sagt:
„Það viröist vera aö nokkrir
Kristóferar Kólumbusar séu
að leggja upp frá Banda-
ríkjunum til aö finna Afríku í
fyrsta skipti.“
Bandarískur embættis-
maöur viöurkenndi aö ekki
virtist hafa veriö mótuö
ákveðin stefna sem geröi
kleift aö bregðast við afskipt-
um Rússa og Kúbumanna.
Nú hefur forsetinn reynt að
móta stefnuna meö ræöunni
í Annapolis en áöur en hún
var haldin virtist Brzezinski
ráöa feröinni að mestu. En sú
harka, sem hefur veriö eign-
uö honum, virðist ekki hvaö
sízt hafa þjónaö þeim tilgangi
aö fá liðsinni öldungadeildar-
manna, sem beita sér fyrir
haröari stefnu gegn Rússum,
viö nýjan Salt-samning. Og
þegar fréttir hermdu aö
bandaríska stjórnin ætlaði
aö fresta Salt-viðræöunum
neitaði Carter því harölega
aö svo væri og virtist þá
snúast aftur á sveif meö
Vance.
Sovézki kommúnistaleiö-
toginn Leonid Brezhnev neit-
aöi því ákveöiö þegar hann
var í Tékkóslóvakíu um svip-
aö leyti aö Rússar heföu
verið óbeint viöriönir innrás-
ina í Zaire og gagnrýndi í
þess staö afskipti vesturveld-
anna þar. En viöbrögö Rússa
hafa yfirleitt þótt einkennast
af stillingu og ástæöan hefur
ef til vill veriö sú aö ráöa-
menn í Moskvu hafi viljað
kynna sér skýrslu Andrei
Gromykos utanríkisráöherra
um fund sem hann átti
nýlega meö Vance um
Salt-viöræöurnar. Þær viö-
ræöur gáfu ekki ástæöu til
bjartsýni. Vance viöurkenndi
sjálfur að lítiö heföi miðaö
áleiöis í þeim.
Carter sagöi því næst á
leiðtogafundi NATO aö
„árvekni vesturveldanna gæti
ekki einskoröazt" viö Evrópu
og virtist þar með snúast
aftur á sveif meö Brzezinski.
En meö ræðunni í Annapolis
hefur Carter loksins reynt aö
móta samræmda stefnu þar
sem bæöi er tekið tillit til
sjónarmiða Brzezinskis og
Vance, og þræöa þau saman
og meö ræöunni vildi Cart-
erlíka sýna fram á aö engin
upplausn væri í stjórninni
þótt helztu aöstoöarmenn
hans létu í Ijósi eindregnar og
oft andstæðar skoðanir.
ENN VINIR
Brzezinski og Vance hófu
báöir störf hjá Carter í fyrra
meö þeim eindregna ásetn-
ingi aö forðast reynslu
Nixon-áranna þegar William
Rogers utanríkisráöherra
hvarf gersamlega í skugga
Henry Kissingers og hann
gegndi því starfi sem
Brzezinski gegnir nú. Vinátta
þeirra hefur engan hnekk
beöiö. En svo oft hafa
opinberar yfirlýsingar
Brzezinski og Vance stangazt
á aö í alllangan tíma hefur
þaö veriö eitt helzta og
vinsælasta umræöuefni
diplómata, embættismanna
og blaðamanna í Washington
hvort valdabarátta sé í upp-
siglingu milli þeirra. Þessu er
Carter forseti greinilega
staöráðinn í aö afstýra.
Annapolis-ræðan þjónaöi
ekki síður þeim tilgangi aö
eyöa þessari hættu en aö
móta samræmda heildar-
stefnu gagnvart Rússum.
Þinote*
3 í
ogí
litaúrvali
Siöumúla 15 sími 3 30 7l
Við erum þeirrar
skoðunar, að góður Vol vo
geti í mörgum tilvikum verið
betri en nýr bíll af annarri gerö!
Þess vegna leggjum við ríka áherslu á
Volvo gæði og Volvo öryggi umfram
annað.
Það er í rauninni auðvelt þar sem Volvo
á 7 hlut. Möguleg meðalending Volvo bíla
er 16,7 ár skv. könnun Sænska bifreiða-
eftirlitsins.
Þegar endursöluverð Volvo er svo
borið saman við endursöluverð annarra
sambærilegra tegunda, kemur gæða-
matið skýrast í Ijós.
Látið okkur aðstoða ykkur við valið á
góðum bíl, — bíl sem endist.
Suðurlandsbraut 16 • Simi 35200
Vance og Gromyko eftir síöasta fund Þeirra