Morgunblaðið - 11.06.1978, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 11.06.1978, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 1978 39 > Framkvæmdir að hefjast við Hrauneyjarfossvirkjun Stofnkostnaður áætlaður um 32,6 Framkvæmdir við Hrauneyjarfossvirkjun eru nú í þann veginn að hefj- ast, en gert er ráð fyrir að stofnkostnaður virkjunar- innar verði um 127 milljón- ir Bandaríkjadollara eða 32.6 milljarðar króna. Tvær 70 megavatta véla- samstæður verða við Hrauneyjafossvirkjun og er gert ráð fyrir, að fyrri vélasamstæðan verði tekin í notkun í nóvember 1981 og sú síðari árið eftir, að því er segir í frétt frá Landsvirkjun. í fréttinni segir enn- fremur« „Gröftur fyrir stöðvarhús virkjunarinnar verður fyrsti áfanginn í byggingarvinnu á virkjunarstaðnum og er ráðgert að Ijúka því verki fyrir veturinn. Verktaki við þennan verkhluta verð- ur Istak h.f. í félagi við Miðfell h.f., Loftorku s.f., E. Phil & Sön og Skánska Cementgjuteriet, en þessir verktakar stóðu sameigin- lega að lægsta tilboðinu, og var hlutaðeigandi verk- samningur undirritaður hinn 23. maí s.l. Er hér um að ræða fyrsta verkasamn- inginn í þágu virkjunar- innar, og hefst vinna verk- takans næstu daga. Að öðru leyti verður bygg- ingarvinnan boðin út næsta haust og síðar, eftir því sem verkinu miðar áfram. Viðræður við bjóðendur í véla- og rafbúnað virkjunarinnar eru nú á lokastigi og verður væntanlega gengið frá samningum um þau verk síðar í þessum mánuði. I samræmi við virkjunarleyfi Hrauneyjafossvirkjunar miðast allir samningar vegna virkjunar- innar við 140 megavatta virkjun með tveimur 70 megavatta véla- samstæðum, en gert er ráð fyrir möguleikum á að mæta aukinni orkueftirspurn síðar með því að bæta þriðju válasamstæðunni við að fengnum tilskyldum leyfum. Auk tæknilegs undirbúnings hefur undanfarna mánuði verið unnið að því að tryggja fjármögn- un framkvæmdanna, og hefur eigendum Landsvirkjunar verið gerð grein fyrir fjármögunar- áætlunum þar að lútandi. Stofn- kostnaður virkjunarinnar er áætlaður um 127 milljónir Banda- ríkjadollara að meðtalinni há- spennulínu að spennistöð Lands- virkjunar á Brennimel í Hvalfirði og vöxtum á byggingartíma. Er milljarðar gert ráð fyrir, að kostnaðurinn verði fjármagnaður með lántökum að fjárhæð alls um 103 milljónir Bandaríkjadollara og að öðru leyti með fé úr rekstri Landsvirkjunar og framlögum eigenda. Nettó-aukning skulda Lands- virkjunar á byggingartíma Hraun- eyjafossvirkjunar áætlast hins vegar ekki hærri en 38 milljónir Bandaríkjadollara, þar sem af- borganir á sama tíma áætlast um 65 milljónir Bandaríkjadollara. Landsvirkjun hefur undanfarið átt viðræður við erlendar lána- stofnanir um möguleika á láns^ fjáröflun í þágu virkjunarinnar. í framhaldi af þeim viðræðum bárust Landsvirkjun lánstilboð frá bönkum í Bandaríkjunum, Evrópu og Japan. Að lokinni athugun þessara tilboða og að fengnum tilskildum leyfum, hefur stjórn Landsvirkjunar samþykkt að taka almennt framkvæmdalán að fjár- hæð 60 milljónir Bandaríkjadoll- ara vegna Hrauneyjafossvirkjun- ar. Er lán þetta tekið hjá Hambros Bank Limited, London, sem eink- um hefur haft forgöngu um lánsútvegunina, en auk Ham- bros-banka standa að lánveiting- unni Canadian Imperial Bank of Commerce, Mitsui Finanace Asia Limited, Banque Nordeurope S.A., Nippon Credit International (HK) Ltd., Taiyo Kobe Finance Hong Kong Limited og sex aðrir erlendir bankar. Lánstíminn er um 10 ár og þar af eru fyrstu fimm árin afborgunarlaus. Vextir eru milli- bankavextir, eins og þeir eru á hverjum tíma í London, að við- bættu álagi, sem nemur 7/s % á ári. Að því meðtöldu eru vextir þessir í dag um 9% á ári. Lánið er mað einfaldari ábyrgð eigenda Lands- virkjunar. Á lán þetta verður dregið í áföngum á byggingartíma virkjunarinnar, en heimilt er að draga á það á fjórum árum frá dagsetningu lánssamnings. Hlut- aðeigandi lánssamningur var undirritaður í London hinn 6. þessa mánaðar af dr. Jóhannesi Nordal, stjórnarformanni Lands- virkjunar. Stefnt er að því, að fyrri vélasamstæða Hrauneyjafoss- virkjunar verði kominn í rekstur í nóvember 1981, en samkvæmt orkuspá, er það talið nauðsynlegt til að tryggja að ekki komi til orkuskorts á orkuveitusvæði Landsvirkjunar og hinu sam- tengda landskerfi veturjnn 1981—‘82. Seinni vélasamstæðunni er síðan ætlað að vera komin í gagnið eigi síðar en haustið 1982.“ FEF selur slaufumerki á kosningadag- inn, 25. júní FÉLAG einstæðra íoreldra vcrður með sína árlegu slaufu- merkjasölu á næstunni, nánar tiltekið þann dag sem kosið verður til Alþingis, sunnudag 25. júní. Slaufumerkið verður með nokkuð öðrum hætti en síðast liðin ár og hefur Rósa Ingólfs- dóttir útbúið það en Vörumerk- ingar prenta. Félagsmenn munu verða við sem allra flesta kjörstaði í Reykjavík og nágrannabyggðum að selja slaufurnar. Allur ágóði rennur í Húsbyggingasjóð FEF. Undan- farnar vikur hefur mikill skriður komizt á lokaáfanga endurbóta FEF við neyðarhúsnæðið væntan- lega í Skeljanesi og takist vel til með slaufumerkjasöluna má búast við því að smiðshöggið verði rekið á verkið á haustnóttum. Bent er á að mjög eindregið er óskað eftir því að fólk gefi sig fram við skrifstofu FEF nú þegar og skrái sig til sölustarfa á kösningadaginn þar sem nauðsyn- legt er að sem flestir hjálpist að svo að árangur verði i samræmi við þá undirbúningsvinnu sem innt hefur verið af hendi. Geta má þess að Félag ein- stæðra foreldra er nú að hefja undirbúning að barnagæzlu um helgar og í sumarleyfum og einnig er á umræðustigi hugmynd um hjálp við einstæða foreldra sem missa húsnæði sitt fyrirvaralaust, þar til húsnæðið í Skeljanesi verður komið í gagnið. Loks er vert að minna á að enn geta fáeinir fengið garðlönd hjá félaginu en vegna stóraukinnar eftirspurnar var langtum stærra svæði nú undirbúið til kartöflu- og græn- metisræktunar en í fyrra. (fréttatilkynning) Búvélasýningar Viö munum sýna ofangreind tæki á eftirtöldum stööum: sunnudaginn 11.6. Skeggjastööum, Hraungeröishreppi kl. 14—18. mánudaginn 12.6 Skálholti, Biskupstungum kl. 14—18. Þriöjudaginn 13.6 Hellu, Rangarvallarsýslu kl. 14—18. miðvikudaginn 14.6 Brekkum, Dyrhólahreppi kl. 14—18. fimmtudaginn 15.6 Kaupfélagi Vestur-Skaftfellinga, Kirkjubæjarklaustri kl. 14—18. föstudaginn 16.6 Kaupfélagi Austur-Skaftfellinga, Höfn, Hornafiröi kl. 14—18. BÆNDUR! Þaö er Þess virði að gera sér ferð og sjá Þessi nýju tæki (STEKKf Globus? Lágmúla 5. Sími 81555 LÁGMÚLA 5 SÍMI 81555.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.