Morgunblaðið - 11.06.1978, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 11.06.1978, Blaðsíða 22
54 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 1978 vcn SKÖMMU fyrir jól árid 1956 fæddist í Reykjavík stúlkubarn, dóttir hjónanna Jóns Björnssonar frá Vestmannaeyjum og Bryndísar Jónsdóttur frá Vík í Mýrdal. Barnið óx og dafnaöi og ólst upp hjá foreldrum sínum í Vestmannaeyjum par til á miðjum síöasta áratug aö fjölskyldan tók sig upp og flutti til meginlandsins; til Reykjavíkur, síðan Kópavogs, Hafnarfjaröar og aö lokum til Reykjavík- ur aftur fyrir nokkrum árum. Barniö sem hér um ræöir varskírt Halldóra Björk og hún var kosin Ungfrú íslandnú fyrir skemmstu og verður fulltrúi íslands í keppninni „Miss Scandinavia“ í október og „Miss Universe“ á næsta ári. Slagbrandur heimsótti Halldóru um daginn og ræddi við hana og fer hluti af spjallinu hér á eftir: af þeim hafi birst auglýs- ingamyndir í sem flestum blööum og tímaritum, þannig aö ég stend ágæt- lega að vígi hvaö þaö snertir, en þó vantar enn uppá, en þaö kemur meö tímanum. Annars er mjög ólíkt andrúmsloft í keppni erlendis og hér heima. Hér er þaö ósköp þægilegt, en úti er slegist af hörku og reynt aö spilla fyrir öörum keppendum á ýmsan máta. Þaö er til dæmis vinsælt bragö, þegar tekin er mynd af tveimur stúlkum saman, aö stíga á tærnar á hinni, svo hún gretti sig og taki sig illa út á myndinni." „Eg hef verið haldin feröabakteríunni alveg frá fæöingu. Mér finnst svo gaman aö flytjast, þetta er líklega einhver ævintýra- þrá,“ byrjaöi hún, eftir aö hafa látiö Slagbrandi í té fyrrgreindar upplýsingar um æsku sína og uppvöxt. „Ég lauk gagnfræðaprófi frá Flensborgarskólanum 1973 og hugðist þá hvíla mig á námi í eitt eöa tvö ár en halda síöan áfram aö læra, því ég hefi alltaf haft hug á því aö gerast kennari, en meðal annars vegna þess aö sólarhringurinn er of stuttur fyrir allt sem ég hef áhuga á aö gera, frestast námiö enn um sinn.“ — Hvenær tókstu fyrst þátt í feguröarsamkeppni? „Þaö var áriö 1975, en þá átti ég aö keppa fyrir ísland í „Miss Scandi- navia“-keppninni, en hún féll niöur þaö ár. Vegna forfalla var ég síðan beðin aö taka þátt í „Miss World“-keppninni í London meö mjög stuttum fyrirvara og ég geröi þaö. Þá var ég ekki nema átján ára og kunni ekkert á þetta og ég er fegin því núna aö ég fór heim strax daginn eftir keppnina, enda þótt venjan sé aö gera þaö ekki til aö bíöa og sjá hvort maður fær einhver atvinnutilboð. Ég var allt of ung til aö standa í þessu þá og meö litla reynslu aö baki. Núna tel ég mig hins vegar ágætlega undir það búna aö taka þátt í svona alþjóölegri keppni og mig langar vissulega til þess aö fá starf erlendis sem Ijósmyndafyrirsæta, en svona keppni er kjörinn stökkpallur út í þá starfs- grein. Nú, og ef.lítið kemur út úr því, þá kem ég bara aftur heim og held áfram aö læra, eöa afgreiöa bækur hjá Eymundsson." — Eftir keppnina 1975 hefuröu væntanlega fengiö ýmis tilboð um störf hér- lendis. „Já, en ég kann alltaf best viö mig þarna innan um bækurnar í Austur- strætinu. Ég vann um skeiö í tískufataverslun, en kunni ekki vel viö mig innan um tískutildriö og þótti kven- fólk lítils metiö þar. Annars hef ég unniö í fjölmörgum stööum, þar á meöal á Morgunblaöinu, en bóka- alltaf troða öllu á stundatöfluna í einu búöin hefur þó veriö fasti punkturinn í þeim efnum hjá mér. Enda er skemmti- legt aö vinna í hjarta borgarinnar.“ „... að stíga á tærnar á hinni .. — Hvaö viltu segja um viðhorf til feguröarsam- keppni? fíætt vid ný- kjörna Ungfrú ísland Halldóri Jóns- dóttur „Þetta fer afskaplega í taugarnar á mörgum hér heima, en erlendis er þetta álitið auglýsing eöa land- kynning, enda er geysilegur auglýsingaiönaöur í kring- um þetta þar. í keppninni í London varö manni óhjá- kvæmilega hugsað til hungurs og volæöis í þróunarlöndunum, þegar maöur horföi á allt pellið og purpurann sem notaö var til að auka enn á glysyfirbragð keppninnar. En ég veit þaö mætavel að enda þótt ég myndi neita aö taka þátt í svona keppni yröi hún haldin engu aö síður, svo mér finnst sjáifsagt aö reyna aö notfæra mér þetta tækifæri til þess aö komast út í heim og vonandi vera landi mínu og þjóö til sóma.“ — Þú hefur mikiö fengist viö sýningarstörf hér aö undanförnu, er þaö ekki? • „Jú, og ég hef afskap- lega gaman af því. Þaö er reýndar ekki vel launaö, en starfinu fylgja mikil feröalög og þaö heillar mig alltaf. Svona sýningastörf eru vel borguö erlendis og þaö er vissulega taliö mjög æski- legt fyrir þær sem ætla út í fyrirsætustörf erlendis aö — Veröuröu fyrir ágangi fólks vegna þátttöku þinnar í feguröarsamkeppni? • „Ekki lengur. Fyrst eftir keppnina 1975 var mjög erfitt fyrir mig aö fara út aö skemmta mér og ef ég var sæmilega klædd var ófriöur inn alger og ég köll- uö ýmsum nöfnum. Þaö var langmest kvenfólkið sem lét svona. Nú oröið ber lítiö á þessu, en þaö er vissulega ýmislegt sem maöur getur ekki leyft sér.“ „Heff ffengið ákúrur ffyrir útganginn á mér“ — Þú talaðir áöan um aö læra, hvaö er það sem þú hefur hug á aö gera í því sambandi? • „Ég fór í Öldungadeildina hér um áriö en varö aö hætta vegna þess aö tímarnir þar samræmdust ekki vinnutímanum hjá mér. Áöur haföi ég farið í Fjöl- brautaskólann í Breiöholti og gekk þaö ágætlega. Ég var þar viö nám á uppeldis- sviöi og ég haföi áhuga á aö halda því áfram seinna, þegar ég get sætt mig viö aö setjast niöur. Ég vil alltaf troöa öllu á stundatöfluna í einu, en nú er ég búin aö sætta mig viö þaö aö læra seinna." — Nú afgreiðir þú í bókaverslun, lestu mikið? • „Nei, því miöur. Ég gef mér svo sjaldan tíma til þess og mér finnst ómögu- legt aö vera aö lesa síöu og síöu á hlaupum. Ég fékk mér nýlega bók eftir Agöthu Christie og skildist aö þetta væri bók af því tagi sem ómögulegt væri aö leggja frá sér fyrr en fiún væri búin, en hún heillaði mig nú ekki meira en það, aö ég týndi henni þegar ég var hálfnuö og ég hef ekkert saknaö hennar." — Þegar þú sérö auglýs- ingamyndir af þér í blöðum, hvernig verkar þaö á þig? • „Stundum finnst mér þaö vera einhver önnur mann- eskja, sérstaklega ef ég er eitthvað uppstríluö á mynd- inni. Ég kann ekki sjálf aö meta slíkt. Ég hef raunar fengiö ákúrur fyrir útgang- inn á mér dags daglega. Sumt fólk ímyndar sér aö maöur eigi troöfullan fata- skáp og hafi úr nógu aö velja, en því get ég nú ekki beint státaö af. Oft á tíðum finnst mér erfitt aö þekkja mig af myndum og ég held aö fólk sem hefur bara séö mig á mynd, þekki mig oft ekki ef þaö sér mig á götu, sem ekki er von þegar mér finnst sjálfri aö stúlkan á myndinni sé önnur en ég.“ — Hvernig undirbýrðu þig undir keppnina sem þú átt framundan? • „Undirbúningurinn er mikiö til fólginn í því aö velja sér fatnað og snyrti- vörur núna frá byrjun, meö það fyrir augum aö þaö komi aö notum síöar í keppni og kynna sér sem best allar aðstæöur þar sem keppnin fer fram, þar á meðal veöurfar. Svo veröur maöur náttúrulega aö passa línurnar. Svona undirbúningur er mjög dýr, því ég þarf aö kaupa yfirleitt allt sjálf, erlendis er þaö hins vegar svo aö stúlkurn- ar fá fatnað og snyrtivörur og þess háttar aö gjöf frá ýmsum fyrirtækjum, sem aftur fá vissa auglýsingu út á þaö.“ Þegar hér var komiö sögu fór Slagbrandur aö undirbúa brottför og kvaöst mundu hringja þegar viötal- iö væri tilbúiö til yfirferðar, en þá hló Halldóra Björk og sagöi aö þaö væri bilaöur hjá sér síminn og hún heföi hreint ekki í hyggju aö flýta sér aö panta viögeröar- mann því þaö væri alltaf veriö aö reyna aö ná í sig og óska sér til hamingju meö titilinn. Slagbrandur tekur hér meö undir þær hamingju- óskir og samhryggist viö- geröarmönnum Pósts og síma. SIB

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.