Morgunblaðið - 11.06.1978, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 1978
43
LANDGRUNNS
PENINGURINN
MINNING UM MLRKAN ÁFANGA
MÓTUÐ í SILFUR OG BRONS
193 félög í
firmakepprii
Mána
FIRMAKEPPNI Hestamannaíé-
lagsins Mána í Keflavík íór fram
sunnudaKÍnn 21. maí s.l. Keppt
var á nýju æfingasvæði félagsins
og var þátttaka geysimikil, en
alls studdu 193 fyrirtæki félagið.
Úrslit urðu þessi:
í A-flokki sigraði Örvar, Einars
Þorsteinssonar, en hann kepptti
fyrir Hagtryggingu h.f., umboðið í
Keflavík. I B-flokki sigraði Bjarni,
Maju Loebellen hann keppti fyrir
Hópnes h.f. í Grindavík. í ungl-
ingaflokki, en þar voru knapar
13—15 ára, sigraði Gassi, Kristins
Skúlasonar, en hann keppti fyrir
Garðar Garðarsson lögfræðing. I
unglingaflokki 2., en þar voru
knapar 12 ára og yngri, sigraði
Léttir, Sigurlaugar Auðunsdóttur,
en hann keppti fyrir Hitaveitu
Suðurnesja.
N.k. sunnudag 11. júní heldur
félagið sínar árlegu kappreiðar á
Mánagrund við Garðaveg og hefst
keppni kl. 14.00.
800 félagar
í Norræna-
félaginu
í Kópavogi
AÐALFUNDUR Norræna félags-
ins í Kópavogi er afstaðinn, en
félagar eru nú 800. Formaður
félagsins er Hjálmar Ólafsson, en
auk hans eru 4 í stjórn.
A haustvöku félagsins flutti
Sigurður Þórarinsson jarðfræð-
ingur erindi um Kröflusvæðið.
Ferðasaga var flutt og einsöngur
sunginn. I marz var vorvaka
félagsins en þar flutti Ingeborg
Donali erindi á íslenzku um
Þrándheim. Félagið sendi fulltrúa
á vinabæjamót í Finnlandi og á
menningarviku á Fjóni. Einnig tók
það á móti skólafólki og stúdenta-
kór frá Norðurlöndum.
Ný snyrtistofa opnuð:
„Markmiðið að gefa við-
skiptavinmum nægan tíma”
SJÁVARÚTVEGS
RÁÐUNEYTIÐ
EIGENDUR snyrtivöruverzlun-
arinnar Monu Lisu á Laugavegi
19 hafa nú opnað snyrtistofu í
sama húsnæði, en snyrtivöru-
verzlunina hafa þær starfrækt í
þrjú ár.
Eigendur Monu Lisu heita Guð-
rún Sveinsdóttir og Kristín A.
Thoroddsen.
Munu þær ásamt Svanborgu
Daníelsdóttur fegrunarsérfræð-
ingi, vinna á snyritstofunni. Þær
stölíur segja það helzta markmiðið
hjá sér að gefa viðskiptavinum
nægan tíma, hvort sem um er að
ræða andlitsböð, snyrtingu, húð-
hreinsun, andlitsnudd eða hand-
snyrtingu. „Við viljum að fólki líði
vel og sé afslappað þegar það
kemur í meðferð til okkar. Þá
teljum við okkur hafa það fram
yfir margar snyrtistofur að hér
höfum við mikið vöruúrval til
snyrtingar, vegna verzlunarinnar.
En þær vörur sem við komum
helzt til með að nota við andlis-
snyrtinguna eru frá Christian
Dior, Phyris og Harriet Hubbard
Ayer, sem er þekkt frönsk snyrti-
vörutegund en er hvergi á boðstól-
um í Reykjavík nema hér. Nú ef
fók vill einhverjar aðrar tegundir
eru þær algengustu til.
Við hyggjumst einnig koma með
ýmsar nýjungar á snyrtistofunni
og sóttum gagngert alþjóðaþing
fegrunarsérfræðinga í
Birmingham í apríl s.l. til að
kynna okkur helztu nýjungarnar."
Meðfylgjandi mynd tók RAX
ljósm. Mbl. af þeim Kristínu,
Guðrúnu og Svanborgu á nýju
snyrtistofunni.
M/l
Magnússon, teiknari FÍT. Þeir eru 5 sm í
þvermál og tölusettir á rönd. Gefnar verða
út 750 samstæður silfur- og bronspeninga
og 2250 stakir bronspeningar.
Verð á samstæðu, þ.e. silfur- og brons-
peningi saman í öskju, er kr. 24.000, en verð
á stökum bronspeningi í öskju er kr. 6.000.
Seðlabanki íslands annast sölu og
dreifingu peninganna, en söluaðilar eru:
Afgreiðsla Seðlabankans, Hafnarstræti 10,
Búnaðarbankinn, Útvegsbankinn, Lands-
bankinn og útibú þeirra svo og helstu mynt-
salar í Reykjavík.
Ath. Til og með 26.júní 1978 miðast
afgreiðsla á samstæðum við þrjár til hvers
kaupanda, vegna takmarkaðs upplags.
í tilefni þess, að 30 ár eru liðin frá setningu
laga um vísindalega verndun fiskimiða land-
grunnsins, hefur sjávarútvegsráðuneytið
gefið út minnispening.
Á þessum lögum eru byggðar fiskvernd-
unaraðgerðir okkar og útfærsla landhelg-
innar í áföngum úr þremur í tvö hundruð
sjómílur.
Peningur þessi er glæsilegur minjagrippr.
sem heldur á lofti minningum um skelegga
baráttu lítillar þjóðar til sjálfforræðis yfir
auðlindum sínum. Baráttu, sem færði okkur
íslendingum marga sigra, þann mesta með
útfærslu landhelginnar í 200 mílur.
Peningarnir eru slegnir hjá Ís-Spor h.f.,
Reykjavík, en hönnuður þeirra er Þröstur