Morgunblaðið - 11.06.1978, Page 17

Morgunblaðið - 11.06.1978, Page 17
álfstæðisflokksins: MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 1978 49 frjálslynd viðhorf, ngnum og athafnafrelsi Frjálsrœði í menningarmálum Hér að framan hefur verið gerð grein fyrir nokkrum höfuðverkefnum komandi ára og stefnu Sjálfstæðisflokksins í þeim. Um stefnu sína í öðrum málaflokkum vísar Sjálfstæðisflokkurinn fyrst og fremst til tillagna þingmanna hans á Alþingi og ályktana Landsfunda flokksins. Á eftirfarandi atriði má þó minna: Sjálfstæðisflokkurinn vill efla rannsókna- og vísindastarfsemi í landinu,' sem meðal annars mun stuðla að betri nýtingu auðlinda og uppbyggingu atvinnustarfseminnar í landinu. Stefna Sjálfstæðisflokksins í menningarmál- um á rætur í víðsýnni þjóðernishyggju og virðingu fyrir einstaklingnum. í menningar- málum vill flokkurinn stuðla að því að fólk fái tækifæri til að skapa og njóta frjálsra lista og menningar í daglegu lífi. Sköpunargleði listamannsins, rannsóknarþörf vísindamanns- ins og starfsvilji athafnamannsins eru greinar á sama meiði. Starf af þessu tagi þróast aðeins í lýðræðisríkjum. Sósíalisminn krefst þess hins vegar að listin lúti vilja valdhafanna. Því hafnar Sjálfstæðisflokkurinn. Sjálfstœði sveitarfélaga Sjálfstæðisflokkurinn vill fela sveitarfélög- um fleiri og stærri verkefni en þau hafa nú. Meðal verkefna sem flokkurinn vill færa til sveitarfélaga er, rekstur og uppbygging grunnskólans, heilsuvernd utan sjúkrahúsa og umönnun yngstu og elztu borgaranna. Til þess að sveitarfélögin geti sinnt þessum verkefnum þarf að tryggja þeim tekjustofna. Eign fyrir alla í húsnæðismálum leggur Sjálfstæðisöflokkurinn áherzlu á að fólk með almennar tekjur eigniist eigið íbúðarhúsnæði. í þessum tilgangi þarf að tryggja rífleg stofnlán til handa fólki sem reisir eða kaupir sína fyrstu íbúð. Jafnframt verði lánafyrir- greiðslu beitt til betri nýtingar eldra húsnæðis, eins og ríkisstjórnin hefur nýlega beitt sér fyrir með stórhækkun lána til kaupa á eldra húsnæði. Eflum einkaframtakið Stefna flokksins í verzlunar- og viðskipta- málum er að efla frjálst framtak einstakling- anna og samtaka þeirra. Frjálst hagkerfi hagnýtir frumkvæði, hugkvæmni og atorku einstaklingsins, lætur hann njóta eigin verka en bera jafnframt ábyrgð gerða sinna. Það beinir atorku manna til þeirra verka, sem þeir vinna bezt, fjármagni landsmanna til þeirra framkvæmda, sem gefa mestan arð og færir neytendum þá vöru og þjónustu, sem þeir vilja helzt. Markaðshagkerfið samrýmir bezt atvinnustarfsemi einstaklinga óskum þjóðar- heildarinnar án þess að skerða rétt þeirra til að ráða eigin málum. Iðnaður — atvinnu- vegur framtíðarinnar Sjálfstæðisflokkurinn vill stuðla að eflingu íslenzks iðnaðar sem í framtíðinni mun verða æ stærri þáttur í atvinnulífi landsmanna. Nauðsynlegt er, að iðnaðurinn njóti að fullu sömu aðstöðu og kjara við fjármagnsfyrir- greiðslu og aðrir atvinnuvegir gera. Efla þarf sölu og markaðsstarfsemi sérstaklega á sviði útflutningsiðnaðar og skapa þarf Iðntækni- stofnun Islands góð starfsskilyrði. Nauðsynlegt er að gæta þess vandlega að lönd sem Island hefur markaðssamstarf við fari í hvívetna eftir gerðum samningum. Reynist svo ekki vera, verða íslendingar að grípa til viðeigandi gagnráðstafana. Afkoma bœnda tryggð Landbúnaður á íslandi er og verður einn af undirstöðuatvinnuvegum landsmanna. Tryggja verður bændum sambærilega afkomu miðað við aðrar atvinnugreinar og sjá þarf til þess að lánafyrirgreiðsla og niðurgreiðslur nýtist þeim eins og til er ætlazt, jafnframt sem neytendum sé tryggt hagstætt verð land- búnaðarvara. Flokkurinn leggur áherzlu á að við endurskoðun laga um framleiðsluráð landbúnaðarins verði reynt að leysa vanda offramleiðslu í landbúnaði m.a. með heimild til flutninga fjármagns milli framleiðslugreina og ákvörðunar mismunandi Verðlags eftir árs- tíma. Efla þarf markaðsrannsóknir og vinna þarf að gerð víðtækra framleiðsluáætlana í landbúnaði. Nœg og ódýr orka Sjálfstæðisflokkurinn vill tryggja íslending- um næga og ódýra orku. Á síðustu árum hefur mikið áunnizt í hitaveituframkvæmdum sem hafa haft í för með sér stórkostlegan sparnað fyrir þjóðina. Áframhaldandi nýting orkunnar í almenningsþarfir er brýnt hagsmunamál. Skipulag orkumála verður að stefna að auknum áhrifum einstakra landshluta á ákvarðanir í orkumálum. Jafnframt skal stefnt að samteng- ingu rafveitna landsins sem tryggi rekstrar- öryggi og hagkvæmni. Tryggja þarf að innlendur atvinnurekstur fái raforku á sem bestum kjörum. Við alla nýting'u auðlinda sem felast í fallvötnum og jarðvarma skal jafnan gætt náttúruverndarsjónarrniða. Náttúruvernd Sjálfstæðisflokkurinn vill beita sér fyrir verndun náttúru- og umhverfis í landinu. Stuðla verður að uppgræðslu og gróðurvernd. Efla verður virðingu þjóðarinnar fyrir íslenzkri náttúru og stórauka fræðslu um vistkerfi landsins. Til þess að ná þessum markmiðum hefur flokkurinn m.a. beitt sér fyrir samningu frumvarps til laga um umhverfisvernd sem lagt var fram á síðasta þingi. Heilsugœzla Fullkomin heilbrigðisþjónusta fyrir alla lands- menn er ein af undirstöðum nútíma þjóðfélags. Sjálfstæðisflokkurinn vill tryggja öllum lands- mönnum góða heilbrigðisþjónustu og heilsu- gæzlu. Leggja verður áherzlu á áframhaldandi uppbyggingu heilsugæzlustöðva og skipuleggja þarf sérfræðiþjónustu á sem flestum sviðum fyrir allt landið. Auka þarf starf á sviði heilsuverndar og ' fyrirbyggjandi aðgerða og efla starf sem snýr að hollustuháttum almennings. Almannatryggingar og lífeyrisréttindi Sjálfstæðisflokkurinn styður eindregið endurskipulagningu lífeyriskerfis landsmanna, sem tryggi að öllum lífeyrisþegum sé tryggður viðunandi heildarlífeyrir, sem fylgi þróun kaupgjalds á hverjum tíma. Þá þarf almannatryggingalöggjöfin að vera í stöðugri endurskoðun sem miði að því, að aðstoð almannatrygginganna nýtist fyrst og fremst þeim sem raunverulega þurfa á henni að halda. Sjálfstæðisstefna — vinstri stefna I Alþingiskosningunum verður skýrar en oftast áður tekizt á um tvær gerólíkar meginstefnur. Annars vegar sjálfstæðisstefn- una, sem byggir á frelsi og framtaki einstaklinganna og hins vegar ríkisforsjár- stefnu vinstri flokkanna, sem lýsir sér bezt í vantrú þeirra á getu einstaklinganna til að ráða málum sínum sjálfir. Stefna vinstri flokkanna leiðir óhjákvæmilega til síaukinna ríkisafskipta, sem lama framtak einstakling- anna og þrengja kosti þeirra til frjálsra athafna. Sjálfstæðisstefnan er frjálslynd stefna. Með framkvæmd hennar fæst sú dreifing þjóð- félagsvaldsins, sem er forsenda lýðræðislegra stjórnarhátta. Sú stefna ein getur tryggt Islendingum hagsæld og frelsi. Sjálfstæðisflokkurinn heitir því á alla, sem unna lýðræði og frelsi, að veita sér stuðning í komandi kosningum og hefja þannig nýja sókn til sigurs. £ ríkisforsjá sósíalismans

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.