Morgunblaðið - 11.06.1978, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 1978
63
Kanaríeyjar:
3 létu líf-
ið í eldi
Santa Cruz, Kanaríeyjum,
9. júní. — AP.
ELDUR kom upp í stóru f jölbýlis-
húsi í Santa Cruz á Kanaríeyjum
en upphaf hans má rekja til
næturklúhbs í kjallara hússins þó
upptökin séu enn ókunn. Þrír
menn, ung hjón og brezkur
ferðamaður létu lífið úr reykeytr-
un og 18 manns meiddust. Það
tók um 3 klst. að vinna á eldinum
en lögreglan hefur skýrt frá því
að í þessu sama húsi hafi fjórir
bandarískir ferðamenn látið lífið
í mars s.l. úr gaseitrun.
Utankjörstaðakosning
Utankjörstaðaskrifstofa
Sjálfstæðisflokksins er Valhöll,
Háaleitisbraut 1 — Símar 84751,84302,84037.
Sjálfstæöisfólk! Vinsamlega látiö skrifstofuna vita
um alla kjósendur, sem veröa ekki heima á
kjördegi. Utankjörstaöakosning fer fram í
Miöbæjarskólanum alla virka daga kl. 10—12,
14—18 og 20—22.
Sunnudagakl. 14—18.
Veitingastofan
Þrastalundur
v/Sog
Stangaveiðimenn
Nokkur veiöileyfi laus í Soginu.
Allar nánari upplýsingar í síma 99-1111.
Sigur and-
stæðinga
reykinga
Lyon. Frakklandi. 9. júní. Reuter.
DENIS Valet, einn sterkasti
baráttumaðurinn gegn reyking-
um í Frakklandi, höfðaði á
sínum tíma mál gegn frönsku
járnbrautunum þar sem hann
taldi sig ekki hafa verið nægi-
lega verndaður gegn reykingum
samferðamanna sinna. Járn-
brautafélagið var sektað um
2000 franka fyrir að ekki hafði
verið komið í veg fyrir að
ferðamaður kveikti sér í vindl-
ingi í klefa þar sem reykingar
voru bannaðar. Þegar ferðamað-
urinn kveikti í vindlingnum
greip Valet í neyðarhemilinn og
stöðvaði lestina og fékk fyrir
vikið 500 franka sekt.
Marx-leninistar
mótmæla akvörð-
un útvarpsráðs
í fréttatilkynningu frá fram-
kvæmdanefnd miðstjórnar Ein-
ingarsamtaka kommúnista
(marx-leninista) segir, að samtök-
in mótmæli harðlega þeirri
ákvörðun útvarpsráðs að tak-
marka þann tíma, sem flokkar og
samtök, sem ekki bjóða fram í
öllum kjördæmum, hafa til ,um-
ráða í sjónvarpi og útvarpi til að
kynna stefnu sína. Samtökin telja
að ákvörðun þessi sýni að útvarps-
ráð styðji fullkomlega þá stefnu
þingræðisflokkanna að hindra
aðra flokka og samtök í að kynna
mál sín og geri fólki því erfiðara
að taka afstöðu. Einingarsamtök
kommúnista (marx-leninistar)
vilja því einnig hvetja einstaklinga
og samtök til að berjast gegn
þessari ákvörðun útvarpsráðs.
Erfðaskrá-
in fölsuð
Las Veiías. Nevada. 9. júní. Reuter.
KVIÐDÓMUR úrskurðaði í gær
að crfðaskrá sem haldið hefur
verið fram að væri rituð aí
milljónamæringnum Howard
Hughes.þar sem hann arfleiddi
bensínafgreiðslumann frá Utah
að hluta af eignum sínum, sé
fölsuð.
Stuttu eftir að Hughes lézt 1976
birtist Melvin Dummar í höfuð-
stöðvum mormónakirkjunnar í
Salt Lake City með handskrifaða
erfðaskrá sem dagsett var 1. mars
1968 og kvað á um að hann skyldi
erfa um 10 milljónir dollara eftir
Hughes, en ókunnur maður hefði
skilið hana eftir á bensínstöðinni
þar sem Dummar vann.
Saksóknari í málinu sagði að
nafnritunin í skránni hefði verið
léleg tilraun til eftirlíkingar á
rithönd auðmannsins. Allt er enn
á huldu um hver kemur til með að
erfa eignir Hughes.
Blöndumrtœki fyrir böö, eldhús,
la’huistofu/; rannsókmrstofur,
Byggingavörur
Sambandsins
Suóurtandsbraut 32 • Símar82033 • 82180