Morgunblaðið - 04.07.1978, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JÍJLÍ 1978
Sigrún Harpa og íris: „Við fylgjumst ósköp lítið með sjónvarpinu" Jonni og Nonni vissu allt um Kojak
„Kannski fer ég bara uppí
rúm að skoða bækur..."
er ekkert sjónvarp svo ég kem
ekki sjálfur til með að sakna þess
þó engar útsendingar séu.
Næst ætluöum viö aö spjalla viö
konu sem sat við tjörnina. Þegar
kom í Ijós að hún var líka dönsk
og talaöi ekkert nema sitt eigið
móðurmál hættum við fljótt við
það og snérum okkur frekar að
litlum krökkum sem voru að gefa
öndunum og leika sér að litlum
bát, sem þau gátu ekki fengið til
að snúa rétt á vatninu.
— Það er „dáldið" leiðinlegt
þegar sjónvarpið hættir. Það er
svo gaman að vita „hvað er í
veðrinu“ sagði Jonni, og Nonni
vinur hans var alveg á sama máli.
En litla systir annars hvors vildi
ekki einu sinni segja til nafns og
hélt bara fast í veskið sitt.
— Kannski fer ég bara upp í
rúm og skoöa bækur núna þegar
ég er ekki aö horfa á sjónvarpiö á
kvöldin. Ég les oftast Tinna eða
Andrés. Mér fannst gaman ,að
Bieika Pardusnum „sem var nú
stundum sjaldan" sagði Jonni.
— Ég ætla bráðum uppí Vatna-
skóg, sagöi Nonni, en mér fannst
Kojak skemmtilegastur í sjónvarp-
inu. Veiztu það, að í vaxmynda-
safni í Kaupmannahöfn er dúkka
sem er alveg eins og hann er í
alvöru. Nei annars, það er í
London. Ég þekki fólk sem hefur
séö hana. í kjallaranum er högg-
stokkur og svaka óhuggulegt.
Jonni þurfti að koma því að, að
sér þætti Kojak vitlaus.
Framhald á bls. 27
Hún vildi ekkert vió okkur tala.
Ljósmyndari: Emelía Björg
Björnsdóttir.
Flestir islendingar eiga kost ó
sumarfríí og ekki dettur neinum
í hug aó amast vió pví. Einn
starfshópur fer pó aldrei svo í frí,
að öll pjóðin taki ekki eftir pví, og
ræði gjarnan kosti frísins og
galla. Hér er aö sjálfsögðu átt viö
Þá hjá sjónvarpinu, sem verða í
sínu árlega sumarfríi fram f
ágúst. Ljósmyndari og blaðamað-
ur Morgunblaösins brugðu sér út
í sólina og norðanáttina til að
spjalla við fólk og leita álits pess
á sjónvarpsleysinu.
Sigrún Harpa og íris voru aö
spóka sig í bænum og höfðu
augsýnilega brugðið sér í búöir,
því þær voru með sinn plastpok-
ann hvor úr einhverri tízkufata-
verzluninni.
— Við finnum ekkert fyrir því þó
sjónvarpsmennirnir fari í frí. Við
horfum svo lítið á sjónvarpið og
fylgjumst voða lítiö með hvað er í
' því.
En hvað gera þá 14 og 15 ára
stelpur á kvöldin, ef þær eru ekki
héima að horfa á sjónvarpið?
— Við flækjumst um göturnar
og erum mikið úti. En á veturna
þarf maður aö læra og gerir þaö
þá á kvöldin.
Þegar gengiö var á þær kom í
Ijós, aö þær horfa nú á bíómyndir
og skemmtiþætti svona af og til,
og íris sagðist stundum horfa á
fréttirnar. Báöar voru þær á því að
þaö mætti vera meira popp og
annað efni fyrir ungt fólk, til að
horfa á.
Við Dómkirkjuna hittum við
Kuvs Ammendrup, sem er dansk-
Þuriður: „Það er svo ágsBtt að
setjast niður fyrir framan sjón-
varpið og slappa af“
ur en hefur búið hér í fjölda ára.
Hann fræddi okkur á því að sonur
sinn væri nú kominn í sumarfrí, þar
sem hann starfar við sjónvarpið.
Við samglöddumst syni hans, en
spurðum um álit hans sjálfs á
þessu langa sjónvarpsfríi.
— Mér finnst að sjónvarpið eigi
Faðir Tage Ammendrup sagði að
sonurinn væri feginn fríinu
alltaf að vera. Það er ómögulegt
aö láta alla fara í frí í einu og loka
bara öllu. Annars er ég að fara til
Danmerkur en þangaö til ætla ég
að vera uppi í sumarbústaö meö
syni mínum í Mosfellsdal. Þar er
mikill gróöur og tré, við erum
nágrannar Halldórs Laxness. Þar
Þorvaldur Garðar Kristjánsson:
„Útvarpsráði Þótti ráð, að allir
starfsmenn sjónvarpsins færu í
frí um leið.“
:
Rjómabúið á
Baugsstöð-
um opnar
UM siðustu helgi var rjómabúið á
Baugsstöðum í Stokkseyrarhreppi
opnað almenningi til sýnis og
verður það opið á laugardögum og
sunnudögum í júlí og ágúst mflli kl.
14 og 18. Auk þess verður rjómahú-
ið opið fyrir hópa, sem í eru 10
manns eða fleiri á öðrum tímum en
þá þarf að hafa samband við
gæslumann búsins, Skúla Jónsson á
Selfossi, í síma 1360 og það verður
að gera með góðum fyrirvara.
Að sögn Stefáns Jasonarsonar,
formanns Búnaðarsambands Suður-
lands urðu töluverðar skemmdir á
húsum búsins í flóðunum í vetur en
nú er búið að koma því í samt lag
aftur. Geta gestir því sem fyrr horft
á tæki búsins snúast og vatnshjól
knýja þau, eins og fyrr á árum þegar
smjör- og ostagerðin var þar í fullum
gangi. Stefán sagði að undanförnum
árum hefði verið mikil aðsókn að
þessu minjasafni og hefðu ferðahóp-
ar víða að af landinu lagt leið sína
þangað en þetta rjómabú er það eina
í landinu, sem enn er tilbúið öllum
upprunalegu taekjum sínum.
Sérstakt félag stendur fyrir varð-
veizlu búsins, Varðveizlufélag
Baugsstaðarjómabús, og búnaðar-
félögin í Stokkseyrarhreppi, Gaul-
verjahreppi og Villingaholtshreppi
en þessi þrjú síðastnefndu félög sáu
um rekstur búsins, þegar það var
rekið sem rjómabú.
Siumutm)~SMk
COSTA DEL SOL
PLAYAMAR
Dagflug á föstudögum. Heillandi sumarleyfis-
staður náttúrufegurð, góðar baðstrendur, fjölbreytt
skemmtanalíf og litríkt þjóðlíf Andalusiu. Margt
um skoðunar- og skemmtiferðir, til Afríku,
Granada og Sevilla. Nú bjóðum við eftirsóttustu
lúxusíbúðirnar Playamar við ströndina í
Torremolinos, Playamar er með glæsilegum
útivistarsvæðum, sundlaugum og leikvöllum, loft-
kældar lúxusíbúðir. Einnig Hótel Don Pablo.
Eigin skrifstofa Sunnu í Torremolinos með
þjálfuðu starfsfólki. Barnagæsla og leikskóli.
Farið verður: 13. og 28. maí, 2., 16. og 22. júni, 7.,
12. og 28. júlí, 3., 4., 11., 18., 24. og 25. ágúst,i.-8.
13. og 15. sept. Pantið tímanlega.
Emnig Sunnuflug til:
MALLORCA dagflug á sunnudögum
COSTA BRAVA dagflug á sunnudögum
ÍTALÍA daqflug á þriðjudögum
KANARÍEYJAR dagflug á fimmtudögum
PORTÚGAL dagflug á fimmtudögum
GRIKKLANO dagflug á þriðjudögum
SUNNA
REYKJAVÍK: BANKASTRÆTI 10 - SÍMI 29322.
AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 94 - SÍMI 28715.