Morgunblaðið - 04.07.1978, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 1978
13
Tekur inn heitt og kalt vatn, seni þýðir V iðurkennt ullarþvottakerfi.
tíma og rafmagnvspamað. n
2
Stór þvottabelgur, sem tekur 5 kg. og
Vinduhraði sem er allt að 850 snún/- stórar dyr er auðvelda hleðslu.
mín, flvtir þurrkun ótrúlega. O
2 °-
' fjöldi kerfa, sem henta þörfum og þoli
4 hitastig (32/45/60/90°C), sem henta alls þvottar.
öllum þvotti. q
4 y'
Fullkomin viðgerðarþjónusta er ykkar
Spamaðarstilling fyrir vatn og raf- hagur <
magn. 1(). '
Verðið er mun lægra en á sambærileg-
3 mismunandi hraðar í þvotti og tveir í um vélum.
vindu, tryggja rétta meðferð þvottar-
ins.
PHILCO og fallegur
þvottur fara saman.
heimilistæki sf
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655
Um „prófhroka” og
„milljónafélag stúdenta”
Athugasemd frá Mar-
gréti Hermannsdóttur
Árni Björnsson íslenskufræð-
ingur gerir tilraun til að svara
grein minni „Á fornleifafræði
einhverja framtíð fyrir sér á
íslandi?" (sem birtist .í Mbl. 23.
júní s.l. undir breyttri fyrirsögn).
Svargrein Árna Björnssonar birt-
ist í Mbl. 29. júní s.l. undir
fyrirsögninni: „Um „milljónafélag
stúdenta“.“ Nú er það opinberað
almenningi í fyrsta sinni að Árni
Björnsson er í forsvari fyrir
„þjóðháttasöfnun stúdenta".
Eins og fram kemur í athuga-
semd Árna Björnssonar hafði
„þjóðháttasöfnun stúdenta" rúm-
lega níu milljónir (16 milljónir á
núgildandi verðlagi) til ráðstöfun-
ar 1976 að lokinni fjársöfnun „um
land allt". Auk þess fékk „þjóð-
háttasöfnun stúdenta" „illreiknan-
legar“ upphæðir frá Þjóðminja-
'safninu.
Ég hef hvergi haldið því fram að
„þjóðháttasöfnunin" hafi fengið
allar sínar milljónir beint úr
sjóðum Þjóðminjasafns. En hitt er
staðreynd að Þjóðminjasafnið
studdi dyggilega fjársöfnunar-
aðila, þar sem fjárbeiðni til
„hundruða aðila“ var rituð á
opinbera pappíra Þjóðminjasafns
og með undirskrift forstöðumanns
þjóðháttadeildar Þjóðminjasafns
(Árna Björnssonar) auk ábyrgðar-
manns (?) af hálfu stúdenta. Og
þar er söfnunin sögð i samvinnu
við þjóðháttadeild Þjóðminja-
safns.
Það hefur örugglega aldrei
hvarflað að þeim aðilum sem
leitað var til um fjárstuðning að
Þjóðminjasafn stæði ekki að baki
þjóðháttasöfnuninni. Slík var um-
gjörð og útlit bónarbréfsins.
Ég get á engan hátt séð, að ég
fari með rangt mál, er ég tel í fyrri
skrifum að Þjóðminjasafn hafi
stutt fjálglega „þjóðháttasöfnun
stúdenta" og í hana hafi 'verið
ausið milljónum fyrir tilstuðlan
Þjóðminjasafns.
Árni Björnsson ætlaði sér að
leita fjárstyrks í sveitum sunnan
Skarðsheiðar til handa „þjóð-
háttasöfnun stúdenta", en hætti
við það er hlutaðeigendur „Svæðis-
könnunar sunnan Skarðsheiðar“
þ.e.a.s. könnunar á byggðasögu
14 sönglög
eftir Bjama
Bjarnason
komin út
ÚT eru komin 14 sönglög eftir
Bjarna Bjarnason, Brekkubæ,
Hornafirði. Bjarni varð áttræður
á siðastliðnu ári og ákváðu
kórfélagar Karlakórs Horna-
fjarðar þá að heiðra hann með
útgáfu nokkurra tónsmíða hans.
Bjarni hefur í meira en sex
áratugi starfað að tónlistarmálum
í heimasveit sinni, bæði sem
kirkjuorganleikari, kennari og
söngstjóri, auk sinna búmanns-
starfa. Hann hefur verið lyftistöng
tónlistarlífs og menningar í
Hornafirði um árabil.
Sönglögin í heftinu eru samin
fyrir karlakór og blandaðan kór,
en einnig er í heftinu orgelverk og
14.
SONGLOG
BJARNA BJARNASON
eitt einsöngslag með píanóundir-
leik. Nótnateiknun er eftir Pál
Halldórsson organleikara. Texta-
skrift er eftir Arngrím Sigurðsson.
Umsjón með útgáfunni hafði Skúli
Halldórsson, tónskáld, en heftið er
prentað í Siglufjaðarprentsmiðju
h.f.
Námskeið um starfe-
ráðgjöfhiáKHÍ
í JÚNÍMÁNUÐI hafa um 200
kennarar setið á námskeiðum, sem
haldin eru á vegum Kennarahá-
skóla Islands, endurnýjað þekk-
ingu sína og safnað hugmyndum
fyrir kennsluna næsta vetur.
í byrjun ágúst hefjast svo aftur
kennaranámskeið í ýmsum grein-
um og eru umsækjendur um þau
alls 580.
Sérstök athygli er vakin á
námskeiði sem fjallar um náms-
og starfsráðgjöf í skólum. Það
hefst 21. ágúst og stendur til 31.
Slíkt námskeið hefur ekki verið
haldið í allmörg ár, en þörfin fyrir
Flugvélin var
frá Eyjaflugi
I FRÉTT í Mbl. fyrir helgi um
bílslys í Suðursveit var sagt að
flugvél frá Vængjum hefði flutt
slasaða til Reykjavíkur, en það var
flugvél frá Eyjaflugi sem það
gerði. Mbl. biðst velvirðingar á
þessum mistökum.
AUGLYSINGA-
TEIKNISTOFA
MYNDAMOTA
Ad;ilstra*ti 6 simi 25810
er það sem hann kallar
„prófhroka" minn. Ég get nú ekki
séð í grein minni að ég sé í
einhverju prófaharki, en honum er
kannski eitthvað illa við, að ég
hafi numið fornleifafræði og
þjóðháttafræði í Svíþjóð.
Gott væri ef afstaða forstöðu-
manns þjóðháttadeildar Þjóð-
minjasafns íslands til þjóðhátta-
fræði- og fornleifafræðimenntun-
ar kæmi betur í ljós íslenskum
námsmönnum í þessum greinum
sem og menntastofnunum á
Norðurlöndunum til frekari
glöggvunar.
Þrátt fyrir að Þjóðminjasafn
hafi lýst yfir vilja sínum til að
styrkja „Svæðiskönnun sunnan
Skarðsheiðar" gekk erfiðlega að
innheimta nokkurt fé enda fjár-
skorti borið við. Um síðir fengust
þó 150.000 krónur árið 1976 (en
hvorki 200.000 eða meira eins og
Árni Björnsson gefur í skyn).
Ég nenni ómögulega að elta
frekar ólar við ummæli Árna
Björnssonar. Prófhrokatal og aðr-
ir álíka útúrsnúningar gefa ekki
tilefni til þess. Þó get ég ekki stillt
mig um að minnast eilítið á
framhald „þjóðháttasöfnunar
stúdenta", þó að það hafi ekki
upphaflega verið ætlan mín. En
vegna þess að Árni Björnsson
dvelur svo lengi við fjármál
„þjóðháttasöfnunar" langar mig
að bera fram fyrirspurn: Hvaðan
komu peningar til „úrvinnslu"
gagna úr „þjóðháttasöfnun" á
árinu 1977 og hvernig er fjárhags
áætlun fyrir 1978? Á þessu ári
virðist „fjáraustri“ Þjóðminja-
safns til „þjóðháttasöfnunar
stúdenta" ekki linna. Nú á skv.
fréttatilkynningu m.a. að „skrá
efni, sem safnað var í þjóðhátta-
söfnun stúdenta" (Mbl. 10. 06.
1978). Og að þessu sinni fást
milljónirnar m.a. úr Þjóðhátíðar-
sjóðnum fræga, sem nýúthlutað er
úr.
Reykjavík 1. júlí 1978
Margrét Hermannsdóttir.
sveita sunnan Skarðsheiðar) fóru
þess á leit við hann.
Talið var að svæðisrannsóknin
sem og byggðasafn sveitanna (í
Görðum á Akranesi) væru betur
að fjármagni frá þessu svæði
komin.
Byggðasafnið í Görðum sem og
önnur byggðasöfn hér á landi eru
afrakstur starfs áhugamanna á
borð við Jónas Jónasson frá
Hrafnagili og færi lítið fyrir
menningararfleifð okkar ef þeirra
nyti ekki við.
Ég vil biðja Árna Björnsson að
halda áhugamönnum um þjóð-
háttafræði og fornleifafræði utan
við deilur mínar við þjóðminjavörð
og Þjóðminjasafn.
Það eina, sem íslenskufræðing-
urinn virðist hafa sér til málsbóta,
Skákæfingabúdir
fyrir unglinga
TAFLFÉLAG Reykjavíkur gengst
fyrir skákæfingabúðum fyrir ungl-
inga dagana 21,—28. júlí n.k. í
skíðaskála Víkings í Sleggjubeins-
skarði skammt frá Kolviðarhóli.
Þetta er í 4. sinn, sem Taflfélag
Reykjavíkur gengst fyrir slíku
námskeiði. Jafnframt því, sem
skák er iðkuð, eru stundaðar
íþróttir og útivera. Þá koma
sterkir skákmeistarar í heimsókn
og tefla fjöltefli og skýra skákir.
Meðal þeirra, sem komið hafa
áður, eru Friðrik Ólafsson,
Guðmundur Sigurjónsson, Helgi
Ólafsson, Jón L. Árnason og fleiri
þekktir skákmeistarar.
Námskeiðið er einkum ætlað
unglingum á aldrinum 10—14 ára.
Kennari og umsjónarmaður er að
þessu sinni Jóhann Örn Sigurjóns-
son, og þátttökugjald í æfingabúð-
unum er kr. 18.000.
(Fréttatilkynning frá Taflfélagi
Reykjavíkur).
ráðgjöf um námsleiðir og starfsval
er mjög brýn. í efstu bekkjum
grunnskóla koma til valgreinar og
á framhaldsskólastigi er um fjöl-
margar námsbrautir að velja.
Ungmennum er því mikill vandi á
höndum þegar þau þurfa að taka
ákvörðun um náms- og starfsval
og nauðsynlegt að þau geti leitað
til kennara sinna til þess að fá
upplýsingar og leiðsögn.
Hægt er að bæta viö nokkrum
þátttakendum á þetta námskeið en
annars eru flest námskeiðin í
ágúst fullbókuð.
(Fréttatilkynning frá Kennarahá-
skóla íslands.)
10 ástæður fýrir kaupum
á PHILCO
þvottavélum