Morgunblaðið - 04.07.1978, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 1978
15
Menningardögum lokið
í Eyjum:
„Hafa greinilega
vakið umræðu”
segir Vilborg Harðardóttir
„Mér finnst dagskráin hafa
gengið vel, verið bæði skemmti-
leg og hvetjandi, og hún hefur
greinilega vakið umræðu,“
sagði Vilborg Ilarðardóttir í
samtali við Morgunblaðið um
Menningardaga sjómanna og
fiskvinnslufólks í Eyjum, sem
lauk á sunnudag. Dagskráin
stóð yfir í þrjá daga og voru
oftast fleiri en eitt dagskrár
atriði í gangi í einu.
Aðspurð þess, hvað aðstandend-
ur hefðu einkum lært af Menning-
ardögunum, kvað Vilborg þar
einkum vera um smáatriði í
framkvæmdinni að ræða. gn ef
nefna ætti eitt öðru fremur, hefði
komið í ljós í Vestmannaeyjum, að
æskilegt væri að verkalýðsfélög
hvers konar skipulegðu sjálf ferðir
á slíka menningardaga. Þannig
hefðu fáeinir slíkir hópar verið í
Eyjum að þessu sinni, og þeir
Mynd: Sigurgeir. Eyjum.
Vilborg sagðist sérstaklega vera
ánægð með hlut Verkakvenna-
félagsins Snótar, sem hefði verið
með dagskrá í félagsheimilinu sem
nefndist „Frá baráttu verka-
kvenna". Þar var húsfyllir. Vilborg
kvað dagskráratriði hafa verið
misjafnlega sótt, enda liðum þétt
raðað niður. En aðsókn að ráð-
stefnu á föstudag undir heitinu
„Rétturinn til vinnu — gegn
atvinnuleysi — rétturinn til menn-
ingarlífs" hefði farið fram úr
vonum og margir komið að hlýða
á framsöguerindin.
hefðu greinilega haft mikið út úr
dagskránni, jafnvel meira en
einstaklingar. Auk þessa mætti
nefna, að vegna reynslunnar að
þessu sinni væri ef til vill
vafasamt að hafa tvö eða fleiri
dagskráratriði á sama tíma, þar
sem fólk ætti stundum erfitt um
vik að fylgjast með dagskránni.
„Það voru fyrst og fremst
Vestmannaeyingár sem unnu að
þessum menningardögum, og út-
koman er þeim til sóma,“ sagði
Vilborg Harðardóttir að lokum.
A ekki von áþví að
hér verði teknar
lokaákvarðanir
/ •
— segir Þórður Asgeirsson for-
maður Alþjóðahvalveiðiráðsins
„ÞRÁTT yfir mikla undirbún-
ingsvinnu fyrir þennan fund á cg
okki von á því að hér verði teknar
neinar endanlegar ákvarðanir,"
sagði Þórður Ásgeirsson formað-
ur Alþjóðahvalveiðiráðsins er
Mbl. ræddi við hann í Kaup-
mannahöfn í gær, en þar hefst í
dag fundur í boði dönsku ríkis-
stjórnarinnar þar sem rætt verð-
ur um nýja stofnskrá Alþjóða-
hvalveiðiráðsins“. Ba“ði Kanada
og Bandarikin ætla að koma fram
með nýjar hugmyndir þannig að
ég á alveg eins von á því að við
opnum umræðurnar upp á gátt
og ræðum málin frá byrjun“,
sagði Þórður og hann gat þess
einnig. að ýmsar þjóðir utan
ráðsins sem nú hygðu á inn-
göngu, hefðu ugglaust sínar
hugmyndir um það hvernig ráðið
skyldi starfa.
„Aðalmálið er hvaðá rétt
strandríki eiga að hafa í sambandi
við hvalveiðarnar," sagði Þórður,
„Núverandi stofnskrá Alþjóða-
hvalveiðiráðsins er frá 1946 og því
er nauðsynlegt að hún verði
endurskoðuö i ljósi þeirrar þróun-
ar sem orðið hefur siðan, meðal
annars í sambandi við fiskveiði-
lögsögu.
Spurning er hversu mikinn rétt
ráðið á að hafa til að setja kvóta
á hvalveiðar og annað mál er hvort
ráðið á að láta allar tegundir til
sín taka og þá einnig minni
tegundirnar, eins og til dæmis
höfrunga, sém ekki hafa verið á
verksviði ráðsins til þessa.
Þessi mál og fleiri verða efa-
laust rædd hér vítt og breitt en ég
held að fleiri fundi þurfi til áður
en niðurstaða fæst", sagði Þórður
Ásgeirsson að lokum.
Fariö var í skoðunarhringferð með Herjólfi um Vestmannaeyjar, og sigldi báturinn oft alveg að klettabjarginu.
Hér er hann við Kleppshelli í Yzta-Helli.
Mynd: Sigurgeir. Eyjum.
Lúðrasveit Vestmannaeyja og Lúðrasveit verkalýðsins léku sameiginlega á menningardögunum í Eyjum.
Mynd: Sigurgeir. Eyjum.
fifiA M
7 ViTTI P O
wlihfii
Gerry Cottles
sirkus býöur
uppa einn
albesta
eldgleypi
sirkus heims
Kaupiö miöa
strax.
Takmarkaður
fjöldi
syninga.
SJAUMST í SIRKUSHUM
uiioit jio Ktlod -fteniJísíúýn le mnoL’iTiO.uL .>onel e -iIuhhixihi >u ohiuiw i io.ijío ojaih
íift U, t(l Jj
.«4* Jo liiðii liiiiil.ii