Morgunblaðið - 04.07.1978, Blaðsíða 34
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JULÍ 1978
Ólsaarar
skoruðu
13 mörk
KEPPNIN í 3. deild var á dagskrá um helgina og voru að vanda víða
stórar tölur í leikslok. Engin úrslit skyggðu þó á 13—1 sigur Víkings
frá Ólafsvík gegn óðni frá Reykjavík. en þetta er ekki í fyrsta skipti
sem Óðinsmenn eru rassskelltir í sumar, en þeir töpuðu 10—2 fyrir
Skallagrími fyrr í sumar. En iftum á úrslitin.
Víðir - Þór (A) 6.0
Tölurnar segja það sem segja
þarf um leik þennan, einstefnan
var alger og mörkin hefðu getað
orðið fleiri. Daníel Einarsson og
Guðmundur Knútsson skoruðu tvö
mörk hvor og Gísli Eyjólfsson og
Ingimundur Guðmundsson skor-
uðu eitt mark hvor.
Grindavík—Hekla 0.0
Grindvíkingar sóttu nær lát-
laust allan leikinn og þeir beinlínis
óðu í færum, en inn vildi knöttur-
inn ekki, einkum vegna góðrar
frammistöðu markvarðar Heklu.
Selfoss - USVS 6.0
Selfyssingar höfðu algera yfir-
burði og með heppni hefðu mörkin
getað orðið tugur, en þeir létu sér
6 nægja, þar af 4 í fyrri hálfleik.
Sumarliði Guðbjartsson (2),
Stefán Larsen, Sigurður Reynir
Óttarsson, Guðjón Arngrímsson
Dg Þórarinn Ingólfsson skoruðu
mörkin.
Stefnir — Léttir 1.1
Stefnir sótti meira og verðskuld-
aði sigur. Það leit líka vel út fyrir
liðið, er Kjartan Ólafsson náði
fórystunni á 1. mínútu, en rétt
fyrir hlé skoruðu Léttismenn
hálfgert klaufamark og þar við
sat, 1:1.
Snæfell —
Skallagrímur
Skallagrímur gaf leikinn og var
því sigur Snæfells bæði léttur og
öruggur.
Víkingur—Óðinn 13.1
Þessar tölur eru með ólíkindum,
en gefa þó rétta mynd af gangi
leiksins. Staðan í leikhléi var 7:1,
en heimamenn bættu 6 mörkum
við í síðari hálfleik. Ekki hefur
verið um algera einstefnu að ræða,
vegna þess að Óðni tókst að koma
knettinum einu sinni í netið í fyrri
hálfleik. Mörkin skoruðu þeir
Jónas Kristófersson og Sigurþór
Þórólfsson, þrjú hvor, Magnús
Stefánsson työ, Birgir Þorsteins-
son, Logi Úlfljótsson, Þorgrímur
Þráinsson og Birgir Gunnarsson
markvörður (víti) eitt mark hver
og eitt mark var sjálfsmark.
Afturelding —
Leiknir 4.0
Sigurinn var öruggur og heima-
menn voru mun sterkari, mörk
þeirra skoruðu Hafþór Júliusson
(3) og Ríkharður Jónsson.
KS - Tindastóll 4.1
Leikurinn fór fram í „rigningu,
drullu og óþverra" og KS átti
leikinn var upphafi til enda. Á
fyrstu mínátunum áttu þeir t.d. 2
skot í þverslá, en ekkert mark var
skorað í fyrri hálfleik. í þeim
síðari færðist fjör í leikinn og
skoraði þá Sigurjón Erlendsson
tvívegis fyrir KS og þeir Björn
Sveinsson og Þórhallur Benedikts-
son eitt hvor, en Karl Friðriksson
svaraði fyrir Tindastól.
HSÞ b — Dagsbrún
4-1
SIGUR þessi var öruggur og
sanngjarn, en þó heldur í stærra
lagi. Björn Lárusson, þjálfari
HSÞ, skoraði fyrsta markið
snemma í fyrri hálfleik og þeir
Svavar og Jón Pétur skoruðu sitt
markið hvor fyrir hlé. Fljótlega í
síðari hálfleik, skoraði Svavar
fjórða markið og þó að Dagsbrún
hafi svarað með einu marki
skömmu síðar, var sigurinn aldrei
í hættu.
Stjarnan — ÍK 1—3
Enginn línuvörður mætti til
leiks „eins og venjulega" eins og
viðmælandi Mbl. orðaði það og
töldu Stjörnumenn að fyrir vikið
hafi lið ÍK sloppið með tvö
rangstöðumörk. Annars var leik-
urinn jafnari heldur en tölurnar
gefa til kynna og jafntefli hefði
gefið réttari mynd af gangi
leiksins. En það voru leikmenn ÍK
sem mörkin skoruðu, hvort sem
þau voru lögleg eða ekki og þar við
sat. Mark Stjörnunnar skoraði
Jóhannes Sveinbjörnsson, en mörk
ÍK skoruðu þeir Axel Jónsson og
Ólafur Pedersen (2).
KS — Leiftur 3.0
Leik þessum var frestað í
síðustu umferð og var hann leikinn
á fimmtudaginn. KS sigraði
örugglega, en Leiftur veitti þeim
þó harða keppni. Jakob Kárason
skoraði í fyrri hálfleik og síðan
aftur í þeim síðari og þriðja
markið skoraði Hörður jjúlíusson.
Höfðstrend-
ingar — Leiftur
Leik þessum var frestað um
óákveðinn tíma, vegna þess að
verið er að tyrfa völlinn þar sem
leika átti.
Reynir — Magni 1.1
Leikur þessi var nokkuð jafn og
jafntefli sanngjörn úrslit, Stefán
Sigurðsson skoraði fyrir Reyni í
fyrri hálfleik, en Magni jafnaði
fyrir hlé með marki úr vítaspyrnu.
Sindri — Einherji 0.1
Leikmenn Sindra sóttu mun
meira í fyrri hálfleik, án þess þó
að þeim tækist að knésetja sterka
vörn Vopnfirðinga, sem skoruðu
hins vegar eina mark leiksins gegn
gangi leiksins rétt fyrir hlé. Það
var Steindór Sveinsson sem skor:
aði með góðu skoti frá vítateig. í
síðari hálfleik var Einherji sterk-
ari og héldu þeir unnu forskoti.
Leiknir — Huginn 3.2
Sigurinn var sanngjarn og
öruggari en tölurnar gefa til
kynna, Gylfi Gunnarsson skoraði
bæði mörk Hugins, en þeir
bræðurnir Baldvin (2) og Kjartan
Reynissynir tryggðu Leikni sigur-
inn.
— gg-
Islandsmótið 3 deild
• Pálmi Jónsson skorar fjórða mark FH með þrumuskoti upp undir þverslána óverjandi fyrir hinn unga
markvörð Breiðabliks Árna Dan.
FH VANN SINN
FYRSTA SIGUR
Blikarnir með 1 stig eftir fyrri umferð
FH-LIDIÐ vann sinh fyrsta sigur í 1. deildarkeppninni í ár með pví að
leggja Breiðablik aö velli 4—0 á heimavelli Blikanna á sunnudagskvöld.
Ekki var pað stórleikur hjá FH sem færöi peim þennan stóra sigur,
heldur er Breiðabliksliðið svo gersamlega heillum horfið að með
ólíkindum er. Varnarleikur liðsins er eins og hjá algerum byrjendum
og öll barátta í lágmarki. Hefur liðið nú aöeins 1 stig eftir fyrri umferð
mótsins og má mikið breytast til batnaðar hjá liðinu ef pað ætlar sér
að ná í fleiri stig í mótinu.
Hinn glæsilegi grasvöllur í Kópa-
vogi er áreiöanlega sá besti á
landinu um þessar mundir, og ættu
ekki að vera nein vandkvæöi fyrir
liöin í fyrstu deild aö sýna á honum
góöa knattspyrnu svo framarlega
sem veðrið er skaplegt. Þetta var
hvorttveggja til staöar á sunnu-
dagskvöld er FH og UBK léku en
knattspyrnan sem liðin sýndu var
afar slök svo ekki sé meira sagt.
Leikmenn FH sýndu þó öllu betri
leik, og allar sendingar þeirra og
samleikur var betri. Uppskáru þeir
fjögur mörk í leiknum en tvö fyrstu
mörk ieiksins voru heldur ódýr og
má hiklaust skrifa þau á hinn unga
og óreynda markvörö Breiöabliks,
Árna Dan. Fyrsta mark leiksins
kom á 15. mínútu er há og löng
sending kom fyrir markið. Vörn
Blikanna var alls ekki meö á
nótunum og Leifur Helgason náöi
aö skalla í netiö af frekar stuttu
færi framhjá markverðinum sem
geröi varla tilraun til aö verja.
Síöara mark FH var ekki ólíkt því
fyrra, há og löng sending kom utan
af velli og var ekki aö sökum aö
spyrja, aö vörn, ef vörn skyldi kalla
hjá Blikunum, var víðsfjarri, Janus
Guölaugsson var í gijöu færi og
náöi aö skalia yfir Árna markvörö
sem hljóp út á móti knettinum og
ætlaöi aö slá hann frá markinu.
Heldur var fyrri hálfleikurinn
þófkenndur og ekki brá oft fyrir
marktækifærum. Eina hættulega
marktækifæri UBK kom á 19.
mínútu er Hákon Gunnarsson
brunaði upp kantinn og upp aö
markinu, á markteigshorninu
skaut hann góöu skoti sem rétt
sleikti þverslána. Hákon var sá eini
sem baröist vel í fyrri hálfleiknum
og skapaöi einhverja hættu meö
fyrirgjöfum sínum, en vantaði meiri
hjálp frá samherjum sínum.
DBK-FH 0:4
Texti:
Þórarinn Ragnarsson
Mynd:
Kristján Eínarsson
Þaö voru aöeins liönar tvær
mínútur af síöari hálfleiknum þegar
FH-ingar' náöu aö skora sitt þriöja
mark. Ólafur Danivalsson sendir
góöa sendingu langt fram völlinn á
Leif Helgason sem nær aö slíta sig
lausan frá varnarmanni Breiöabliks
og skora örugglega framhjá út-
hlaupandi markveröinum. Enn einu
sinni var vörnin alls ekki meö á
nótunum. Eftir þetta mark dofnaöi
aöeins yfir FH-ingum en Breiöa-
bliksmenn sóttu öllu meira og léku
þokkalega saman úti á vellinum en
er nær markinu dró fór allt í
handaskolum. Með stuttu millibili í
síöari hálfleiknum, fyrst á 60.
mínútu og síðan á 62. mínúju, á
Þór Hreiðarsson gulltækifæri til aö
skora en misnotar þau bæöi. í fyrra
skiptið komst þór einn innfyrir og
átti bara markvörö FH eftir er hann
skaut af markteigslínu yfir markiö.
Síöara tækifæriö kom er Þór einlék
laglega á þrjá varnarmenn, síöan á
markvörðinn líka en var fullseinn á
aö renna knettinum í netið, því
Logi Ólafsson bjargaöi á marklínu.
Óheppni eöa hreinn klaufaskapur,
sjálfsagt hvorttveggja í bland.
Fjóröa og síöasta mark leiksins
kom á 78. mínútu er Ólafur og
Pálmi Jónsson prjóna sig laglega í
sameiningu inn í gegnum vörnina
og Ólafur sendir á Pálma sem
skorar meö þrumuskoti frá mark-
teigslínu uppi undir þverslánni.
Leikurinn í heildina var slakur hjá
báöum liöum og lítiö sást af
fallegum leikfléttum eða gegnum-
brotum. Bestu menn í liöi FH voru
Þórir Jónsson og Leifur Helgason.
Hjá Blikunum voru fyrirliöi liösins,
Þór Hreiöarsson, ásamt Hákoni
Gunnarssyni bestu menn liösins.
í STUTTU MÁLI.
2. júlí Kópavogsvifllur. 1. deild FH— UBK
4-0 (2-0)
Mörk FHi Leiiur Helgason & 15. min. og
& 47. mín., Janus Guðlauxsson í 20. minútu,
Pálmi JAnsson í 78. mfn.
Áminningi Enxin.
Áhorfenduri 439.
■slandsmMlð i. delld