Morgunblaðið - 04.07.1978, Page 19

Morgunblaðið - 04.07.1978, Page 19
27 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 1978 — Þrennt slasast Framhald af bls. 2 staurinn. Pilturinn var svo illa klemmdur í bílflakinu að það tók björgunarmenn um klukkustund að ná honum út og voru notaðar til þess járnaklippur og ýmis stórvirk tæki. Pilturinn var stór- slasaður, m.a. höfuðkúpubrotinn, mjaðmagrindarbrotinn, fótbrotinn og handarbrotinn. Hann liggur í sjúkrahúsinu og er líðan hans slæm. Klukkan 06:30 á laugardags- morgun endastakkst fólksbíll við Melgerði í Eyjafirði og skemmdist mikið en tveir menn sem í bílnum voru sluppu án teljandi meiðsla. Sömu sögu er að segja af farþegum og ökumanni í bíl sem lenti á steingirðingu á mótum Hamars- stígs og Munkaþverárstrætis klukkan 09:20 um morguninn. A sunnudagsmorgun valt svo bíll við Hlaðir í Glæsibæjarhreppi og skemmdist mjög mikið en slys urðu ekki á fólki. Klukkan 20:30 í gærkvöld ók bíll út af veginum við Hrafnagil. Þrír menn, sem í bílnum voru, voru fluttir í sjúkra- hús en voru ekki alvarlega meidd- ir. Auk þeirra slysa og óhappa, sem að framan eru talin, urðu margir minni háttar bílaárekstrar í bæn- um og nágrenni hans. Sv.P. — „Þá var...” Framhald af bls. 12 ég haföi aðgang aö handvefstól og um tíma var ég síðan í einskonar lýöháskóla í Noregi og þar óx áhuginn enn. Þar var sköpunargáf- an í hámarki og ég naut þess innilega. Geröi þá teppi, hand- klæöi og dúka og fleira, og hérna heima hef ég sótt námskeiö og haft mikiö gott af. Sólarlagiö er unniö úr íslenzkri ull, tó og snæri og í því eru allskonar strá og fleira. Þaö má segja aö ég hafi skapaö þaö um leið og ég óf, en ég rissaði reyndar fyrst upp litla mynd, sem ég fylgdi lítiö eftir þegar til kom. Jú, mig hefur alltaf langaö til aö eignast vefstól, sem kostar sinn pening, en koma tímar koma ráö...“ „Mér finnst ég eiga hlutdeild í t>eim öllum“ Nú starfaröu sem hjúkrunarkona og ert líka Ijósmóöir. Hvernig líkar þér starfiö? „Bæöi Ijósmóöurstarfiö og hjúkrunin heilla mig jafnmikið, en sem Ijósmóöir upplifir maður stórkostlega atburöi viö hverja fæöingu. Núna hef ég tekiö á móti ca. 200 börnum og mér finnst ég eiginlega vera tvöhundruö barna móöir, allténd finnst mér ég eiga hlutdeild í þeim öllum. Eg held jafnvel aö ég komi frekar til meö aö taka Ijósmóöurstörfim fram yfir í framtíöinni. Þegar óg var 5—6 ára var ég ákveöin í aö veröa hjúkrunarkona, en 7 ára greip ég þaö í mig aö veröa Ijósmóöir og stóö síöan viö þaö hvort tveggja. Ég lauk Ijósmæöraskólanum 1974 og vann síöan viö Ijósmóöur- störf hér heima og í Noregi í eitt ár og langaði síöan til aö læra svolítiö meira og dreif mig í hjúkrun sem ég lauk um síöustu jól. Jú, yfirleitt hefur mér gengiö vel, en auövitaö eiga sorglegir atburöir sér staö, þaö eru alltaf einhverjir agnúar á mannlífinu, en gleðin getur líka veriö mikil. Öll blómin mín, jú ég hef afskaplega gaman af því aö koma upp blómum. T.d. að fá fræ eða litla afleggjara og fylgjast síöan meö blóminu vaxa. Þá finnst mér ég eiga dálítinn þátt í því aö skapa þau. Þaö er óhætt aö segja aö ég hafi gaman af öllu dútli.“ Gæturöu hugsaö þér aö flytjast héöan frá Litla-Bæ? „Sálin mín er oröin svo sam- runnin húsinu, ég hef unniö mikiö í því sjálf, bæði við viðgerðir aö utan og innan og lagt mikla vinnu í þaö. Ef til þess kæmi að ég flytti þá mundi ég vilja stinga því undir hendina og hafa þaö meö mér. Hér í Reykjavík er lítið til af svona gömlum húsum, sem er hrein synd, en ég vona aö þau sem til eru fái aö standa óhreyfð. Hér bjuggu í eina tíð 7—9 manns, en innanmálið á húsinu er rétt rúmir 30 fm. Af hverju ætti fólk nútildags ekki aö láta sér þaö nægja?“ ÁJR. — Kannski fer ég bara uppí Framhald af bls. 5. í útlöndum þar sem hann hefur búiö og séö Kojak, var Kojak alltaf aö fá sér sleikibrjóstsykur og þótti hann ofsa góöur. Á hraöri ferö frá Þinghúsinu var Þorvaldur Garöar en hann gaf sér þó tíma til aö tala aöeins viö okkur. — Mér finnst allt í lagi með frí sjónvarpsmanna. Ég var í útvarps- ráöi þegar byrjaö var á undirbún- ingsstarfi fyrir sjónvarpið. Okkur þótti ráö þá, aö allir starfsmenn sjónvarpsins færu í frí um leið. Ég sé ekki aö þaö sé ástæöa til þess, fyrst um sinn, að breyta því. Það var ekki tilviljun aö þessi leiö var farin, því ef ekki, heföi þurft að ráöa mun fleira fólk til starfa. — Þaö er óþrjótandi sem fólk getur gert annaö en aö horfa að sjónvarp. Hér á landi hefur fólk getaö lifað án sjónvarps og ég veit ekki betur en aö þannig sé þaö enn í dag. Allttil að grilla Útigrill og allt sem þeim fylgir: grill- tengur, viöarkol og uppkveikjulög- ur. Ekkert af því má gleymast þegar ætlunin er að njóta Ijúffengs mat- ar undir beru lofti. Lítið á sumar- og ferðavörurnar á bensinstöðvum Shell. Olíufélagið Skeljungur hf Við stöðumæli, sem var útrunn- inn, stóö Þuríður Kristjánsdóttir, stöðumælavöröur. — Þaö er bara allt t lagi aö vera laus viö sjónvarpiö einn mánuö. Helzt eru þaö sjúklingar sem sakna þess og annaö fólk sem hefur lítið við að vera. — Ég horfi á sumt. Fræöslu- þættirnir, sem hafa veriö að undanförnu, hafa verið góöir og ég hef haft mikið gaman af þeim. Svo eru framhaldsþættirnir sumir ágætir. Gæfa og gjörvileiki fannst mér beztur af þeim sem voru í vetur. Ég kveiki yfirleitt á fréttun- um, svo fer maöur frá ef maöur þarf eitthvað aö gera, en annars er ósköp gott aö sitja og slappa af fyrir framan sjónvarpiö. — Ekki fer ég mikið út á kvöldin. Þegar maður er úti allan daginn og mest á gangi fer maður nú ekki út aö ganga líka á kvöldin. Ég hlusta þá frekar á útvarpiö þennan mánuö og reyndar geri ég þó nokkuð af því. Ég get ekkert unniö fyrir framan sjónvarpiö, en mér finnst svo ágætt að hafa útvarpiö hjá mér í eldhúsinu. Kannski eru þaö ekki bara þeir sem starfa hjá sjónvarpinu sem eru í fríi, heldur líka þeir sem oft sitja heima og horfa á þaö. Hver veit nema maður hafi misst af einhverju í útvarpinu, eöa geti haft gaman aö því aö drífa sig út í göngutúr? Á meðan þaö er ekki rigning aö minnsta kosti ætti fullhraust fólk aö geta haft ofan af fyrir sér, án aöstoöar frá stafrs- mönnum sjónvarpsins. ab. — Vindáshlíð Framhald af bls. 11 hlíðarbúar alveg ákveðnir í að það yrði skemmtilegasta kvöldvakan. Enda yrði maturinn þá svo góður — pylsur og ís. Herbergin eru níu, þrjú niðri og sex uppi. í mörgum herbergjum var búið að tengja spotta milli kojanna og á þeim fóru á milli skrifleg sendiboð. Spurningin um hver á að vera í efri koju er leyst þannig að skipzt er bróðurlega á, ef einhver óánægja ríkir. Lækjarhlíð er niðri og sögðust stelpurnar þar vera fegnar því, þar sem konurnar svæfu uppi, og að þar heyrðist svo mikið. Eftir að bænakonan er búin að koma á herbergin á að vera svefnfriður fyrir alla. Herbergin fá stig fyrir umgengni og hegðun og hafði þessi hópur bara staðið sig vel. A sinni kvöldvöku voru þær í Lækjarhlíð með tízkusýningu og leikrit sem Rannveig Halldórsdóttir sarndi og hét „Tíeyringurinn"'. Það var eitthvað óljóst unt hvað leikritið fjallaði, en hafði að sjálfsögðu verið alveg frábært. Forstöðukonan, Sigríður Péturs- dóttir, sagðist hafa sjö stúlkur sér til aðstoðar, fjórar inni og þrjár úti. Allar starfa þær í KFUK. Hún sagði að mikill munur væri á stelpunum eftir veðri, og í rigning- um kæmi gjarnan heimþrá upp í þeirn sumum. En það eru mörg spil og leikir sem hægt cr að dunda sér við inni og er reynt að sjá um að allir séu sælir og ánægðir. Úti við hafa stelpurnar mest gaman af stultunum og leika sér líka mikið í litlum húsum og þá í búðar- eða mömmuleik. í ár er kirkjan í Vindáshlíð 100 ára og verður þess minnzt seinna á árinu. Farið er til kirkju hvern sunnudag og Sigríður sagði að stelpunum þætti gaman að því og það gerði mikinn dagamun. HRAUN KERAMIK íslenskur listiðnaður L>7TOJ GLIT HÖFÐABAKKA9 REYKJAVÍK SIMI 85411 Stærðir: 600x16 750x16 11.2 10x28 12.4-11x28 13.6-12x28 6 strigalaga 6 strigalaga 6 strigalaga 6 strigalaga 6 strigalaga Verð: 19.560- 21.405- 45.070- 59.350- 64.900- með söluskatti með söluskatti með söluskatti með söluskatti með söluskatti Gerið verðsamanburð. ftftur og aftur kemstu að raun um að bestu kaupin gerirðu í > Goodyear Hringdu. skrifaðu eða líttu inn hjá okkur eða umboðsmönnum okkar sem fyrst. Hjólbaróaþjónustan Laugavegi 172, símar 28080 og 21240 HEKLAHF

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.