Morgunblaðið - 04.07.1978, Qupperneq 22
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 1978
Eiginmaöur minn. +
GUÐMUNDUR ÁSGEIRSSON,
Heiöargerði 29,
lést 30. júní. i
Fyrir hönd barna. tengdabarna og barnabarna,
Áslaug Ingimundardóttir.
Ómar Hilmarsson
—Kveðjuorð
+
Fóstri okkar,
BOGI HALLDÓRSSON
(rá Leirdal,
andaöist í Sjúkrahúsi Akraness 2. júlí.
Inga Ingólfsdóttir,
Siguróur B. Sigurósson.
Hver er tilgangurinn, þegar
ungt fólk í blóma lífsins er kallað
burtu áður en það hefur sitt
raunverulega ævistarf? hvers
vegna fær sumt fólk fleiri og
þyngri högg en aðrir?
Þær eru margar spurningarnar,
sem vakna við sviplegt fráfall
sauðján ára pilts. En þeim verður
ekki svarað hér, og kannski aldrei.
Þær tilheyra lífsgátunni, sem
enginn fær leyst.
Omar Hilmarsson var fæddur
27. apríl 1961 og lézt í hinu
hörmulega bifreiðarslysi við Laxá
í Dölum að morgni hins 25. júní s.l.
Fjögur ungmenni voru þar á ferð
og þau uggði ekki, að einum þeirra
var ekki hugað að snúa aftur til
átthaga sinna á Ströndum.
Omar var elztur fjögurra barna
foreldra sinna, þeirra Sigurrósar
Jónsdóttur og Hilmars Guðmunds-
sonar, en þau búa á Kolbeinsá í
Bæjarhreppi á Ströndum. Hjá
þeim var hann alinn upp og þar
lifði hann sín bernsku- og ung-
lingsár.
Eg man hann fyrst fallegan,
lítinn hnokka, sem var látinn heita
í höfuðið á Omari bróður mínum,
sem einnig dó ungur að árum. Ég
+ + Móöir okkar, tengdamóöir og amma,
Faöir okkar, BJÖRG ÓLAFSDÓTTIR
JÓNAS ÞORVALDSSON, Brúnavegi 1,
fyrrverandi skólastjóri lést í Borgarspítalanum föstud. 30. júní.
í Ólafsvík,
lést aö morgni 2. júlí. Ásta Guðjónsdóttir Olafur Ragnarsson
Ingunn H. Jónasdóttir, Kristín Guöjónsdóttir Ólafur Sigurösson
Valgerður A. Jónasdóttir, Halldóra Guðjónsdóttir Höröur Þórhallsson
Þorvaldur Jónasson, Ólafur Hafpór Guðjónsson Ólöf Þórarinsdóttir
Ragnheióur Jónasdóttir. Hólmfriöur Guöjónsdóttir Valur Sigurbergsson, Ingibjörg Guójónsdóttir Guómundur G. Ásbjörnsson
og barnabörn.
1
+ Maðurinn minn og faöir okkar, +
JÓN BJARNASON, Eiginmaöur minn, fósturfaöir og sonur,
Garöbæ, GEIR GUDMUNDSSON,
Vesturgötu 105, járnsmióur
Akranesi, fré Mörk,
andaöist í sjúkrahúsi Akraness 30. júní. Strandgötu 89
Þórunn Jóhannesdóttir Hafnarfiröi,
og dætur hins létna. veröur jarösunginn frá Þjóökirkjunni í Hafnarfiröi miövikudaginn 5. júlí kl. 2 e.h.
t
JOHANNA JÓHANNESDÓTTIR
Hóteigsvegi 24,
Reykjevík
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 6. júlí kl. 1.30.
Albert Þorgeirston
Kristín Albertsdóttir, Garöar Gíslason,
Geröur Albertsdóttir Welander Jan Welander,
Sveinn Albertsson,
Ester Albertsdóttir Þorbergur Guömundsson.
Fyrir hönd ættingja og vina.
Þuríöur Jóhannesdóttir
Siguröur Þór Sigurósson
Agnes Erlendsdóttir
+
Eiginmaöur minn og faðir okkar,
LÁRUS SIGURVIN ÞORSTEINSSON
skipstjóri,
Njörvasundi 14,
veröur jarósunginn frá Fossvogskirkju miövikudaginn 5. júlí kl. 3 e.h.
Guólaug Guöjónsdóttir
og börn.
+
Eiginmaöur, faöir og tengdafaöir okkar,
ÞORSTEINN ÞÓRDARSON,
húsgagnabólstrari,
Kaplaskjólsvegi 31, Reykjsvík,
verður jarösunginn frá Fossvogskirkju miövikudaginn 5. júlí kl. 10.30.
Þeir, sem vildu minnast hans, vinsamlega láti líknarstofnanir njóta þess.
Vilborg Sigpórsdóttir,
Þór Rúnar Þorsteinsson,
Erna Árnadóttir,
Elísabet Þorsteinsdóttir,
Þórhallur Sigurðsson.
+ Útför fööur okkar,
HELGA GEIRSSONAR,
kennara,
Laugarvatní,
er lést 27. júní veröur gerð frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 4. júlf.
Börnin.
+
Astkæra eiginkona mín, móöir, tengdamóöir, amma og langamma,
BJÖRG GUÐLAUGSDÓTTIR,
frá Bjarnastööum,
Garöi,
veröur jarösungln frá Útskálaklrkju mlövikudaginn 5. júlí kl. 2 e.h.
Tryggvi Einarsson,
Einar Tryggvason,
Hafdís Svavarsdóttir,
Helga Tryggvadóttir,
Eyjólfur Gíslason,
Ásta Tryggvadóttir,
Kristín Tryggvadóttir,
Ólafur Tryggvason,
Tryggvi Tryggvason,
Finna Pálmadóttir,
Kristinn Þorsteinsson,
Bjarni Böövarsson,
Berta Jakobsdóttir,
Ásdís Siguröardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Eiginmaöur minn, faöir og tengdafaöir,
JÓN SÍMONARSON
bakarameístari,
er lést þann 29. júní s.l. veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni miövikudaginn
5. júlí kl. 3 e.h.
Slóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hans er bent á
Hjartavernd Hannesína A. Siguróardóttir,
börn og tengdabörn.
+
Innilegustu þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát eiginmanns míns, fööur
og tengdafööur,
VALGARDS THORODDSEN,
fyrrverandi rafmagnsveitustjóra ríkisins.
Marie Thoroddsen,
Anna Thoroddsen, Sverrir Sigmundsson,
Þórdís Thoroddsen, Jón B. Jónasson,
Sigurður Thoroddsen, Sigrún Thoroddsen,
Björn Thoroddsen, Þórunn Thoroddsen.
+
Þökkum innilega allar samúöar- og vináttukveöjur viö fráfall og jaröarför
eiginmanns míns,
HARDAR SIGURGEIRSSONAR,
Blöndubakka 12.
Fyrir hönd vandamanna,
Guörún Loftsdóttir.
+
Þökkum innilega samúö og hlýhug vegna fráfalls eiginkonu minnar, móöur,
tengdamóöur, ömmu og langömmu,
GUDRÚNAR TEITSDÓTTUR,
fyrrverandi Ijósmóöur,
frá Kringlu.
Árni Kristófersson og fjölskylda.
sá Ómar vaxa og dafna og verða
að ungum, myndarlegum pilti,
glaðværum og hlýjum í viðmóti.
Hann stendur mér lifandi fyrir
hugskotssjónum síðast þegar við
hittumst á síðastliðnu hausti, yfir
sig ánægður þegar hann gat sýnt
mér fyrsta bílinn, sem hann
eignaðist. Sannarlega var hann
óþolinmóður eftir afmælisdegin-
um sínum til að fá að aka sjálfur.
Ég bið honum allrar blessunuar
á nýjum slóðum, og bið góðan guð
að styrkja foreldra hans, systkini,
afa og ömmur í þeim mikla harmi
sem að þeim er kveðinn.
Fjóla
Organistar og
prestar þinga
á Hólum
ORGANISTAR og prestar koma
á morgun miðvikudag. saman til
námskeiðs á Hólum í Iljaltadal en
námskeið þetta stendur yfir
dagana 5. til 7. júlí. Þetta er
fyrsta námskeið sinnar tegundar.
sem haldið er á Hólum en í fyrra
var þar námskeið fyrir leikmenn
kirkjunnar. sem var fjölsótt.
Starfsemi þessi er á vegum
Prestafélags Hólastiftis. A nám-
skeiðinu verður einkum rætt um
virka þátttöku í safnaðarsöng og
samstarf presta og organista
almennt. Söngmálastjóri Þjóð-
kirkjunnar, Haukur Guðlaugsson,
annast fræðsluna en veitt verður
tilsögn í raddbeitingu og organ-
leik. Erindi flytja séra Sigurður
Guðmundsson, prófastur á
Grenjaðastað, og Jón Tryggvason
oddviti og organisti, Ártúnum.
Myndatexti
víxlaðist
Myndatexti undir tveimur
myndum í Morgunblaðinu síðast-
liðinn laugardag víxlaðist í grein
frá Kerlingarfjöllum. Hulda Guð-
rún Gestsdóttir var sögð Björg
Guðmundsdóttir og öfugt. Hlutað-
eigendur eru beðnir velvirðingar á
þessum mistökum.
Misskilning-
ur leiðréttur
Misskilningur blaðamanns, er
hann ræddi við Þórð Ásgeirsson,
skrifstofustjóra í sjávarútvegs-
ráðuneytinu, síðastliðinn laugar-
dag olli því, að sagt var að
Kristján Ragnarsson, formaður
LIÚ, hefði setið fundi Alþjóða
hvalveiðiráðsins. Það var að sjálf-
sögðu Kristján Loftsson, forstjóri
Hvals h.f., sem sat fundi ráðsins.
Hlutaðeigendur eru beðnir velvirð-
ingar á þessum misskilningi.
AF GEFNU tilefni skal það
enn ítrekað, að minningar-
greinar, sem birtast skulu í
Mbl., og greinarhöfundar óska
að hirtist f blaðinu útfarardag.
verða að berast mcð nægum
fyrirvara og eigi síðar en
árdegis tveim dögum fyrir
birtingar dag.