Morgunblaðið - 04.07.1978, Side 30

Morgunblaðið - 04.07.1978, Side 30
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 1978 Enn árangurs- laust forsetakjör Hóm 3. júlí. AP. ÁRANGURSLAUSAR kosningar fóru fram í ítalska þinginu i sjöunda sinn í dag um eftirmann Giovanni Leone forseta, sem sagði af sér embætti í síðasta mánuði. Leiðtogar stjórnmálaflokkanna hafa ákveðið að hafa með sér fundi til þess að komast að niðurstöðu um framboð forsetaefnis áður en kosn- ingar verða reyndar á ný. í kosningunum í dag hlaut frambjóðandi kommúnista Giorgio Amendola 357 atkvæði, en 506 atkvæða er þörf til þess að næsti og sjöundi forseti landsins verði réttkjörinn. Flokkur kristilegra demókrata sat hjá við kosningarn- ar. Kommúnistar hafa lýst sig reiðubúna til þess að styðja Sandro Pertini fyrrum forseta neðri deildar ítalska þingsins til forseta, með því skilyrði að kristilegir demókratar veittu sam- þykki sitt fyrir framboði hans. Pertini, sem er sósíalisti, hefur látið frá sér fara opið bréf þar sem hann lýsir því yfir að hann gefi ekki kost á sér í framboð, nema allir þeir flokkar sem styðja ríkisstjórnina komist að sam- komulagi um það. Kína hættir aðstoð sinni við Víetnam Pcking. 3. júlí. Kcutcr. Frá því var skýrt í Kína í dag af opinberri hálfu, að stjórnin hcfði hætt aðstoð sinni við Víetnama vegna illrar mcðferðar á Kínverjum í landinu. en megin- ástæðan fyrir þessari ákvörðun kínverskra yfirvalda er talin vera innganga Víetnama í COMECON, efnahagsbandalag Austur-Evrópuríkja. Kínverska fréttastofan skýrði frá því, að Pekingstjórnin hefði tilkynnt Víetnamstjórn að þeir kínverskir verkfræðingar og tæknimenn sem störfuðu í Víetnam hefðu verið kallaðir heim. Þessi ákvörðun stjórnarinnar bindur formlega enda á samband þjóðanna sem varað hefur s.l. 20 ár en það sem eftir stendur er nú aðeins kuldalegt stjórnmálasam- band. Vitað var að Kínverjar hættu aðstoð sinni við Víetnama fyrir ndkkrum vikum, en í síðasta mánuði skýrði Teng Hsiaoping frá því á fundi að ef Víetnamar hefðu sig frekar í frammi með aðgerðum sem ynnu gegn hagsmunum Kína, þá myndu Kínverjar svara því á viðeigandi hátt. „Víetnam er mjög undarleg þjóð. Við höfum veitt þeim ómetanlega aðstoð, og það sem við fáum í stáðinn er sterkur áróður gegn okkur", sagði Teng DoHarinn lækkar gagnvart yeninu London. 3. júlí. Rcutcr. DOLLARINN hélt áfram að lækka gagnvart yeni á evrópskum gjaldeyrismarkaði í dag og hafði áður selzt á lægsta verði til þessa í Tokýó. Aðalástæðan fyrir erfiðleikum dollarans er sem fyrr uggur út af gífurlegum greiðsluhalla Banda- ríkjanna, samanborið við geysileg- an greiðsluafgang Japana. Dollarinn hefur lækkað um nær 36 prósent gagnvart yeni síðan í byrjun síðastliðins árs. jafnframt á þeim fundi. Aðstoð Kínverja við Vietnam nemur þegar um 10 milljörðum dollara. Arið 1976 nam fjárveiting Kín- verja um 340 milljónum dollara, en á sama tíma veittu Rússar þeim um 500 milljónir dollara. Astæðan fyrir aðgerðum Kín- verja er sögð vera sú, að yfirvöld í Víetnam héldu uppi skipulögðum ofsóknum á hendur fólki af kínversku þjóðerni í landinu, en talið er víst að ástæðan sé aukin fylgispekt þeirra við Rússa og aðrar A-Evrópuþjóðir. Veðrið Amsterdam 14 rigning Apena 22 heióskírt Berlín 15 skýjaó BUssel 8 rigning Chicago 20 skýjaó Frankfurt 15 skýjað Genf 15 skýjaó Helsinki 13 sólskin Jóhann.borg 3 sólskin Kaupm.höfn 15 sólskin Lissabon 17 sólskin London 14 skýjaó Los Angeles 15 heíóakírt Madríd 11 aólskin Malaga 24 heióskírt Miami 27 skýjaó Moskva 13 sólskin New York 17 skýjað Ósló 12 rigning Palma 23 sólskin París 15 rigning Reykjavík 14 léttskýjaó Róm 18 heiðskírt Stokkhólm. 13 skýjaó Tel Aviv 20 mistur Tokýó 24 heióskírt Vancouver 11 skýjaó Vínarborg 15 skýjaó Þetta gerðist 1976 — Arás ísraelsmanna á Entebbe-flugvöll. 1972 — Norður- og Suður-Kórea afneita valdbeitingu og sam- þykkja meginregiur sameining- ar Kóreu með friðsamlegum ráðum án utanaðkomandi af- skipta. 1964 — Bretar heita Suður-Ara- bíu sjálfstæði. 1957 Molotov, Shepilov og Malenkov reknir dVæðstu stjórn sovézka kommúnistaflokksins. 1946 — Filippseyjar verða sjálfstætt lýðveldi. 1901 — Borgaralegri stjórn komið á laggirnar á Filippseyj- um og William Howard Taft verður landstjóri. 1866 — Austurríkismenn láta Venetíu af hendi við ítali. 1789 — Napoleon hertekur Alexandríu. 1776 — Bandaríska sjálfstæðis- yfirlýsingin samþykkt í þjóð- þinginu. 1700 — Pétur mikli semur frið við Tyrki. Aímæli dagsinsi Nathaniel Hawthorne, bandarískur rithöf- undur (1804—1882) — Giuseppe Garibaldi, ítölsk frelsishetja (1807-1882) - Calvin Coolidge, forseti Bandaríkjanna (1872-1933) - Eva Maria Síöastliöinn þriöjudag sendu mótmælendur hvalveiöa uppblásiö hvallíki á loft yfir Lundúnaborg í andmælaskyni viö þaö aö tillögur um 10 ára hlé á hvalveiðum voru ekki ræddar á fundi Alþjóðahvalveiöiráðsins. — Á efri myndinni sjást lögreglumenn hafa auga meö hvallíkinu áöur en þaö var sent á loft. Mótmælendahópurinn, sem stóö fyrir aögeröunum, nefnir sig Whale Nuts og er frá Los Angeles. Á neöri myndinni sést svo hvallíkaniö, sem er 12.2 m aö lengd, bera viö Big Ben í morgunsólinni, en þaö var sent upp frá þinghúsinu. Nordur-Jemen gerir innrás í Suður-Jemen Hcirút. Lfhanon. 3. júlí. AP HERSVEITIR frá Norð- ur-Jemen réðust yfir landa- mæri Suður-Jemen og náðu stórum hluta landssvæða handan landamæranna á sitt vald að sögn sam- göngumálaráðherra marx- ista-stjórnarinnar í Suð- urJemen í dag. Á blaðamannafundi sagði Mahmoud Osheish samgöngu- málaráðherra: „Hersveitir ruddust inn í héruðin í norð-vesturhluta Saint, bandarísk leikkona (1924---) — Stephen Foster, bandarískt tónskáld (1826—1864). Innlenti Síðasta galdrabrenna á íslandi 1685 — Mannrán Tyrkja á Austfjörðum 1627 — íslend- ingar sigra Dani í landskeppni 1950. Orð dagsinsi Listin að muna er listin að taka eftir — Samuel Johnson, enskur orðabókahöf- undur. lands okkar og hertóku tvö landa- mæraþorp og stöðvar á víð og dreif í Bahain héraðinu". Skoraði hann á sósíalísk Arabaríki að stöðva innrás herja frá Norður-Jemen inn í landið. Innrásin hófst aðeins nokkrum klukkustundum eftir fund Araba- bandalagsins í Kairó, en þar var samþykkt að slíta stjórnmála- tengslin við Suður-Jemen og stjórn Adens sökuð um að hafa skipulagt morðið á forseta Norð- ur-Jemen, Ahmed A1 Ghashmi, í síðasta mánuði. Suður-Jemen og sex önnur Arabaríki tóku ekki þátt í fundi Arababandalagsins. Á fundinum með fréttamönnum í dag harmaði samgöngumálaráð- herra Suður-Jemen ákvörðun Arababandalagsins og sagði að slit _ Montrral. 2. júlí. Rrutrr. AP. Á TVEGGJA daga fundi IATA, Alþjóðasamtaka flugfélaga. um síðustu helgi var það ákveðið að flugfélög fengju heimild til að lækka fargjöld sín til samkeppni við þau félög sem boðið hafa lægstu fargjöld. En ólíklegt er að sú ákvörðun komist í gagnið fyrr en á síðari hluta næsta árs. Það skilyrði var sett fyrir la'kkun að IATA hefði yfirumsjón með far- gjaldaákvörðunum hjá hverju á stjórnmálatengslum væru brot á stofnskrá bandalagsins. Þá ítrek- aði ráðherrann að stjórn Adens hefði ekkert haft með morðið á forseta Norður-Jemen að gera. Osheish sagði að Aden mundi snúa sér til róttæku Arabaríkj- anna, Alsírs, Sýrlands, íraks og Líbíu í leit að hjálp. Sagði hann að stjórnir Saudi-Arabíu og írans hefðu árásaráform gegn stjórn Adens á prjónum og hvettu Norður-Jemena til að gera innrás- ir í Suður-Jemen. Sagði hann að ef þessu héldi áfram mundi stjórn Adens snúast til varnar og enn fremur fið Suður-Jemen væri reiðubúið til samvinnu við öll nágrannaríkin um hagnýtingu auðlinda við Rauðahaf öllum til góðs. félagi og ennfremur að í byrjun yrði um einskonar reynslutímabil að ræða. Önnur tillaga, sem fram kom á fundinum, var á þá leið að samtökin skyldu ekki hafa afskipti af reglum varðandi t.d. fram- leiðslu matar og aðra þjónustu um borð í vélum hinna einstöku félaga. Öllum frekari ákvörðunum var frestað til fundar, sem fyrirhugað- ur er í september n.k. F arg jaldahækkun verður heimiluð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.