Morgunblaðið - 04.07.1978, Blaðsíða 32
ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 1978
Bráðabirgðalög gefin út í gær:
Frítekjumark bóta
almannatrygginga
hækkað um 65%
FORSETI íslands hefur hinn 3.
júlí sett hráðabirKÚalög sam-
kva-mt tillögu heilbri>?ðis- ok
trygginKamálaráðherra um
hækkun frítekjumarks bóta al-
mannatryKJíintía frá og með 1.
júlí 1978. Ilækkun marksins er
65% frá því scm var og tekju-
trygginjí var miðuð við fyrir 1.
júlí. Samkvæmt bráðabirgðalög-
unum er einstaklingi heimilt að
hafa 297.000 krónu tckjur og
hjónum 415.800 krónu tekjur án
þess að tekjutrygging skerðist.
í fréttatilkynningu frá heil-
brigðis- og tryggingamálaráðu-
neytinu sem Morgunblaðinu barst
í gær er frá þessu skýrt. Lögin eru
sett samkvæmt 28. grein stjórnar-
skrárinnar og fjalla um breytingu
á fjárhæðum er varða áðurnefnt
frítekjumark. Segir þar: „Fjár-
hæðir annarra árstekna lífeyris-
þega en lífeyris almannatrygginga
(reiknaðrar leigu af eigin húsnæði
og tekna barna), sem ekki skerðir
rétt til uppbótar á lífeyri (tekju-
tryggingar):
Einstaklingur .......... 297.000
Hjón .................. 415.800“
Þá segir að með þessari hækkun
sé gert ráð fyrir að allir þeir, sem
höfðu tekjutryggingu á síðastliðnu
ári, haldi henni óskertri hafi
tekjur þeirra aðeins hækkað í
samræmi við launahækkanir og
verðlagsbreytingar á tímabilinu.
Kolmunni til Eskifjarðar ogNorðfjarðar
JÓN KJARTANSSON SU 111
kom til Eskifjarðar á sunnu-
dagsmorgun með 1200 tonn af
kolmunna sem skipið fékk á
Digranesflaki og er það fyrsti
kolmunnafarmurinn af íslands-
miðum í sumar. í gær kom
Börkur til Neskaupstaðar með
80 tonn af kolmunna en skipið
fór af miðunum vegna brælu.
Arnar KE og Albert GK, sem
gera tilraunir með tveggja báta
troll, komu til Neskaupstaðar á
sunnudagskvöld og verður nót-
in eitthvað löguð til, en bátarnir
fengu 100 tonna kast á miðun-
um á sunnudag en náðu engu.
Myndin sýnir Jón Kjartansson
kominn til Eskifjarðar með
fyrsta kolmunnafarminn.
Ljósm. Mbl.i Ævar.
Sumarið sjötiu og átta fannst
f gær á almanaki f höfuðborg-
inni — Þrátt fyrir allt er
sumarið komið og hændur
farnir að huga að heyskap.
Hann „Kolur" hér á myndinni
er fyrir sitt leyti ánægður með
tíðina þar sem hann flatmagar
í töðunni á Blikastöðum, en
enda þótt sláttur sé hafinn á
stöku stað. er útlit fyrir að
hann hefjist tveimur til þrem-
ur vikum síðar en venjulega,
víðast hvar á landinu. (Ljósm.
RAX.)
|Sjá viðtöl
á bls. 16 og 25]
Framleiðsluaukning sjávarafurða meiri en reiknað var með:
V erð jöfnunarsj óður að verða
uppurinn og stöðvun vofir yfír
Við áætlanir gleymdist að taka tillit til yfirvinnubanns í fyrra
ÞEGAR NYTT fiskverð var
ákveðið í byrjun júnímánaðar var
ákveðið að Verðjöfnunarsjóður
sjávarútvegsins héldi uppi hinu
nýja fiskverði. Reiknaðist mönn-
um svo til að sjóðurinn gæti
haldið uppi því verði, sem ákveðið
Kristján Eldjám forseti íslands:
Það fer að draga að þvi
að ég geri upp minn hug
„ÉG veit að flokkarnir eru að
ræða sín mál í dag og upp úr því
fer sjálfsagt eitthvað að gerast,"
sagði dr. Kristján Eldjárn forseti
íslands í samtali við Mhl. í gær.
Spurningu Mbl. um það hvort
hann hefði ákveðið frekari viðræð-
ur við formenn stjórnmálaflokk-
anna svaraði forsetinn á þá leið að
hann íhugaði málið en hefði ekki
tekið ákvörðun. „En það fer að
draga að því að ég geri upp minn
hug,“ sagði forsetinn.
var út júlímánuð, en nú hefur
komið í Ijós, að sjóðurinn er að
verða þorrinn og getur hann því
ekki haldið uppi verðinu öllu
lengur. Ástæður fyrir þessari
skekkju í áætlun á þeim tíma,
sem sjóðurinn entist, eru að í
reikningum var miðað við sama
tíma í fyrra, en vegna þess að þá
var yfirvinnubann, sem gleymd-
ist að taka tillit til, hefur
framleiðslan orðið meiri nú og
hefur fjármagnið því enzt skem-
ur.
Árni Benediktsson, fram-
kvæmdastjóri Sambands Sam-
bandsfrystihúsa, sagði í viðtali við
Morgunblaðið í gær að Verðjöfn-
unarsjóðurinn yrði upp urinn
einhvern tíma á næstu dögum,
fyrir miðjan þennan mánuð. Árni
kvað ástæður fyrir því að sjóður-
inn entist ekki eins og útreikning-
ar sögðu til um, er fiskverð var
ákveðið, vera vanmat í áætlun.
Þegar áætlunin var gerð, var
miðað við, hve mikil framleiðslan
var í fyrra og ekki gert ráð fyrir
að framleiðsluaukning yrði nú
miðað við sama tíma í fyrra. Hins
vegar gleymdist að taka tillit til
þess í fyrra að þá var yfirvinnu-
bann í maí og júní. Því er
framleiðslan nú verulega mikið
Framhald á bls. 26.
Allar takmarkanir milli
Glasgow og Kaupmanna-
hafnar yrðu okkur erfiðar
• •
— segir Orn Johnson forstjóri Flugleiða
FYRSTI viðræðufundur nefnd-
ar brezka flugmálaráðuneytisins
og íslendinga um flug á leið-
inni Glasgow —Kaupmannahöfn
verður í dag. Mbl. ræddi í gær
við Örn Johnson forstjóra Flug-
leiða um þessar viðræður. en Örn
Alþýðuflokkurinn stefn-
ir að nýsköpunarstjóm
Skiptar skoðanir innan Alþýðubandalagsins
Á flokksstjórnarfundi Alþýðu-
flokksins í gær varð niðurstaðan
sú að eina leiðin tii að koma fram
stefnumáli flokksins um kjara-
sáttmála væri ríkisstjórn þriggja
flokka Alþýðuflokks, Álþýðu-
handalags og Sjálfstæðisflokks
og að það yrði að vera verk
Alþýðufíokksins að leiða Alþýðu-
handalagið og Sjálfstæðisflokk-
inn saman til þeirrar ríkisstjórn-
ar. Fyrsta skrefið yrði að vera
viðræður við Alþýðuhandalagið
og var stjórn og þingflokki falið
að eiga slikar könnunarviðræður,
þar sem efnahags- og kjaramál
yrðu sett á oddinn en einróma var
samþykkt að ekki kæmi til greina
að flokkurinn hvikaði frá yfirlýs-
ingum si'num í utanríkismálum.
Á fundi þingflokks og fram-
kvæmdastjórnar Alþýðubanda-
lagsins í gær var ákveðið „í
samræmi við óformlegar viðræð-
ur formanna Alþýðubandalagsins
og Alþýðuflokks að taka upp
viðræður við Alþýðuflokkinn um
þá stöðu sem upp er komin og
framgang vinstri stefnu" að því
er Lúðvfk Jósepsson formaður
Alþýðubandalagsins sagði Mbl. í
gærkvöldi.
Af hálfu Alþýðuflokksins verður
í þessum könnunarviðræðum við
Alþýðubandalagið lögð áherzla á
myndun ríkisstjórnar til að leysa
efnahags- og kjaramálin en að
lögð verði til hliðar mál sem
ágreiningur er um eins og utanrík-
Framhald á bls. 26.
kvaðst ekkcrt vilja láta hafa eftir
sér um viðræðurnar.
Örn sagði að Flugfélag íslands
hefði byrjað flug milli Glasgow og
Kaupmannahafnar fyrir 33 árum
og undanfarin 11 ár hefðu áætlun-
arferðir verið þrisvar í viku. Fyrir
5—6 árum hefði SAS byrjað að
fljúga mllli Glasgow og Kaup-
mannahafnar 4 sinnum í viku á
þeim dögum sem Flugfélagið
flýgur ekki. 1. apríl sl. hóf British
Airways svo flug á þessari leið
sömu daga og áætlunarferðir
Flugfélagsins falla á og í vor hóf
British Caledonia flug milli Edin-
borgar og Kaupmannahafnar.
„Við teljum," sagði Örn, „að án
þeirra fullu réttinda, sem við
höfum haft til að flytja farþega
milli Glasgow og Kaupmanna-
hafnar verði mjög erfitt fyrir
okkur að halda uppi ferðum til
Skotlands en áætlunin hjá okkur
er Keflavík—Glasgow—Kaup-
mannahöfn og öfugt.
Umferðin milli íslands og Skot-
lands ein yrði tæpast nóg til að
standa undir þessari flugleið og
allar takmarkanir milli Glasgow
og Kaupmannahafnar yrðu okkur
erfiðar."
Framhald á hls. 26.