Morgunblaðið - 11.10.1978, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.10.1978, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 1978 GUÐMUNDUR G. IIAGALÍN rithöfundur hélt upp á 80 ára afmæli sitt á Þingvöllum í gær með vinum og vandamönnum. Boðið var upp á kaffi og meðlæti í Þingvallabænum þar sem skáldið hefur dvalið undanfarna daga, en á myndinni er skáldiö ásamt eiginkonu sinni Unni Hagalín, börnum og barnabörnum og öðrum vinum og ættingjum. Afmælisbarninu barst mikill fjöldi heillaóskaskeyta. ISAL: Kanna vaxtalækkun og gengistryggð afurðalán „ÞAD ER ekkert ákveðið varð- andi vaxtala’kkun annað en það sem stendur í samstarfsyfirlýs- ingu ríkisstjórnarinnar." sagði Jóhannes Nordal seðlabanka- stjóri í samtali við Mbl. í gær þegar innt var eftir fréttum þar að lútandi. Jóhannes kvað hafa verið rætt um lækkun á vöxtum afurða- lána þar sem um leið væri veriö að athuga með gengistryggingu á afurðalánum. Þá kvað hann einnig hafa verið rætt um það að verðbólguþáttur almennra vaxta yrði að einhverju leyti fjármagn- 99 Yfirlýsing hans, en þing sjómanna hlýt- ur að taka afetöðuna” aður þannig að hann dreifðist yfir lánstímann. Kvað seðlabanka- stjóri sérstakan starfshóp á vegum bankanna vera að vinna að þessum málum. Aðspurður sagði Jóhannes að gengistrygging afurðalána auð- veldaði að vissu leyti möguleika á að hleypa erlendum lánum til rekstursins, en hins vegar kvað hann margt spila þar inn í, m.a. hvort ástæða væri til að auka erlendar skuldir og hvaða áhrif slíkt hefði á peningaframboð í landinu o.fl. o.fl. segir Snorri Jónsson hjá ASÍ um YJ árekstrar viðbrögð sjómanna við beiðni ASÍ Morgunblaðið hafði í gær sam; band vð Snorra Jónsson hjá ASÍ og innti hann álits á þeim ummælum sem taismenn sjómanna' hafa viðhaft. að þeir muni ekki fallast á að fresta uppsögn kjarasamninga um eitt ár eins og stjórn ASÍ hefur lagt til við aðildarfélög sín. „Til þess að fyrirbyggja mis- skilning vil ég taka fram,“ sagði Snorri, „að við höfum alltaf tekið það fram, að félögin í ASI hafa sjálf ákvörðunarréttinn í þessum málum. Forystumaður samtaka sjómanna hefur sjálfsagt sagt þetta í tilefni af fiskverðs- ákvörðuninni og það er skiijanlegt að því leyti að kjör fiskimanna mótast af því annars vegar og kauptryggingu hins vegar. Þetta er yfirlýsing hans, en Sjómanna- sambandið heldur þing í Re.vkja- vík 27. þ.m. og þá leggur hann afstöðu sína ugglaust fyrir það, en það hlýtur að taka afstöðu til þess sem gera skal.“ Snorri kvað einnig ástæðu til þess að vekja athygli á því að ákvörðun ASI í sambandi við afturköllun á uppsögnum samninga væri gerð með ákveðn- um skii.vrðum. Miðað væri við framlengingu samninganna frá 1. 25% Húsvíkinga á skólabekk Ilúsavík 10. okt. — Skólarnir, Barnaskólinn, Gagnfræðaskólinn, Tónlistarskólinn og Iðnskólinn, hafa tekið til starfa og eru nemendur 650 í vetur. Kennarar eru ekki færri en 35. Það mun ekki vera langt frá lagi að 25'J bæjarbúa sitji á skólabekk þennan vetur. — Fréttaritari. des. n.k. til 1. des. 1979 með þeim skilyrðum m.a., að kaupmáttur vrði á engan hátt skertur miðað við það sem var stefnt að í júnísamkomulaginu 1977, áherzla var lögð á að allar aðgerðir stjórnvöld tryggðu fulla atvinnu í landinu, að samráð yrðu höfð við verkalýðshreyfinguna í iandinu um félagslegar aðgerðir t.d. varð- andi efnahagsaðgerðir, skattamál og niðurgreiðslu vöruverðs. SAUTJÁN árekstrar urðu í Reykja- vík í gær frá morgni til kl. 19, en ekki urðu nein slys á mönnum. Sagði lögreglan að flestir eða 11 hefðu orðið á tímabilinu kl. 12—17, en hrinan , sem oft kæmi milli kl. 17 og 18, hefði ekki komið að þessu sinni. Tveir árekstrar urðu í Kópavogi og lentu þrír bílar í öðrum þeirra og skemmdust þeir allmikið. 1 Hafnar- firði varð eitt óhapp, er bíl var bakkað á kyrrstæðan bíl og einn árekstur varð í Mosfellssveit. Raforkuverð hækkar um 4% „Hækkandi álverð gefur von um hagstæð- ari þróun,” segir Ragnar Halldórsson „SKRÁÐ álverð er á uppleið en síðan 20. sept. hækkaði það úr 53 sentum pundið í 56 sent og þetta er út af fyrir sig ánægjuleg þróun. en frajlsa markaðsverðið er ekki komið upp fyrir. 50 sent ennþá," sagði Ragnar Halldórs- son forstjóri Álverksmiðjunnar í samtali við Mbl. í gær. „Þetta er í áttina,“ sagði Ragnar og gefur vísbendingu um hagstæð- ari þróun í þá átt að frjálsa markaðsverðið fari hækkartdi. Það er þó aðeins fyrirtækið Alcan sem hefur tilkynnt þetta verð, en þetta þýðir að raforkuverð til ÍSALSfrá rafmagnsveitunum hækkar um 4%.“ Ragnar kvað álverðið hafa verið á uppleið undanfarna mánuði og eftirspurn eftir áli kvað hann hafa veriö ágæta. Þó eru til nokkrar umframbirgðir af áli á heims- markaðinum í dag eða um 500 milljón tonn og veldur það m.a. því að verð hækkar seinna. Þó er um mun minni birgðir að ræða en s.l. haust er umframbirgðir voru um 2000 milljónir tonna. Tilboð í flutninga ákveðið á föstudag VERIÐ er aö kánna þau 12 tilboð sem Járnblendifélaginu bárust í flutninga fyrir vcrksmiðjuna, en auk 5 ísl. tilboða og 4 erlendra sem beðið var um bárust einnig þrjú önnur tilboð. Jón Sigurðsson for stjóri Járnblendifélagsins sagði í samtali við Mhl. í gær, að ákvörðun í málinu yrði tekin fyrir föstudag. Þá sagði Jón að um þessar mundir væri verið að rannsaka skemmdir á botnstykkinu undir uppskipunar- krana verksmiðjunnar en það féll út af flutningaskipi á leið til Islands og fannst síðan nokkrum dögum seinna á floti. Botnstykkið vegur tugi tonna, en þegar til kemur á að steypa í það og endursmíða þarf hluta af því þar sem sjór sem í það komst veldur tæringu. Verður gripurinn endur- smíðaður að hluta í Árósum. -s-- Samninganefnd byrjar stefnumótun „VID ERUM andvígir vísitöluþaki, en við vissum strax í sumar um þá afstöðu meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur að halda við samþykkt sína um óskertar verðbætur á laun frá og með áramótum þrátt fyrir væntanleg bráðabirgðalagaákvæði um vísitöluþak," sagði Kristján Thorlacius, formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, er Mbl. spurði hann í gær um afstöðu handalagsins til þess að Björgvin Guömundsson hefur nú lýst því yfir á borgarstjórnarfundi að ekki séu uppi neinar ráðagerðir um að víkja ,frá samþykkt borgarstjórnar 15. júní sl. um óskertar verðbætur á laun frá áramótum þrátt fyrir bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar frá því í september sl. Kristján sagði að þessi afstaða önnur stéttarfélög búa við,“ sagði borgarstjórnar hefði verið ljós, þegar formannaráðstefna BSRB var haldin 29. ágúst sl. en þar var samþykkt með 48 atkvæðum gegn 1 að stjórn BSRB skyldi beita sér fyrir samningum við ríkisvaldið um fram- lengingu gildandi kjarasamninga til 1. desember 1979 án áfangahækkun- ar 1. apríl. „Við höfum fyrirheit ríkisstjórnarflokkanna um að af- numinn verði 2ja ára gildistími samninga og kjaranefndarákvæði og að samningsréttarlögunum verði breytt til samræmis við það, sem Kristján. „Þessu viljum við að verði lokið fyrir áramót og þá erum við reiðubúnir til samninga um fram- iengingu kjarasamninganna." Mbl. spurði Kristján hver yrði afstaða BSRB í þeim viðræðum til vísitölumálsins og svaraði hann því til að samninganefnd BSRB myndi koma saman á fimmtudag og byrja á stefnumörkun varðandi stefnuna í samningamálunum. „Sem stendur get ég því ekkert annað en vitnað til þessarar samþykktar formannaráð- stefnunnar," sagði Kristján. Samband ísl. sparisjóða: V ara við setningu flókinna reglna um útlán og vexti SAMBAND íslenskra sparisjóða, sem er samband þeirra 43 sparisjóða, er starfa í landinu. hélt sl. laugardag aðalfund sinn og urðu miklar umræður um útlánareglur og vaxtamál á fundinum, þar sem m.a. var varað við að settar yrðu þannig reglur um útlán að hætta væri á að almenningur í landinu gæti ekki áttað sig á þeim til hlítar. „Við óttumst að upp verði tcknar flóknar reglur um útlán og vexti, sem komi til með að rýra það traust, sem viðskiptavinir innlánsstofnana eiga að hafa á þeim stofnunum. Það má ekki verða einungis á færi sérfræðinga að reikna út hvaða arð fólk fær af sparifé sínu eða hvað það á að greiða af lánum sínum," sagði Baldvin Tryggvason, sparisjóðsstjóri í Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis og formaður Sambands fsl. sparisjóða á hlaðamannafundi, sem sambandið efndi til í gær. Stjórnarmenn Sambands ísl. sparisjóða, sem voru á blaðamanna- fundinum, voru spurðir álits á þeim hugmyndum um breytingar á vaxta- málum, sem nú eru til meðferðar í bankakerfinu og hjá ríkisstjórn, sem m.a. gera ráð fyrir að breyta vaxtakerfinu á þann hátt að verð- bótaþáttur vaxta leggist ofan á höfuðstól lána. Baldvin Tryggvason sagði, að ef slíkar reglur kæmu til framkvæmda gæti orðið mjög torvelt fyrir viðskiptavini bankastofnana að gera sér grein fyrir því hvað þeir ættu að greiða hverju sinni af lánum. Um það hvort almennt væri heimilt að gera svo gagngera breyt- ingu á kjörum þeirra lána, sem þegar hefðu verið veitt, sagði Baldvin að hann teldi að varðandi skuldabréf og vaxtaaukalán hlyti að verða að miða við það orðalag, sem væri í bréfunum og breytingu sem þessari yrði ekki komið fram nema með samþykki lántaka og þeirra, sem ættu veð i þeirri eign, sem stæði til tryggingar láninu. Forsvarmenn Sambands ísl. spari- sjóða lögðu á það áherslu að nauðsynlegt væri að vinda að því bráðan bug að tryggja verðgildi sparifjárinnstæðna, því á undan- förnum árum hefði sparifé landsmanna farið sífellt minnkandi í hlutfalli við þjóðarframleiðslu. Vitnaði formaður sambandsins í þessu sambandi til orða Inga Tryggvasonar, fyrrverandi alþingis- manns og eins stjórnarmanna í sambandinu, á aðalfundi þess, að sparifé landsmanna væri geymt vinnuafl. Þetta fé hefði brunnið upp í verðbólgunni, sem sæist hvað best á því að árið 1970 hefði heildarspari- fjáreign landsmanna í innláns- stofnunum verið 40% af þjóðarfram- leiðslunni en miðað við áramótin 1977 hefði spariféð verið 42,5 millj- örðum lægra heldur en það hefði átt að vera miðað við sama hlutfall af þjóðarframleiðslu og sparifjárinn- stæðu 1970. Heildarsparifjárinn- stæður við áramót 1977 í innláns- stofnunum voru 99,2 milljarðar. „Ástæða þessa er auðvitað sú að raunvextir hafa ekki verið í sam- ræmi við verðbólguna," sagði Bald- vin. „Við teljum að lánsféð sé ekki of dýrt, þegar menn þurfa ekki að skila jafn miklu aftur,“ sagði Ingvi Tryggvason, einn stjórnarmanna sambandsins, og bætti við: „Þá er það eitthvað annað sem sligar atvinnuvegina."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.